Morgunblaðið - 29.11.2013, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2013
Íslensk hönnun Á sýningunni Óvænt kynni sem nú stendur yfir á Hönnunarsafninu er sjónum beint að módernism-
anum í íslenskri híbýlamenningu frá 1930 til 1980. Þar eru ýmsir vel þekktir hönnunargripir.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Hlutverk Hönnunarsafns Íslands í
Garðabæ er m.a. að safna og varð-
veita muni sem varða sögu íslenskr-
ar hönnunar. Til safnkostsins teljast
m.a. húsgögn, prentgripir, nytjalist
og fatnaður. „Eitt af markmiðum
okkar er að styrkja tilfinningu fyrir
þeirri menningu sem felst í hönn-
un,“ segir Harpa Þórsdóttir, for-
stöðumaður Hönnunarsafnsins, sem
er til húsa á Garðatorgi 1.
Harpa segir að munir safnsins
séu allt frá upphafi 20. aldar og
fram til dagsins í dag. Þeir hlutir
sem valdir eru inn á safnið þurfi að
búa yfir sérstöðu og skipta máli út
frá ólíkum þáttum sem eru vegnir
og metnir hverju sinni. Uppistaðan í
safninu er gjafir, en við höfum líka
leitað til fyrirtækja um aðstoð við að
kaupa gripi. Nýlegt dæmi um það er
lampinn Hekla, hönnun Péturs B.
Lútherssonar og Jóns Ólafssonar frá
7. áratugnum. „Okkur hafði lengi
langað til að eignast hann og það
tókst með aðstoð Íslandsbanka og
Epal. Í síðustu viku færði Penninn
okkur eintak af Sóleyjarstól Valdi-
mars Harðarsonar og með hjálp
franska sendiráðsins á Íslandi erum
við að eignast gripi eftir Dögg Guð-
mundsdóttur sem eru framleiddir í
Frakklandi.“
Hönnun stuðlar að
framrás
Hvernig skilgreinið þið hönn-
un? „Hönnun er svo fjölbreytt, en ein
af grundvallarskilgreiningum á
hönnun er að þar fléttast saman
geta til sköpunar og geta til að bæta
umhverfi og aðstæður. Hönnun
stuðlar að framrás. Svo er hægt að
velta því fyrir sér hvað sé góð eða
slæm hönnun.“
Er margt að gerast í hönnun á
Íslandi? „Já, ég held að það sé óhætt
að fullyrða það,“ segir Harpa. „Þessi
aukning, sem við höfum orðið vitni
að á síðustu árum, býr til kröfu um
gæði og frumleika og fleira sem við
þurfum að standast í samanburði við
aðra og til að eignast sérstöðu með
okkar hönnun.“
Glæsileg frá fyrsta degi
Núna er í Hönnunarsafninu
sýningin Óvænt kynni, en þar er
sjónum beint að þætti módernism-
ans í íslenskri híbýlamenningu á síð-
ustu öld. Framundan er sýning á
verkum norskra samtímalistamanna
sem fást við listhandverk á borð við
málm-, gler- og keramikvinnslu og
verið er að undirbúa sýningu á fatn-
aði Vigdísar Finnbogadóttur úr
embættistíð hennar sem forseta.
„Eitt af okkar mörgu hlutverkum er
að varpa fram ýmsum spurningum í
sambandi við líf fólks. Vigdís stóð
ekki aðeins frammi fyrir því sem
fyrsti lýðræðiskjörni kvenforsetinn
að ryðja braut kvenna til nýrra met-
orða, heldur stóð hún líka frammi
fyrir því að móta hefð um klæðaburð
fyrir konu í slíku embætti. Hún lagði
mikla áherslu á, frá fyrsta degi, að
vera glæsileg til fara.“
Ertu tilbúin?
Harpa segir að Vigdís hafi gert
sér far um að kynna íslenska fram-
leiðslu í heimsóknum sínum á er-
lendri grundu. 20-30 flíkur Vigdísar
verða til sýnis og þar verður líka
fræðsludagskrá um klæðaburð.
Sýningin ber vinnuheitið Ertu
tilbúin? „Hún þurfti að vera tilbúin
fyrir svo margt,“ segir Harpa. „M.a.
að vera rétt til fara og að vera tilbú-
in að gegna embætti sem engin önn-
ur kona hafði gegnt áður.“
Sýningin með fatnaði Vigdísar
verður opnuð í byrjun febrúar á
næsta ári.
Setja upp sýningu
með fatnaði Vigdísar
Hönnunarsafn-
ið geymir og sýnir
íslenska hönnun
Morgunblaðið/Kristinn
Forstöðumaður Harpa Þórisdóttir veitir Hönnunarsafni Íslands forstöðu.
Munir safnsins eru frá upphafi 20. aldar og fram til dagsins í dag.
Lampinn Hekla Frá 7. áratugnum
og bættist við safnkostinn nýverið.
Forsetar Frú Vigdís ásamt Ronald
Reagan Bandaríkjaforseta 1986.
Glæsikjóll Meðal sýningargripa
verður þessi kjóll frá Valentino.
Undirbúningur Mæðgurnar frú Vigdís Finnbogadóttir og Ástríður Magnúsdóttir, ásamt Guðrúnu Hildi Rosenkjær,
klæðskera- og kjólameistara, sem vinnur með þeim að uppsetningu sýningarinnar í Hönnunarsafninu.
Morgunblaðið/Kristinn Ólafsson
Prjónakjóll Frú Vigdís eftir að úrslit forsetakosinganna 1980 lágu fyrir.
Prjónakjóllinn sem hún klæðist á myndinni verður á sýningunni.
Morgunblaðið/RAX
Fallega klæddar Elísabet II. Englandsdrottning og frú Vigdís Finn-
bogadóttir heilsa upp á fólk í heimsókn drottningar til Íslands 1990.
GARÐABÆR
DAGA
HRINGFERÐ
100 daga hringferð Morgun-
blaðsins lýkur á morgun, í
höfuðborginni Reykjavík.
Á morgun
Í konunglegum félagsskap Frú Vigdís Finnbogadóttir, ásamt sænsku kon-
ungshjónunum, Karli Gústaf og Sylvíu, í heimsókn þeirra til Íslands 1987.
Stóllinn Sóley Hann er hönnun
Valdimars Harðarsonar og kom
fyrst á markað árið 1984.
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
Ljósmynd/Hönnunarsafn Íslands