Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Qupperneq 11
1.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11
uppboð á reiðhjólum, sem ratað
hafa í óskilamunadeild lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta
er árviss viðburður sem jafnan hef-
ur verið vel sóttur. Á þessu ári
voru boðin upp 105 reiðhjól og sjö
barnavagnar og voru gripirnir
seldir hæstbjóðanda.
Stutt er síðan grunnskólar lands-
ins hófust en á hverju skólaári
hrúgast upp óskilamunir sem eng-
inn veit hver á. Gott ráð til að
komast hjá því að fötin, húfur og
vettlingar týnist er að merkja það
vel. Hægt er að nálgast merkimiða
hjá ýmsum aðilum og má þá helst
nefna rogn.is sem hefur selt
nafnaborða til að merkja föt frá
árinu 1983. Meðal óskilamuna í
Háteigsskóla að vetrinum loknum
2007-2008 voru 152 húfur, 78
íþróttapokar, 18 hettupeysur, 50
bolir, 23 flíspeysur, 41 úlpa, 42
handklæði og 30 nestisbox. Hátt á
fimmta tug grunnskóla er í
Reykjavík. Því er næsta víst að
verðmæti óskilamuna í þeim öllum
nemur einhverjum milljónum króna
og þá á eftir að taka landsbyggðina
með.
Skildu eftir kornabarn
Á ferðasíðum veraldarvefsins má
sjá það skrýtnasta sem fólk hefur
skilið eftir á ferðalögum sínum um
heiminn. Reglulega birta hótel
einnig slíka lista. Þar má sjá að Ís-
lendingar eru ekkert betri eða
verri en aðrar þjóðir. Meðal muna
sem gestir hafa gleymt á her-
bergjum sínum eru kornabarn,
glerauga, ferðataska full af skart-
gripum, gullhálsmen sem metið er
á hálfa aðra milljón króna en með-
al furðulegri óskilamuna var
tveggja metra há fjarstýrð leik-
fangaþyrla. Þá má sjá að fólk hefur
skilið eftir hunda og önnur gælu-
dýr, gervitennur, fartölvur, gervi-
fætur, giftingahringa (hugsanlega
viljandi) og verk eftir Leonardo Da
Vinci. benedikt@mbl.is
Sundgleraugu af ýmsum gerðum má finna í kjallara Laugardalslaugar. Það er margt sem fólk skilur eftir eftir góðan sundsprett. Úlpur og annar hlífðarfatnaður án eiganda.
* „Ef enginn kem-ur og vitjar umþetta þá er þetta sent
til líknarfélaga. Rauði
Krossinn, Kvenna-
athvarfið og önnur
slík starfsemi nýtur
góðs af gleymskunni.“