Morgunblaðið - 02.12.2013, Síða 13

Morgunblaðið - 02.12.2013, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2013 Smiðjuvegi 34 |Rauð gata | www.bilko.is | Sími 557-9110 BESTAVERÐIÐMUNDUEFTIR AÐ FINNA ÁÐUR EN ÞÚKAUPIR DEKK! BREMSUKLOSSAR SMURÞJÓNUSTA RAFGEYMAR BREMSUKLOSSAR TILBOÐ 20% AFSLÁTTUR AF VINNU 20% AFSLÁTTUR AF VINNU Fólksbíladekk Jeppadekk Bjóðum fjölda tegunda af vetrar og heilsársdekkjum fyrir fólks- bíla á frábæru verði. Bjóðum fjölda tegunda af vetrar og heilsársdekkjum fyrir jeppa á frábæru verði. Það voru ekki allir með verðtryggð lán á þessu tímabili og svo er það spurning hvort allir geti lagt fram séreignarsparnað. Það held ég ekki. Við tökum þessu á jákvæðan hátt og erum tilbúin að vinna eins og áð- ur með stjórnvöldum að útfærslu. Landsbankinn og aðrir bankar hafa lagt mikið af mörkum, tekið á sig sértækar skattahækkanir. Eins og fram kom í kynningu stjórnvalda hafa bankarnir gert langmest í 110%-leiðinni, en Íbúða- lánasjóður og aðrir langt um minna, þrátt fyrir að meginþorri þessara verðtryggðu íbúðalána liggi hjá sjóðnum. Það sýnir hvað bankarnir hafa þó verið tilbúnir að gera um- fram aðra. Það sást vel í kynningar- efni stjórnvalda [í Hörpu sl. laugar- dag] að bankarnir hafa gert mun meira en aðrir varðandi skuldaleið- réttingar fyrir heimilin.“ Kemur niður á viðskiptavinum – Þrengja fyrirhugaðar skatta- hækkanir vegna niðurfærslu lána að rekstri Landsbankans? „Það er búið að skattleggja bank- ana töluvert mikið á undanförnum árum. Það hefur verið komið á mörgum sköttum sem ekki eiga við fyrir aðra. Þegar menn halda áfram á þeirri braut þrengir þetta að okk- ur og á endanum getur það spilast lengra, bæði til viðskiptavina og með því að hafa áhrif á verðmæti eigna bankanna,“ segir Steinþór. Spurður hvort aðgerðirnar ýti undir þenslu segir Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslands- banka, mikilvægt að þær dreifist yf- ir fjögur ár. „Þetta kemur inn á þeim tíma þegar það er slaki í hag- kerfinu. Slakinn á hins vegar að vera horfinn árið 2015 samkvæmt okkar þjóðhagsspá og flestra ann- arra,“ segir Ingólfur sem telur að- gerðirnar geta ýtt undir þenslu árin 2016 og 2017. „Við teljum að þetta valdi ein- hverri verðbólgu, strax á næsta ári. Að mínu mati er sú áætlun Analytica vanmat að áhrifin muni eiga þátt í 0,1% verðbólgu á næsta ári. Verð- bólguáhrifin verða meiri. Þetta er verðbólgu- hvetjandi og hækkar með þeim hætti verðtryggð lán sem kemur á móti þeirri eftirgjöf sem ríkið er að veita þegar skoðuð eru áhrifin á hreina eign heimilanna og kaupmátt launa. Aðgerðirnar ýta undir eftirspurn í hagkerfinu en reikna má með því að fasteignaverð hækki samfara auknum umsvifum. Þetta mun auka fjárfestingar á fasteignamarkaði. Þetta gæti kallað á meiri hækkun launa í hagkerfinu en ella en á móti kemur aukin verðbólga þegar áhrif- in á kaupmátt launa er skoðuð.“ Regína Bjarnadóttir, forstöðu- maður greiningardeildar Arion banka, segir það koma á óvart að gert skuli ráð fyrir að verðbólga aukist aðeins um 0,1% á næsta ári vegna aðgerðanna. „Greiðslubyrðin mun lækka strax og niðurfellingin kemur til framkvæmda [um mitt næsta ár]. Mér finnst sérstakt að gert skuli ráð fyrir svo litlum þensluáhrifum vegna þessa.“ Regína sagði bankann mundu tjá sig betur um málið síðar í vikunni. Minnkar verðmæti Landsbankans  Bankastjóri Landsbankans segir aðgerðir í skuldamálum mjög íþyngjandi  Greiningardeildir Íslandsbanka og Arion banka telja þensluáhrif vanmetin Ingólfur Bender Steinþór Pálsson Regína Bjarnadóttir Skipting verð- tryggðra lána* *Tölur miðast við árslok 2012 **Fyrst og fremst Íslandsbanki og Arion banki Heimild: Seðlabanki Íslands, Hagfræðideild Landsbankans Íbúðalánasjóður 62% Lífeyrissjóðir 16% Landsbankinn 8% Aðrir** 14% 62% 16% 8% 14% BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Talsmenn bankanna töldu of snemmt að meta áhrif fyrirhugaðra aðgerða í skuldamálum á rekstur þeirra þegar eftir því var leitað í gær. Þá treystu þeir sér ekki til að meta áhrifin á lánasöfn sín. Fram kom í samtali Morgun- blaðsins við sérfræðing hjá Seðla- banka Íslands í síðustu viku að staða verðtryggðra íbúðalána sé nú um 1.230 milljarðar króna. Hér til hliðar má sjá skiptingu verðtryggðra lána eftir lánastofn- unum og eru tölurnar sóttar í nýja þjóðhagsspá Landsbankans. Er hér eingöngu um íbúðalán að ræða. Má af skífuritinu sjá að skatt- greiðendur tengjast um 90% hluta verðtryggðra lána á þann hátt að ríkið á ÍLS og 98% hlut í Lands- bankanum, auk þess að eiga hlut í Íslandsbanka og Arion banka. Þá eiga lífeyrissjóðirnir hluta lánanna, en launþegar fjármagna þá. Mun ekki hjálpa öllum Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, telur aðspurður að aðgerðirnar séu raunhæfar. „Já, mér sýnist að það sé ýmis- legt jákvætt í þessu og vonandi verður þetta til þess að við getum náð að ljúka þessum kafla og snúa okkur að öðru. Þetta er almenn að- gerð, en verður þó ekki til að hjálpa öllum. Sumir munu standa jafn illa eftir sem áður. Það er alveg ljóst. „Það liggur beint við að þetta styrkir lánasafnið,“ segir Sig- urður Erl- ingsson, for- stjóri Íbúða- lánasjóðs, um áhrif niður- færlsna verðtryggðra íbúðalána á stöðu sjóðsins. Lánasafn sjóðsins er nú að verðmæti um 800 milljarðar og eru öll lánin verðtryggð. Sigurður kveðst aðspurður ekki reiðubúinn að áætla hversu stór hluti safnsins verð- ur afskrifaður vegna aðgerð- anna. Sérfræðingar sjóðsins eigi eftir að leggjast yfir tæknilegar hliðar málsins og hvernig niður- færslan er framkvæmd. Bráða- birgðaniðurstaða þeirrar grein- ingar liggi fyrir innan tíðar. Spurður hvort búast megi við hagnaðartölum eftir næsta rekstrarár í kjölfar þess að hluti lánanna verði tekinn út og skil- greindur sem leiðréttingalán, sem verða afskrifuð, segir Sig- urður of snemmt að segja nokkuð til um það. „Áhrifin eru flóknari en svo,“ segir hann. Styrkir lána- safn sjóðsins ÁHRIFIN Á ÍLS Sigurður Erlingsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.