Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.9. 2013
Ferðalög og flakk
E
yjan Phu Quoc stefnir hrað-
byri í að verða einn af vin-
sælustu áfangastöðum Ví-
etnam, en er enn að miklu
leyti ósnortin, að sögn Heiðdísar.
„Í nýjustu ferðabókunum sem við
lásum var fólk eindregið hvatt til
þess að drífa sig að heimsækja
þessa paradísareyju áður en hún
yrði massatúrismanum að bráð.“
Þegar þau könnuðu gistimögu-
leika á Phu Quoc rákust hjónin
aftur og aftur á frábær meðmæli
með stað sem kallaðist „Freedom-
land“. Staðsetningin virtist samt
hálf ómöguleg, langt inni í frum-
skógi og ströndin heillaði meira;
þarna var ekkert heitt vatn, engin
loftkæling, ekkert sjónvarp. Bara
nokkrir „kofar“ og sameiginleg að-
staða fyrir gesti til að borða, lesa
eða komast á netið sem var í boði
þrátt fyrir allt. En staðurinn fékk
frábæra dóma gesta og eitt af því
sem mikið var nefnt var hve góður
maturinn væri.
Eigendur Freedomland eru víet-
namskur kokkur kallaður Peter og
portúgölsk vinkona hans. Þeirra
draumsýn var að byggja þarna
upp ódýran stað án þess að raska
umhverfinu; stað þar sem fólk
kæmi til þess að slaka á í faðmi
náttúrunnar, kynnast öðrum ferða-
löngum og borða góðan mat.
Eruð þið alveg viss?
Við ákváðum að slá til og panta
gistingu í 5 nætur,“ segir Heiðdís.
Svarið sem við fengum frá eigand-
anum kom svolítið á óvart, „því
hún varaði okkur við að þetta væri
alls ekki fyrir alla; hvort við vær-
um alveg viss um að þetta væri
fyrir okkur. Við erum reyndar vön
því á ferðalögum okkar að gista til
skiptis á einföldum, ódýrum stöð-
um og fínni, dýrari og reynsla
okkar er sú að eftir því sem
minna sem lagt er upp úr útliti og
nútíma þægindum því afslappaðra
er andrúmsloftið og þar finnur
maður oftar fólk sem er til í að
deila sinni ferðareynslu og kynn-
ast öðrum ferðalöngum. Slíka
stemmingu verður maður síður var
við á fínni hótelum.“
Aldrei borðað jafn vel!
Kofinn sem þau fengu var á
tveimur hæðum. Svefnaðstaða og
verönd á efri hæðinni og útisturta
og baðherbergi á neðri hæðinni.
„Sturtan var kókoshneta sem í
höfðu verið boruð nokkur göt og
fleira í slíkum dúr en allt mjög
EFTIRMINNILEG FERÐALÖG
Á vit ævintýranna
HJÓNIN HEIÐDÍS SMÁRADÓTT-
IR OG ARNAR FREYR JÓNSSON
HAFA FERÐAST TÖLUVERT. HÉR
SEGIR AF BRÚÐKAUPSFERÐ
ÞEIRRA TIL ZANZIBAR ÁRIÐ
2007 OG DVÖL Á EYJUNNI
PHU QUOC Í VÍETNAM Á
FERÐALAGI ÞEIRRA UM SUÐ-
AUSTUR-ASÍU VORIÐ 2012.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Kvöldstund á helstu túristaströnd eyjarinnar Phu Quoc við Víetnam.
Heiðdís og Arnar Freyr uppi á brún Ngorongoro-gígsins í Tanzaníu.
Frá Kendwa-strönd á Zanzibar.
Konur tína þara
í Zanzibar.
HÚSGAGNAHÖLLIN • B í l d s h ö f ð a 2 0 • R e y k j a v í k • OP I Ð V i r k a d a g a 1 0 - 1 8 , l a u g a r d . 1 1 - 1 7 o g s u n n u d . 1 3 - 1 7 O
REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI I | REYKJ
109.990
FULLTVERÐ: 119.990
AROS La-z-boy stóll. Grátt, brúnt
eða ljóst ákæði. B:85 D:90 H:107 cm.
ANDERSON La-z-boy stóll.
Áklæði tveir litir. B:80 D:80 H:104 cm.
79.990
FULLTVERÐ: 99.990
UTAH La-z-boy stóll. Áklæði
tveir litir. B:78 D:75 H:103 cm.
59.990
FULLTVERÐ: 89.990
SUMMIT La-z-boy stóll. Svart og
hvítt leður. B:80 D:95 H:10 cm.
169.990
NÝR LA-Z-BOYSTÓLL
NÝTT
«
«
NÝTT
«
«