Morgunblaðið - 08.03.2014, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014
Halldór Óskar Sigurðsson hefur í
mörg ár unnið með erlendum eig-
endum íslenskra fyrirtækja. Hann
var framkvæmdastjóri Bauhaus á
Íslandi áður en hann tók við núver-
andi stöðu og áður meðal annars
framkvæmdastjóri Þörungaverk-
smiðjunnar á Reykhólum.
„Margt er svipað en annað ólíkt.
Ég er að byggja upp fyrirtæki, eins
og hjá Bauhaus. Helsti munurinn er
að hér er ekki verið að þjónusta
viðskiptavini daglega. Umhverfið
er líkara því sem var hjá Þör-
ungaverksmiðjunni; bæði fyr-
irtækin standa við sjóinn og fram-
leiða vörur til útflutnings,“ segir
Halldór.
Eldisstöð Stolt Sea Farm er
tæknivædd. Sjálfvirk stýring er á
hita vatnsins og fóðurgjöf. Störf
stjórnenda felast í því að koma öllu
í verkferla. Alltaf er þó þörf fyrir at-
hyglisgáfu góðs starfsfólks. Það
þarf að hafa eftirlit með fiskinum
og heilbrigði hans og tækjunum.
Lík starfsemi og um leið ólík
VINNUR MEÐ ERLENDUM FYRIRTÆKJUM
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Stjórinn Halldór Óskar Sigurðsson hefur lengi unnið fyrir erlend fyrirtæki.
Hitastigið er jafnt allt árið og um-
hverfið hefur engin áhrif. Það er
ástæða þess að áætlanir um vöxt
seiðanna hafa gengið eftir og vel það.
Meiri sveiflur eru í hitastigi eld-
isvöka í stöðvum sem nota útiker og
sjó beint úr hafinu.
Halldór telur einnig að það muni
hjálpa til við markaðssetningu afurð-
anna að þær koma frá Íslandi. Gæða-
ímynd landsins sé sterk á erlendum
mörkuðum.
1,2 milljónir seiða í eldi
Nú eru 1.250 þúsund seiði í stöð-
inni og fer fjölgandi því fluttar eru í
stöðina lirfur mánaðarlega. Lirf-
urnar koma úr kynbótastöð Stolt Sea
Farm á Spáni og eru aldar hér í slát-
urstærð.
Byggingarnar eru mismunandi að
gerð. Fyrstu mánuðina eru seiðin í
vönduðustu húsunum, á meðan þau
þurfa mest eftirlit. Síðan fara þau í
gegn um stöðina, eru stærðarflokkuð
og seiði sem ekki standast gæðakröf-
ur eru flokkuð frá.
Sérfræðingar frá móðurfyrirtæk-
inu eru eldismönnum deildarinnar á
Íslandi til aðstoðar. Allt fóðrið er
flutt inn. Halldór segir að lögð sé
áhersla á að draga sem mest úr
áhættu við eldið í upphafi. Þess
vegna séu lirfurnar og fóðrið flutt að
utan, öðruvísi fáist ekki nauðsyn-
legur samanburður. Hann segir vel
koma til greina að framleiða lirfurnar
hér í framtíðinni, auðvelt sé að koma
því við í stöðinni, og eins að kaupa
fóður sem stenst kröfur fyrirtækisins
af íslenskum fóðurstöðvum.
Móðurfyrirtækið sér einnig um
markaðsmálin. Þegar senegalflúran
fer að nálgast 400 grömmin er henni
slátrað og hún flutt fersk með flutn-
ingaskipum á markað í Evrópu, mest
til Beneluxlandanna en einnig til
Bretlands og Frakklands. Eitthvað
fer til Bandaríkjanna. Einnig er til
athugunar að flytja hluta framleiðsl-
unnar út með flugi.
Fiskurinn er fluttur út óunninn
enda vilja margir fá hann heil-
steiktan á diskinn sinn. Því skiptir út-
litið miklu máli. Sporðurinn þarf til
dæmis að hafa rétta lögun. Stundum
er slátrað minni flúru og stundum
stærri, það fer eftir þörfum mark-
aðarins á hverjum tíma.
Áætlanir um margföldun
Reiknað er með að ársframleiðslan
verði yfir 500 tonn þegar fyrsti hluti
stöðvarinnar verður kominn í fullan
rekstur. Búið er að undirbúa þref-
öldun húsakosts og þegar hann
Senegalflúran dafnar vel
Slátrun á senegalflúru hefst síðla hausts Eldisstöð Stolt Sea Farm verður stærsta flúrustöð
heims og ein stærsta yfirbyggða landeldisstöð sem fyrirfinnst í heiminum Volgt kælivatn frá
Reykjanesvirkjun skapar möguleika á að ala fiskinn í hlýjum sjó allt árið hvernig sem viðrar
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Eldishús Fyrsti áfangi Stolt Sea Farm við Hafnir á Reykjanesi verður 22.500 fermetrar að stærð. Þegar stöðin
verður fullbyggð verða um 77 þúsund fermetrar undir þaki. Hún verður stærsti framleiðandi senegalflúru.
Fiskur Senegalflúran er oft heilsteikt á pönnu og því skiptir útlitið máli.
SVIÐSLJÓS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Áframeldi senegalflúru í stöð Stolt
Sea Farm á Reykjanesi gengur vel.
Fiskurinn vex jafnvel betur en áætl-
að var. Nú stefnir í að slátrun hefjist í
októbermánuði og framleiðsla í
fyrsta áfanga verði komin á fullt um
áramót. Jafnframt er hugað að þróun
starfseminnar og stækkun og fyr-
irtækið er með í athugun að byggja
aðra fiskeldisstöð hér á landi.
Eldisstöð Stolt Sea Farm lætur
ekki mikið yfir sér í hrauninu neðan
við Reykjanesvirkjun og þeir sem
þar ráða ríkjum vilja frekar tala
minna og láta verkin tala. Þótt aðeins
sé risinn fyrsti áfangi stöðvarinnar er
hún ein stærsta yfirbyggða landeld-
isstöð heims og allavega stærsta eld-
isstöð senegalflúru í heiminum þegar
framleiðsla hefst. Húsakosturinn í
þessum áfanga er 22.500 fermetrar.
Þeir sem komið hafa inn í verslun
Bauhaus í Reykjavík hafa sam-
anburð því húsin eru jafnstór.
Góð samvinna við HS Orku
Aðgangur að hreinum og góðum
jarðsjó er grundvöllur eldisstöðvar
eins og Stolt Sea Farm hefur byggt á
Reykjanesi. Lykillinn að staðsetn-
ingu þar er samvinna sem tókst við
HS Orku og hefur verið til fyr-
irmyndar frá upphafi, að sögn Hall-
dórs Óskars Sigurðssonar fram-
kvæmdastjóra. Stöðin fær aðgang að
volgu kælivatni sem rennur frá
Reykjanesvirkjun til sjávar. Vatnið
er 35 gráður og er sjálfrennandi inn í
stöðina. Það er blandað með köldum
jarðsjó úr borholum fyrirtækisins
þannig að vatnið er 21 gráða þegar
fiskurinn nýtur þess að svamla í því,
en það er kjörhitastig hans í Afríku
og Suður-Evrópu.