Morgunblaðið - 29.11.2013, Síða 32
32 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2013
Stúdentar í borginni Lviv í Úkraínu bregða á leik í
kröfugöngu Evrópusinna. Í dag hófst fundur Evrópu-
sambandsins í Litháen með fyrrverandi sovétlýðveld-
um en Úkraínumenn ætluðu að skrifa undir sam-
komulag sem hefði greitt götu aðildar þeirra að ESB
þar á morgun. Forseti landsins ákvað hins vegar að
hætta við að skrifa undir samninginn undir þrýstingi frá
Vladimír Pútín, forseta Rússlands.
AFP
Bregða á leik í kröfugöngu Evrópusinna
Stjórnvöld á Srí Lanka ætla að láta
rannsaka hversu margir létu lífið í
borgarastríðinu sem geisaði á eyj-
unni í 26 ár, frá 1983 til 2009. Rann-
sóknin mun ná til mannfalls, horfins
fólks og eignaspjalla í átökunum.
Her Srí Lanka bar loks sigurorð
af uppreisnarmönnum Tamíl
tígranna í maí árið 2009. Háværar
raddir hafa verið uppi um voðaverk
og mikið mannfall óbreyttra borg-
ara af völdum stjórnarhersins á
þessum lokastigum borgarastríðs-
ins. Uppreisnarmennirnir hafa
einnig verið sakaðir um að hafa
framið óhæfuverk á þeim tíma.
Alþjóðlegur þrýstingur hefur
verið á þarlend stjórnvöld um að
varpa ljósi á hvað átti sér stað í
stríðinu.
Áætlað er að rannsóknin taki
hálft ár. Sameinuðu þjóðirnar telja
að allt að 40.000 tamílar hafi fallið í
stríðinu. kjartan@mbl.is
Rannsaka
borgara-
stríðið
Ásakanir um voða-
verk á báða bóga
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Yingluck Shinawatra, forsætisráðherra Taílands,
stóðst vantrauststillögu sem lögð var fram gegn
stjórn hennar í taílenska þinginu í gær. Ekkert lát
er þó á mótmælum stjórnarandstæðinga sem
krefjast afsagnar hennar.
Flokkur Yingluck, Puea Thai, er með öruggan
þingmeirihluta og var vantrauststillagan felld með
297 atkvæðum gegn 134. Tillagan var lögð fram af
Lýðræðisflokknum en þingmenn hans saka rík-
isstjórnina um víðtæka spillingu og Yingluck um
að vera leiksoppur bróður hennar, Thaksin Shina-
watra, sem var forsætisráðherra landsins þar til
honum var steypt af stóli.
„Ég legg til að mótmælendur láti af mótmælum
og yfirgefi stjórnarbyggingar svo að opinber störf
geti haldið áfram. Stjórnvöld vilja ekki að til átaka
komi og eru tilbúin að vinna með hverjum sem er
til að finna lausn,“ sagði Yingluck í sjónvarps-
ávarpi til landsmanna eftir atkvæðagreiðsluna í
þinginu.
Beitir ekki hervaldi
Leiðtogi mótmælenda, Suthep Thaugsuban,
hefur hins vegar útilokað viðræður við stjórnvöld
eða aðra stjórnmálaflokka. „Engar frekari samn-
ingaviðræður,“ sagði hann við hóp þúsunda fagn-
andi mótmælenda sem voru saman komnir fyrir
utan ráðuneytisbyggingar.
Yingluck forsætisráðherra hefur útilokað að
beita hervaldi gegn mótmælendunum sem hafa
staðið fyrir aðgerðum frá því á sunnudag, minnug
hörmunganna fyrir þremur árum þegar 90 manns
létu lífið og 1.900 særðust þegar herinn lét til skar-
ar skríða gegn fjöldamótmælum sem geisuðu í
landinu. Hingað til hafa stjórnvöld aðeins beitt
vegalokunum og útgöngubanni auk þess sem dóm-
stóll hefur skipað lögreglunni að handtaka einn
leiðtoga mótmælenda fyrir þátt sinn í að taka yfir
ráðuneyti. Hingað til hefur þó engin tilraun verið
gerð til að handsama hann.
Enn sem komið er hafa mótmælin verið að
mestu leyti friðsamleg og hefur breska ríkisút-
varpið BBC eftir fréttariturum á svæðinu að and-
rúmsloftið í þeim sé almennt vingjarnlegt.
Segist tilbúin að ræða um lausn
Mótmælin í Taílandi halda áfram þrátt fyrir misheppnaða vantrauststillögu
„Stjórnin vill enga
pólitíska leiki því hún
trúir að það skaði
efnahaginn“
Yingluck Shinawatra
Í kjölfar kjarn-
orkusamningsins
sem stórveldin
undirrituðu við
Írana um helgina
hefur kjarnorku-
eftirlitsmönnum
Sameinuðu þjóð-
anna verið boðið
að rannsaka
verksmiðju í
Arak sem framleiðir þungt vatn
fyrir kjarnaofn sem getur séð fyrir
nægu plútóníumi í tvær kjarnorku-
sprengjur á ári þegar hann verður
tilbúinn.
Að sögn Yukiya Amano forstöðu-
manns Alþjóðakjarnorkumálastofn-
unarinnar hafa Íranar boðið eft-
irlitsmönnunum þangað þann 8.
desember. Þeir hafa haft aðgang að
kjarnaofninum áður en ekki frá
árinu 2011.
Svonefnt þungt vatn, sem er
efnasamband tvívetnis og súrefnis,
er notað við kjarnorkuframleiðslu
en það auðveldar að halda keðju-
verkun áfram við kjarnaklofnanir,
skv. Vísindavefnum.
Eftirlitsmenn fá að
skoða kjarnorku-
verksmiðju í Íran
ÍRAN
Yukiya Amano
Heilbrigðisstarfsmenn á Vestur-
löndum óttast að kæruleysislegra
viðhorf til kynlífs leiði til þess að erf-
iðara verði að glíma við alnæmisfar-
aldurinn.
Bandarísk heilbrigðisyfirvöld
segja að nýlegar kannanir bendi til
þess að fleiri samkynhneigðir karl-
menn stundi óvarið kynlíf en áður.
Fjölgunin nemi 20% frá 2005 til 2011.
Vart hefur orðið við sömu þróun í
Kanada, Bretlandi, Hollandi, Frakk-
landi og Ástralíu.
Hlutfall þeirra sem stunda óvarin
endaþarmsmök er allt að tvöfalt
hærra hjá þeim sem sögðust ekki
vita hvort þeir væru smitaðir af HIV,
en þau eru þau áhættusömustu hvað
varðar HIV-smit. Um þriðjungur
mannanna hafði ekki farið í HIV-
próf á undanförnu ári og er það talin
frekari vísbending um meiri óvar-
kárni í kynlífi en áður.
Forsvarsmenn smitsjúkdóma-
varna Bandaríkjanna telja að
hugsanleg ástæða fyrir andvara-
leysinu sé að ungir menn hafi aldrei
séð alnæmi draga neinn til dauða og
trúi því að þeir geti auðveldlega ver-
ið á lyfjum til æviloka.
AFP
HIV-próf Fylgni er á milli þess að fólk fari í HIV-próf og almennrar var-
kárni þegar kemur að kynlífi, samkvæmt reynslu heilbrigðisstarfsfólks.
Óttast að erfiðara verði
að berjast gegn alnæmi
Karlmaður sem
stefndi sam-
gönguyfir-
völdum í Wash-
ington-borg í
Bandaríkjunum
eftir að hann
rann á ban-
anahýði og slas-
aði sig í neð-
anjarðarlestarkerfi borgarinnar
hefur verið ákærður fyrir fjársvik.
Við rannsókn málsins leiddu upp-
tökur úr öryggismyndavélum í ljós
að maðurinn hafði sjálfur komið
bananahýðinu fyrir eftir að hafa
grannskoðað myndavélarnar. Í
kjölfarið var maðurinn handtekinn
af lögreglu.
Dómari hefur fyrirskipað að
svikahrappurinn gangist undir geð-
rannsókn.
BANDARÍKIN
Reyndi að svíkja út
fé með bananahýði
VÖNDUÐ RÚM
AUKIN SVEFNGÆÐI • BETRI LÍÐAN
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
• Fjaðrandi rúmbotn sem eykur blóðflæði
• Hliðargrindur fylgja legufleti við hreyfingu
F
A
S
TU
S
_H
_3
5.
10
.1
3
Hliðargrindur fylgja með sem staðalbúnaður, en auðvelt er að fella þær undir botn, ef ekki þarf að nota þær.