Morgunblaðið - 01.03.2014, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2014
viðarparket
Verðdæmi:
Eik 3ja stafa kr. 4.590 m2
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Nýtt
2-lock
endalæsing
VIÐTAL
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fátt finnst mér jafn skemmtilegt
og að fara niður í bæ á góðum degi,
horfa á ungar og fallegar mæður
sem ýta á undan sér barnavögnum
þar sem börnin liggja. Þau horfa
upp í himininn og sperra tærnar upp
í loftið. Þegar ég sé þetta, þá öðlast
ég aftur trú á þessari þjóð. Þegar ég
kem svo heim að kvöldi og horfi á
stjórnmálamenn í sjónvarpinu, með
allar sínar frjálshyggjublekkingar,
verða þær væntingar sem fallegt
mannlífið í bænum hefur gefið mér
að engu,“ segir Tryggvi Ólafsson
myndlistarmaður.
Litógrafíur og litrík list
Á næstu vikum kemur út graf-
íkmappan 6 ljóð án orða, það er sex
myndir sem Tryggvi hefur unnið á
síðustu vikum. Á undanförnum ár-
um hefur hann helgað krafta sína
gerð grafíkmynda, það er litógrafí-
um eða steinþrykki eins og það var
nefnt hér áður fyrr
Í tímans rás hafa akrílmálverk, í
sérstökum litríkum stíl, verið ein-
kenni Tryggva, sem bjó í Kaup-
mannahöfn í um hálfa öld. Var samt
alltaf viðloðandi Ísland. Árið 2008
héldu þau Gerður Sigurðardóttir,
eiginkona hans, heim eftir langa úti-
vist. Þá nokkru fyrr hafði Tryggvi
slasast alvarlega, hrasaði aftur fyrir
sig á svölum húss í Kaupmannahöfn.
Skaddaðist hann á hrygg og taugar í
fótum og höndum lömuðust. Síðan
þá hefur hann ekkert málað, en get-
ur aðeins teiknað með hægri hendi;
þ.e. teiknað upp útlínur mynda sem
síðan eru fullunnar og litaðar með
tölvutækni.
Fimmtán þúsund
kosningapésar
Í fyrra hélt Tryggvi sýningu í
Galleríi Fold á nokkrum grafík-
myndum unnum með þeirri tækni
og sex slíkar verða í möppunni góðu
sem Gallerí Fold gefur út.
„Vinnan við þessa útgáfu hefur
verið skemmtileg. Myndirnar í
möppunni eru prentaðar í Guðjón Ó,
þar sem starfa miklir töframenn,
Ólafur Stolzenwald smiðjustjóri, Jó-
hann Kristinsson í litvinnslunni og
Eiríkur Stefánsson á prentvélinni.
Og listin í þessu er að hver litur inn-
an þessara svörtu lína sem ég teikna
upp sé hárréttur. Blár er ekki bara
blár, litbrigðin geta verið hundruð.
Og sjáðu til; myndirnar mínar verða
prentaðar í bara 50 tölusettum ein-
tökum. Slíkt prentun tekur sinn
tíma, kannski jafnlangan og að
prenta 15 þúsund kosningapésa sem
ekkert er að marka,“ segir Tryggvi
sem lýsir grafíkmyndunum sínum
sem sögu úr lífinu. „Það er svo
margt í mannlífinu sem hreyfir við
mér og verður að myndum. Ég hef
aldrei haft neina þörf fyrir að vera
með boðskap. Listin er prédikun,
það gera prestarnir sem stíga í stól-
inn,“ sagði Tryggvi þegar blaðamað-
ur hitti hann á heimili hans í Vest-
urbænum í vikunni. Við
eldhúsborðið þar hefur hann góða
vinnuaðstöðu – og er þar með arkir,
blýanta og penna. Og hug-
myndabankinn er á borðinu; þykkar
möppur með dagblaðaúrklippum
með myndum af öllu mögulegu.
„Já, blessaður vertu – hér er
þetta allt. Karlar og konur, íþrótta-
menn, sviðakjammar, fuglar og fisk-
ar. Það er gaman að grúska í þessu,
en annars trúi ég ekki á að hug-
myndir komi sem einhverjar himna-
sendingar þegar maður situr á steini
og horfir upp í himinblámann. Sköp-
un er vinna sem er sú að forma
hugsun,“ segir hann.
Þá hlógu pikkólóarnir
Tryggvi segir slysið fyrir sex ár-
um hafa haft margvísleg eftirmál.
Hann fór í tvær aðgerðir auk þess
sem hann þurfti að liggja á sjúkra-
húsi vegna blóðtappa og „allskonar
sýkinga“ eins og hann kemst að
orði. Er nú kominn í hjólastól,
þokkalega ferðafær og getur sótt
æfingar, sund og sjúkraþjálfun fjóra
daga í viku. Sú hreyfing segir
Tryggvi að haldi sér á þokkalegu
róli. Bætir við að nú sé hann kominn
með ökuleyfi, fari víða um í hjóla-
stólnum en bílpróf hefur hann aldrei
haft.
„Já, ég er fínn. Hef á síðustu ár-
um farið til Frakklands, Austur-
ríkis, Spánar og Ítalíu til að skoða
sýningar, fornminjasöfn og kirkju-
list. Ég fæ sennilega aldrei nóg af
því að stúdera menningu Suður-
Evrópu. Í þessa leiðangra hef ég
farið með Gerði, konunni minni, og
Ólöfu Sæmundsdóttur sjúkraliða
sem er fín glerlistakona. Ólöf er
hjálparhellan mín og heldur trukk-
inu í karlinum. Stundum þegar við
förum utan er skáldað í skörðin þar
sem ég hef tvær konur til fylgdar.
Sérstaklega þótti Ítölunum þetta
undarlegt, en ég sagði þeim á móti
að þetta væri ekkert í samanburði
við Berlusconi. Þá hlógu pikkóló-
arnir á hótelinu.“
Sköpun er að forma hugsun
Tryggvi Ólafsson aftur í listinni eftir langa endurhæfingu í kjölfar slyss Mappa með grafík-
myndum er væntanleg Hugmyndir eru ekki himnasendingar Sviðakjammar, fuglar og fiskar
Morgunblaðið/Golli
Listamaður Tryggvi teiknar við eldhúsborðið heima og hér sést frumgerð af einni þeirra litógrafíumynda sem verða í möppunni sem er að koma út.
Hugmyndir Í möppum Tryggva eru ýmsar úrklippur og skemmtilegar
myndir úr blöðunum, sem gaman er að stúdera og spinna svo þráðinn.
Kirkjuviku í
Akraneskirkju
lýkur á morgun
með hátíðartón-
leikum Kórs
Akraneskirkju
að Kalmanns-
völlum 1, þar
sem áður var
verslun Nettó.
Þar mun kórinn
flytja tónverkið Eternal Light, eft-
ir breska tónskáldið Howard Goo-
dall, þann sama og samdi lagið í
sjónvarpsþáttum og kvikmyndum
um Mr. Bean, sem Rowan Atk-
inson leikur. Einsöngvarar með
kórnum verða Björg Þórhalls-
dóttir sópran, Einar Clausen tenór
og Halldór Hallgrímsson tenór.
Stjórnandi kórsins er Sveinn Arn-
ar Sæmundsson. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 17.
Fyrr um daginn verður æsku-
lýðssamkoma í Akraneskirkju þar
sem barnakór kirkjunnar flytur
m.a. söngleikritið „Við gullna hlið-
ið“ eftir Svein Arnar.
Flytja verk höfundar
er samdi Bean-lagið
Mr. Bean