Morgunblaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 51
sönghópum og kórum s.s. Rúdolf,
Emil og Anna Sigga, Kór íslensku
Óperunnar, Voces Masculorum,
Schola Cantorum og kamm-
erkórnum Carminu.
Skarphéðinn hefur stjórnað
Skátakórnum frá 2008. Hann hefur
komið fram sem einsöngvari við
kirkjulegar athafnir og hefur sungið
einsöngshlutverk í óperum s.s.
Amahl og næturgestirnir, Töfra-
flautunni, La Boheme og Rigoletto.
Hann hefur tekið þátt í fjölmörgum
sýningum íslensku óperunnar,
hvoru tveggja sem kórsöngvari og
einsöngvari.
Afkastamikill útsetjari
Skarphéðinn hefur gert um 300
útsetningar fyrir blandaða kóra,
karlakóra, leikhóp og ýmsa aðra.
Hann hefur m.a. útsett tónlist fyrir
nokkrar sýningar hjá Litla leik-
klúbbnum á Ísafirði, en útsetningar
hans hafa verið gefnar út af Tón-
verkamiðstöðinni og Skálholtsútgáf-
unni. Einnig á hann fjölmargar út-
setningar á þremur plötum Rúdolfs
og plötu Voces Masculorum sem
kom út haustið 2011. Auk þess út-
setti hann sjö lög fyrir minning-
artónleika um Bergþóru Árnadótt-
ur sem voru í Salnum í febrúar
2011. Hann útsetti flest lög fyrir
tónleika og plötu Bjarna Arasonar
með Elvis gospel-lögum og söng
sjálfur með bakraddir.
Skarphéðinn hélt tónleika með
eigin útsetningum í Salnum í Kópa-
vogi 22. mars sl..
Tónlistin hefur verið Skarphéðni
hvort tveggja í senn, aðalstarf og
ástríða: „Ég hef ætíð verið með
hugann við tónlistina í einhverri
mynd og satt best að segja þykir
mér það heiður að hafa hana að að-
alstarfi.“
Fjölskylda
Eiginkona Skarphéðins er Guð-
rún Sigríður Loftsdóttir, f. 30.5.
1966, þroskaþjálfi. Foreldrar henn-
ar eru Anna Sigríður Zoëga, f. 3.2.
1947 hjúkrunarfræðingur í Reykja-
vík, en fósturfaðir Guðrúnar Sigríð-
ar er Valdimar Tómasson, f. 9.3.
1944, viðskiptafræðingur í Garða-
bæ.
Börn Skarphéðins og Guðrúnar
Sigríðar eru Valdimar Þór Skarp-
héðinsson, f. 18.12. 1982, versl-
unarmaður í Reykjavík; Anna Sig-
ríður Skarphéðinsdóttir, f. 17.5.
1988, söngnemi í Reykjavík en mað-
ur hennar er Jón Ingi Stefánsson,
hönnunarstjóri og söngnemi í
Reykjavík og er sonur þeirra Arn-
grímur Tinni Jónsson, f. 2012;
Hjörtur Ingi Skarphéðinsson, f.
16.3. 1996, menntaskólanemi, bú-
settur í Kópavogi.
Hálfbróðir Skarphéðins, sam-
feðra, er Karl Hjartarson, f. 11.4.
1948, fyrrv. lögreglumaður í
Reykjavík.
Hálfbróðir Skarphéðins, sam-
mæðra, var Kjartan Baldursson, f.
20.11. 1951, d. 21.3. 1999, tónlist-
armaður og bifreiðarstjóri.
Alsystkini Skarphéðins eru Lilja
Hjartardóttir, f. 29.5. 1953, fé-
lagsliði í Kópavogi; Sigrún Hjart-
ardóttir, f. 5.6. 1954, sérkennari í
Kópavogi; Guðmundur Hjartarson,
f. 12.8. 1955, skipasmiður á Ak-
ureyri; Stefanía Hjartardóttir, f.
27.8. 1956, hjúkrunarfræðingur í
Hafnarfirði; Gunnhildur Hjart-
ardóttir, f. 29.10. 1957, búsett í
Reykjavík; Ingibjörg Hjartardóttir,
f. 25.5. 1962, síma- og versl-
unarkona í Kópavogi
Foreldrar Skarphéðins voru
Hjörtur Magnús Guðmundsson, f.
6.2. 1924, d. 18.4. 2005, verkamaður
og síðar kaupmaður, og Guðrún
Rósa Sigurðardóttir, f. 9.9. 1930, d:
31.5. 2007, verkakona og húsfreyja.
Úr frændgarði Skarphéðins Þórs Hjartarsonar
Skarphéðinn
Þór Hjartarson
Hjálmfríður Ísleifsdóttir
húsfr. í Hælavík
Guðni Kjartansson
b. í Hælavík
Stefanía Halldóra Guðnadóttir
húsfr. í Keflavík
Sigurður Sigurðsson
b. í Hælavík og
símstöðvarstj. á Hesteyri
Guðrún Rósa Sigurðardóttir
húsfr. í Kópavogi
Kristín Arnórsdóttir
húsfr. í Sléttuhreppi
Sigurður Friðriksson
b. í Aðalvík
Ingibjörg Guðnadóttir
frá Hælavík
Margrét Sveinsdóttir
húsfr. í Rvík
Hjörtur Jónsson
sjóm. í Rvík
Lilja Hjartardóttir
húsfr. í Rvík
Guðmundur Rósinkar
Magnússon
bakaram. í Rvík
Hjörtur Magnús
Guðmundsson
verkam. og kaupm. í
Kópavogi
Valgerður Jónsdóttir
vinnuk. í Kirkjubólssókn
Magnús Jónsson
járnsm. í Skutulsfirði
Jakobína Sigurðardóttir
rith. og skáldkona í Garði í Mývatnssveit
Fríða Á Sigurðardóttir
rithöfundur
Kristján Sigurðsson
yfirlæknir í Keflavík
Þórleifur J. Bjarnason
námstj. og rith. Hælavík
ÍSLENDINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2013
Gunnar Friðriksson, forstjóriVélasölunnar og forsetiSVFÍ, fæddist á Látrum í
Aðalvík fyrir einni öld. Foreldrar
hans voru hjónin Friðrik Magn-
ússon, útvegsb. á Látrum, og Rann-
veig Ásgeirsdóttir húsfreyja.
Gunnar kvæntist 1940, Unni Hall-
dórsdóttur frá Sandbrekku í Hjalta-
staðaþinghá, sem lést 1999. Þau
eignuðust þrjú börn en áður eign-
aðist Gunnar einn son.
Gunnar ólst upp í Aðalvík, sótti
barnaskóla á Ísafirði einn vetur og
útskrifaðist úr Gagnfræðaskóla Ísa-
fjarðar 1932. Hann hóf útgerð og
fiskvinnslu í Aðalvík er hann var 18
ára og stundaði þar útgerð og sjó-
mennsku til 1935. Hann stundaði
síðan sjómennsku, verslunar- og
verksmiðjustörf í Djúpuvík og í
Reykjavík.
Gunnar stofnaði, ásamt Sæmundi
Stefánssyni, innflutningsfyrirtækið
Vélasöluna hf. árið 1940. Það fyr-
irtæki starfrækti hann í rúm 60 ár.
Hann hóf innflutning á fiskiskip-
um á fyrri helmingi sjötta áratug-
arins, jók smám saman þau umsvif
og stóð að innflutningi mikils fjölda
skipa um árabil. Þá átti hann um
skeið hlut í útgerðarfyrirtækjum.
Gunnar var 11 ára er hann kynnt-
ist af eigin raun hörmungum hinna
tíðu sjóslysa hér við land. Í desem-
ber 1924 fórust bræður hans í sjó-
slysi og þá um haustið fórst á annan
tug sjómanna úr Aðalvík, vinir,
frændur hans og nágrannar.
Gunnar hóf að sinna slysavarna-
málum um 1950, var kjörinn í að-
alstjórn SVFÍ 1956, sat í stjórn
SVFÍ í rúman aldarfjórðung og var
forseti félagsins 1960-82. Hann vann
að ýmsum öðrum félagsmálum allt
frá unglingsárum, átti sæti í stjórn
fjölda félaga, en 17 ára var hann
fulltrúi á þingi ASÍ.
Gunnar var afskaplega yfirlæt-
islaus og skemmtilegur í viðmóti.
Hann hafði yndi af því að skrafa við
alþýðufólk frá öllum heimshornum
um hagi þess og viðhorf. Hann var
alla tíð tengdur Aðalvík sterkum
böndum og sendi frá sér prýðilega
bók á efri árum, Mannlíf í Aðalvík.
Gunnar lést 14.1. 2005.
Merkir Íslendingar
Gunnar
Friðriksson
90 ára
Ásta Guðvarðardóttir
Björn Eysteinn
Jóhannesson
Kristín Þorleifsdóttir
Magnús Anton Jónsson
Ólafur Ólafsson
85 ára
Gunnlaugur Gunnlaugsson
Jón Kristjánsson
Lárus Þórarinn
Valdimarsson
Oddsteinn Kristjánsson
Svanfríður Jónasdóttir
Vilhelmína Adolfsdóttir
75 ára
Eyjólfur Sigurðsson
Gunnþórunn
Aðalsteinsdóttir
Reynir Hallgrímsson
Þuríður Eggertsdóttir
70 ára
Ásmundur Karlsson
Gísli Steinar Sighvatsson
Inge Chr Jónsson
60 ára
Ása Valgerður Einarsdóttir
Björk Kristjánsdóttir
Flóki Pálsson
Guðbergur Pétursson
Herdís Kristmannsdóttir
Michael George Whalley
Ólafur Már Sigurðsson
Pálína G. Sigurjónsdóttir
Sandra May Ericson
Sigurjón Gunnarsson
Sveinn Geirmundsson
Sveinn M. Benediktsson
Úlfar Vilhjálmsson
50 ára
Ásdís Lúðvíksdóttir
Ásgrímur Guðmundsson
Ásta Margrét
Ásmundsdóttir
Bjarni Jón Pálsson
Jóhann O. Steingrímsson
Jónína Einarsdóttir
Jón Kristinn Jónsson
Lárus Halldórsson
Magnús Þór Bjarnason
Olga Helena Kristinsdóttir
Ragnar Björnsson
Tinna Pétursdóttir
Valborg Mikaelsdóttir
Valeriya Katunina
40 ára
Eyþór Ingi Jónsson
Gunnar Þór Eggertsson
Helga B. Kristmundsdóttir
Jónas Þorsteinn
Jóhannsson
Magdalena Sylwia Zawodna
Przemyslaw Marek
Blajeszczak
Sara Ósk Guðmundsdóttir
Þórey Óladóttir
30 ára
Aron Hallsson
Brynja María Ólafsdóttir
Carolina Postolache
Elín Dögg Arnarsdóttir
Hanna Lára Kristjánsdóttir
Jóhannes Ásgeir Bizouerne
Loftur Þórarinn
Guðmundsson
Signý Hafsteinsdóttir
Sólveig Jóhannsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Unnar er búsettur
í Reykjanesbæ, er í námi í
viðskiptafræði við HA og
starfar við Flugvallaþjón-
ustuna á Keflavíkurfl.velli.
Maki: Eyrún Erla Sig-
urgeirsdóttir, f. 1988,
snyrtifræðingur.
Dóttir: Vala Marie Unn-
arsdóttir, f. 2003.
Foreldrar: Anna Marie
Kjærnested, f. 1965,
kaupkona, og Ólafur Jó-
hann Harðarson, f. 1965,
starfsmaður hjá Isavia.
Unnar Örn
Ólafsson
30 ára Steinþór ólst upp í
Reykjavík, lauk þyrluflug-
mannsprófi frá Bristol
Academy 2007 og er nú
verslunarmaður.
Systkini: Páll Gestsson,
f. 1967, yfirmaður hjá De
Code, og Steinunn Gests-
dóttir, f. 1971, kennari við
HÍ.
Foreldrar: Gestur Stein-
þórsson, f.1941, fyrrv.
skattstjóri í Reykjavík, og
Drífa Pálsdóttir, f. 1945,
fyrrv. skrifstofustjóri.
Steinþór
Gestsson
30 ára Stígur ólst upp í
Reykjavík, er nú búsettur í
Hafnarfirði, er ljósmynd-
ari og rekur ljósmyndafyr-
irtækið Steex Images.
Maki: Ásdís Guðmunds-
dóttir, f. 1981, ferðamála-
fræðingur hjá Iceland Tra-
vel.
Sonur: Óliver Leó Stígs-
son, f. 2010.
Móðir: Bóthildur Sveins-
dóttir, f. 1960, viðskipta-
fræðingur hjá Deloitte,
búsett í Reykjavík.
Stígur Már
Karlsson
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
Draghálsi 14 - 16
110 Reykjavík
Sími 4 12 12 00
www.isleifur.is