Morgunblaðið - 01.03.2014, Síða 1
! "#
!
"#
$ $
$%&'(() & *+, )-.//0+/12% /%+0$' )(4,+5 3+,6' )7+,+
6
)7+32(1 9:
-.) :;
3-' <" -$(/+)-*2+ '(&?8
L A U G A R D A G U R 1. M A R S 2 0 1 4
Stofnað 1913 51. tölublað 102. árgangur
RAGNHEIÐUR
OKKAR RÓM-
EÓ OG JÚLÍA
TRYGGVI VINNUR
AÐ MÖPPU MEÐ
GRAFÍKMYNDUM
SKÖPUN 20FRUMSÝNING 56
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Meirihlutinn í bæjarstjórn Kópa-
vogs heldur velli samkvæmt nýrri
skoðanakönnun sem Félagsvís-
indastofnun Háskóla Íslands gerði
fyrir Morgunblaðið dagana 18. til
23. febrúar. Sjálfstæðisflokkurinn
bætir við sig miklu fylgi og fengi
42,2% atkvæða og fimm bæjarfull-
trúa ef kosið yrði núna. Hann hef-
ur fjóra bæjarfulltrúa og fékk
30,2% atkvæða í kosningunum árið
2010.
Björt framtíð er með 17,3% fylgi
og fengi tvo fulltrúa. Hún hefur
ekki boðið fram áður. Fylgi við
nýtt framboð Pírata mælist um
10% og ná þeir inn einum manni.
Samfylkingin tapar miklu fylgi
samkvæmt könnuninni. Flokkur-
inn fengi 12,5% og einn bæjarfull-
trúa, en var með 28,1% atkvæða í
kosningunum 2010 og fékk þá þrjá
bæjarfulltrúa kjörna.
Næstbesti komst ekki á blað
Samkvæmt könnuninni halda
Framsóknarflokkurinn og Vinstri
græn hvor sínum fulltrúa. Fylgi
Framsóknarflokksins eykst lítil-
lega og er 9,1%. Fylgi VG er 8,5%
og minnkar lítillega frá því fyrir
fjórum árum. Listi Kópavogsbúa
sem er með einn fulltrúa í bæj-
arstjórn og tekur þátt í meirihluta-
samstarfinu í bæjarstjórn komst
ekki á blað í könnuninni. Sama er
að segja um Næstbesta flokkinn
sem einnig á mann í bæjarstjórn.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjar-
stjóri og oddviti sjálfstæðismanna,
kveðst mjög ánægður með tölurn-
ar. Þær séu í samræmi við aðrar
kannanir að undanförnu. Hann lít-
ur svo á niðurstaða könnunarinnar
feli í sér stuðning við ábyrga fjár-
málastjórn sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn Kópavogs.
MSkoðanakönnun »22-23
Meirihlutinn heldur velli
Stóraukið fylgi Sjálfstæðisflokksins
Björt framtíð með tvo og Píratar einn
Sjálfstæðisflokkurinn 42,2%
Björt framtíð 17,3%
Samfylkingin 12,5%
Píratar 9,9%
Framsóknarflokkurinn 9,1%
Vinstri - græn 8,5%
Annar flokkur eða listi 0,5%
Fylgi flokka í bæjarstjórn Kópavogs
Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 18.-23. febrúar 2014
42,2%
17,3%
12,5%
9,9%
9,1%
8,5%
0,5%
Í gær voru 60 ár liðin frá því að Royal-búðingur
kom í verslanir á Íslandi og af því tilefni var hann
kynntur með sérstakri viðhöfn í Fjarðarkaupum.
Sigurður Finnur Kristjánsson, verksmiðjustjóri
John Lindsay heildverslunar, klæddi sig í kjólföt
af því tilefni. Stefán Guðjohnsen forstjóri John
Lindsay segir að búðingurinn hafi verið fram-
leiddur allan þennan tíma á Íslandi, fyrst undir
merkjum fyrirtækisins Agnar Ludvigsson ehf.
Spurður hvað valdi vinsældum Royal búðings seg-
ir Stefán að hann snerti streng í þjóðarsálinni.
„Ef eitthvað er þá hefur hann verið að sækja í sig
veðrið hvað sölu varðar síðastliðin ár,“ segir Stef-
án.
„Í hruninu fundum við að það var eins og fólk
væri að leita til baka í upprunann. Um sig greip
einhvers konar fortíðarþrá,“ segir Stefán, og að í
kjölfarið hafi salan aukist.
Á myndinni hér að ofan setur Sigurður búðing í
skál fyrir einn viðskiptavin Fjarðarkaupa og með
fylgjast þær Stefanía, dóttir Sigurðar, og vinkona
hennar, Agnes Ósk Ólafsdóttir. vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Haldið upp á 60 ára
afmæli Royal-búðingsins
„Við höfum færst
nær menningu
Mið- og Suður-
Evrópubúa sem
drekka í miðri
viku án þess að
fara á fyllerí en
erum ekki alveg
komin þangað,“
segir Helgi
Gunnlaugsson,
afbrotafræðingur og prófessor í félagsfræði
við Háskóla Íslands.
25 ár eru liðin í dag frá því að bjórbannið
var afnumið en Helgi hefur rannsakað bjór-
bannið og áhrif bjórsins á íslenskt samfélag
ítarlega. Hann segir suma spádóma manna
um áhrif hans hafa ræst en aðra ekki.
Áfengisneysla hafi aukist eins og spáð var
en benda megi á að þar spili annað inn í, svo
sem miklu fleiri áfengisbúðir og barir sem
eru yfir þúsund í dag en voru fáeinir tugir
1980.
„Það gerðist hins vegar ekki sem margir
spáðu að bjórinn myndi bætast ofan á sterk-
vínsneysluna sem var fyrir. Það var helsti
kosturinn við afnám bjórbannsins; neyslan
færðist yfir á veikari tegundir frá þeim
sterkari. Ég held að fátt bendi til að ung-
dómurinn í dag sé berskjaldaðri fyrir
áfengi. Bjórinn virðist ekki vera hluti af
vinnustaðamenningunni. Jafnvel þveröfugt
þar sem það þekktist frekar áður að menn
væru að sulla í sterkara víni á skrifstofunni.
Slík drykkja er litin alvarlegri augum í dag.
Það yrði litið á mig stórum augum ef ég
gerði eins og þeir í Frakklandi eða Spáni og
fengi mér rauðvín í hádeginu á vinnustað
mínum, Háskóla Íslands,“ segir Helgi í
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Hrakspár
rættust
ekki
25 ár eru frá því
bjórbann var afnumið
Mokþorskveiði hefur verið við
Snæfellsnes undanfarið þrátt fyrir
að tíðarfar hafi gert mönnum lífið
leitt. Veiðin hefði getað verið enn
betri ef veðrið hefði verið hagstæð-
ara, að sögn Páls Stefánssonar,
hafnarvarðar í Rifi.
Ríkjandi A- og NA-átt hefur ver-
ið frá því í desember og hafa loðnu-
veiðiskip varla komist norður fyrir
Snæfellsnes frá því vertíðin hófst af
þeim sökum, að sögn Ingimundar
Ingimundarsonar, útgerðarstjóra
HB Granda. »6
Hefðu veitt meira ef
betur hefði viðrað
Afli Kristján Kristjánsson, skipstjóri Mar-
grétar SH 177, leysir frá dragnót.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Tillögur Egils
Sæbjörnssonar
myndlist-
armanns um tvö
varanleg úti-
listaverk í Þýska-
landi hafa verið
valdar bestar í
lokuðum sam-
keppnum og
verða þau bæði
vígð á næstunni.
Annarsvegar er um að ræða verk
sem varpað er á listasafn í borginni
Ahlen og hinsvegar verk við inn-
gang stofnunar í Berlín. Í samtali í
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins
segir Egill frá verkunum og ræðir
um listsköpun sína.
Gerir tvö útilista-
verk í Þýskalandi
Egill
Sæbjörnsson
Ingunn Björns-
dóttir lyfjafræð-
ingur segir
mögulegt að
upplýsingar um
lyfjanotkun Ís-
lendinga séu
rangar. Hún
krefst þess að fá
upplýsingar um
úttekt á lyfja-
gagnagrunn-
inum. Embætti landlæknis hefur
m.a. synjað henni aðgangs að tölvu-
póstum sem hún þarf til þess að
greina villurnar. Hún kærði því
embættið til úrskurðarnefndar um
upplýsingamál sem úrskurðaði
henni í hag. Samt sem áður hefur
Embætti landlæknis ekki látið
gögnin af hendi. Nú hefur Ingunn
aftur kært embættið til úrskurð-
arnefndar fyrir að fylgja ekki fyrri
úrskurði og hindra aðgengi að
gögnunum. Ingunn segir skorta
gæðavöktunarkerfi hjá embættinu
til að koma í veg fyrir villur. »12
Kærir Embætti
landlæknis á ný
Ingunn
Björnsdóttir