Morgunblaðið - 27.01.2014, Page 8
8 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2014
Svarið við spurningu dagsins
Súpan kemur í fötu en fiskinum er pakkað sér.
Eldunaraðferð þegar heim er komið: Súpan er hituð upp að suðu, fiskinum er jafnað út milli súpudiska
eða settur í pottinn um leið og súpan er borin fram.
Hvað þarftu mikið?
Súpa sem aðalréttur – 0,5 ltr/mann Súpa sem forréttur – 0,25 ltr/mann
Austurlensk fiskisúpa
Mánudaga - föstudaga 10.30 - 18.30
Laugardaga frá 11.00-16.00
OPNUNARTILBOÐ
Á NÝBÝLAVEGI
1.500 kr/ltr
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Nýbýlavegi 4, 200 Kóp - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
Tilboðið gildir einnig á Suðurlandsbraut 10
Vegrið á milli akreina þar sem ek-ið er í gagnstæðar áttir dregur
úr hættu á slysum. Um þetta ættu
allir að geta verið sammála. Og slys
sem verða vegna þess
að vegrið skortir á
milli tvöfaldra gatna
eða breiðari þar sem
ekið er í gagnstæðar
áttir geta verið mjög
alvarleg, eins og
dæmin sanna.
Þess vegna var til-laga sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn
um að skora á Al-
þingi og Vegagerðina
að ljúka við að setja
upp slík vegrið á
höfuðborgarsvæðinu
vel til fundin.
Um leið var sú afstaða meirihlut-ans að fella tillöguna óskiljan-
leg. Og ekki varð hún skiljanlegri
þegar Dagur B. Eggertsson rök-
studdi hana.
Dagur heldur að útúrsnúningurog sniðugheit hjálpi í þessu og
sagði um afstöðu meirihlutans að
vegrið ættu heima á hraðbrautum
en hraðbrautir ættu ekki heima í
íbúðahverfum.
Auðvitað er enginn að tala umhraðbrautir, en göturnar sem
tillagan snýst um eru meðal annarra
Sæbraut, Miklabraut, hluti Hring-
brautar, Höfðabakki og Gullinbrú.
Kjartan Magnússon furðar sig áafstöðu meirihlutans en bendir
þó á að hún sé í samræmi við þá
stefnu meirihlutans, „að hverfa frá
verkefnum í vegagerð í borginni en
leggja þess í stað áherslu á gælu-
verkefni við Hofsvallagötu og Borg-
artún. Þær framkvæmdir auka ekki
öryggi heldur tefja fyrir umferð og
fækka bílastæðum.“
Dagur B.
Eggertsson
Engin vegrið
í Reykjavík
STAKSTEINAR
Kjartan
Magnússon
Veður víða um heim 26.1., kl. 18.00
Reykjavík 0 léttskýjað
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri -4 léttskýjað
Nuuk -8 alskýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló -7 snjóél
Kaupmannahöfn -5 snjókoma
Stokkhólmur -3 léttskýjað
Helsinki -8 snjóél
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 5 skúrir
Dublin 5 skúrir
Glasgow 5 skýjað
London 10 léttskýjað
París 7 skúrir
Amsterdam 3 léttskýjað
Hamborg -10 alskýjað
Berlín -10 léttskýjað
Vín -5 snjókoma
Moskva -12 heiðskírt
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 17 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 15 heiðskírt
Róm 7 léttskýjað
Aþena 10 skýjað
Winnipeg -20 skafrenningur
Montreal -20 léttskýjað
New York -6 heiðskírt
Chicago -7 skýjað
Orlando 16 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:23 16:59
ÍSAFJÖRÐUR 10:47 16:45
SIGLUFJÖRÐUR 10:31 16:27
DJÚPIVOGUR 9:57 16:24
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
„Ég hef nú ekki rekist á geitur í Kol-
beinsdal áður, svo ég muni eftir,“
segir Sigurður Sigurðsson við mbl.is
en í vélsleðaferð um Kolbeinsdal í
Skagafirði nýverið rakst hann á
tvær geitur, ásamt þremur lömbum.
„Mér sýndist þær vera nokkuð
illa farnar og skinnið alveg farið af
löppunum á þeim,“ bætir Sigurður
við. Hann telur að mögulega hafi
rjúpnaskyttur fælt geiturnar burt af
heimaslóðum.
Bar kiðið á bakinu
Geiturnar tvær eru í eigu Guð-
rúnar Þórunnar Ágústsdóttur á Há-
leggsstöðum í Deildardal í Skaga-
firði. Guðrún segir að upprunalega
hafi hún saknað fimm geita, en þrjár
þeirra hafi nú skilað sér. „Geiturnar
hafa oftast bara verið hérna neðst í
dalnum. Þessar geitur hafa lagt á sig
ótrúlegt ferðalag til að komast í Kol-
beinsdal. Eitt kiðið skilaði sér heim,
þegar í október. Það birtist ofarlega
í fjallinu og sonur minn sem er 12
ára stökk og náði í það. Hann þurfti
að bera það á bakinu hluta leiðar-
innar því það var komin mikil hálka
og ís,“ segir Guðrún. Hún segir að
hafurinn hafi verið svolítið illa far-
inn. „Það er eins og hann hafi rekið
sig á eitthvað því hann var með
bólgu umhverfis augað.
Geitur fundust á afrétti með lömbum
Höfðu farið frá bæ í Deildardal í
Skagafirði og fundust í Kolbeinsdal
Ljósmynd/Guðrún Ágústsdóttir
Fjallageitur Ein geitanna á Há-
leggsstöðum í Deildardal.
Hörð keppni verður um efstu sæti á
lista Pírata fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar í vor. Nú þegar hafa
fjögur framboð borist í tvö efstu
sæti listans.
Halldór Auðar Svansson, tölv-
unarfræðingur hjá Hagstofu Ís-
lands og kafteinn Pírata í Reykja-
vík, hefur boðið sig fram í fyrsta
sætið. Þórgnýr Thoroddsen, tóm-
stundafræðingur og meðlimur í
framkvæmdaráði Pírata á Íslandi,
gefur einnig kost á sér í fyrsta sæt-
ið. Þá hafa þau Þórlaug Ágústs-
dóttir og Arnaldur Sigurðarson
bæði gefið kost á sér í annað sæti
listans. Kosið verður rafrænt í próf-
kjörinu og hafa þeir kjörrétt sem
skráðir hafa verið í flokkinn 30
daga fyrir prófkjör.
Barist um efstu
sæti á lista Pírata
í Reykjavík
Sævar ekki
í framboði
Framboðstilkynning sem birt var í
Morgunblaðinu sl. laugardag, um að
Sævar Sævarsson ætlaði að gefa
kost á sér fyrir VG í Reykjavík, var
hrekkur félaga Sævars, samkvæmt
yfirlýsingu sem blaðinu barst:
„Undirritaður biðst velvirðingar á
að hafa sent framboðstilkynningu
undir nafni vinar míns, Sævars Sæv-
arssonar, sem er ekki að fara í fram-
boð fyrir Vinstri græna. Virðingar-
fyllst, Helgi Þór Gunnarsson.“
LEIÐRÉTT