Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Blaðsíða 23
Bananar þroskast hratt við stofuhita og verða fljótt gráir í ísskáp.
Best er að geyma þá í köldum kjallara eða kaldri geymslu en ekki
búa allir við slíkar aðstæður. Til að lengja endingartíma þeirra er
gott að pakka hverjum banana fyrir sig inn í pappír eða plast.
Aukinn endingartími banana
H
reystimennið Annie Mist Þórisdóttir er eina
konan í heiminum sem hefur unnið Crossfit-
leikana tvisvar. Hún hefur því oft verið köll-
uð „hraustasta kona heims“ og nýlega vann
hún sigur á sterku hreystimóti í Dubai. Hún er hafsjór
af vitneskju um heilbrigðan lífsstíl og er tilbúin til að
gefa okkur góð ráð.
Hvernig æfir þú?
Ég æfi fimm til sex daga vikunar, yfirleitt tvisvar á
dag. Ég vinn mjög mikið í tækni, síðan fylgi ég styrkt-
arprógrammi og vinn í þoli þess á milli. Ég tek stuttar
sem langar æfingar og reyni að passa upp á að vera ekki
með neina veikleika.
Henta slíkar æfingar fyrir alla?
Algerlega, erum með krakka frá þriggja ára og full-
orðna upp í sjötugt að æfa í Crossfit Reykjavik og hægt
er að laga æfingar að getu hvers og eins.
Hvernig er best fyrir nýliða að koma sér af stað?
Fyrsta og stærsta skrefið er að mæta! Restin fylgir
með. Við sjáum til þess að allir byrji á réttum hraða fyr-
ir sig. Fyrst fara allir í gegnum byrjendanámskeið og
síðan fá þeir að mæta í venjulega tíma þar sem
þeim er fylgt eftir í upphitun, æfingum og
teygjum.
Hver er lykillinn að góðum árangri?
Hafa gaman af því sem þú ert að gera og
setja markmið.
Hvað er það lengsta sem þú hefur hlaupið?
Laugavegurinn, u.þ.b. 55 km.
Hvað ráðleggurðu fólki
sem vill hreyfa sig meira?
Ég myndi mæla með að setja upp
gott æfingaplan sem og markmið til
að hægt sé að fylgjast með ár-
angri.
Hvernig væri líf án æfinga?
Allt öðruvísi. Ég get
ekki ímyndað mér það.
Hvað borðarðu til að
halda þér í formi?
Ég reyni að borða
eins hreint og ég get,
sem þýðir eins lítið unnar
matvörur og mögulegt er.
Reyni að elda sem mest af
þeim sjálf til að vita hvað er í
þeim. Passa að borða nóg.
Hvaða óhollustu ertu veik fyrir?
Dökku súkkulaði.
Hvað ráðleggurðu fólki
sem vill bæta mataræðið?
Prufa sig áfram. Mæli ekki með ein-
hverjum rosalegum kúrum heldur breyt-
ingu sem fólk getur viðhaldið í lífinu. Byrja
á því að gera sér grein fyrir hvaða næringu
það fær úr matnum sem það borðar. Prufa svo að taka
út ákveðnar vörur og sjá hvort það finnur jákvæðan
mun og vinna sig þannig áfram. Þetta er ekki spurning
um að borða minna, þetta er spurning um að borða
betra.
Hvaða gildi hefur hreyfing og líkamsrækt fyrir þig?
Það skiptir mig miklu máli að geta hreyft mig.
Ég hef alltaf verið aktív, frá því ég var krakki. Hef
alltaf haft gaman af því að hreyfa mig og það skiptir
mig miklu máli að halda áfram að hafa gaman af því.
Hver eru erfiðustu meiðsli sem þú hefur orðið fyrir?
Útbungun á hryggjarlið í neðra baki. Ég meiddist í nóv-
ember á seinasta ári þannig að það er næstum því kom-
ið ár núna, er enn að vinna mig upp úr þeim meiðslum
en þetta er allt að koma! Loksins!
Hvað eru algeng mistök hjá fólki við æfingar?
Byrja of hratt og gefast upp. Ég mæli með því að
byrja vel, sem þýðir að æfa oftar en einu sinni í viku
þannig að það séu ekki stanslausar harðsperrur en alls
ekki alla daga vikunar. Líkaminn þarf sína hvíld líka.
Hver er erfiðasti mótherjinn á ferlinum?
Bandarísk stelpa að nafni Kristan Clever.
Hún varð heimsmeistari árið 2010 þegar ég
varð í öðru sæti, en mér hefur tekist að sigra
hana seinustu tvö ár.
Hver er besti samherjinn?
Frederik Ægidius, kærastinn minn, æf-
ingafélagi og stuðningsmaður.
Hver er fyrirmynd þín? Veit að þetta er
klisja en verð að segja foreldrar mínir.
Þau hafa alið mig upp í því að
trúa því að allt sé hægt,
það útheimti bara mis-
mikla vinnu.
Skemmtileg saga?
Þegar ég var að
keppa 2012 á
heimsmeistaramótinu
í crossfit. Við vorum
nýbúin með sjósund-
ið, ég var á skipti-
stöðinni fyrir hjólið.
Þá kom einn af
skemmtilegri karakt-
erunum í CF-
heiminum úr sjónum,
afklæddist alveg og
byrjaði að þurrka sér
vel og vandlega fyrir
framan mig. Vissi ekki
alveg hvert ég átti að
horfa.
Skilaboð að lokum?
Aldrei að gefast upp!
Allt er mögulegt!
ÍÞRÓTTAKEMPA DAGSINS ANNIE MIST ÞÓRISDÓTTIR
Veik fyrir dökku súkkulaði
24.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Fjöldi fólks hendir hlaupaskónum inn í geymslu um leið og vetur kon-ungur mætir til byggða. Það telur snjó, slapp og hálku vera rétt-mæta ástæðu fyrir hreyfingarleysi og einbeitir sér að öðru innan-
dyra í staðinn. Að hlaupa í erfiðu vetrarfæri getur vissulega verið
krefjandi en það er hins vegar ekki boðleg afsökun fyrir því að detta úr
hlaupaformi. Með smáfyrirhyggu er auðvelt að
ryðja slíkum hindrunum úr vegi.
Mjög mikilvægt er að fara varlega í hálku og
því er skynsamlegt að fjárfesta í sérhönnuðum
gormum til að festa við hlaupaskóna. Slíkir
gormar eru bæði öruggir og einfaldir í notkun og
þeir fást víða. Einnig er hægt að notast við gömlu
góðu broddana en þeir eru aðeins þyngri og gróf-
ari. Þá bjóða einstaka skóframleiðendur upp á
sérstaka hlaupaskó með innbyggðum nöglum.
Endurskinsmerki eru einfaldlega lífs-
nauðsynleg við vetrarhlaup af augljósum ástæðum. Margir notast við sér-
stök vesti sem þakin eru endurskinsmerkjum og óhætt er að mæla með
þeim. Hægt er að festa kaup á slíkum vestum í ýmsum íþróttavöruversl-
unum. Þá er einnig hægt að kaupa ódýrari vesti á bensínstöðvum og í
stórmörkuðum. Einstaka hlauparar ganga svo langt að notast við höf-
uðljós til að sjá og sjást betur í myrkrinu en slíkt er ekki fyrir alla.
Lykilatriðið varðandi fatnað er að klæða sig ekki of mikið. Um leið og
líkaminn fer af stað framleiðir hann oftast nægilega orku til að halda á
manni hita. Of mikið að fötum veldur of miklum hita um leið og líkaminn
byrjar að svitna. Bómullarflíkur eru afleitur kostur við vetrarhlaup því
um leið og bómullin blotnar missir hún einangrunargildi sitt. Æskilegra
er að klæðast þunnum langerma ullarbolum og/eða sérhönnuðum flíkum
sem anda og hrinda frá sér vatni. Ekki má gleyma að nota bæði húfu og
vettlinga því hægt er að stjórna hitanum með því að taka af sér húfuna og
vettlingana.
Sé hugað að ofangreindum þáttum er ekkert sem stendur í vegi fyrir
því að fólk nýti sér vetrartímann til að koma sér í virkilega gott hlaupa-
form. Það er einnig virkilega skemmtilegt að takast á við vetur konung,
hlæja upp í opið geðið á honum og leggja hann að velli.
Morgunblaðið/G.Rúnar
ÓFÆRÐ ER
HUGARÁSTAND
JÓN HEIÐAR
GUNNARSSON
Heilbrigt líf
* „Sá sem býr ekki yfir nægilegamiklu sjálfstrausti mun alltaffinna leiðir til að tapa.“
Carl Lewis
Morgunblaðið/Sigurgeir S.