Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Side 20
M
ér finnst mjólkurframleið-
endur setja allt of mikið af
sykri í mjólkurvörur. Í
grunninn eru skyr og mjólk-
urvörur hollar vörur og því skil ég ekki
af hverju skemma þarf vöruna með þessu
mikla sykurmagni,“ segir Geir Gunnar
Markússon næringarfræðingur.
Oft er erfitt fyrir venjulegt fólk að átta
sig á sykurmagninu sem er til staðar í
mjólkurvörum þar sem slíkar upplýs-
ingar koma ekki ávallt skýrt fram á um-
búðum.
„Stundum nota fyrirtæki önnur nöfn á
borð við „glúkósasíróp“ eða „sykraðir
ávextir í innihaldslýsingun í staðinn fyrir
að tala um viðbættan sykur,“ segir Geir.
Falinn sykur í mjólkurvörum
Hægt að „fela“ sykurinn með margskon-
ar hætti fyrir fólki sem hefur litla
reynslu í að lesa í töflur um næringa-
upplýsingar að hans mati.
Geir mælir með að neytendur byrji á
að skoða innihaldslýsinguna þegar þeir
kaupa sér matvörur. „Gott er að vita að
innihaldsefnin birtast í minnkandi röð
þ.e. það efni sem er mest af í matvörunni
er fremst í upptalningunni og svo koll af
kolli. Ef sykur er í fyrstu þremur sæt-
unum gefur það neytendum sterka vís-
bendingu um að varan innihaldi of mikið
magn af viðbættum sykri.“
Næst er gott að skoða næringargildið
því þar kemur fram sykurmagnið með
beinum eða óbeinum hætti. Geir segir
eðlilegt magn af kolvetnum í hreinni jóg-
úrt vera um 4 grömm af hverjum 100
grömmum og því eru öll kolvetni umfram
það viðbættur sykur. „Ef kolvetnamagnið
er komið yfir 10 grömm af 100 í mjólk-
urvörum ætti fólk virkilega að endur-
skoða sitt val.“
Ljót markaðssetning
„Mér finnst mjólkurframleiðendur beita
ljótri markaðssetningu. Þeir setja vörur
sem innihalda mikið magn af viðbættum
sykri í umbúðir sem eru bæði litríkar og
æpandi. Þannir er
óhollum vörum aug-
ljóslega beint að börn-
um og vörurnar eru
jafnvel skreyttar með
litríku nammi á toppn-
um,“ segir Geir.
„Þetta eru óþolandi
vinnubrögð og ég skora
hér með á mjólk-
urframleiðendur að breyta þessu og snúa
við þessari neikvæðu þróun. Þetta á ein-
mitt að vera þveröfugt þ.e. við ættum að
leggja aðaláherslu á að markaðssetja holl-
ar og góðar vörur.“
Eins og lögin eru í dag er það undir
framleiðandanum komið hvort hann tekur
fram svokallaða „þar af sykur – merk-
ingu“ fyrir neðan kolvetnin. Þetta ástand
er mjög slæmt að mati Geirs því þeir sem
hafa áhuga á að draga úr sykurneyslu
standa margir í þeirri trú að allt skyr sé
hollustuvara.
Hann bendir jafnframt á að gosdrykkir
bera vissulega meiri ábyrgð á sykurneyslu
Íslendinga heldur en mjólkurvörur en
vandamálið liggur í því að margir telja að
slíkar vörur séu hollari en gosið.
Kallar á róttækar breytingar
„Núverandi ástand hjálpar ekki til í bar-
áttunni gegn hreyfingarleysi, offitu og
tannskemmdum. Þróunin er virkilega
slæm því við höfum enga þörf fyrir allan
þennan sykur. Það er mun eðlilegra
ástand ef fólk myndi sæta vörurnar sínar
sjálft heima við ef það hefur löngun í það
á annað borð. Þá er t.d. tilvalið að notast
við ber og ávexti í staðinn fyrir hvítan
sykur.“
Hann kallar eftir róttækum breytingum
og telur þróunina hafa versnað síðustu
misseri. „Ástandið var ekki svona slæmt
er ég var að alast upp. Fyrir 20-30 árum
voru markaðsöflin ekki búin að taka yfir
framleiðsluna og því var ekki byrjað að
dæla öllum þessum sykri í mjólkurvörur.
Við verðum að stíga nokkur skref til baka
í þessum efnum.“
É
g fagna umræðu um hollustu matvæla
en því miður er umræðan um syk-
urmagn í mjólkurvörum oft byggð á
röngum upplýsingum,“ segir Jón Axel
Pétursson, framkvæmdastjóri
sölu- og markaðssviðs Mjólk-
ursamsölunnar (MS).
„Staðreyndin er sú að MS
vinnur markvisst í því að
finna leiðir til að draga úr
sykurneyslu og við erum
stöðugt að skoða og betr-
umbæta vöruframboð í takt
við tíðarandann og kröfur
neytenda hverju sinni. Við
munum alltaf hlusta á neytandann því það er
hann sem á endanum ræður hvað er í framboði
hjá okkur,“ segir Jón. Hann nefnir sem dæmi
að sykurskert og ávaxtaríkt krakkaskyr var
sett á markað árið 2009 en það seldist illa.
„Heilt yfir hefur salan á þessu ári hefur verið
sérstaklega góð og vonandi segir það eitthvað
um að vöruframboð okkar falli neytendum vel í
geð.“
Jólajógúrt selst vel
Sykurríkustu vörurnar á borð við Hrísmjólk og
Smámál eru í flokki sem heitir MS eftirlæti.
„Þetta er eftirréttaflokkur og ostakökurnar
okkar eru líka í þeim flokki. Þessar vörur inni-
halda sannarlega sykur og eru ekki hefðbund-
inn morgunmatur, breyttar merkingar eiga að
undirstrika það.“
Að bera saman hreint skyr og Jólajógúrt er
ágætt dæmi að mati Jóns. „Jólajógúrtin sem er
á markaði u.þ.b. mánuð fyrir jól er aldrei aug-
lýst sérstaklega enda selst hún alltaf upp á
mettíma. Þetta er vara sem við lítum á sem
sérstakt dálæti fyrir jólin en alls ekki sem hefð-
bundinn hversdags morgunmat. Við teljum að
hinn almenni neytandi geri það líka og viti að
þetta er ekki holl vara líkt og hreint skyr.“
Skólajógúrt í endurskoðun
Sem mark um viðleitni fyrirtækisins til að
draga úr sykurmagni bendir Jón á að ný syk-
urskert kókómjólk kom á markað 2006 og fyr-
irtækið dró niður sykurmagnið í óskajógúrt og
skyri um 15-20% á sínum tíma. Þá stendur yfir
gagnger endurskoðun á Skólajógúrt. „Þetta er
vara sem þarf að aðlagast þeirri gagnrýni sem
hún hefur sætt. Skólajógúrt er yfir 20 ára
gömul vara sem stenst ekki nútímakröfur.
Markmið okkar er að breyta henni þannig að
hún taki mið af þeirri gagnrýni neytenda sem
hefur komið fram,“ segir Jón.
Óhollar vörur ekki í forgang
Þeir fjármunir sem MS ráðstafar í sölu og
markaðssetningu ná yfir 600 vörunúmer að sögn
Jóns. „Þeim fjármunum er ekki ráðstafað þann-
ig að óhollar vörur séu settar í forgang og meiri
fjármunir settir í sölu og markaðssetningu á
þeim. Mjólkursamsalan veltir um 20 milljörðum
á ári og 85% af veltunni eru aðrar vörur en
bragðbættar. Hlutfall fjármagns í markaðs-
setningu fer aðallega eftir umfangi veltunnar en
ekki því hvort vara sé holl eða óholl.“
Fyrirtækið framleiðir fjöldann allan af hollum
vörum og að þar eru sykraðar mjólkurvörur í
mjög litlu magni hlutfallslega að mati Jóns.
„Bragðbættar ferskvörur eru eingöngu 9,7% af
heildarmagni móttekinnar mjólkur og fyrirtækið
notar eingöngu um 3% af öllum þeim sykri sem
fluttur er inn til landsins.“ Hann bendir á að 80-
90% af viðbættum sykri landsmanna kemur úr
gosdrykkjum, sykurvörum og sætindum.
„Bragðbættar mjólkurvörur bera ábyrgð á
6% af heildarsykurneyslunni skv.nýjustu lands-
könnun á mataræði Íslendinga.“
Breytingar á merkingum
Samkvæmt nýrri reglugerð um merkingar sem
tekur gildi árið 2016 þarf að tilgreina magn
sykra í matvörum. Jón segir allar umbúðir frá
MS vera í samræmi við núgildandi reglugerðir.
„Um þessar mundir er unnið að því að setja
upplýsingar um nákvæmt magn viðbætts syk-
urs inn á heimasíðu MS til að hjálpa neyt-
endum að átta sig betur á sykurmagninu.
Þessar upplýsingar verða aðgengilegar þar
fljótlega.“
MIKIÐ MAGN AF SYKRI Í ÝMSUM MJÓLKURVÖRUM
Falið sykurmagn blekkir marga
Kolvetni í 100 grömmum
3,6 gr. 3,7 gr. 12,9 gr. 16,6 gr. 26,4 gr.
MJÓLKURVÖRUR HAFA VERIÐ Í UMRÆÐUNNI VEGNA OFGNÓTTAR SYKURS Í VÖRUM SEM MARKAÐSSETTAR ERU FYRIR BÖRN. TALSMAÐUR
MJÓLKURSAMSÖLUNNAR SEGIR NEYTENDUR RÁÐA FERÐINNI OG HANN TELUR UMRÆÐUNA OFT BYGGJA Á RÖNGUM UPPLÝSINGUM.
NÆRINGARFRÆÐINGUR GEFUR NEYTENDUM GÓÐ RÁÐ UM HVERNIG SKILJA MÁ INNIHALDSLÝSINGAR BETUR TIL AÐ FORÐAST SYKURINN.
Jón Heiðar Gunnarsson jonheidar@mbl.is
Geir Gunnar
Markússon
Jón Axel
Pétursson
*Heilsa og hreyfingAlgeng mistök eru að byrja of hratt og gefast upp segir kraftakonan Annie Mist Þórisdóttir »23