Morgunblaðið - 29.11.2013, Síða 39

Morgunblaðið - 29.11.2013, Síða 39
UMRÆÐAN 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2013 Gizur Ísleifsson bisk- up í Skálholti 1082-1118 styrkti mjög grunninn að íslenskri þjóðar- kirkju, íslenskri menn- ingu og menningararfi. Gizur byggði kirkju í Skálholti sem var vel búin kirkjugripum o.fl. eignum en var ekki stór dómkirkja. Klængur Þorsteinsson var Skál- holtsbiskup 1152 og byggði þá fyrstu stóru dómkirkjuna þar, víðfræg fyrir stærð og glæsileik. Kirkjan brann að kolum 1309. Gizur Ísleifsson var víð- förull farmaður áður en hann varð biskup, átti viðskipti og menningar- leg samskipti við menn af ýmsum þjóðernum. Þjóðveldismenn voru engir einangrunarsinnar. Einangrun frá öðrum þjóðum hefur aldrei verið stefna Íslendinga, sem voru djarfir siglingamenn og landkönnuðir, ósmeykir við erlenda menn og þeirra siði, sbr. kristnitökuna. Fremsta orsök landnáms nor- rænna manna á Íslandi var trúin á frelsið, frelsisvarða framtíð. Íslend- ingar hafa átt samskipti við Evrópu- þjóðir frá landnámstíð. Þeir réðu engu um konungseinveldi, einokunar- verslun og Stóradóm. Með helstu „rökum“ ESB-trúboða og fullveldisprangara um „himnarík- issæluvist“ í ESB, eru lygisögur um gengnar kynslóðir. ESB-aðildarfor- ingjar tala mikið um að andstæðingar ESB-aðildar Íslands vilji enga Evr- ópusamvinnu (nýtt orð fyrir ESB- aðild) þær fullyrðingar eiga sér enga stoð, slíkt samstarf oftast farsælt, hefur verið í áratugi og verður von- andi áfram þó að seint verði ágrein- ingslaust. Samskipti og vinátta Ís- lendinga og margra Evrópuþjóða stendur á gömlum traustum grunni. Hentar aðildarforingjum ekki um sinn að tala fyrir ESB-aðild? Undir- búa þeir nýjar hótanir um efnahags- hrun? Foringjarnir geta ekki leynt gleði sinni yfir ESB-aðlögunarfundahléi einmitt það sem þeir vildu, ætluðu sjálfir að fresta þeim fundum til 2014, teygja svo aðlögunarlop- ann til 2016 þá yrði nú- verandi forseti Íslands væntanlega ekki lengur í því embætti. ESB-að- ildarforingjarnir, ESB og Icesave-jámennirnir sem vanvirtu þjóðarat- kvæðagreiðsluna 6. mars 2010 hefðu þá í hendi sér alla staðfest- ingu og lagasetningu ESB-aðildaraðlögunar- gernings (Lissabon- samningur). Ekki mun koma á óvart mótþrói ESB-sinna gegn niðurstöðu Hagfræðistofnunar um ESB, m.a. hafi ekki verið af- greiddir þeir kaflar ESB-aðlögunar- bálks sem mundu færa þjóðinni mesta ávinninginn, „stórgróða“, þ.e. framsal fullveldisforræðis auðlinda landsins, greiðslur fyrir styrkina! Fullframinn aðlögunarbálkur liggi ekki fyrir. Yrði slíkur bálkur lögfest- ur mundu t.d. ákvarðanir um nýtingu fiskistofna á Íslandsmiðum og vinnsluverða teknar í ESB-bákninu í Brussel. Íslendingar fengju að kynn- ast hlekkjavaldi erlendra valds- manna, einangrun og einokun, kúg- unaroki ESB-auðhringalénsveldis, nýrra hrun-jarla. Glapráðastjórn ESB-aðildarfor- ingja tapaði með miklum harmkvæl- um öllum bindandi þjóðaratkvæða- greiðslum á kjörtímabilinu. Foringjum, sem með lævísi sögðu að- lögunarfundi vera samningafundi, ætluðu að afnema stjórnarskrána í þágu ESB-aðildar og reyndu að fela ESB-málið fyrir kosningarnar 27. apríl, var af kjósendum dreift á flærð- arflótta. Ríkisstjórnina skortir vonandi hvorki þrek, þor né vilja! til að ógilda illa fengna þingsályktun um ESB-að- ildaraðlögunarumsókn. Fylgir eftir andstöðu meirihluta kjósenda við inn- limun Íslands í ESB. Kjósendur höfn- uðu ESB-blekkingaboðskap póli- tískra falsspámanna um lokalausn allra vandamála Íslands. Höfnuðu kenningunni um ESB-alsæluríki sem komi frá Brusselbákninu í pakka. Trúi ekki að ráðherrarnir séu í raun leiksoppar ESB-agenta í málinu. Þiggjum engar ESB-gýligjafir. Ekk- ert stuðlar jafnmikið að því þjóðin hrekist inn í ESB-þrælagarðinn og óheilindi stjórnmálamanna. Gizur biskup Ísleifsson verður allt- af talinn með merkustu Íslendingum. Á hans dögum tóku landsmenn upp ritmál. Ritmálið efldi og styrkti þjóð- arsamkennd Íslendinga. Magnús Þórðarson goðorðsmaður og prestur í Reykholti, samtímamaður Gizurar biskups, hefur að líkindum gert Reykholt að stað og eign Reykholts- kirkju. Snorri Sturluson naut þess síðar í sínum fræða- og ritstörfum og íslenska þjóðin í menningararfinum. Löngu eftir að „hugsjónir“ fullveldisprangara verða grafnar og gleymdar í pólitískum glatkistum sögunnar mun minning fyrstu bisk- upana í Skálholti, sem vildu efla menntun, menningu og hag sam- félagsins, enn lifa með þjóðinni. Þeir bera enga ábyrgð á glapráðagern- ingum eftirkomenda. Hvar sem þau glapráð eru ráðin. Sýnum Skálholti þá virðingu sem staðurinn á skilið. Þar á að ríkja lotning, friður og menningarstarfsemi. Að leggja rækt og alúð við íslenska menningu og minningu frumkvöðla og brautryðjenda hennar, jafnframt vináttu og farsælum kynnum af menningu annarra þjóða, mun veita íslenskri þjóð skjól, vernd og styrk í alþjóðasamfélaginu í stórviðrum og örlagaatburðum heimsstjórnmál- anna. Góðir landsmenn, fögnum af alhug 95 ára afmæli fullveldis Íslands, sem er nú í ábyrgðarvörslu okkar, afkom- enda „aldamótakynslóðarinnar“ sem og njótum uppskerunnar, þjóðfrelsis og sjálfstæðis. Skilum til framtíð- arkynslóða óskertu og ósviknu full- veldi. Hrindum atlögunni að fullveldi og frelsi Íslands. Hrindum atlögunni að fullveldi Íslands Eftir Hafstein Hjaltason »Einangrun frá öðr- um þjóðum hefur aldrei verið stefna Íslendinga, sem voru djarfir siglingamenn og landkönnuðir. Hafsteinn Hjaltason Höfundur er vélfræðingur. Bridsdeild Breiðfirðinga Eftir þrjú kvöld í fjögra kvölda tvímenningskeppni eru þeir Guð- mundur Sigursteinsson og Unnar Atli efstir. Röð efstu para er þessi. Guðm. Sigursteinss. - Unnar Guðmss. 739 Oddur Hanness. - Árni Hannesson 708 Friðrík Jónss. - Jón Viðar Jónmundss. 700 Karl Karlsson - Sigurður R Steingrímss. 683 Þórður Ingólfsson - Hörður Gunnarss. 678 Sunnudaginn 24/11 var spilað á 13 borðum. Þeir Halldór og Magnús náðu risaskori: 72% . Hæsta skor kvöldsins í N/S: Magnús Sverrisson - Halldór Þorvaldss. 311 Guðjón Garðarsson - Kristján Albertss. 242 Kristín Óskarsd. - Gróa Þorgeirsd. 232 Austur/Vestur Björn Arnarsson - Halldór Þórólfsson 261 Garðar Valur Jónss. - Þorgeir Ingólfss. 249 Oddur Hanness. - Árni Hannesson 244 Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19. Ýlir fer mildum höndum um Súgfirðinga Mildur Ýlir hófst með þriðju lotu um Súgfirðingaskálina, tvímenn- ingsmót Súgfirðingafélagsins. Tólf pör mættu til leiks og styrktu fé- lagsauðinn. Úrslit urðu eftirfarandi, meðal- skor 110 stig. Jón Sveinsson - Rafn Haraldss. 153 Flemming Jessen - Kristján H. Björnss. 142 Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 122 Kristján Pálss. - Ólafur Karvel Pálss. 120 Gísli Jóhannss. - Guðbjartur Halldórss. 117 Skor Rafns og Jóns er mjög gott, 69,5%. Heildarstaðan í keppninni er þessi, meðalskor 330 stig. Þorsteinn Þorsteinss. - Rafn Haraldss. 401 Flemming Jessen - Kristján H. Björnss. 382 Eðvarð Sturluson - Mortan Hólm 351 Kristján Pálss. - Ólafur Karvel Pálss. 345 Gróa Guðnad. - Alda Sigríður Guðnad. 343 Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 340 Næsta lota, sú fjórða í röðinni verður spiluð á nýju ári og hefst í byrjun þorra, 27. janúar 2014. Hrólfur og Friðjón efstir hjá BR Hrólfur Hjaltason og Friðjón Þórðarson unnu Sushi Samba tví- menning BR. Lokastaðan. Friðjón Þórhllsson- Hrólfur Hjaltason 121 Jón Baldursson - Sigurbjörn Haraldss. 116 Guðjón Sigurjónss. - Vignir Haukss. 92 Sævar Þorbjörsson og Anton Haraldsson fengu risaskor kvölds- ins. 93 stig. Næst er spiluð tveggja kvölda sveitakeppni, monrad, 3 leikir á kvöldi. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is idex.is - sími 412 1700 framl.- sölu- og þjónustuaðili Schüco á Íslandi - merkt framleiðsla • Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex álgluggum ehf. • Hágæða álprófílkerfi frá Schüco • Schüco tryggir lausnir og gæði • Þekking og þjónusta • Áralöng reynsla Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga ÁLGLUGGAR - þegar gæðin skipta máli www.schueco.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.