Morgunblaðið - 02.12.2013, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2013
Skoðaðu úrvalið á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040
Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Notaðir bílar
- Brimborg
Tilboð: 2.390.000 kr.
Ford Explorer Eddie Bauer 4x4 VS425
Skráður maí 2007, 4,0i bensín, sjálfskiptur
Ekinn 94.000 km.
Ásett verð: 2.790.000 kr.
Tilboð: 4.390.000 kr.
Ford Kuga Titanium SAWD TKV42
Skráður apríl 2012, 2,0TDCi dísil, sjálfskiptur
Ekinn 65.000 km.
Ásett verð: 4.790.000 kr.
Tilboð: 3.280.000 kr.
Ford Escape XLTAWD PMM87
Skráður júní 2011, 2,5i bensín, sjálfskiptur
Ekinn 77.000 km.
Ásett verð: 3.580.000 kr.
400.000 KR.
FERÐAFJÖRNOTAÐRA BÍLA
FINNDU BÍLINN ÞINN Á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
Rúmgóður
og öflugur
sportjeppi
*Allir sem kaupa notaðan bíl af Brimborg á tímabilinu 7. nóvember 2013 til ogmeð 20. desember 2013 fara í pott. Einn heppinn vinningshafi
verður svo dreginn út 23. desember 2013 og fær hann 400.000 kr. gjafabréf fráWOWair. Athugið á ekki við um umboðssölubíla.
Kauptu notaðan bíl af Brimborg
og þú átt möguleika á að vinna
*GJAFABRÉF FRÁWOWair
JEPPAR
ÍGÓÐUÚRVALI
Vertu með!
7manna
og vel
búinn
Hvert myndir
þú fara?
Í ábyrgð
Sparneytinn
og sportlegur
dísil jeppi
ákæran sé af pólitískum rótum
runnin.
Suthep er 64 ára og hefur verið
mjög áhrifamikill í Lýðræðis-
flokknum síðustu áratugi. Hann hef-
ur m.a. gegnt embættum landbún-
aðarráðherra og fjarskiptaráðherra.
Suthep sagði sig úr Lýðræðis-
flokknum til að stjórna mótmæl-
unum gegn ríkisstjórninni. Mótmæl-
in hófust fyrr í mánuðinum þegar
neðri deild taílenska þingsins sam-
þykkti umdeilt frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um almenna sakar-
uppgjöf. Andstæðingar
stjórnarinnar sögðu að frumvarpið
gæti orðið til þess að Thaksin kæm-
ist aftur til Taílands án þess að þurfa
að afplána fangelsisdóminn fyrir
spillingu. Efri deild þingsins hafnaði
frumvarpinu, en götumótmælin
héldu samt áfram.
Suthep og stuðningsmenn hans
segjast ekki ætla að gefast upp fyrr
en ríkisstjórn systur Thaksins
hrökklist frá völdum. Markmið
þeirra sé að uppræta „pólitíska vél
Thaksins“ sem hafi „keypt atkvæði“
í síðustu þingkosningum með kosn-
ingaloforðum sem stjórnin geti ekki
staðið við án þess að stofna efnahag
landsins í hættu.
Stjórnarandstæðingarnir segj-
ast ætla að koma á fót „þjóðarráði“
sem skipað verði fulltrúum ýmissa
samfélagshópa án kosninga. Þjóðar-
ráðið á að stjórna landinu á „póli-
tísku breytingaskeiði“ þar til efnt
verði til nýrra kosninga.
Stjórnmálaskýrendur hafa látið
í ljósi áhyggjur af því hversu óljósar
tillögur stjórnarandstæðinganna eru
um hvernig breyta eigi stjórn-
skipulaginu og uppræta „pólitíska
vél Thaksins“. Þeir benda enn-
fremur á að lýðræðið hefur verið
mjög ótryggt í Taílandi. Verði
stjórninni steypt af stóli verður það
nítjánda valdaránið eða valdaránstil-
raunin í landinu frá árinu 1932.
Sjálfur sakaður um spillingu
Stjórnmálaskýrendur segja það
einnig sæta furðu hversu margir
virðast trúa loforðum Sutheps um að
uppræta spillingu í landinu í ljósi
þess að hann hefur sjálfur verið sak-
aður um að vera spilltur.
Suthep var til að mynda sak-
aður um spillingu árið 1995 þegar
hann var sagður hafa veitt ellefu
auðugum fjölskyldum jarðaréttindi
sem ætluð voru fátækum bændum
þegar umbætur voru gerðar á land-
búnaðarkerfinu. Hann neyddist
einnig til að segja af sér þing-
mennsku árið 2009 þegar hann var
sakaður um að hafa brotið stjórnar-
skrárákvæði um að enginn þingmað-
ur mætti eiga hlutafé í fyrirtækjum
sem nytu ívilnunar ríkisins.
Taílendingar þurfa því að velja
á milli tveggja fylkinga sem báðar
virðast lúta stjórn spilltra stjórn-
málamanna. Óttast er að ólgan komi
niður á efnahag landsins líkt og
fjöldamótmælin á árunum 2008 og
2010 þegar sömu fylkingum laust
saman á götunum.
AFP
Ólga Mótmælandi dælir reyk á lögreglumenn sem vörðu skrifstofu forsætisráðherra Taílands í Bangkok í gær.
Vilja uppræta „póli-
tíska vél Thaksins“
Forystumenn beggja fylkinga sakaðir um spillingu
Yingluck
Shinawatra
Suthep
Thaugsuban
BAKSVIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Suthep Thaugsuban, fyrrverandi að-
stoðarforsætisráðherra Taílands, fer
fyrir stjórnarandstæðingum sem
hafa efnt til götumótmæla síðustu
daga til að krefjast þess að stjórn
landsins fari frá völdum.
Suthep var aðstoðarforsætis-
ráðherra á árunum 2008-2011 í
stjórn Abhisit Vejjajiva, þáverandi
forsætisráðherra. Stjórnin var
mynduð tveimur árum eftir að her
Taílands steypti auðkýfingnum
Thaksin Shinawatra af stóli for-
sætisráðherra. Thaksin er nú í út-
legð eftir að hafa verið dæmdur í
tveggja ára fangelsi fyrir spillingu.
Thaksin komst til valda árið
2001 með miklum stuðningi verka-
fólks í þéttbýli og kjósenda í norður-
og austurhluta landsins þar sem lífs-
kjörin eru miklu verri en í Bangkok
og nágrenni. Íbúar norður- og
austurhlutans telja sig hafa verið
hlunnfarna í stjórnmálunum þar til
Thaksin kom til sögunnar.
Mikil andstaða er hins vegar við
Thaksin meðal kjósenda í suður-
hluta landsins, millistéttarfólks og
yfirstéttarinnar í Bangkok. And-
stæðingar hans saka hann um spill-
ingu og segja hann vera ógn við taí-
lenska konungdæmið.
Sögð strengjabrúða
Flokkur Thaksins sigraði í
þingkosningum í júlí 2011 og yngsta
systir auðkýfingsins, Yingluck
Shinawatra, fetaði þá í fótspor hans
og varð forsætisráðherra, fyrst
kvenna í Taílandi. Fyrir þingkosn-
ingarnar hafði Yingluck aldrei gegnt
opinberu embætti eða verið í fram-
boði. Hún hafði þá verið forstjóri
AIS, fjarskiptafyrirtækis sem bróðir
hennar stofnaði og eignarhalds-
félags fjölskyldu þeirra.
Andstæðingar Thaksins segja
að systir hans sé aðeins strengja-
brúða hans. Þeir benda á að hún
hafði enga pólitíska reynslu áður en
hún varð forsætisráðherra og segja
að eina ástæða þess að hún gegnir
embættinu nú sé sú að hún er systir
auðkýfingsins umdeilda.
Suthep Thaugsuban var að-
stoðarforsætisráðherra árið 2010
þegar ríkisstjórn Abhisits Vejjajiva
fyrirskipaði hernum að kveða niður
götumótmæli stuðningsmanna
Thaksins. Meira en 90 manns biðu
bana í átökum sem stóðu í tvo mán-
uði. Suthep og Abhisit eiga yfir höfði
sér saksókn fyrir manndráp vegna
blóðsúthellinganna en þeir segja að
Að minnsta kosti fjórir biðu bana og
63 slösuðust þegar farþegalest fór út
af sporinu í Bronx í New York í gær-
morgun. Ellefu voru á sjúkrahúsi og
taldir í lífshættu í gærkvöldi.
Lestin var að sveigja inn á lestar-
stöð þegar slysið varð og fjórir vagn-
ar fóru út af sporinu.
Lestin var með sjö vagna og kom
frá Poughkeepsie. Hún fór út af
skammt frá Spuyten Duyvil-stöðinni
um klukkan 7.20 að staðartíma, 12.20
að íslenskum tíma.
Ekki liggur nákvæmlega fyrir
hvað gerðist en að minnsta kosti einn
sjónarvottur sagði að lestin hefði far-
ið of hratt og verið á miklu meiri
hraða en venjulega á þessum stað.
Litlu munaði að nokkrir vagnanna
færu í tvær nálægar ár.
Mannskætt lestar-
slys í New York
Lestin sögð hafa farið of hratt
AFP
Slys Tveir vagna lestarinnar eftir
að hún fór út af sporinu.