Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.9. 2013
Markmið eru skemmtilegt fyrir-
bæri. Ef rýnt er í sjálfshjálpar-
bækur, leiðtogafræði eða önnur
fræði sem ætlað er að leiða okkur í
allan sannleika um eigið ágæti okk-
ar má sjá að víða er talað um mikil-
vægi þess að setja sér markmið.
Ingjaldur Hannibalsson setti sér
það markmið fyrir margt löngu að
ná að heimsækja öll lönd Samein-
uðu þjóðanna og er langt kominn
með að ná því. Aðeins tíu lönd skort-
ir upp á.
Linda Pétursdóttir ræðir um hið
verðuga markmið að vera ærleg
manneskja og koma jafnt fram við
dýr og menn.
Sagan af tvíburunum Ísak og
Samúel er sögð í viðtali í blaðinu í
dag, en kristniboðinn Karl Jónas
segir frá því þegar hann var réttur
maður á réttum stað og gat forðað
fjögurra daga drengjunum frá því
að verða bornir út. Fjölskylda
þeirra í Eþíópíu taldi víst að þeim
fylgdi bölvun og þeir þyrftu því að
deyja. Karl Jónas hafði engin sér-
stök markmið í sinni för til Eþíópíu í
þetta sinn önnur en að hjálpa þeim
sem þyrftu á hjálp að halda. Þegar
nýfæddir drengir þurftu á honum
að halda gat hann rétt út höndina og
séð til þess að þeir fengju að lifa –
og í framtíðinni setja sér sín eigin
markmið.
Þegar haustar förum við gjarnan
af stað með háleit markmið. Nú skal
farið í átak! Málum verður ekki
lengur slegið á frest, geymslan skal
skipulögð hátt og lágt, mataræðið
tekið í gegn og heilsuræktin tekin
föstum tökum.
Þegar við setjum okkur markmið
sem ganga út á að „taka nú almenni-
lega á því“ viljum við þó oft gleyma
okkur í smámálum, hvort sem það
eru kíló eða kassar í geymslu. Stóru
málin – verðugu markmiðin – eins
og að ákveða að koma vel fram við
aðra, sýna kurteisi í búðinni, brosa
til vagnstjórans í strætó eða hjálpa
þeim sem þurfa eiga það til að týn-
ast. Prófum að setja okkur bara
markmið um að brosa meira í haust-
húminu. Þá birtir til.
RABBIÐ
Markmið um bros
Eyrún Magnúsdóttir
Allt fram streymir endalaust, eins og segir í kvæðinu, og ár og dagar líða. Hrímkalt haust er í uppsiglingu og kvíða margir vetri. En veturinn er ekki kom-
inn og nú ber að njóta áður en kuldinn skellur á af fullum þunga. Haustið er tími breytinga þegar ný árstíð heldur innreið sína í lífið hér á norðurhveli
jarðar. Skólar byrja á ný, sumarfríin klárast og margir setja sér ný og betri markmið í lífinu. Líkamsræktarstöðvar fyllast af fólki með fögur fyrirheit. Grill-
mat er skipt út fyrir soðna ýsu og kartöflur og hjá mörgum er þetta tími hversdagsleikans. En hversdagsleikinn þarf ekki að vera slæmur. Nú er um að
gera að drífa sig í berjamó og sulta fyrir veturinn. Á kvöldin þegar rökkva tekur er gott að skella sér í göngutúr og ræða lífið og tilveruna. Koma heim
með kaldar kinnar, setja börnin í háttinn, kveikja á ljúfri tónlist og kveikja á kertum. Því nú er loks tími kertaljósanna genginn í garð. asdis@mbl.is
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/RAX
TÍMI KERTALJÓSANNA
SUMARIÐ ÞARF NÚ AÐ LÁTA Í MINNI POKANN FYRIR HAUSTINU OG RIGNINGIN HANGIR Í LOFTINU. ÞÁ ER UM AÐ
GERA AÐ NJÓTA ÞESS AÐ GANGA SAMAN HÖND Í HÖND Í MIÐBÆNUM OG ANDA AÐ SÉR HREINA LOFTINU.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Dýrin í Hálsaskógi.
Hvar? Þjóðleikhúsið.
Hvenær? Sunnudag 1. september kl.
14:00.
Nánar: Sívinsælt leikrit Thorbjörns Eg-
ners í bráðskemmtilegri nýrri uppfærslu.
Leikhús
Hvað? Afmælistón-
leikar, fram koma
Baraflokkurinn, Skrið-
jöklar, 200.000 nagl-
bítar og Hvanndals-
bræður.
Hvar? Í Gilinu, Akureyri.
Hvenær? Kl. 21.00.
Afmælistónleikar
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? Sýning á mörkum
myndlistar og arkitektúrs.
Hvar? Hafnarborg, Hafn-
arfirði.
Hvenær? Opnuð 30.
ágúst.
Nánar: Verkin eru eftir
myndlistarmennina og arkitektana Elínu
Hansdóttur, Ilmi Stefánsdóttur, Marcos
Zotes og Theresu Himmer.
Vísar – húsin í húsinu
Hvað? Breiðablik –
Fylkir.
Hvar? Kópavogs-
völlur.
Hvenær? Sunnudag
1. september kl.
18:00.
Nánar: Breiðablik mætir Fylki í Pepsi-
deild karla í knattspyrnu.
Fótbolti
Hvað? Tónleikar með Retro Stefson.
Hvar? Græni hatturinn (Akureyri).
Hvenær? Laugardag 31. ágúst kl.
22:00.
Nánar: Ein vinsælasta hljómsveit lands-
ins kemur fram í Græna hattinum. 18
ára aldurstakmark.
Tónleikar
Hvað? ÁLFkonur setja upp ljós-
myndasýningu.
Hvar? Í gluggum Sýslumannshússins við
Ráðhústorgið á Akureyri.
Hvenær? Helgina 31. ágúst til 2. sept-
ember.
ÁLFkonur
* Forsíðumyndina tók Ásta Kristjánsdóttir