Morgunblaðið - 08.03.2014, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014
Viltu selja bílinn
Kaupum allar gerðir af lítið keyrðum bílum árgerð
2007 og yngri. Til dæmis Land Rover Discovery,
Toyota Land Crusier, Audi Q7, Mercedes Benz ofl.
Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur fengið
staðgreiðsluafslátt af nýja bílnum.
Sendu okkur upplýsingar í gegnum www.seldur.is
og við sendum þér staðgreiðslutilboð.
Embætti landlæknis hefur haft til
skoðunar átta nýleg mál er varða
dauðsföll vegna sterkra verkjalyfja.
Í flestum tilvikum er um að ræða
einstaklinga í fíknivanda sem leysa
lyfin upp og sprauta sig með þeim.
Páll Winkel fangelsismálastjóri seg-
ir að slík misnotkun sé viðvarandi
vandamál. „Eftir því sem við herðum
leit aukast líkurnar á því að menn
leiti í efni sem eru lyktarlaus og erf-
iðara að finna.“
Páll segir að fangelsismála-
yfirvöld hafi lagt hald á nokkurt
magn af Fentanýl-plástrum og því
hafi Landlæknisembættið verið látið
vita af áhyggjum þeirra.
Erfitt getur verið að finna plástr-
ana í leit hjá föngum. „Þessir plástr-
ar, það fer ekkert fyrir þeim, þeir
eru lyktarlausir og gegnsæir og
gríðarlega hættulegir,“ segir Páll.
„Við höfum vísað til skynsemi fang-
anna því að þetta er stórhættulegt
og við höfum þungar áhyggjur af
þessu.“ Páll bætir við að það sé mjög
erfitt fyrir einstaklinga að gera sér
grein fyrir því hversu sterkt virka
efnið í þessum plástrum er. Menn
hafi því orðið alvarlega veikir af
notkun þeirra. Hann bætir við að all-
ar ólöglegar sendingar sem komi inn
í fangelsin séu kærðar til lögreglu,
og fái lögregla að vita hverjir séu
skráðir fyrir sendingunni og sinni
því rannsókn á þessu.
Páll segir að helsta ráðið til að
stemma stigu við vandanum sé for-
varnir og upplýsingagjöf. Páll segist
ánægður með Landlæknisembættið.
„Við eigum gott samstarf við land-
lækni um þessi mál.“ sgs@mbl.is
Átta dauðsföll til skoðunar
Fentanýl leyst upp úr plástrum og sprautað innvortis
Fangelsismálayfirvöld í góðu samstarfi við landlækni
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Heilbrigðisráðuneytið hefur til-
kynnt sveitarstjórn Skagafjarðar að
samþykkt hafi verið að hefja við-
ræður við sveitarfélagið um yfir-
töku þess á Heilbrigðisstofnuninni
á Sauðárkróki. Aðstoðarmaður heil-
brigðisráðherra segir að ráðuneytið
sé reiðubúið til viðlíka viðræðna við
önnur sveitarfélög.
Óttast frekari niðurskurð
Stefán Vagn Stefánsson, formað-
ur byggðaráðs Skagafjarðar, telur
að til lengri tíma litið sé þjónust-
unni betur borgið hjá sveitarfé-
laginu. Hann telur þetta ekki
spurningu um hagræðingu heldur
tryggingu á grunnþjónustu. „Til að
tryggja hana teljum við betra að
sveitarfélagið taki þetta yfir en ef
við verðum undir Heilbrigð-
isstofnun Norðurlands eins og áætl-
anir gera ráð fyrir í nýrri reglu-
gerð,“ segir Stefán.
Hann segir Heilbrigðisstofnunina
á Sauðárkróki hafa þurft að skera
hlutfallslega mest niður af öllum
heilbrigðisstofnunum á landinu.
„Við óttumst það að miðað við nú-
verandi reiknilíkan ráðuneytisins
myndi koma til enn frekari nið-
urskurðar á þeirri þjónustu sem
boðið er upp á í dag,“ segir Stefán.
Fleiri lýst yfir
áhuga á yfirtöku
Bæði Vestmannaeyjabær og
Vesturbyggð hafa lýst yfir áhuga á
að taka við rekstri heilbrigðisstofn-
ana á sínu svæði. Ekki náðist í Ást-
hildi Sturludóttur, sveitarstjóra
Vesturbyggðar, en Elliði Vignisson,
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, seg-
ir að bæjarfélagið hafi verið í við-
ræðum um samþættingu heil-
brigðis- og félagsþjónustu undir
einn hatt frá árinu 2007. „Staðan í
dag er óviðunandi og Heilbrigð-
isstofnun Vestmannaeyja er ekki
svipur hjá sjón,“ segir Elliði. Hann
segir niðurstöðu tveggja skýrslna,
annars vegar um sjúkrahús og
heilsugæslu og hins vegar um fæð-
ingarþjónustu, hafa leitt í ljós
„grafalvarlega“ stöðu. „Það er búið
að vinna alla forvinnuna. Núna
þurfum við bara að vita sem fyrst
hvort ríkið vill feta þennan stíg
áfram og setjast yfir samninga. Ég
hefði talið heppilegast að þetta
hefði gerst nú fyrri hluta þessa árs
en úr því sem komið er finnst mér
að horfa ætti til þess að
Vestmannaeyjabær myndi taka við
rekstrinum af ríkinu fyrir 1. sept-
ember,“ segir Elliði. Hann bendir á
að eitt barn hafi fæðst í Vest-
mannaeyjum af síðustu 28 nýbur-
um. „Kostnaðurinn aukalega fyrir
hverja fjölskyldu er gríðarlegur.
Dæmi er um að aukalegur kostn-
aður fjölskyldufólks hafi verið fjög-
ur til fimm hundruð þúsund krónur
bara við það eitt að eignast barnið
á höfuðborgarsvæðinu.“
Sama látið yfir alla ganga
„Núna er ríkið með heilbrigðis-
þjónustuna, sveitarfélagið er með
öldrunar- og félagsþjónustu. Við er-
um því með tvöfalda yfirbyggingu.
Í slíku fyrirkomulagi teljum við
hættu á að veikustu hóparnir lendi
á milli og fái ekki viðunandi þjón-
ustu. Sérstaklega á þetta við um
öldrunarþjónustuna,“ segir Elliði.
Óli Björn Kárason, aðstoðar-
maður Kristjáns Þórs Júlíussonar
heilbrigðisráðherra, segir að viðlíka
viðræður séu í boði fyrir önnur
byggðarlög. „Það gengur það sama
yfir alla,“ segir Óli Björn.
Heilbrigðis-
þjónusta til
sveitarfélagsins
Rætt við Skagafjörð um yfirtöku
heilbrigðisstofnunar Fleiri viðræður
Ljósmynd/Óli Arnar
Yfirtaka? Heilbrigðisstofnunin á
Sauðárkróki í forgrunni.
Heilbrigðisstofnanir
» Heilbrigðisráðuneytið hefur
samþykkt viðræður við Skaga-
fjörð um að sveitarfélagið taki
yfir rekstur Heilbrigðisstofn-
unarinnar á Sauðárkróki.
» Fleiri sveitarfélög hafa lýst
yfir áhuga á yfirtöku.
» Eyjamenn hafa beðið lausna
frá árinu 2007 og eru reiðu-
búnir til samninga.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Stíf fundahöld voru í gær hjá rík-
issáttasemjara á milli framhalds-
skólakennara og ríkisins. „Það er
bara verið að funda í gríð og erg,“
sagði Aðalheiður Steingrímsdóttir,
formaður Félags framhaldsskóla-
kennara, í gær í stund milli stríða
og vildi ekki meira um málið segja.
Ólafur Loftsson, formaður Félags
grunnskólakennara, segir að
fulltrúar samninganefnda Félags
grunnskólakennara og Sambands
íslenskra sveitarfélaga fundi nú
tvisvar til þrisvar í viku og funda-
höldin haldi áfram eftir helgi.
„Við erum að hittast og að vinna í
því saman að kanna hvort við eigum
efni í kjarasamninga til 2017 en það
er ekkert sérstakt að frétta af því í
bili,“ segir Ólafur.
„Það er kominn kurr í kennara og
þeir vilja fara að fá svör þannig að
það geta ekki verið margar vikur
þangað til við semjum eða stefnum í
svipaða átt og framhaldsskólakenn-
arar,“ segir Ólafur og bætir við að
enginn sé farinn að ræða verkfall en
ekkert sé heldur útilokað. „Það er
eitthvað í að það gerist ef það gerist
á annað borð,“ segir Ólafur.
Leikskólakennarar í viðræður
Kjarasamningar Félags leik-
skólakennara og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga eru lausir 30.
apríl. Að sögn Haralds Freys Gísla-
sonar, formanns Félags leikskóla-
kennara, eru samningsaðilar búnir
að undirrita viðræðuáætlun og
funda næst á mánudaginn, 10.
mars.
„Félag leikskólakennara leggur
áherslu á að laun og starfskjör leik-
skólakennara séu sambærileg og
samkeppnisfær við aðra sérfræð-
inga á markaði,“ segir Haraldur
Freyr.
Ekki náðist í Gunnar Björnsson,
formann samninganefndar ríkisins,
í gær.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Í skólanum Enn lítur allt út fyrir að framhaldsskólakennarar fari í verkfall 17. mars næstkomandi.
Fundað í gríð og
erg hjá kennurum
Kominn kurr í grunnskólakennara og þeir vilja fara að fá svör
Kennarasam-
bandið vísaði
kjaradeilum
Menntaskóla
Borgarfjarðar
(MB) og Tækni-
skólans til rík-
issáttasemjara
í vikunni, en
þeir framhalds-
skólar eru
einkareknir ásamt Fjölmennt og
Verzlunarskóla Íslands.
Kennarar í Tækniskólanum og
MB hafa greitt atkvæði um
hvort þeir fari í verkfall og verð-
ur útkoman úr þeirri atkvæða-
greiðslu ljós um hádegi í dag. Ef
þeir hafa kosið með verkfalli
hefst það væntanlega líka 17.
mars. „Staðan er einfaldlega sú
að þetta er að fara í sama í far-
veg og hjá opinberu skólunum
enda nákvæmlega sömu kröfur
sem Kennarasambandið gerir á
okkur og samningar mjög sam-
bærilegir,“ segir Jón B. Stefáns-
son, skólameistari Tækniskól-
ans.
Kjarasamningur kennara við
Verzlunarskóla Íslands rennur út
í lok mars að sögn Inga Ólafs-
sonar skólastjóra. „Menn eru
farnir að setjast aðeins niður og
spjalla. En við eigum voðalega
erfitt með að semja á undan
hinum vegna þess að það eru
kjaraviðræður við ríkisskólana
sem ákvarða fjármagnið sem við
fáum,“ segir Ingi.
Er að fara í sama farveg
EINKAREKNIR SKÓLAR
Jón B.
Stefánsson