Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.9. 2013
V
ægir heilaáverkar geta haft þrálátar
afleiðingar. Jónas G. Halldórsson
sérfræðingur í klínískri taugasál-
fræði segir að vægasta form heila-
áverka sé heilahristingur, sem einkennist af
tímabundnum einkennum, svo sem höf-
uðverk, ógleði, svima, ruglástandi eða skertri
meðvitund. „Vísbendingar um alvarlegri
heilaáverka eru t.d. tíma-
bundið meðvitundarleysi,
minnisleysi gagnvart því
sem gerðist, heilamar eða
blæðingar í heila. Heila-
hristingur er algengasta
form heilaáverka. Sem betur
fer er bati yfirleitt góður
eftir heilahristing og ein-
kenni hverfa á nokkrum
dögum eða vikum. Meðan
bataferlið stendur yfir er heilinn hins vegar
sérstaklega viðkvæmur fyrir líkamlegu og
andlegu álagi og fyrir öðrum vægum heila-
áverka. Stundum valda vægir heilaáverkar
þrálátum einkennum sem há einstaklingnum
á ýmsan hátt í lífi og starfi. Sem dæmi um
einkenni til lengri tíma má nefna höfuðverk,
þreytu, einbeitingar- og minniserfiðleika,
hvatvísi, aðlögunarerfiðleika og vanlíðan.“
Ungt fólk fær frekar heilaáverka
Rannsóknarhópur Jónasar náði til allra
barna og unglinga 0-19 ára, sem greind voru
með heilaáverka á tímabilinu frá 15. apríl
1992 til 14. apríl 1993. Alls voru það 550 ein-
staklingar, sem voru greindir með heila-
áverka á þessu eins árs tímabili. Jónas hefur
fylgt þessum hópi eftir með endurteknum at-
hugunum undanfarin 20 ár. Árið 2008 valdi
Jónas samanburðarhóp úr Þjóðskrá, liðlega
1.200 einstaklinga. Jónas byggir því nið-
urstöður sínar á tveimur þjóðarúrtökum, sem
er einsdæmi í rannsóknum á heilaáverkum.
Hann vill þakka öllum þátttakendum í rann-
sókninni frá upphafi rannsóknarstarfsins,
sem hann segir að hafi lagt sitt af mörkum
til fræðanna af velvilja og ósérhlífni. „Í svör-
um við spurningalistanum kom m.a. fram að
um helmingur þátttakenda kvaðst hafa hlotið
heilahristing eða alvarlegri heilaáverka ein-
hvern tíman á lífsleiðinni. Þetta er hærra
hlutfall en lýst hefur verið í fyrri rann-
sóknum á almennum þýðum. Rannsókn á
hópi ungs fólks í Christchurch á Nýja Sjá-
landi, sem fylgt var eftir frá fæðingu, leiddi í
ljós að við 25 ára aldur höfðu 32% þátttak-
enda hlotið læknisfræðilega staðfestan heila-
áverka. Gera má ráð fyrir að fleiri hafi hlotið
heilaáverka, en ekki leitað til læknis vegna
þess. Algengi heilaáverka getur verið hærra í
sérstökum áhættuhópum. Rannsókn gaf til
kynna að í hópi háskólanema, sem kepptu í
boltaíþróttum fyrir bandaríska háskóla,
hefðu 63-70% hlotið heilaáverka. Niðurstöður
þessara rannsókna sýna hve algengir heila-
áverkar eru meðal ungs fólks.
Fall er algengasta orsökin
hjá ungum börnum
En hverjar eru helstu orsakir heilaáverka?
„Fall, oft í heimahúsum, reyndist algengasta
orsök heilaáverka í yngstu aldurshópunum,
en heilaáverkar af völdum óviljahöggs í leik
eða íþróttum og heilaáverkar tengdir hest-
um, hjólum og vélknúnum ökutækjum og
umferð urðu algengari með aldri. Vægir
heilaáverkar voru algengastir í yngsta ald-
urshópnum 0-4 ára. Niðurstöðurnar gefa til
kynna mikilvægi þess að huga vel að yngstu
börnunum, gæta þeirra og leitast við að hafa
umhverfi þeirra sem öruggast. Það er erf-
iðara að átta sig á alvarleika heilaáverka hjá
ungum börnum en þeim sem eldri eru. Það
er því mikilvægt að fara með þau til læknis
eftir höfuðhögg og að fylgjast með mögu-
legum afleiðingum. Fyrirbyggjandi aðgerðir
og öryggisbúnaður, svo sem hjálmar, bíl-
stólar og öryggisbelti, skipta miklu. Einnig
er mikilvægt að bregðast rétt við þegar börn
og unglingar hljóta heilaáverka, t.d. við fall
eða í íþróttum.“
Um 7% ungs fólks á fullorðinsaldri takast
á við afleiðingar heilaáverka.
Heilaáverkar eru taldir vera ein helsta or-
sök sjúkleika og hömlunar meðal ungs fólks
á Vesturlöndum. „Áætlað hefur verið að
0.3-2% þjóða takist á við hömlun af völdum
heilaáverka. Doktorsrannsóknin bendir til
þess að þetta hlutfall kunni að vera mun
hærra. Í ljós kom að um 7% þátttakenda í
þýðinu sem valið var úr Þjóðskrá árið 2008
lýsti einkennum af völdum heilaáverka sem
samrýmdust miðlungs hömlun. Þessi 7%
þátttakenda lýstu einkennum í daglegu lífi,
sem háðu þeim á ýmsan hátt við nám, leik,
störf og samskipti. Þetta eru einkenni sem
sjást ekki utan á einstaklingum, en geta
dregið úr hæfni þeirra til að takast á við
flókið nám og störf. Niðurstöðurnar benda til
þess að heilaáverkar á ungum aldri sem leiða
til miðlungs hömlunar sé áhyggjuefni fyrir
hugræna heilsu og hafi áhrif á líf margra
einstaklinga og fjölskyldna þeirra.
Þyngd höfuðhöggs spáði best fyrir
um alvarleika til lengri tíma
Jónas segir að það mikilvægt að meta alvar-
leika heilaáverka barna og unglinga og bata-
horfur á sem nákvæmastan hátt á bráðadeild
eða við innlögn á sjúkrahús. „Snemmtæk
markviss íhlutun flýtir fyrir bata og dregur
úr líkum á afleiðingum til lengri tíma. Það
getur hins vegar verið erfitt að meta alvar-
Betur fór en á horfðist í leik Breiðabliks við KR þegar Elfar Árni Aðalsteinsson hlaut slæmt höfuðhögg.
VÆGIR HEILAÁVERKAR GETA HAFT LANGVINNAR AFLEIÐINGAR
Um 50% ungra Íslendinga á
fullorðinsaldri hafa hlotið heilaáverka
UM 7% UNGS FÓLKS Á FULLORÐINSALDRI TAKAST Á VIÐ AFLEIÐINGAR
HEILAÁVERKA. HEILAÁVERKAR ERU TALDIR VERA EIN HELSTA ORSÖK
SJÚKLEIKA OG HÖMLUNAR MEÐAL UNGS FÓLKS Á VESTURLÖNDUM.
Unnur Hrefna Jóhannsdóttir uhj@simnet.is
Jónas G.
Halldórsson
408 börn og unglingar greindust með
heilaáverka í Reykjavík 1992-1993
Heima við 127 19 2 3
Utan heimilis 52 59 78 41
Vélknúið ökutæki 4 4 7 12
Alls 183 82 87 56
0-4 ára 5-9 ára 10-14 ára 15-19 ára
Wang Menglin notar tangir til að halda
flugunum og láta þær stinga á rétta staði.
AFP
Rúmlega 27 þúsund manns hafa þegar nýtt sér
flugnastungumeðferðina sem læknastofa
Wang Menglin í Peking býður upp á. Býflugum
er þar beitt og fær sjúklingurinn fjölmargar
stungur í sig, sem er eins og flestir vita ákaflega
sársaukafullt. Eiga stungurnar að slá á sjúk-
dóma og veikindi. Flugurnar gefa frá sér eitur
þegar þær stinga og er trúað á lækningamátt
þess í Kína. Vestrænar læknavefsíður kvitta
ekki undir töframátt býflugnanna og segja að
þessi læknavísindi séu ekkert annað en plat.
„Við höldum um hausinn á flugunum með
töng og miðum á svæðið þar sem sjúkling-
urinn þjáist. Flugan stingur og deyr á eftir,“
segir Wang en flugurnar sem hann notar eru
af ítölskum uppruna. „Við höfum sinnt sjúk-
lingum sem hafa verið með liðagigt og upp í
krabbamein. Allar niðurstöður hafa verið já-
kvæðar. En við notum þetta bara á neðri hluta
líkamans,“ bætir Wang við.
Vefsíðan sciencebasedmedicine.org segir að
meðferðin sé ekkert annað en peningaplokk
og skelfilegt sé að hugsa til þess að jafnvel
dauðvona sjúklingar fái einhverja von þegar
hún er engin.
„Það er engin vísindaleg sönnun fyrir að
svona stungur virki,“ segir í umfjöllun síðunnar
um málið. Krabbameinssamtök Bandaríkjanna
taka undir þetta álit. „Það eru engar vísinda-
legar sannanir að manneskja geti læknast af
þessum stungum. Að treysta einungis á svona
meðferð og fresta hinum hefðbundnu lækna-
vísindum getur orsakað meiriháttar tjón fyrir
heilsu sjúklings.“
Einn af sjúklingum Wang sagðist vera með
heila- og lungnakrabbamein. Læknar höfðu
sagt við hann að hann ætti eitt ár eftir. Þetta
var sagt við hann fyrir þremur árum og þakkar
hann flugunum og broddi þeirra fyrir aukinn
tíma hér á jörð.
KÍNVERJAR FARA NÝJA LEIÐ
Býflugnameðferð slær í gegn
Meðferðin sem Menglin býður upp á er sárs-
aukafull. 27 þúsund sjúklingar segja hana virka.
Heilsa og hreyfing