Morgunblaðið - 13.11.2013, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2013
Malín Brand
malin@mbl.is
Frá unga aldri sóttist EvaLaufey eftir því að verameð móður sinni í eldhús-inu þar sem þær bjuggu á
Akranesi. Bæði til að hjálpa til en
auðvitað líka til að smakka. Það var í
raun og veru móðirin sem smitaði öll
börnin af matargleðinni því hún var
mikið heima á meðan börnin voru
ung og er menntaður kokkur að
auki. Því kemur ekki á óvart að
stundirnar í eldhúsinu hafi verið
margar.
Blogg, bakstur og bók
Eva byrjaði að blogga fyrir
nokkrum árum og matur varð stór
þáttur í skrifunum enda mikilvægur
þáttur í lífi hennar. Hún varð fljótt
einn vinsælasti matarbloggari
landsins og æ fleiri fóru inn á síðuna
www.evalaufeykjaran.com til að
skoða nýjustu uppskriftirnar og
myndirnar sem þeim fylgdu.
Það var því í raun bloggið sem
kveikti hugmyndina að bókinni Mat-
argleði Evu og eru nánast allar ljós-
myndirnar í bókinni eftir Evu sjálfa.
En hvers lags uppskriftir er að finna
í bókinni? „Þetta eru bara venjuleg-
ar uppskriftir. Þetta er maturinn
sem ég hef alist upp við og það er í
raun öll flóran. Þetta er maturinn
sem mamma eldaði og amma eldaði.
Uppskriftir sem hafa verið í fjöl-
skyldunni minni í mörg ár en þarna
eru líka nýjar uppskriftir. Þetta er
blanda af alls konar venjulegum
heimilismat,“ segir Eva. Bakstur á
líka stóran hluta af bókinni sem er
býsna fjölbreytt og skemmtileg.
Fjölskylda sem
hugsar um mat
Fjölskylda Evu hefur sem fyrr
segir mótað ýmsar hefðir hvað mat
snertir. „Það eru bara allir að hugsa
um mat og það liggur við að það sé
það eina sem við pælum í – hvað við
borðum! Og þegar við erum að
borða hugsum við um næsta rétt og
þetta er nú svolítið fyndið,“ segir
Eva sem augljóslega kann vel að
meta þá gerð fjölskyldu sem hún til-
heyrir.
Andinn og hugsunarhátturinn
skilar sér vel í bókinni því flestum
uppskriftunum fylgir einhvers kon-
ar saga sem tengir Evu við hvern
rétt. Fyrsti kjúklingarétturinn sem
hún eldaði í heimilisfræðitíma í
Sælkeri eins og
pabbi heitinn
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir ólst upp við ríka matarhefð. Á heimilinu
snerist flest um mat og fjölskyldan notar enn hvert tækifæri til að hittast og borða
saman. Eva Laufey er hálfnuð með viðskiptafræðinámið en gaf sér tíma samhliða
náminu til að skrifa bókina Matargleði Evu sem kom út fyrir skemmstu. Bókin
veitir innsýn í fjölskyldulífið og hugarheim Evu, sem er skemmtilegur og fagur.
Sælkeri Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir nýtur þess að elda og borða.
Í byrjun síðasta mánuðar hófst sér-
stakt verkefni gegn hatursorðræðu á
Íslandi. Það var þegar landsleikur Ís-
lands og Kýpur fór fram á Laug-
ardalsvelli.
Hópur stofnana og samtaka á Ís-
landi stendur á bak við átakið sem er
hluti af verkefni Evrópuráðsins sem
ber heitið No Hate Speech Movement
(www.nohatespeechmovement.org).
Má þar nefna SAFT, Heimili og skóla
– Landssamtök foreldra, SAMFÉS,
Landssamband æskulýðsfélaga og
Æskulýðsvettvanginn í samvinnu við
Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Verkefninu er beint gegn haturs-
áróðri, kynþáttafordómum og mis-
munun á netinu.
Markmiðin eru m.a.: að stuðla að
vitundarvakningu um hatursáróður
og hatursorðræðu á netinu meðal
ungs fólks. Á Facebook-síðunni má
fylgjast með viðburðum verkefnisins.
Vefsíðan www.facebook.com/ekkerthaturordumfylgirabyrgd
Umburðarlyndi Verkefni gegn hatursorðræðu hófst formlega í síðasta mánuði.
Orðum fylgir ábyrgð
Endilega …
… fræðist um sjálfstjórn
Hexið hamið
Hádegisfyrir-
lestur í dag.
Félag þjóðfræðinga á Íslandi
stendur fyrir hádegisfyrirlestri í
dag. Hann hefst klukkan 12 í
Þjóðminjasafninu við Suður-
götu og nefnist Hexið hamið:
Menningarlegar líkamserfðir
og stýring sjálfstjórnar.
Fyrirlesturinn flytur Ólafur
Rastrick, sagnfræðingur og
aðjunkt í þjóðfræði. Allir eru
velkomnir á þennan fyrirlestur
sem eflaust verður mjög athygl-
isverður enda hefur vafist fyrir
fólki um aldir hvernig hemja skal
skapofsa og annað í þeim dúr.
Félag þjóðfræðinga á Íslandi stend-
ur fyrir ýmsum erindum. Dagskrá er á Fa-
cebook.
Þónokkur íslensk fyrirtæki hafa gert
það gott í snyrtivörugeiranum, ekki
bara innanlands heldur á alþjóð-
legum snyrtivörumarkaði. Sif
Cosmetics er eitt þeirra og byggjast
snyrtivörur fyrirtækisins á rann-
sóknum á líffræði húðarinnar sem
þróuð er af ORF Líftækni. Íslenska
hugvitið hefur slegið rækilega í
gegn en húðvörur undir nafninu EGF
Sjötta varan í EGF-húðvörulínunni
Augnablik komið á markað
Morgunblaðið/Kristinn
Íslenskt Frumuvakinn er unninn út byggi sem ræktað er af ORF.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
- örugg bifreiðaskoðun um allt land
Þú gætir eignast
nýjan Spark ef þú drífur
bílinn í skoðun!
Þeir sem koma með bílinn í skoðun fyrir lok dags þ. 22. des.
eiga möguleika að eignast stórglæsilegan Chevrolet Spark
sem verður dreginn út þ. 23. des. 2013.
Aðalvinningur er splunkunýr Chevrolet Spark árg. 2014
HAPPDRÆTTI
GÓÐÞJÓNUSTAOG HAGSTÆÐKJÖR ÁSKOÐUNUM