Morgunblaðið - 08.03.2014, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014
Nú er komið í ljós að sú ráðstöfunað skipa nefnd til að kanna
möguleg flugvallarstæði í Reykjavík
var aðeins til þess gerð að hjálpa nú-
verandi borgaryfirvöldum við að
koma óvinsælu stefnumáli út úr um-
ræðunni. Borgin afhjúpaði sig þegar
í ljós kom að þrátt fyrir að nefndin
væri að störfum væri ákveðið að
reisa byggingar á einni af flug-
brautum Reykjavíkurflugvallar fyr-
ir árslok.
Friðrik Pálsson, formaður sam-takanna Hjartans í Vatnsmýr-
inni, bendir á að nú standi til „að
þrengja að flugvellinum smátt og
smátt með því að skipuleggja byggð
hér og þar í kringum hann þangað
til að hægt verði að lýsa því yfir að
hann standist ekki lengur kröfur“ til
flugvalla.
Og Björgólfur Jóhannsson, for-stjóri Icelandair Group, segir
„hreint með ólíkindum að sjá borg-
ina vinna í þessa átt, á sama tíma og
Icelandair Group og vonandi ríkið
eru heilshugar að vinna að úttekt á
valkostum fyrir innanlandsflug með
tilheyrandi kostnaði“.
Björgólfur segir einnig: „Mannisýnist sem nefndin sé í raun að-
eins málamyndagerningur og e.t.v.
leið til þess að losna við umfjöllun
um málið fyrir kosningar á komandi
vori. Allir heilvita menn sjá að borg-
in er ekki að vinna í þessari nefnd
með það í huga að það sé valkostur
að Vatnsmýrin sé miðstöð innan-
landsflugs fyrir Reykjavík.“
Meirihlutinn í borginni ætlar aðhalda sínu striki og flytja völl-
inn í burtu hvað sem samkomulagi
líður. En ætlar minnihlutinn líka að
hunsa meirihluta borgarbúa?
Blekkingar
borgarinnar
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 7.3., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri -1 léttskýjað
Nuuk -8 snjóél
Þórshöfn 4 skýjað
Ósló 5 skúrir
Kaupmannahöfn 6 heiðskírt
Stokkhólmur 6 þoka
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 12 heiðskírt
Brussel 12 heiðskírt
Dublin 8 léttskýjað
Glasgow 5 léttskýjað
London 15 léttskýjað
París 13 heiðskírt
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 12 heiðskírt
Berlín 10 heiðskírt
Vín 7 skýjað
Moskva 5 heiðskírt
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 17 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 18 heiðskírt
Róm 15 léttskýjað
Aþena 15 skýjað
Winnipeg -11 snjókoma
Montreal -8 léttskýjað
New York -1 alskýjað
Chicago -3 skýjað
Orlando 15 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:11 19:07
ÍSAFJÖRÐUR 8:19 19:09
SIGLUFJÖRÐUR 8:02 18:52
DJÚPIVOGUR 7:41 18:36
Karl Guðmundsson, leik-
ari og þýðandi, lést
mánudaginn 3. mars síð-
astliðinn. Hann var 89
ára að aldri.
Karl fæddist 28. ágúst
1924 í Reykjavík. For-
eldrar hans voru Guð-
mundur S. Guðmunds-
son, vélstjóri og einn af
stofnendum Hampiðj-
unnar og forstjóri henn-
ar til dauðadags, og Lára
Jóhannesdóttir húsfrú.
Karl útskrifaðist sem
stúdent frá MR árið 1944
nam við Handíða- og myndlistaskól-
ann. Hann útskrifaðist frá Royal Aca-
demy of Dramatic Art í Lundúnum
árið 1952.
Við heimkomu sína hóf Karl þegar
störf sem leikari og starfaði hann
mestalla starfsævi sína hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. Lék hann í um það bil
100 leikverkum fyrir leikfélagið, en
tók einnig þátt í sýningum hjá Þjóð-
leikhúsinu, Grímu, Leiksmiðjunni og
Nemendaleikhúsi LÍ. Þá lék hann og
las upp í Ríkisútvarpinu um árabil.
Karl varð fljótt landsþekkt eft-
irherma og skemmtikraftur. Líkti
hann eftir samtíðarmönnum sínum,
einkum stjórnmálamönn-
um. Meðal þeirra sem
hann hermdi eftir má
nefna þá Halldór Kiljan
Laxness og Bjarna Bene-
diktsson eldri. Karl lék í
nokkrum kvikmyndum
síðustu árin, og má þar
nefna myndirnar Brúð-
gumann, Sveitabrúð-
kaup, Punktur, punktur,
komma, strik og For-
eldrar.
Karl var mikilvirkur
þýðandi og orðsnillingur,
en hann þýddi á ævi sinni
ótal mörg leikrit og ljóð. Listinn yfir
þá höfunda sem Karl þýddi er langur,
en þar má meðal annars nefna þá Ari-
stófanes, Seamus Heaney, Federico
Garcia Lorca, Moliére og Ionescu-
.Fyrir síðustu jól kom út á prenti þýð-
ing Karls á leikritinu Morð í dóm-
kirkju eftir T.S. Eliot. Þýðingar Karls
á ljóðum birtust oft í Lesbók Morg-
unblaðsins. Einnig starfaði Karl við
leikstjórn og kennslu.
Eiginkona Karls var Guðrún
Ámundadóttir en hún lést árið 1997.
Karl skilur eftir sig tvær dætur, fóst-
urdóttur, átta barnabörn og fimm
barnabarnabörn.
Andlát
Karl J. Guðmundsson,
leikari og þýðandi
Óháð ráðgjöf
til fyrirtækja
Firma Consulting gerir fyrirtækjum
tilboð í eftirfarandi þjónustu:
• Kaup, sala og sameining.
• Verðmat fyrirtækja.
• Samningaviðræður, samningagerð
• Áætlanagerð.
• Fjárhagsleg endurskipulagning.
• Samningar við banka.
• Rekstrarráðgjöf.
Firma Consulting, Þingasel 10, 109 Reykjavík.
Símar: 820-8800 og 896-6665. Fax 557-7766
info@firmaconsulting.is, www.firmaconsulting.is
Búðarhálsstöð, nýjasta aflstöð
Landsvirkjunar, var gangsett í
gær. Stöðin framleiðir rafmagn inn
á landsnetið. Ákveðið var að ráðast
í virkjunina vegna samninga við
Rio Tinto Alcan vegna áforma um
aukna framleiðslu í álverinu í
Straumsvík.
Búðarhálsstöð er á Þjórsár- og
Tungnaársvæðinu og verður rekin
samhliða öðrum aflstöðvum Lands-
virkjunar þar. Uppsett afl hennar
er 95 megavött.
Með Búðarhálsvirkjun er virkjað
áður ónýtt 40 metra fall vatns í
Tungnaá úr frávatni Hraun-
eyjafossvirkjunar að Sultar-
tangalóni. Þar með er virkjað allt
fall vatnsins sem rennur frá Þór-
isvatni og alveg niður fyrir Búrfell.
Aflstöðin hefur verið reynslu-
keyrð undanfarnar vikur en hún
var tengd við kerfi Landsnets í des-
ember.
Byggingarkostnaður hefur ekki
verið gerður upp enda eftir að ljúka
frágangi en kostnaður var áætl-
aður í upphafi 240 milljónir Banda-
ríkjadala eða sem svarar til 27
milljarða króna. helgi@mbl.is
Nýjasta aflstöð Lands-
virkjunar gangsett
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Gangsetning Bjarni Benediktsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir gang-
settu Búðarhálsstöð með aðstoð Dags Georgssonar, Harðar Arnarsonar og
Guðlaugs Þórarinssonar, stjórnenda hjá Landsvirkjun.