Morgunblaðið - 27.01.2014, Side 31
karla í handbolta hjá Val 1999-2003,
var þjálfari m.a. hjá Gróttu 2010 og
þjálfaði íslenska U-20 landslið karla
til 2012, hefur verið þjálfari austur-
íska handboltaliðsins Bregenz frá
2012 og mun taka við sem þjálfari
þýska liðsins Magdeburg á komandi
sumri. Þar með verður hann fimmti
íslenski þjálfarinn sem stýrir hand-
boltaliðum í þýsku 1. deildinni. Hinir
eru Alfreð Gíslason sem stýrir Kiel;
Guðmundur Guðmundsson sem þjálf-
ar Rhein-Neckar Löwen; Dagur Sig-
urðsson sem þjálfar Füchse Berlin,
og Aðalsteinn Eyjólfsson sem þjálfar
Eisenach.
Fjölskylda
Kona Geirs er Jóhanna Vilhjálms-
dóttir, f. 7.12. 1970, fyrrv. dagskrár-
gerðarmaður hjá Sjónvarpinu og
ÍNN. Foreldrar hennar eru Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, f. 26.4. 1946,
lögfræðingur og fyrrv. borgarstjóri,
og f.k.h., Anna J. Johnsen, f. 13.1.
1946, kennari.
Börnin eru Arnar Sveinn Geirsson,
f. 30.8. 1991, (stjúpsonur Jóhönnu)
leikmaður með meistaraflokki Vals í
knattspyrnu og nemi í hagfræði við
HÍ; Anna Björk Hilmarsdóttir, f.
18.5. 1993, stúdent (faðir: Hilmar G.
Hjaltason); Ragnheiður Katrín Rós
Geirsdóttir, f. 9.7. 2002; Vilhjálmur
Geir Geirsson, f. 25.5. 2007; Sveinn
Geirsson, f. 8.12. 2008.
Fyrri kona Geirs var Guðrún
Helga Arnarsdóttir, f. 15.7. 1964, d.
16.5. 2003, flugfreyja. Foreldrar
hennar eru Arnar Jónsson, f. 21.1.
1943, leikari, og Þórhildur Þorleifs-
dóttir, f. 25.3. 1945, leikstjóri og
fyrrv. leikhússtjóri og alþm.
Sonur Geirs og Guðrúnar Helgu:
Arnar Sveinn Geirsson, f. 30.8. 1991.
Albróðir Geirs er Sveinn Sveins-
son, f. 16.3. 1968, sjúkraþjálfari með
eigin stofu, búsettur í Reykjavík.
Hálfsystkini Geirs, samfeðra, eru
Björn Ingi Sveinsson, f. 26.11. 1951,
jarðskjálftaverkfræðingur, búsettur í
Kópavogi, og Margrét Jóna Sveins-
dóttir, f. 12.10. 1953, húsfreyja í
Bandaríkjunum.
Foreldrar Geirs voru Sveinn
Björnsson, f. 10.10. 1928, d. 16.9.
1991, forseti ÍSÍ og kaupmaður í
Reykjavík, og s.k.h., Ragnheiður
Guðrún Thorsteinsson, f. 24.1. 1932,
d. 28.6. 2002, verslunarmaður og
aðalbókari.
Úr frændgarði Geirs Sveinssonar
Geir
Sveinsson
Ragnheiður Stefánsdóttir
Hafstein húsfr. í Rvík
Hannes Hafstein
skáld og ráðherra í Rvík
Sigríður Thorsteinsson
f. Hafstein húsfr. í Rvík
Geir Thorsteinsson
útgerðarm. í Rvík
Ragnheiður Guðrún Geirsdóttir
verslunarm. og ritari í Rvík
Kristjana Geirsdóttir
f. Zoëga húsfr. í Rvík
Guðný Anna Eggertsdóttir
húsfr. að Hálsi
Sveinn Sveinsson
b. og kennari að Hálsi í Eyrarsveit
Ingibjörg Sveinsdóttir
húsfr. í Rvík
Sveinn Björnsson
forseti ÍSÍ og kaupm. í Rvík
Björn G. Jónsson
kaupm. í Rvík
Ingibjörg Sigurðardóttir
frá Múlakoti
Jón Björnsson
skipasmiður í Rvík, bróðursonur Valgerðar
ömmuVals Gíslasonar leikara
Guðmundur Ingi Björnsson
forstj. í Rvík
Hallgrímur Sveinsson
b. á Hálsi í Eyrarsveit
Jón Sveinsson
sjóm. í Rvík
Sveinn Hallgrímsson
skólastj. Bænda-
skólans á Hvanneyri
Kristmundur Jónsson
kaupm. í Rvík
Sigríður Dúna
Kristmunsdóttir
prófessor og
fyrrv. alþm. og
sendiherra
Kristján Eggertsson
b. í Dalsmynni
Eggert Kristjánsson
stórkaupmaður
Þorsteinn Thorsteinsson
útgerðarm. og kaupm. í Rvík
Pétur Jens Thorsteinsson
útgerðarm. á BíldudalMuggur
Kristjana Milla Thorsteinsson
framkvæmdastjóri
Ragnar Thorsteinsson
framkvæmdast.
Hallgrímur Thorsteinsson
fjölmiðlamaður
Sofía Lára Hafstein
húsfr. í Rvík
Ragnheiður Hafstein
forsætisráðherrafrú
Pétur Hafstein
fyrrv. hæsta-
réttardómari
Afmælisbarnið Landsliðsfyrirliði
og íþróttamaður ársins 1997.
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2014
Handverksbakarí
fyrir sælkera
LLSBAKARÍ
Aldagamlar aðferðir í bland
við nýjar til að gefa hverju
brauði sinn karakter.
Úrval af hollum og góðum brauðum
unnum úr gæða hráefnum.
Við bökum 100% speltbrauð,
heilkornabrauð, gerlaus brauð,
ítölsk brauð, hvítlauksbrauð,
kúmenbrauð, sigtibrauð o.fl. o.fl.
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
MOSFE
Sigurður Sigurðsson íþrótta-fréttamaður fæddist í Hafn-arfirði 27.1. 1920. Foreldrar
hans voru Sigurður Sigurðsson, bif-
reiðarstjóri og síðar kaupmaður og
Elísabet Böðvarsdóttir kaupmaður.
Fósturforeldrar Sigurðar voru
Þórður Gunnlaugsson, kaupmaður í
Reykjavík, og Ólafía Í. Þorláksdóttir
húsfreyja.
Eiginkona Sigurðar var Sigríður
Sigurðardóttir verslunarstjóri og
eignuðust þau þrjú börn, Ingibjörgu,
Hrafnhildi og Sigurð Örn.
Sigurður lauk verslunarprófi frá
Verslunarskóla Íslands 1938 og var
við fiðlunám í Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1940-44. Hann stundaði
skrifstofustörf hjá heildversluninni
I. Brynjólfsson & Kvaran frá 1938,
hóf störf við Ríkisútvarpið árið 1942
og starfaði þar í 37 ár, fyrst sem
fulltrúi á innheimtudeild, var síðan
innheimtustjóri, var fréttamaður frá
1964 og aðstoðarfréttastjóri frá
1974. Hann var íþróttafréttamaður
1948-71 og gegndi íþróttafrétta-
mennsku sem aðalstarfi á útvarpi og
sjónvarpi á árunum 1966-71.
Það var fyrst og fremst í því starfi
sem Sigurður varð vinsæll og þjóð-
þekktur og jafnframt um árabil eitt
helsta viðfangsefni Ómars Ragnars-
sonar sem eftirhermu. Sigurður var
vanur að hefja lýsingar og íþrótta-
fréttir á kveðjunni. „Komið þið
sæl!“, en þá kveðju áttu Íslendingar
líka eftir að heyra af vörum
skemmtikraftsins Ómars á óteljandi
árhshátíðum um langt árabil.
Skömmu síðar varð Ómar sjálfur
íþróttafréttamaður. En Jóhannes
Kristjánsson hefur þó aldrei orðið
ráðherra eins og Guðni Ágústsson.
Sigurður var formaður Samtaka
íþróttafréttamanna og Starfsmanna-
félags Ríkisútvarpsins og sat í vara-
stjórn BSRB. Hann var sæmdur
riddarakrossi Hinnar íslensku fálka-
orðu fyrir brautryðjandastörf á sviði
íþróttafréttamennsku, var sæmdur
Gullmerki Alþjóðasambands íþrótta-
fréttamanna og Sambands íþrótta-
fréttamanna í Finnlandi og á Íslandi,
sæmdur gullmerki Vals og heiðurs-
merki FRÍ og KSÍ.
Sigurður lést 3.4. 1997.
Merkir Íslendingar
Sigurður
Sigurðsson
95 ára
Jóhanna Björnsdóttir
90 ára
Jónas Þorsteinsson
85 ára
Pálína Gísladóttir
Þorgerður E. Friðriksdóttir
80 ára
Auðbjörg Ingimundardóttir
Bára Magnúsdóttir
Guðrún V. Hallgrímsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir
Sjöfn Helgadóttir
75 ára
Guðrún Lóa Kristinsdóttir
Hörður Hólm Garðarsson
Jónas Páll Guðlaugsson
70 ára
Auðbjörg Guðmundsdóttir
Hafdís Guðmundsdóttir
Hallvarður Sigurjónsson
Kristín Jóhannsdóttir
Sigþór Ingólfsson
Þórir Jóhann Ólafsson
60 ára
Árdís Ívarsdóttir
Birgir Skjóldal
Einar Jónatansson
Guðlaug Guðjónsdóttir
Guðrún Erla Gunnarsdóttir
Jón Eggert Bragason
Linda María Fredriksen
Nicolai Jónasson
Ragnhildur Bjarnadóttir
Sigurbjörg Einarsdóttir
Svala Sigurðardóttir
50 ára
Fjalar Sigurðarson
Guðrún Margrét
Salómonsdóttir
Ingigerður Guðmundsdóttir
Mikael Bjarki Eggertsson
Sóley Einarsdóttir
Steindór Tómasson
Steven Grounsell
40 ára
Berglind Heiða
Sigurbergsdóttir
Dorota Helena Kowalewska
Gísli Guðmundsson
Guðmundur Freyr Magnús
Helgi Þór Hreiðarsson
Marcin Andrzej Zmuda
Matthías Páll Imsland
Steindór Ingi Erlingsson
Svava M. B. Ásgeirsdóttir
Wioleta Maria Mieszaniec
Þórhalla Pálsdóttir Snædal
Þórir Sigfússon
Þór Steinarsson
30 ára
Andri Stefan Guðrúnarson
Anna Berglind Jónsdóttir
Halldór Örn Halldórsson
Heather Ann Foster
Ragnheiður B. Guðnadóttir
Þóra Ólafsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Helga Lára fædd-
ist í Reykjavík, ólst þar
upp og er þar búsett. Hún
lauk MS-prófi í sálfræði
frá HÍ og starfar nú við
markaðsrannsóknir hjá
Maskínu.
Maki: Vignir Örn Hafþórs-
son, f. 1983, sérfræðingur
hjá Vinnumálastofnun.
Dóttir: Inga Jóna Haarde
Vignisdóttir, f. 2012.
Foreldrar: Inga Jóna
Þórðardóttir, f. 1951, og
Geir H. Haarde, f. 1951.
Helga Lára
Haarde
30 ára Baldur ólst upp á
Akureyri, er búsettur í
Reykjavík, lauk meistara-
prófi í lögfræði frá HÍ og
starfar á lögmannsstofu í
Reykjavík.
Maki: Erla Arnardóttir, f.
1986, lögmaður hjá Arion
banka.
Dóttir: Ása Karitas Bald-
ursdóttir, f. 2013.
Foreldrar: Arnbjörg Vign-
isdóttir, f. 1950, og Sig-
mundur Brynjar Sigur-
geirsson, f. 1958.
Baldur Arnar
Sigmundsson
30 ára Guðjón ólst upp í
Reykjavík, er þar búsett-
ur, lauk atvinnuflug-
mannsprófi frá Flugskóla
Íslands og starfar nú hjá
bílafyrirtækinu Bernhard
ehf.
Maki: Sandra Guðmunds-
dóttir, f. 1984, geislafræð-
ingur við LSH.
Foreldrar: Geir Gunn-
arsson, f. 1952, forstjóri
Bernhard, og Ingibjörg
Snorradóttir, f. 1951, skrif-
stofumaður hjá Bernhard.
Guðjón Geir
Guðmundsson
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón