Morgunblaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 22
DAGA
HRINGFERÐ
HRINGBORÐSUMRÆÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2013
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Á höfuðborgarsvæðinu finna menn fyrir
aukinni bjartsýni um framtíðarhorfur.
Verulega hefur dregið úr atvinnuleysi.
Fyrirtæki eru farin að spyrjast fyrir um
lóðir undir nýtt atvinnuhúsnæði. En bjart-
sýnin er tempruð. Mikil óvissa er ríkjandi.
Miklu skiptir til dæmis hvort kjarasamn-
ingarnir sem framundan eru marki upp-
hafi stöðugleika og sóknar eða nýs verð-
bólguskeiðs. Þá hafa menn miklar
áhyggjur af stöðu heilbrigðisþjónust-
unnar. Öryggistilfinningin sé að bresta.
Þetta er meðal þess sem fram kom í
hringborðsumræðum Morgunblaðsins um
stöðu og horfur á höfuðborgarsvæðinu í
byrjun vikunnar. Efnt var til umræðnanna
í tengslum við 100 daga hringferð blaðsins
sem nú er að ljúka.
Í umræðunum um höfuðborgarsvæðið
tóku þátt Ari Kristinn Jónsson, rektor Há-
skólans í Reykjavík, Ásgerður Halldórs-
dóttir, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, Gunn-
ar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ og
formaður Sambands sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu, Haraldur Sverrisson,
bæjarstjóri í Mosfellsbæ, og Rannveig Ás-
geirsdóttir, formaður bæjarráðs Kópa-
vogs. Til stóð að Dagur B. Eggertsson, for-
maður borgarráðs Reykjavíkur, tæki þátt í
umræðunum. Hann þekktist boðið en
mætti ekki. Rætt er við hann um atvinnu-
málin á höfuðborgarsvæðinu á næstu
opnu.
Samanburður við útlönd
Í hringborðsumræðunum sem áður
hefur verið sagt frá hefur birst ákveðin vit-
undarvakning um þau lífsgæði sem fylgja
búsetu á landsbyggðinni. Samanburður
fólks er þá gjarnan við Reykjavík með
kostum borgarinnar og göllum. En við
hvað miða íbúar á höfuðborgarsvæðinu
lífsgæði sín? „Við erum klárlega í sam-
keppni við útlönd,“ svaraði Haraldur
Sverrisson. „Þangað hefur fólk verið að
flytja eftir hrun og við verðum að geta boð-
ið sams konar lífskjör.“ Haraldur sagði að
Mosfellsbær legði áherslu á að sveitarfé-
lagið byði upp á kosti sem fylgja búsetu á
milli borgar og sveitar. „Við viljum vera
svolítil sveit, lágreist, dreifbýlt úthverfi, en
samt eiga stutt að sækja í alla nauðsynlega
þjónustu.“
Ásgerður Halldórsdóttir sagði að
samanburðurinn væri við aðrar höfuð-
borgir á Norðurlöndum „Við stöndum vel
að vígi. Það eru ekki margar borgir í út-
löndum sem eru samkeppnisfærar við
Reykjavík með þeirri menningu og afþrey-
ingu sem hér er samhliða aðgangi að
ósnortinni náttúru,“ sagði Ari Kristinn
Jónsson og rifjaði upp kynni sín af þétt-
býlum stórborgum í Bandaríkjunum.
Meiri samvinna eftir hrun
Reykjavík hefur sérstöðu á höf-
uðborgarsvæðinu sökum stærðar sinnar.
En við hringborðið kom fram að á und-
anförnum árum hefur orðið gerbreyting á
samstarfi borgaryfirvalda og bæjarstjórn-
anna í nágrenninu. „Það hefur tekist mjög
gott samstarf á milli okkar,“ segir Ásgerð-
ur Halldórsdóttir. „Menn horfa nú á
vandamálin á svæðinu í heild og spyrja sig
hvernig hægt er að leysa þau saman í stað
þess að einblína á eigin hagsmuni eins og
áður tíðkaðist,“ sagði Gunnar Einarsson.
„Kreppan kenndi okkur að vinna sam-
an,“ bætti Haraldur við. „Nú nálgast sveit-
Öryggistilfinning fólks er
Áhyggjur af heilbrigðisþjónustunni Hóf-
leg bjartsýni í atvinnumálum Aukinn skiln-
ingur á gildi menntunar fyrir atvinnulífið
Háskólinn í Reykjavík var upp-
haflega stofnaður til að tengja at-
vinnulífið og menntakerfið. „Það
vantaði tæknimenntað fólk,“ sagði
Ari Kristinn Jónsson, rektor skólans,
við hringborðið. Að þessu hefði skól-
inn síðan unnið ötullega ásamt fleiru.
Ari sagði að í HR væri fjölbreytt fram-
boð á margs konar námi og nám-
skeiðum sem hentaði atvinnulífinu.
„Við erum líka að kenna fólki að
stofna fyrirtæki. Erum þannig að búa
til aðstæður þar sem fólk getur gert
hlutina sjálft. Fundið nýja markaði og
skapað verðmæti,“ sagði Ari.
Í HR finna menn fyrir viðhorfs-
breytingu í atvinnulífinu gagnvart
menntun, rannsóknum og nýsköpun.
„Menn eru farnir að horfa á heild-
armyndina þegar rætt er um atvinnu-
sköpun. Það er gott að eiga nátt-
úruauðlindir, en það er ekki síður
mikilvægt að virkja hugvitið og þekk-
inguna til að skapa verðmæti. Sterkt
atvinnulíf þarf á sterkum skólum að
halda.“
Morgunblaðið/Ómar
Menntun Háskólinn í Reykjavík hefur verið í fararbroddi við að tengja nám og
menntun. Skilningur á mikilvægi menntunar og rannsókna hefur aukist.
Sterkt atvinnulíf þarf
sterka skóla
Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan
www.veislulist.is
jólahlaðborð okkar á
Pantanir fyrir veislur þurfa
að berast tímalega.
Þú getur lesið allt um
Nú fer að líða að jólum þá er gott að
panta tímanlega jólahlaðborðin.
Starfsfólk okkar leggur sig fram um að gera
stundina fallega með góðum veitingum og
persónulegri og góðri þjónustu.
Öll þjónusta er innifalin í verði veitinga.
...tímanlega!
Panta
ðu