Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Page 51
1.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
um að hugsa vel um mig. Ég er að fara
áfram, ekki aftur á bak. Með góðri heilsu
verður útlitið betra. Vellíðan mín byggist á
ákveðnum hlutum eins og hollu mataræði,
reglulegri hreyfingu og hugleiðslu. Þetta er
grunnurinn að því að ég geti tekist á við
viðfangsefni lífsins, eins og til dæmis liða-
gigt sem ég er með á háu stigi. Það að
hugsa vel um mig skiptir því miklu máli fyr-
ir mig.“
Dvel ekki í fortíðinni
Ævisaga þín kom út fyrir tíu árum og þar
var fjallað á opinskáan hátt um átök og erf-
iðleika í lífi þínu. Heldurðu að þeir erf-
iðleikar hafi þroskað þig?
„Áföll og erfiðleikar eru hluti af lífinu og
þótt manni finnist ekki sérlega skemmtilegt
að takast á við slíkt meðan á því sendur þá
styrkir það karakterinn. En ég dvel ekki í
fortíðinni því það er framtíðin sem skiptir
máli.
Ég vil eiga gott líf með litlu fjölskyldunni
minni og vera góð mamma. Ísabella dóttir
mín skiptir mig mestu máli og við erum
óskaplega góðar vinkonur. Ég er heimakær
og mér finnst heimilið vera minn besti
skemmtistaður. Mér finnst gaman að fara út
að borða, og ég fer í leikhús og bíó en oftast
erum við mæðgurnar bara tvær einar heima.
Á daginn er ég mikið innan um fólk og þess
vegna fæ ég næringu úr því að vera heima í
þögninni með Ísabellu. Við ferðumst líka
mikið saman.“
Áttu þér uppáhaldsland?
„Ég bjó í nokkur ár á vesturströnd Kan-
ada, á lítilli eyju við Vancouver. Ég bjó við
hafið og þar liggja rætur mínar. Þar á sál
mín heima – við hafið.
Indland er svo alltaf í uppáhaldi. Indland
er ríkt af menningu og litskrúðugu mannlífi.
Maður lítur yfir götuna og sér konur, bæði
ríkar og sárafátækar, klæddar í sarí og í
þeim fatnaði er mikil litadýrð. Fólkið er fal-
legt og gott og það er mjög trúað. Landið
er stórkostlegt, fallegustu staðir sem ég hef
komið á eru flestir á Indlandi.“
Þú nefnir trúað fólk á Indlandi. Ert þú
trúuð?
„Ég trúi á æðri mátt og myndi ekki vilja
ganga í gegnum lífið án trúar. Minn andlegi
þankagangur hefur styrkt mig til að ná
árangri.“
Trúirðu á ástina?
„Að eðlisfari er ég mjög rómantísk. Ég
trúi staðfastlega á ástina og þori að fylgja
tilfinningum mínum.
Hamingjan er að safna góðum minningum
og hafa alltaf eitthvað að hlakka til. Ég hef
einlæga löngun til að vera ærleg manneskja.
Trygglyndi, traust og hjartagæska eru mik-
ilvæg gildi og sömuleiðis það að koma fram
af virðingu jafnt við dýr sem menn. Mér
finnst gaman að vera til og það er gott að
þroskast og safna reynslu. Ég er á réttum
stað í lífinu. Það er fátt sem hindrar mig.
Ég geri það sem þarf að gera og held
ótrauð áfram.“
Ljósmynd/Ásta Kristjánsdóttir
25%SPÚNAR OG FLUGURVÖÐLUJAKKARSMÁ VÖRUR40%
KAST- OG
RENNSLIS
STANGIR
FLUGUHJ
ÓL
VEIÐIHJÓ
L
Aðrar
veiðivörur
á afslætti
ellingsen.is
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16
REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16