Morgunblaðið - 08.03.2014, Side 22

Morgunblaðið - 08.03.2014, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014 Búdrýgindi efna til málþings í Ár- sal Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri í dag, laugardaginn 8. mars klukkan 13-16. Kaffiveit- ingar verða í hléi á vegum kven- félagsins 19. júní. Dagskrárstjóri er Kolfinna Jó- hannesdóttir, skólameistari Menntaskólans í Borgarnesi. Framsögumenn eru: Vilhjálmur Egilsson, rektor á Bifröst, Dominique Pledel Jónsson, formaður Slow Fo- od, Brynhildur Pálsdóttir hönnuður, Gunnþórunn Einarsdóttir hjá Matís, Arnheiður Hjörleifsdóttir, bóndi á Bjarteyjarsandi, Davíð Freyr Jónsson hjá Arctic Seafood og Guðrún Bjarnadóttir, meistaranemi við LBHÍ. „Málþingið er opið öllum og vonast er til þess að sem flestir bændur láti sjá sig og allir áhugamenn um afurðaframleiðslu í sveitum,“ segir í tilkynn- ingu frá fundarboðendum. Málþing um framleiðslu afurða í sveitum Laugardaginn 8. mars kl. 16.00 flytur Sigurjón Vilbergsson, lyf- og melting- arlæknir, fræðsluerindi um krabbamein í ristli og fyr- irbyggjandi að- gerðir gagnvart því. Erindið verður flutt í Safnaðarheimilinu á Hellu við Dynskála. Fræðslufundurinn er í boði Lionsklúbbanna í Rangárvalla- sýslu. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Fræðsluerindi um krabbamein í ristli Sigurjón Vilbergsson Faxaflóahafnir sf. og Sjómanna- dagsráð hafa samið við Saga Film ehf. um undirbúning og fram- kvæmd Hátíðar hafsins sem haldin er árlega á Grandanum í Reykja- víkurhöfn. Saga Film mun annast dagskrárgerð, kynningar og aug- lýsingar ásamt utanumhaldi sem tengist framkvæmd hátíðarinnar. Dagmar Haraldsdóttir, nýráðin framkvæmdastjóri viðburðadeildar Saga Film ehf., mun stjórna verk- um. Hátíð hafsins varð til þegar Sjó- mannadagur og Hafnardagar voru sameinaðir í eina hátíð fyrir 15 ár- um. Í ár verður hátíðin haldin dag- ana 31. maí og 1. júní. Saga Film mun stýra Hátíð hafsins STUTT ur og Vestmannaeyjar heyrðu undir lögreglustjórann á Suðurlandi.    Kristín Jóhannsdóttir, ferða- og menningarfulltrúi Vestmannaeyja- bæjar, hefur verið ráðin safnstjóri Eldheima sem áætlað er að opna í vor. Þar gefst gestum tækifæri til að kynna sér Heimaeyjargosið 1973 og afleiðingar þess. Kristín segir þetta spennandi verkefni og sér fyrir sér að Eldheimar dragi að sér fjölda ferðamanna.    Fimmtudaginn 27. febrúar voru 100 ár frá fæðingu eins af bestu son- um Vestmannaeyja, Ástgeirs Ólafs- sonar sem flestir þekkja sem Ása í Bæ. Hann er þekktur fyrir lög sín og texta og nokkrar bækur liggja eftir hann. Þessa var minnst í Vest- mannaeyjum með samkomu á af- mælisdegi Ása og daginn eftir voru tónleikar með Ásabandinu í Alþýðu- húsinu.    Frábær árangur yngri flokk- anna í úrslitum Coca Cola-bikarsins í handbolta á sunnudaginn er fjöður í hatt þeirra sem ráða ferðinni hjá ÍBV íþróttafélagi. Þarna eignaðist ÍBV tvo bikarmeistara og þriðja lið- ið var hársbreidd frá því að krækja í þriðja titilinn. Stelpurnar í fjórða flokki og strákarnir á eldra ári í fjórða flokki komu heim með bikara og stelpurnar í unglingaflokki voru hársbreidd frá því að krækja í bikar.    Þorsteinn Gunnarsson arkitekt og Ríkharður Kristjánsson verk- fræðingur lögðu í janúar fram rót- tækar hugmyndir um endurreisn Landakirkju sem lokið var við að byggja árið 1778 en hefur tekið miklum breytingum síðan. Þeir segja kirkjuna í góðu standi en byggingarlistinni hafi verið ýtt til hliðar. Niðurstaða þeirra er að örð- ugt verði að hefja Landakirkju til vegs og virðingar í listrænu tilliti öðruvísi en að stöpullinn (turninn) verði jafnaður við jörðu. Þeir eru með ýmsar hugmyndir um klukku- turna. Ansi róttækt, finnst mörgum Eyjamanninum. Morgunblaðið/Ómar Garðarsson Afmæli Eyjamaðurinn Árni Johnsen varð sjötugur 1. mars s.l. og bauð gestum í létta veislu daginn áður. Framkvæmt fyrir milljarða BÆJARLÍFIÐ Ómar Garðarsson Vestmannaeyjar Mikið er framkvæmt í Vest- mannaeyjum þessa dagana, svo skiptir milljörðum. Einstaklingar byggja yfir sig hús, sjávarútvegsfyr- irtækin stækka og bæta við og end- urnýja búnað. Vestmannaeyjabær er að byggja hreinsistöð fyrir skólp, gosminjasafnið Eldheima og nýlega bauð Þekkingarsetur Vestmanna- eyja út framkvæmdir við framtíð- arhúsnæði þess á Strandvegi 30, hús Miðstöðvarinnar. Þar verða hinar ýmsu stofnanir á samtals 1932 fer- metrum.    Frumvarp innanríkisráðherra til laga um lögreglustjóra og sýslu- mannsembætti hefur tekið breyt- ingum. Verður lagt til að í Vest- mannaeyjum verði bæði sýslumaður og lögreglustjóri. Embættinu verði skipt upp og verður skipað í hvora stöðuna fyrir sig. Í fyrri tillögu var gert ráð fyrir að hér yrði sýslumað- Laugardagstilboð – á völdum dúkum, servéttum og kertum SE RV ÉT TÚ R KE RT I DÚ KA R Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is ® Ýmisservéttubrot Sjá hér! Opið laugardaga kl. 10-16 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Arðsemi og opnun markaðar eru skil- greind markmið stjórnar Isavia með forvali á verslunar- og veitingarekstri í flugstöðinni sem verður kynnt í þessum mánuði. Að sögn Þórólfs Árnasonar, stjórnarformanns Isavia og Fríhafn- arinnar ehf., byggist gagnrýni fyrrverandi for- stjóra flug- stöðvarinnar í að- sendri grein í Morgunblaðinu í fyrradag því á misskilningi. Höskuldur Ásgeirsson, fv. forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf., gagnrýndi í grein sinni m.a. að um- fang verslunarstarfsemi Fríhafnar- innar, sem er dótturfélag opinbera hlutafélagsins Isavia, hefði aukist undanfarin ár. Mikilvægt væri að stjórn Isavia skilgreindi betur hlut- verk sitt í verslunarstarfsemi fyrir forvalið. Erfitt að uppfylla kröfur Fríhöfnin hefur haft umboð fyrir sölu á áfengi, tóbaki, sælgæti, ilm- og snyrtivörum og vörum þeim tengd- um. Verslun með þær vörur verður ekki boðin út í forvalinu. Árið 2010 tók hún hins vegar til við- bótar yfir rekstur fataverslunar sem Icelandair baðst undan að reka áfram en auk þess tók hún inn nærfatnað frá Victoria’s Secret sama ár. Áður hafði hún haft ilm- og snyrtivörur frá fyr- irtækinu til sölu. Þórólfur segist búast við því að fataverslunin verði boðin út. Hvað varði nærfatnaðinn þá sé það vara sem sé tengd ilm- og snyrtivörum. Ekki sé víst hvort það fylgi í forvalinu. Hvað varðar gagnrýni Höskuldar á að Isavia skilgreini hlutverk sitt í verslunarrekstri bendir Þórólfur á að stjórn Isavia hafi samþykkt í septem- ber tilhögun forvalsins. Þar sé mark- miðið að opna markaðinn og efla sam- keppni ásamt því að auka arðsemi af verslun og þjónustu á fríhafnarsvæð- inu. Fríhöfnin sjálf getur tekið þátt í forvalinu og segir Þórólfur hana munu gera það. Það hafi reynst rekstraraðilum erfitt að uppfylla kröfur um þjónustustig og afgreiðslu- tíma. Fríhöfnin sé eini aðilinn sem hafi haft opið allan sólarhringinn. Tekjur sem af henni hljótist nýtist rekstri og uppbyggingu flugstöðvar- innar. „Ef flugfarþegar greiða lægri flug- þjónustugjöld af því að Fríhöfnin geti gert þetta ódýrara en aðrir þá held ég að það sé öllum til hagsbóta,“ segir Þórólfur. Sjálfstæði stjórnar aukið Höskuldur gagnrýndi einnig að sami maðurinn gegndi stöðu for- manns stjórnar Isavia og Fríhafnar- innar ehf. Þórólfur bendir hins vegar á að sjálfstæði Fríhafnarinnar sé tryggt með því að þrír af fimm stjórnar- mönnum hafi engin tengsl við Isavia. Þeim hafi verið fjölgað úr þremur í fimm í fyrra til þess að auka sjálfstæði dótturfélagsins. Markmið for- vals skilgreind  Fríhöfnin tekur sjálf þátt í forvalinu Morgunblaðið/Sigurgeir S. Fríhöfnin Dótturfélag Isavia hefur m.a. selt áfengi og tóbak. Þórólfur Árnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.