Morgunblaðið - 02.12.2013, Síða 11

Morgunblaðið - 02.12.2013, Síða 11
ur en að elska og virða inn í vel- líðan? Friðarverðlaunahafinn Móðir Teresa sagði svo fallega; „Nei takk, ég vel að fara ekki í kröfu- göngu gegn stríði, en ef þú býður mér í göngu með friði, þá er mér ljúft að taka þátt.“ Matur er grunnþörf og mikil- vægt er að njóta hans og að hann verði manni að góðu. Að borða með sektarkennd og skömm með hugarfarinu: „Ég veit ég ætti nú ekki …“ mætti gjarnan víkja fyrir „Þetta er gott og fer vel í mig og ég nýt þess …!“ Það sem við gerum með athygli og styrkingu á hinu jákvæða er mun vænlegra til árangurs og vel- líðunar og kemur svolítið af sjálfu sér; án átaks. Verum þakklát fyrir styrk okk- ar, eiginleika og hæfni. Meðtökum þá staðreynd að heilbrigðir líkam- ar eru á breiðu þyngdarbili og af margs konar lögun og stærð. Morgunblaðið/RAX Friðarsúlan Spurt er hvort við getum friðmælst við okkur sjálf. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2013 Morgunblaðið/Helgi Rafn Guðmu Kolbrún og börnin í stellingum F.v. Jón Steinar, Kristmundur Gíslason, vinur, Kolbrún, Ástrós og Eyþór Ingi á dýnu. Ástrós vildi halda áfram þar sem henni líkaði vel. Hættir í bardaga á toppnum Kolbrún tók undir staðhæfinguna með góðan félagsanda og liðsheild og sagði vel haldið utan um íþróttina. Það þakkaði hún helst góðum og ströngum aga Helga Rafns Guðmundssonar, að- alþjálfara deildarinnar, og Rutar Sig- urðardóttur. Þessi góði agi þyrfti að vera því formin snerust mikið til um fullkomnun. Hver staða þyrfti að vera kórrétt annars væri keppandi dreginn niður í stigum og samræðurnar koma aftur inn á mikilvægi þjálfunarinnar heima, sér í lagi fyrir mót og beltispróf. „Og þetta er erfitt. Það þarf gott út- hald og góða tækni til að geta keppt í bardaga og þar skiptir aginn mestu,“ bætti Kolbrún við og rifjaði upp fyrstu æfinguna sem hún var lengi að jafna sig á vegna mikilla harðsperra. „Ég gekk ekki út af æfingunni, heldur sveif, því álagið var svo mikið á líkamann. Rut þjálfari átti ekki von á því að ég myndi endast. En hún hafði ekki rétt fyrir sér þar.“ Kolbrún varð Íslandsmeistari í bardaga í mars sl. og ákvað í framhaldi af því að keppa ekki meira í bardaga, en halda áfram í tækninni. „Þetta var áfangi sem mig langaði til að ná og þegar ég náði honum var ég sátt við að hætta í bardaga.“ Jón Steinar dvelur nú sem skiptinemi í Brasilíu og er því í fríi frá íþróttinni, en hans árangur hefur ekki síður verið eftirtekt- arverður. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna á sínum ferli, m.a. verið bikarmeistari til margra ára, Íslands- meistari 5 ár í röð í bardaga og hefur tvisvar sinnum sinnum verið valinn taekwondo-maður Keflavíkur. Bara kostur að hafa mömmu með Kolbrún sagði að börnin hefðu aldrei kvartað yfir því að mamma þeirra væri þarna með þeim. Þvert á móti tæku þau því fagnandi og Jón Steinar valdi að æfa með mömmu sinni þegar hann var orðinn ungling- ur og Kolbrún sjálf komin með meiri reynslu. Nú æfa þær mæðgur saman, þó þær séu í hvor í sínum flokknum og geta stutt hvor aðra fyrir mót og beltispróf. Auk þess keppa þær orðið báðar í sömu mótum svo þær geta skipulagt sig saman. Nú er yngsti fjölskyldumeðlim- urinn, hinn átta ára gamli Eyþór Ingi, einnig kominn á fullt í taek- wondo og markmið hans var skýrt. „Mig langaði svo að öll fjölskyldan æfði saman.“ Hann sagðist hafa reynt að fá pabba sinn með. „Brynjar var svo sem alveg tilbúinn að prófa,“ sagði Kolbrún, „en það var meira að ég treysti honum ekki í þetta, var hrædd um að hann meiddi sig. Þetta er mjög erfitt og því eldri sem maður er því erfiðara.“ Eyþór sagðist hafa prófað fyrst þegar hann var fjögurra ára og fundist skemmtilegt á æfing- um. „Ég held að pabba finnist þetta ekki eins skemmtilegt.“ Úr myndasafni fjölskyldunnar Karate Það getur sannarlega verið gott að eiga eldri bróður í íþróttinni. Hér leiðbeinir Jón Steinar Ástrósu í keppni. » Taekwondo er ein fjölmenn- asta bardagalist heims. Hún er upprunnin í Kóreu og er byggð á aldagamalli sjálfsvarnarlist og var fundin upp fyrir um tvöþús- und árum. » Í dag er taekwondo íþrótt þar sem keppt er í poomse (form), kyourgi (bardagi) og kykopa (brot). Árið 1988 var í fyrsta sinn keppt í taekwondo á Ól- ympíuleikunum og frá árinu 2000 hefur íþróttin verið full- gild á Ólympíuleikunum. » Taekwondo er þjóðaríþrótt Suður-Kóreu. Taekwondo er samansett af þrem orðum: „tae“ (fótur), „kwon“ (hnefi) og „do“ (leið) og saman þýða þau „fóta- og handatækni“. » Íþróttafélagið Keflavík hefur náð góðum árangri í íþróttinni sem sannast best á því að af 17 landsliðsmönnum eru 13 úr Keflavík. Ein vinsæl- asta íþróttin NOKKRAR STAÐREYNDIR UM SJÁLFSVARNARLISTINA Slökkvilið höfuborgasvæðisins Munið að slökkva á kertunum Látið kerti aldrei loga innanhúss án eftirlits

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.