Morgunblaðið - 08.03.2014, Qupperneq 1
HNÖKRALAUST
FLÆÐI OG
SAMSPIL
BÝR TIL HRÚTA
ÚR BIRKI
OG ULL
ÁGÚSTA GUÐRÚN 10HJALTALÍN Í ÓSLÓ 56
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Senegal-flúra Seiðin dafna vel í eldisstöð
Stolt Sea Farm við Hafnir á Reykjanesi.
Stolt Sea Farm sem byggt hefur
upp mikla eldisstöð fyrir senegal-
flúru á Reykjanesi er að athuga
möguleika á uppbyggingu á ann-
arri fiskeldisstöð hér á landi. Hall-
dór Óskar Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri getur ekki gefið
frekari upplýsingar um áformin en
telur áhuga norska fyrirtækisins
ákveðna viðurkenningu á rekstr-
arumhverfinu hér á landi. Sam-
starfið hafi gengið vel.
Eldisstöðin á Reykjanesi er ein
stærsta yfirbyggða landeldisstöð í
heimi og allavega stærsta flúrueld-
isstöð heims. Þar eru nú 1.250 þús-
und seiði í eldi. Áætlað er að slátr-
un hefjist í október og framleiðslan
verði komin á fullt um áramót. »24
Stolt Sea Farm hug-
ar að nýrri fiskeld-
isstöð á Íslandi
Málskostnaður Más
» Már höfðaði mál gegn
Seðlabankanum til að hnekkja
ákvörðun kjararáðs.
» Hæstiréttur sýknaði bank-
ann og ákvað að málskostn-
aður félli niður. Seðlabankinn
greiddi engu að síður máls-
kostnað Más.
Baldur Arnarsson
Helgi Bjarnason
Stefán Gunnar Sveinsson
Seðlabankinn gerði kröfu um það í
máli Más Guðmundssonar seðla-
bankastjóra gegn bankanum að Már
bæri allan málskostnað. Þrátt fyrir
það greiddi bankinn kostnað Más,
sem nam um 3,5 milljónum króna,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins. Áætla má því að heildar-
kostnaður bankans hafi verið um
tvöfalt hærri, eða á bilinu 7-10 millj-
ónir króna.
Lára V. Júlíusdóttir, þáverandi
formaður bankaráðs Seðlabankans,
sagði í yfirlýsingu í gær að hún hefði
tekið ákvörðunina um að bankinn
myndi greiða málskostnað Más, en
hún segir í samtali við Morgunblaðið
að hún telji sig hafa haft stuðning
meirihluta bankaráðsins fyrir
ákvörðun sinni.
Ragnar Árnason, prófessor og
fulltrúi í bankaráði þá og nú, segist
eiga von á því að núverandi bankaráð
muni taka málið til skoðunar. Ólöf
Nordal, formaður bankaráðs, segir
að bankaráðið þurfi að afla upplýs-
inga áður en hún geti tjáð sig. Málið
hafi aldrei komið inn á borð núver-
andi bankaráðs og ekki verið rætt
þar. Ekki náðist í Bjarna Benedikts-
son fjármálaráðherra vegna málsins
en samkvæmt heimildum blaðsins er
málið í skoðun í ráðuneytinu.
Var krafinn um kostnað
Heildarkostnaður Seðlabankans vegna dómsmálsins á bilinu 7-10 milljónir
Þáverandi formaður bankaráðs ákvað greiðsluna Málið til skoðunar í ráðinu
MMál Más verði tekið fyrir »4
Morgunblaðið/Þórður
Blóð Enn má greina ummerki at-
burðana í Hraunbæ í lok árs 2013.
Rúmum þremur mánuðum eftir skot-
bardaga lögreglu í Árbæ eru enn um-
merki eftir aðgerðirnar á stigagang-
inum í Hraunbænum þar sem hinn
látni bjó. Blóð er á veggjum og í
teppi.
Lögreglan var búin að skjóta tölu-
verðu magni af gasi inn í íbúðina
skömmu áður en farið var inn og var
því ekki hægt að gera að sárum skot-
mannsins inni í íbúðinni. Var hann
borinn helsærður niður í anddyrið
þar sem sjúkraflutningamenn reyndu
að bjarga lífi hans. Þremur mánuðum
síðar er stigagangurinn við Hraunbæ
20 enn litaður af atburðunum.
Tekist hefur verið á um það bak
við tjöldin hver eigi að bera kostn-
aðinn, en að skipta um teppi í stiga-
gangi í nálægu húsi árið 2009 kostaði
rúma hálfa milljón króna.
Tvær vikur eru síðan Sigríður
Friðjónsdóttir ríkissaksóknari fékk
öll gögn frá tæknideild lögreglunnar,
að því er fram kemur í Sunnudags-
blaði Morgunblaðsins í dag.
Ummerki enn í Hraunbæ
Þrír mánuðir liðnir frá Hraunbæjarmálinu Lítið hreins-
unarstarf farið fram Ríkissaksóknari fer með málið
Áætlað er að um fjögur þúsund ungmenni hafi
skemmt sér saman í Laugardalshöll í gærkvöldi.
Skemmtunin er hluti af árlegri hátíð Samfés,
samtaka félagsmiðstöðva, og er nefnd SamFest-
ingurinn. Ungmennaráð Samfés valdi atriðin og
í gærkvöldi hélt Kaleo uppi stuðinu ásamt öðrum
hljómsveitum og plötusnúðum. Söngkeppni Sam-
fés er í kvöld. Þar keppa ungmenni af öllu land-
inu, alls 30 atriði, um sigurlaunin.
Fjölsóttur SamFestingur í Höllinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stærsta unglingaskemmtun landsins haldin um helgina
Sigurður Ingi
Jónsson, forseti
Flugmálafélags
Íslands, telur
Isavia hafa not-
ast við gallaða
aðferðafræði við
mat á afleið-
ingum lokunar
norðaustur-
suðvestur-
flugbrautar
Reykjavíkurflugvallar. Isavia hafi
notast við „mislukkaða leið til að
fegra niðurstöður“ um afleiðing-
arnar. Því beri Birni Óla Hauks-
syni, forstjóra Isavia, að segja af
sér. »18
Fer fram á afsögn
forstjóra Isavia
Sigurður Ingi
Jónsson
„RÚV á að vera mannúðleg stofnun
þar sem jafnrétti er í hávegum haft;
það á ríkja gagnvart starfsfólki, við-
mælendum í þáttum og umfjöllunar-
efnum. Við eigum að stefna að jafnri
stöðu kynjanna og landsmanna út
frá búsetu. Ég vil efla starfsemi
RÚV á landsbyggðinni,“ segir
Magnús Geir Þórðarson, nýr út-
varpsstjóri, m.a. í viðtali í Sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins.
Magnús Geir kemur til starfa í
Efstaleiti eftir helgina, en hann hef-
ur sem kunnugt er verið leikhús-
stjóri Borgarleikhússins síðustu
misseri. Hann segir að eitt af helstu
áhersluatriðum
sínum í starfi út-
varpsstjóra verði
„að opna samtalið
um Ríkisútvarp-
ið, inn á við og út
á við. Ég vil að
RÚV hvetji til
umræðu og skoð-
anaskipta, að
starfsfólk hlusti á
þjóðina og þannig
hafi eigendur meira um starfsemina
að segja. Ég vona að þetta leiði til
aukinnar sáttar um Ríkisútvarpið og
meiri uppbyggilegrar umræðu.“
Jafnrétti gagnvart starfs-
fólki og viðmælendum RÚV
Magnús Geir
Þórðarson
Stofnað 1913 57. tölublað 102. árgangur
L A U G A R D A G U R 8. M A R S 2 0 1 4