Morgunblaðið - 01.03.2014, Síða 9

Morgunblaðið - 01.03.2014, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2014 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Vertu vinur okkar á Facebook Vinsælu vattjakkarnir komnir Fallegir litir verð 19.980 St. 36-52 Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík Í lögum um orlof húsmæðra segir svo: „Sérhver kona, sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf, á rétt á að sækja um orlof.“ Stjórnin Orlofsferðir árið 2014 Skrifstofa Orlofsnefndar að Hver�isgötu 69 er opin mánud.-miðvikud. kl.16:30-18 sími 551 2617 Kynningarfundur á ferðum ársins verður haldinn á Hótel Loftleiðummiðvikudaginn 5. mars nk. kl. 20:00 Kaffiveitingar verð 2.000 kr. Suðurland 8.-10.maí Ítalía-Toskana 26.maí-2.júní Bodensee 11.-16.júní Eystrasaltið 20.-26.júní Slóðir Sigríðar í Brattholti 28.júní Vest�irðir 21.-24.ágúst Prag 9. -16.október Aðventuferð/Rínardalur 28. nóv.–1.des. Húsmæðraorlof Gullbringu- og Kjósarsýslu 2014 Álftanes, Garðabær, Garður, Grindavík, Kjósarhreppur, Mosfellsbær, Reykjanesbær, Sandgerði, Seltjarnarnes,Vogar. Rétt til þess að sækja um eftirfarandi ferðir, hefur sérhver kona sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf. Ítalíutöfrar; Toskana, Pisa og Flórens ......................... 7. – 14. júní Bodensee í Þýskalandi og Lichtenstein ........23. – 28. september Aðventuferð til Innsbruck ..................................4. – 7. desember Eftirtaldar konur veita nánari upplýsingar og taka á móti pöntunum í síma á milli kl. 17:00 og 19:00 á virkum dögum frá 3.–12. mars. Svanhvít Jónsdóttir.................................................. 565 3708 Ína Jónsdóttir........................................................... 421 2876 Guðrún Eyvindsdóttir .............................................. 422 7174 Valdís Ólafsdóttir ..................................................... 566 6635 Sigrún Jörundsdóttir................................................ 565 6551 Orlofsnefndin gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Laugavegi 63 • S: 551 4422 NÝTTFRÁ GERRYWEBEROGTAIFUN Skoðið Laxdal.is /Porto og san sebastian www.laxdal.is Nýjar túnikur Opið 10-16 í dag Bæjarlind 6, sími 554 7030 www.rita.is Str. M-XXXL kr. 8.900 „Það kom mér verulega á óvart hvernig hægt er að gera góð híbýli úr svona litlu rými og með þessa lög- un. Með þessu efnisvali er einnig hægt að gera þau hugguleg,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi. Hann var meðal þeirra sveitarstjórnarmanna sem kynntu sér sýningarhús PEP Housing ehf. og Smáíbúða ehf. Fyrirtækin kynna smáíbúðirnar sem nýjan kost á leigumarkaði og telja fulla þörf á. Smæstu íbúðirnar eru 27 fermetrar að stæð. Þær eru innréttaðir í gámaeiningum og hægt að stafla þeim saman í fjölbýlishús. Skammtímaúrræði Ármann vekur athygli á því að krafa í nýrri byggingarreglugerð um stærð baðherbergis geri mönnum sem vilja þróa litlar íbúðir erfitt um vik, ásamt fleiri ákvæðum reglu- gerðarinnar. „Ég hef trú á að núver- andi umhverfis- ráðherra muni breyta þessu, þannig að þessi lausn verði raun- hæfur kostur og muni almennt auka flóruna í smærri og ódýr- ari íbúðum.“ Ármann segist vel geta séð fyrir sér að smáíbúðirnar rísi í Kópavogi sem skammtímaúrræði til að bregð- ast við bráðavanda á fasteignamark- aði. Hann nefnir að skipulögð hafi verið atvinnusvæði til framtíðar sem ekki sé útlit fyrir að nýtist á allra næstu árum. Finna mætti smáíbúð- unum stað á slíkum svæðum, við jað- ar íbúðarbyggðar. Þar gætu þær verið í kannski 5-10 ár, eða þangað til þörf verði á svæðinu fyrir atvinnu- starfsemi. helgi@mbl.is Gætu risið í jaðri íbúðarbyggðar  Bæjarstjóri jákvæður fyrir smáíbúðum Ármann Kr. Ólafsson María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri hef- ur verið ráðin leikhússtjóri Borg- arleikhússins. Hún tekur við starf- inu af Magnúsi Geir Þórðarsyni í þessum mánuði. Vel á annan tug um- sókna bárust um stöðuna en ekki fást gefin upp nöfn umsækjenda né nákvæmur fjöldi þeirra vegna trún- aðar við umsækjendur. Stjórnin samstiga Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Leikfélags Reykjavíkur, segir ráðningarferli nýs leikhússtjóra hafa verið vandað og ítarlegt. „Öll stjórnin tók þátt í viðtölunum og við vorum bæði með staðlaðar spurningar og spurningar sem tengdust beint Borgarleikhúsinu. Umsóknirnar voru flestar mjög góð- ar og þetta var erfitt og krefjandi verkefni en að sama skapi mjög skemmtilegt. Stjórnin var mjög samstiga í öllu ferlinu. Við leituðum óformlega til ráðningarþjónustu hvað varðaði verklag ráðningarinnar og fleira í þeim dúr. Síðan lögðum við áherslu á þætti sem tengdust leikhúsinu og framtíðarsýn umsækj- enda varðandi Borgarleikhúsið og hvað væri best til þess fallið að styrkja það. Með ráðningu Kristínar stuðlum við að því að Borgarleik- húsið verði áfram leiðandi á sviði leiklistar,“ segir Þorgerður. Engar róttækar breytingar Kristín Eysteinsdóttir segir að nýju fólki fylgi nýjar áherslur en að róttækar breytingar séu ekki á döf- inni á næstunni. „Ég er að taka við á óvenjulegum tíma þar sem Magnús Geir þurfti frá að hverfa mjög hratt. Það er því búið að stilla upp fyrir næsta leikár. Mín- ar áherslur munu því ekki koma í ljós strax heldur frekar árinu á eftir. Ég ætla ekki að kollvarpa neinu heldur má frekar búast við hægum breytingum jafnt og þétt. Að baki Borgarleikhúsinu stendur sterkur hópur starfsfólks og ég hlakka til þess að starfa með því áfram,“ segir Kristín. Spurð um áherslur sínar í starfi sem leikhússtjóri segist Krist- ín leggja áherslu á fjölbreytileika og frumsköpun. „Ég mun halda áfram að bjóða upp á fjölbreytt verkefnaval auk þess sem ég mun leggja áherslu á vandaðar leiksýningar sem munu hafa áhrif á fólk. Ég mun leitast við að efla íslenska leikritun, frum- sköpun og fræðsludeildina. Mér finnst mikilvægt að leikhúsið sé opið öllum og fólki á að finnast það vera velkomið hingað. Við viljum til dæm- is opna kaffihús í forsal hússins og bjóða upp á skoðunarferðir um leik- húsið. Ég mun einnig leggja mikla áherslu á að auka vandaðar sýningar fyrir yngstu leikhúsgestina. Mik- ilvægast er þó alltaf listin sjálf, að vera hugrakkur og trúr og skapa þannig sýningar sem hjálpa okkur að skynja heiminn með nýjum hætti. Leikhúsið okkar verður að vera lif- andi og í stöðugu samtali við borgina og samfélagið sem við búum í,“ segir Kristín. Kristín í Borgarleikhúsið  Tekur við í mars  Ítarlegt ráðningarferli að baki  Ætlar ekki að kollvarpa neinu  Fjölbreytt verkefni Kristín Eysteinsdóttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Mikið fannfergi er enn til fjalla víða á Austurlandi og Vestfjörðum og samkvæmt upplýsingum Landsnets er hættulega stutt upp í línuleiðara á mörgum stöðum, s.s. á Fjarð- arheiði eystra og á norðanverðum Vestfjörðum. Landsnet hvetur enn og aftur útvistarfólk, sérstaklega skíða- og vélsleðafólk sem og alla aðra, til að fara mjög varlega nærri háspennumannvirkjum til fjalla og á hálendinu. Þar er nú víða minna en mannhæðar hátt upp í há- spennuvírana Ljósmynd/Landsnet Hættulegt Á Fjarðarheiði er orðið stutt upp í háspennulínurnar vegna fannfergis. Víða hættuástand við háspennulínur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.