Morgunblaðið - 08.03.2014, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 08.03.2014, Qupperneq 27
FRÉTTIR 27Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014 PHILIPPE STARCK Philippe Starck hefur útfært hugmyndir svo lengi sem hann man. Þó háþróaðar hugmyndir hans hafi ekki fengið hljómgrunn kennara hans, var hann þó um tvítugt búinn að afla sér heimsfrægðar og viðurkenningar fyrir hönnun og arkitektúr. Velkomin í stórglæsilegan sýningarsal okkar að Draghálsi 14-16. Gæði fara aldrei úr tísku Hörður Ægisson hordur@mbl.is Hagvöxtur var 3,3% á síðasta ári og hefur ekki mælst meiri frá því árið 2007. Er þetta nokkuð meiri hag- vöxtur en spár greinenda gerðu ráð fyrir en Seðlabanki Íslands hafði áætlað að vöxturinn yrði 3%. Að raungildi er landsframleiðsla Íslands orðin sú hin sama og á árinu 2008. Það vekur ekki síst eftirtekt að hagvöxturinn var fyrst og fremst drifinn áfram af miklum utanríkis- viðskiptum. Þannig segir í Morgun- korni Greiningar Íslandsbanka að hagvöxturinn hafi verið af „bestu gerð“. Var framlag utanríkisvið- skipta til hagvaxtar 3,2% og skýra þau því nánast allan hagvöxt á liðnu ári. Á árunum fram að bankahruni 2008 var hagvöxturinn hins vegar að stærstum hluta tekinn að láni sem endurspeglaðist í gríðarlegum við- skiptahalla. Einkaneysla jókst minna en Seðlabankinn gerði ráð fyrir og hækkaði aðeins um 1,2%. Er hún því enn mjög lítil í sögulegu samhengi, eða um 53,6% sem hlutfall af lands- framleiðslu. Sé einkaneysla borin saman við árið 2007, þegar einka- neysla var í hæstu hæðum, þá eyðir hver landsmaður í dag að jafnaði um 20% minna en fyrir sex árum. Þrátt fyrir að fjárfesting hafi dregist sam- an um 3,4% á síðasta ári þá var sam- drátturinn lítillega minni en miðað var við í spá Seðlabankans. Sam- drátturinn skýrist einkum af minni innflutningi skipa og flugvéla. Það hefur aftur jákvæð áhrif á utanrík- isviðskiptin þar sem það dregur út innflutningi. Að undanskildum skip- um og flugvélum jókst fjárfesting um 5,8%. Var hlutfall fjárfestingar af landsframleiðslu 13,6% á liðnu ári og hefur þetta hlutfall haldist í sögu- legu lágmarki allt frá hruni fjár- málakerfisins. Sambærilegt hlutfall fyrir OECD-ríkin í heild hefur verið í kringum 20%. Afgangur af undirliggjandi við- skiptajöfnuði Íslands jókst verulega milli ára 2012 og 2013 og nam af- gangurinn 6,4% af landsframleiðslu, eða sem nemur 114 milljörðum króna. Er það mesti afgangur sem mælst hefur frá því að gerð þjóð- hagsreikninga hófst árið 1945. Þrátt fyrir að viðskiptakjör Íslands hafi versnað um 1,5% á síðasta ári þá þýddi mikill viðsnúningur á við- skiptajöfnuði að þjóðartekjur jukust mun meira en sem nemur vexti landsframleiðslu, eða um 11%. Árið 2012 jukust þjóðartekjur um 3,2%. Utanríkisviðskipti skýra mesta hagvöxt frá 2007  Hagvöxtur var nokkuð meiri en reiknað var með árið 2013 og mældist 3,3% Hlutdeild einstakra liða í hagvexti Íslands Heimild: Hagstofa Íslands Einkaneysla Samneysla Fjárfesting Utanríkisviðskipti 2010 2011 2012 2013 4% 3% 2% 1% 0% -1% -2% -3% -4% Landsframleiðslan 2013 » Landsframleiðsla jókst að raungildi um 3,3% á árinu 2013. Er þetta mesti hagvöxtur frá 2007. » Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar var 3,2% og skýrði því nánast allan hagvöxt á liðnu ári. » Einkaneysla jókst aðeins um 1,2%. Er hlutfall einkaneyslu af landsframleiðslu 53,6% sem er sögulega séð mjög lágt. » Fjárfesting dróst saman um 3,4%. Skýrist það af minni inn- flutningi skipa og flugvéla. ● Laun skrifstofufólks hækkuðu um 7,8% á milli ára í fyrra en stjórnenda um 5,1%. Regluleg laun voru að með- altali 0,9% hærri á fjórða ársfjórðungi í fyrra en á þriðja ársfjórðungi. Ef horft er til ársins í heild þá hækkuðu laun um 6% á milli ára. Hækkunin var 6,1% á al- mennum vinnumarkaði og 5,5% hjá op- inberum starfsmönnum, samkvæmt frétt Hagstofunnar. Laun hækkuðu um 6% á milli ára í fyrra ● Starfsmönnum Plain Vanilla hefur fjölgað ört frá því að QuizUp- spurningaleikurinn kom út í nóvember síðastliðnum. Það sem af er ári hafa 10 nýir starfsmenn hafið störf hjá fyrirtækinu. Nýju starfsmennirnir starfa meðal annars við þjónustu við not- endur, ritstjórn spurningabankans á bak við leikinn og við þróun Android- útgáfu leiksins. Nánar á mbl.is Plain Vanilla ræður til sín fleiri starfsmenn ● Elín Jónsdóttir kemur ný inn í stjórn Icelandair á aðalfundi félagsins á þriðjudag, í stað Herdísar Drafnar Fjeld- sted, sem sat fyrir hönd Framtakssjóðs í stjórn. Sjálfkjörið verður í stjórn. Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Katr- ín Olga Jóhannesdóttir, Sigurður Helga- son og Úlfar Steindórsson verða endur- kjörin. Því er ljóst að meirihluti stjórnar verður áfram skipaður konum. Konur áfram í meiri- hluta í stjórn Icelandair

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.