Morgunblaðið - 08.03.2014, Side 11
Hrútarnir Engir tveir hrútar frá mæðgunum í Birch & Wool eru eins og það er að sögn Ágústu eitt það skemmtileg-
asta við þá. Bæði getur ullin verið slétt eða krulluð og litaafbrigðin mjög margvísleg. Ull og birki er efniviðurinn.
falleg og ég reyni að leyfa henni að
njóta sín nákvæmlega eins og hún er
á stóru hrútunum. Litaafbrigðin eru
ótalmörg í gærunni og svo gaman að
þessum fjölbreytileika. Svo getur ull-
in verið slétt og hún getur líka verið
krulluð og það verður náttúrlega
enginn hrútur eins og annar fyrir
vikið,“ segir Ágústa sem nýtur þess
að skapa þessa skemmtilegu karakt-
era.
Verkaskiptingin er skýr hjá
þeim. Jana María sér um markaðs-
setningu og dreifingu en Ágústa sér
að mestu um að setja þá saman.
Greinar sem horn
Þær mæðgur ákváðu að fara
ekki út í að tálga horn á hrútana.
„Heldur notum við greinarnar sem
horn. Við vildum leyfa þeim að njóta
sín eins og þær eru. Þess vegna erum
við með greinar en köllum þetta samt
hrúta,“ segir Ágústa.
Útlit er fyrir að fjölbreytileiki
dýraríkisins hjá Birch & Wool verði
meiri á næstunni því nú eru þær að
prófa sig áfram með fugl. Hann er
enn á frumstigi en óskaplega sætur
að sjá!
„Svo er bara að sjá hvernig loka-
útgáfan verður,“ segir hún um fugl-
inn sem búinn er til úr sama efni og
hrútarnir. Annars er það helst fram-
undan hjá Birch & Wool að fara með
hönnunina til útlanda og sýna hrút-
unum heiminn og heiminum hrútana.
Hver hrútur er seldur í sinni
eigin stíu og fanga umbúðirnar
gjarnan athygli ferðamanna því þær
eru heimilislegar. „Hugsunin er að
það fari vel um hrútana þegar ferða-
langar taka þá með sér heim,“ segir
Ágústa glöð í bragði.
Tálgað Ekki er átt mikið við birkið en Ágústa tálgar það til.
Nánari upplýsingar um framleiðsl-
una er að finna á Facebook-síðu
Birch & Wool sem nálgast má á
slóðinni www.facebook.com/
BirchandWool
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014
Það er ekki galið að púsla endrum
og sinnum. Eins og í spilum geta
margir púslað saman þó svo að
glundroði geti ríkt verði „púslarar“
of margir. Tveir sem púsla saman
500 eða 1000 bita púsl, geta haft
það virkilega náðugt saman. Ekki
spillir fyrir ef púslið er með ís-
lenskri mynd t.d. úr íslenskri nátt-
úru eða ævintýrum.
Heiðurinn af markaðssetningu
púslsins er gjarnan eignaður breska
kortagerðarmanninum John Spils-
bury en hann setti púsl á markað í
kringum 1760. Í fyrri tíð voru bit-
arnir úr tré en í dag er oftast not-
aður stífur pappi í púsl.
Algengasti bitafjöldi í púsli er
350, 500, 750 eða 1000. Þeir allra
seigustu leggja í 1000 bita púsl en
alls ekki er mælt með því að byrja á
slíku púsli þar sem bitarnir eru
smáir og verkið getur auðveldlega
vaxið manni í augum.
Stærsta púslið á markaðnum var
gefið út af þýska risanum Ravens-
burger árið 2010 en það inniheldur
32.256 bita! Það er þó aðeins fyrir
lengra komna, ef svo má segja.
Út eru komin púsl með ýmsum
myndum úr íslenskri náttúru, bæði
myndum af íslenskri flóru og fánu
sem og af þekktum stöðum. Fyrir
börnin eru til púsl með myndum
eftir listamanninn Brian Pilkington
sem myndskreytt hefur fjölda ís-
lenskra barnabóka gegnum tíðina.
Það að setjast niður með krökk-
um og púsla getur haft ótrúlega ró-
andi áhrif og er góð leið til að þjálfa
einbeitingu foreldra og barna auk
þess sem það getur verið gott til að
fá börn til að dunda sér sjálf án
þess að tækniundur á borð við
spjaldtölvur eða leikjatölvur komi
við sögu!
Aldur: Til eru púsl sem henta
börnum allt niður í tveggja ára.
Verð: Frá 989 kr.
Sölustaðir: Bókabúðir og
stærri verslanir.
Spil vikunnar: Íslensku púslin
Stóísk ró fylgir púslinu
» Fullbúið hótel, byggt 1977.
39 herbergi, 1.049 fm., þrjár hæðir.
» Félagsheimilið Valaskjálf, 1.160 fm.
» Tengibygging með eldhúsi og
veitingasal, 204 fm.
» Félagsheimili og tengibygging
voru byggð 1966.
» Hótelið er í fullum rekstri en
félagsheimilið í útleigu til
Fljótsdalshéraðs.
» Stækkunarmöguleikar.
» Hótelið er til sölu með eða án
rekstrar en góðar bókanir eru fyrir
sumarið 2014.
Hótel Egilsstaðir til sölu
Fjárfestingatækifæri í ferðaþjónustu
Verð: 200 milljónir kr.
Seljandi:
Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans
Nánari upplýsingar :
Ævar Dungal
Domus fasteignasölu, s: 440 6016
Hilmar Gunnlaugsson hrl.
Inni fasteignasölu, s: 580 7905
Hótel Egilsstaðir
ILVA Korputorgi, sími 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
mán. - fös. 11-18:30 laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18
Gegn krabbameini í körlum
living withstyle
Mottumars
5% af allri mottusölu rennur
til krabbameinsfélagsins