Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Side 53

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Side 53
1.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53 Myndlistarmennirnir Harpa Árnadóttir og Valgarður Gunnarsson hafa opnað sýninguna „Lendingarstaður lóunnar“ í Nesstofu á Seltjarnarnesi. Ástæða er til að líta inn hjá þessum vönduðu listamönnum. 2 Bakdyr Borgarleikhússins verða opnaðar gestum á hinu árlega opna húsi á laug- ardag klukkan 13 til 16. Sýnd verða brot úr verkunum Mary Poppins og Rautt. Þá verða opnar æfingar á verkum vetrarins, bún- ingamátun, tæknifikt, ratleikur og happdrætti með ferðavinningum. 4 Í Gullkúnst Helgu, Laugavegi 13, sýnir María Sigríður Jónsdóttir olíumálverk þar sem sjá má norræna birtu, ís- lenska farfugla, blóm og draumsýnir. María stundaði myndlistarnám í Flór- ens á árunum 1994-1998 og hefur síðan starfað við myndlist á Ítalíu. 5 Síðustu sumartónleikarnir í Hörpu, undir yfirskriftinni „Perlur íslenskra sönglaga“ – tónleikar númer 72 í röðinni þetta sumarið, verða í Kaldalóni á laugarsdagskvöldið og hefjast klukkan 20. Þar kemur fram kvartettinn Kvika og flytur klassísk íslensk söng- lög og þjóðlög. 3 Í tilefni bæjarhátíðar Mosfells- bæjar, Í túninu heima, um helgina, koma þau Halldór Sveinsson píanóleikari og Sig- rún Harðardóttir fiðluleikari fram á Gljúfrasteini klukkan 16 og leika og valdar dægurlagaperlur. MÆLT MEÐ 1 Á Menningarnótt, sem fór fram um síð-ustu helgi, gaf Edda Erlendsdóttirpíanóleikari út sína sjöundu plötu en af þeim eru fimm einleiksplötur. Á nýja disk- inum leikur Edda einleiksverk eftir Schubert, Liszt, Schönberg og Berg. „Nýja platan mín hefur að geyma klassísk verk en fer síðan yf- ir í expressjónisman og er á jafnvel á mörk- um þess að vera með rómantískan þráð,“ seg- ir Edda sem sækir efniviðinn nú til Austurríkis og þá Vínarborgar. Þótt tónverkin á diskinum séu frá ólíkum tímum eru tengslin sterk og bendir Edda m.a. á verk Schuberts og Schönbergs. „Þeir voru ekki uppi á sama tíma og töluðu ekki sömu tónatungu, en þeir heyrðu til sömu tón- listarhefð. Og þótt Schubert geti ekki talist bein fyrirmynd höfundarins að Pierrot Lu- naire sagðist Schönberg hafa lært mikið af að kynnast tónsmíðum hans. Þetta kemur líka fram í hæga miðkaflanum í 3 Klavierstücke op.11, og þegar verk þessara tónskálda eru leikin saman sjást tengslin,“ segir Edda sem spilar einnig verk eftir Franz Liszt en hann hafði brennandi áhuga á nýrri tónlist og færir disk Eddu inn í tónlist 20. aldarinnar. „Í síð- ustu píanóverkum hans, þessum litlu lögum þar sem einfaldleikinn ræður en ekki tæknin, verður tónmálið um leið ótrúlega djarft. Á þann hátt vísar Liszt okkur inn í 20. öldina. Hans verk gefa plötunni líka þá breidd sem hún hefur ásamt auðvitað öðrum verkum.“ Tónlistaráhuginn og eigin útgáfa Edda hefur um árabil verið talin í fremstu röð íslenskra hljóðfæraleikara en tónlistin var ekki endilega sá áfangastaður sem hún stefndi á. „Pabba langaði alltaf að læra á pí- anó og sendi okkur systkinin í píanónám þeg- ar við vorum yngri. Þetta þróaðist svo út í það að ég lagði þetta fyrir mig. Það má kannski segja að þetta hafi verið skrifað í stjörnurnar, að örlögin hafi ráðið ferð,“ segir Edda, sem hefur tekið reglulega þátt í tón- listarlífinu á Íslandi, m.a. með Kammermús- ikklúbbnum og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún lék til að mynda píanókonsert eftir Haydn undir stjórn Kurts Kopeckys og hefur spilað á fjölda viðburða og hátíða hér og víða um lönd. Edda gefur sjálf út plöturnar sínar en hún segir mikilvægt að eiga útgáfuréttinn á eigin efni. „Ég keypti réttinn á fyrstu tveimur plöt- unum mínum, sem voru uppseldar og ekki stóð til að endurútgefa. Það er óhemjuvinna bak við hverja upptöku og því dýrmætt fyrir mig að það sé ekki einhver annar að ráðskast með þær. Þetta er minn litli fjársjóður.“ Edda verður með tónleika 5. september á Ísafirði og 8. september í Salnum í Kópavogi. EDDA ERLENDSDÓTTIR SÆKIR Í VÍNARSKÓLANN Á NÝJUM GEISLADISKI „Þetta er minn litli fjársjóður“ PÍANÓLEIKARINN EDDA ERLENDSDÓTTIR VINNUR MEÐ KLASSÍKINA OG EXPRESSJÓNISMANN Á NÝÚTKOMNUM GEISLADISKI. Tónverkin á nýjum diski Eddu Erlendsdóttur eru frá ólíkum tímum en tengslin milli þeirra sterk, að hennar sögn. Morgunblaðið/Ómar síðan síðast. Það er líka alltaf einhver tog- streita þagar maður flytur til annars lands; maður vill bæði vera hér og þar. Ég reyni að koma á hverju ári. Nú hef ég verið í mánuð, hef mundað myndavélar og reynt að safna efni að vinna úr. Ég hætti að vera með netsamband á vinnustofunni í Brussel, til að ná betri einbeitingu við vinnuna, en ég sakna þess að hlusta á Gufuna – Rás 1 – meðan ég vinn. Því maður getur í raun verið staddur hér þótt maður sé allt annars stað- ar …“ „Lífrænu formin hafa alltaf læðst í gegn. Mér finnst stundum að þau tengist íslensku landslagi, sem ég sakna,“ segir Guðný Rósa. Morgunblaðið/Einar Falur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.