Morgunblaðið - 27.01.2014, Page 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2014
VIÐTAL
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
F A R A N G U R, dansverk eftir
Grímuverðlaunahöfundinn Val-
gerði Rúnarsdóttur, verður frum-
sýnt af Íslenska dansflokknum
hinn 8. febrúar næstkomandi á
stóra sviði Borgarleikhússins,
ásamt tveimur öðrum dans-
verkum. Dansarar í verki Val-
gerðar eru þau Brian Gerke, Ein-
ar Anton Sörli Nikkerud, Halla
Þórðardóttir, Hjördís Lilja Örn-
ólfsdóttir og Snædís Ingadóttir en
verkið er samið sérstaklega fyrir
dansara dansflokksins.
„Innblásturinn að verkinu er
sóttur í minnið og stöðuga mótun
þess en ég hef unnið verkið í ná-
inni samvinnu við dansarana,“
segir Valgerður. „Við höfum verið
að velta fyrir okkur hverju maður
man eftir, hverju maður gleymir
og hvað kveikir minningar. Þetta
er mjög vítt og breitt viðfangsefni
og við höfum farið um víðan völl í
þessu ferli. Öll erum við með far-
angur af minningum. Við höfum
velt fyrir okkur eigin minningum
og sömuleiðis minningum annarra.
Hvernig sögur ferðast kynslóð
fram að kynslóð og hvernig minn-
ing fólks lifir í þeim. Sjálf sótti ég
í sögur sem ég hef heyrt af mínum
forfeðrum. Það gerði aftaka
páskaveður veturinn 1918 með
miklu frosti og úrkomu. Fólk lét
lífið víða um land og meðal annars
hann langafi minn þegar hann fór
að leita fjár í Arnarfirðinum.
Langamma mín missti manninn
sinn og varð að láta frá sér börn.
Stuttu síðar dreymdi hana draum
þar sem maðurinn hennar sálugi
birtist henni í draumi, þungur á
brún og talar um Sigurð, afa
minn. Þá fór langamma á bæinn
þar sem sonurinn hafði verið sett-
ur í fóstur. Þar voru komin upp
mikil veikindi sem leiddu nokkra á
bænum síðar til dauða. Hún tók
Sigurð með sér og lét hann ekki
frá sér eftir þetta. Kannski bjarg-
aði draumurinn lífi Sigurðar og
gerði það að verkum að ég er hér
í dag. En þær sögur og aðstæður
sem við höfum verið að vinna með
birtast í verkinu á mjög abstrakt
hátt.“
Þegar Valgerður er beðin um að
lýsa verkinu segir hún: „Ætli
verkið sé ekki eins og lífið sjálft,
þarna er bæði léttleiki og alvara.
Það er ekki bara dansað í verkinu
heldur líka sungið því íslenskir
dansarar eru mikið hæfileikafólk
og flinkir í svo mörgu. Þetta hefur
verið alveg sérstaklega skemmti-
leg samvinna.“
Tónlistin í verkinu er eftir Daní-
el Bjarnason. „Það er ákaflega
gaman að fá að nota tónlistina
hans,“ segir Valgerður. „Í sýning-
unni eru svo nostalgísk dægurlög,
sem minna mig á barnæsku mína,
eftir Magnús Eiríksson. Það væri
reyndar alveg hægt að gera heila
sýningu með lögunum hans Magn-
úsar Eiríks, þau eru svo mörg frá-
bær.“
Dansað í Önnu Kareninu
Valgerður hefur komið víða við
á ferli sínum sem dansari og dans-
höfundur en hún starfaði um ára-
bil hjá Íslenska dansflokknum sem
dansari. Hún hlaut Grímuverðlaun
fyrir verk sitt Eyjaskegg árið
2011. Hún hefur undanfarin sex ár
unnið með einum eftirsóttasta
danshöfundi heims, Sidi Larbi
Cherkaoui. „Hann starfar úti um
allan heim með fólki af öllum þjóð-
ernum og ég hef því verið í mjög
alþjóðlegu kompaníi,“ segir Val-
gerður. „Ég kynntist Sidi Larbi
þannig að ég hafði unnið með
Ernu Ómarsdóttur sem hafði unn-
ið með honum. Þegar Larbi vant-
aði dansara frá Norðurlöndum í
fjölþjóðlegt dansverkefni hafði
hann samband við Ernu sem benti
á mig. Og þar sem Larbi hafði séð
mig dansa í sýningunni We are all
Marlene Dietrich valdi hann mig.
Ég hef unnið með honum í sex ár
og tekið þátt í sýningum sem sum-
ar hafa verið á sýningarferðalagi í
allt að því tvö ár. Þetta hefur ver-
ið mikil og dýrmæt reynsla.“
Valgerður hefur tekið þátt í
kvikmyndum og stórum óperuupp-
færslum og henni brá fyrir í kvik-
myndinni Anna Karenina sem Joe
Wright leikstýrði og sem Keira
Knightly og Jude Law fóru með
aðalhlutverk í. „Larbi er stór-
stjarna í dansheiminum og hann
var beðinn af leikstjóra mynd-
arinnar Anna Karenina að kóreó-
grafera myndina í heild sinni og
það voru stór og mikil dansatriði í
myndinni sem ég tók þátt í auk
þess að aðstoða Larbi við undir-
búning á myndinni,“ segir Val-
gerður. „Við dansararnir vorum í
glæsilegum búningum og með
flotta hárgreiðslu. Þetta var gríð-
arlega skemmtileg reynsla. Við
æfðum með Kiru Knightly og hún
var einstaklega fagmannleg í sinni
vinnu og fljót að læra sporin. Hún
var mjög vingjarnleg en svo þegar
kom að tökum þá var hún í sínum
heimi, hugsaði einungis um sen-
urnar sínar og var mjög einbeitt.
Þegar maður sér hana vinna
finnst manni ekki skrýtið að hún
hafi náð svo langt.
Maðurinn minn, Hafsteinn
Gunnar Sigurðsson leikstjóri, ger-
ir kvikmyndir hér heima en ég
hafði einmitt nýlega verið að að-
Farangur af
minningum
Nýtt dansverk eftir Valgerði
Rúnarsdóttur verður frumsýnt
í Borgarleikhúsinu 8. febrúar
Íslenski dansflokkurinn sýnir þrjú verk á Stóra sviði Borgarleikhússins
hinn 8. febrúar. Farangur eftir Valgerði Rúnarsdóttur er eitt þeirra. Ann-
að er Tilbrigði, eftir Láru Stefánsdóttur, listrænan stjórnanda Íslenska
dansflokksins. Verkið sameinar dans og tónlistarflutning en Bryndís
Halla Gylfadóttir, leiðandi sellóleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leik-
ur tónverk finnska tónskáldsins Jean Sibelius Theme and variations for
Solo Cello frá 1887. Tilbrigði Sibeliusar eru virtúósísk að gerð. Tón-
skáldið leikur sér með brotna hljóma, trillur og tvígrip og nýtir sér breitt
tónsvið hljóðfærisins. Við tónverkið er dansaður eindans þar sem dans-
arinn er eins og endurkast af tónlistinni, leikur með tilbrigði, endurtekin
form og blæbrigði.
Þriðja verkið er Berserkir er eftir danska danshöfundinn Lene Boel. Í
verkinu blandar Lene saman break, nútímadans og ballett með akróbat-
ísku tvisti. Lene Boel er listrænn stjórnandi og danshöfundur Next Zone
dansflokksins en hún hefur fjölbreytta menntun frá New York, London
og Hollandi. Verk hennar eru einkum undir áhrifum frá nútímadansi og
break-dansi og er hún þekkt fyrir sjónrænt fallegar sýningar þar sem
ljós, hljóð og dans vinna saman. Verkið tengir saman fortíðina og nútíð-
ina en Lene leitaði innblásturs í rúnir, víkinga, tölvuleiki og raunveru-
leikaþætti við gerð verksins.
Tilbrigði og Berserkir
ÞRÍLEIKUR Í BORGARLEIKHÚSINU
Lára Stefánsdóttir, listrænn stjórnandi Íslenska dansflokksins.