Morgunblaðið - 08.03.2014, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 08.03.2014, Qupperneq 28
Bíða Hermennirnir á Belbek standa vörð fyrir innan hliðið að herstöðinni. FRÉTTASKÝRING Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Síðastliðna viku hefur Oleksandr, 27 ára gamall flugvirki, setið fastur á herstöðinni á Balbek, herflugvellin- um í Sevastopol á Krímskaga, fjarri eiginkonu sinni og sex mánaða gömlu barni. „Ég vinn venjulega frá átta til fimm,“ segir Oleksandr þar sem hann starir út um hliðið að her- stöðinni en hann starfar við að setja eldsneyti á herflugvélar úkraínska hersins. Þegar Rússarnir komu breyttist starfslýsingin. „Við stönd- um vörð. Enginn veit hversu lengi þetta mun vara. Í augnablikinu hleypa þeir matarbirgðum í gegn,“ segir hann í samtali við AFP. Einn morguninn birtust vel vopn- aðir atvinnuhermenn nærri MiG- flugskýlunum þar sem Oleksandr vinnur. Þeir báru engin auðkenn- ismerki en hann segist sannfærður um að þeir hafi tilheyrt sérsveitum rússneska hersins. Yfirmenn úkra- ínsku hermannanna skipuðu þeim að forðast átök og hörfa aftur í her- skálana. „Nú eru skipanirnar þær að standa vörð við hliðin á fjögurra tíma vöktum,“ segir Oleksandr. Hann hefur skothelda vestið sitt op- ið og ekkert skothylki í Kalashni- kov-rifflinum sem hann ber á öxl- inni, til að gefa til kynna að hann sé ekki reiðubúinn í átök. Á meðan Oleksandr ræðir við AFP flykkjast stuðningsmenn Rússa að hliðinu. Næstæðsti yfir- maðurinn á herstöðinni skipar úkra- ínsku hermönnunum að raða sér upp í þrjár raðir fyrir innan hliðið. Enginn heldur vopnum á lofti og sumir hermannanna standa með hendur í vösum. „Við viljum ræða við þann sem stjórnar!“ hrópar hvít- hærður maður í svörtum leður- jakka. „Afar okkar börðust hlið við hlið í hinum dýrðlega sovéska her og nú eruð þið að leika leik Banda- ríkjanna,“ hrópar maðurinn í gegn- um rimlana. „Hugleysingjar! Skömm!“ hrópar hópurinn. „Verið hugrakkir, ekki spila leik NATO!“ kallar eldri kona. Oleksandr reynir að skýla sér fyrir kuldanum. „Báðir foreldrar mínir vörðu Sovétríkin. Þau voru líka her- menn,“ segir hann. „Faðir minn lést þegar ég var strákur. Mamma var herverkfræðingur sem reisti bygg- ingarnar sem þú sérð þarna,“ segir hann. „Þetta fólk mun ekki lesa yfir mér,“ bætir hann ákveðinn við. Spurður um líkurnar á stríði við Rússland segir hann helmingslíkur á því. „Það er mögulegt. Ég er dálít- ið áhyggjufullur vegna fjölskyldu minnar en ef við þurfum að berjast, þá munum við berjast,“ segir hann. Segja 30.000 hermenn í Krím Rússnesk stjórnvöld sögðu í gær að eftirlitssveit Öryggis- og sam- vinnustofnunar Evrópu hefði ekki verið hleypt yfir á Krímskaga þar sem hún hefði látið fyrirfarast að fá formlegt boð hjá yfirvöldum í Krím. Stofnunin sagði frá því í gær að eft- irlitssveitin hefði verið stöðvuð við varðstöð þegar hún reyndi að kom- ast inn í Krím. Rússneska utanrík- isráðuneytið sakaði ÖSE um að horfa framhjá grundvallarreglunni um samþykki og skoraði jafnframt á stofnunina að fordæma ofbeldisverk nýrra stjórnvalda í Kænugarði og lýsa valdtöku þeirra ólögmæta. Báðar deildir rússneska þingsins hétu því í gær að lögfesta niðurstöð- Standa vörð og bíða þess sem koma skal  Eftirlitssveit ÖSE aftur meinaður að- gangur  Hyggjast lögfesta niðurstöðuna Héðan og þaðan » Atlantshafsbandalagið stendur fyrir heræfingum í norðurhluta Noregs í mars- mánuði, þar sem til stendur að æfa viðbrögð við óvæntum inn- rásum. » Æfingarnar hafa staðið til í langan tíma en 16.000 her- menn taka þátt, þar af 9.000 frá Noregi og 7.000 frá öðrum aðildarríkjum NATO. » Alþjóðalögreglan Interpol sagði frá því í gær að beiðni úkraínskra stjórnvalda um al- þjóðlega handtökuskipun til höfuðs Viktors Janúkóvítsj, fyrrverandi forseta Úkraínu, væri til athugunar. » Dýragarður í Kharkiv óskaði í gær eftir neyðaraðstoð, ella dræpust dýrin úr hungri á næstu vikum. 28 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014 Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is Golfhermir DOUBLE EAGLE 2000 Frábær aðstaða til að spila golf. Þú getur valið um 9 golfvelli, St. Andrew´s, Coeurd Alene, Firestone, Pebble Beach, Druids Glen, Doral Resort,Emirates. Haltu sveiflunni við í vetur Tryggðu þér fastan tíma í vetur Hringdu núna og bókaðu tíma Stjórnvöld í Kína lýstu í gær yfir óánægju sinni vegna fundar Dalai Lama með leiðtogum bandaríska þingsins í Washington og skoruðu á bandarísk stjórnvöld að hætta leynimakki með manninum sem þau lýsa sem aðskilnaðarsinna sem dylst undir „möttli trúarinnar“. Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, fór með hina hefðbundnu bæn sem farið er með við upphaf þingfunda öldungadeildarinnar og tjáði leiðtogum þingsins að eitt af hans helstu markmiðum væri varð- veisla tíbesks menningararfs. Talsmaður kínverska utanríkis- ráðuneytisins sagði að Kína lýsti yf- ir harðri andstöðu við fundinn. „Hann [Dalai Lama] er pólitískur útlagi sem hefur löngum tekið þátt í and-kínverskum aðgerðum aðskiln- aðarsinna undir möttli trúarinnar,“ sagði hann við fjölmiðlamenn. Hann sagði Kína hvetja bandaríska þing- ið til að standa við skuldbindingu sína um að viðurkenna Tíbet sem hluta af Kína og láta af afskiptum af innanríkismálum landsins. Dalai Lama átti fund með Barack Obama Bandaríkjaforseta í síðasta mánuði, sem vakti ekki síður reiði kínverskra ráðamanna. Fordæma fund þing- manna með Dalai Lama AFP Handaband Dalai Lama heilsar repúblikananum John Boehner. Hópur japanskra sagnfræðinga hef- ur gagnrýnt japönsk stjórnvöld fyrir að ætla að endurskoða afsök- unarbeiðni stjórnvalda vegna kyn- lífsþrælkunar á stríðstímum. Þeir segja ákvörðunina ófyrirgefanlega. Stjórnvöld í Japan gáfu út svokall- aða Kono-yfirlýsingu árið 1993, þar sem þau báðust afsökunar á því að konur víðsvegar í Asíu hefðu verið neyddar til þess að starfa í vænd- ishúsum fyrir herinn en ríkisstjórn sitjandi forsætisráðherra, Shinzos Abe, hefur sagt að vitnisburður kvennanna, sem afsökunarbeiðnin byggðist á, yrði endurskoðaður. „Það er ófyrirgefanlegt að hverfa frá Kono-yfirlýsingunni,“ segir Yos- hiaki Yoshimi, sagnfræðiprófessor við Chuo-háskóla. Virtir sagnfræð- ingar segja að allt að 200.000 konur, flestar frá Kóreu en einnig frá Kína, Indónesíu, Filippseyjum og Taívan, hafi verið neyddar til að starfa í vændishúsum fyrir hermenn en minnihluti japanskra hægrimanna segir að herinn hafi ekki átt hlut að máli heldur hafi konurnar verið á eigin vegum. Ákvörðun Japana hefur vakið mikla reiði í Suður-Kóreu og sagði forseti landsins, Park Geun-Hye, að Japan ætti á hættu að einangrast ef þarlend stjórnvöld drægju afsök- unina til baka. Gagnrýna ákvörðun japanskra stjórnvalda AFP Stríð Sagnfræðingar segja heim- ildir staðfesta frásagnir kvennanna. París. AFP. | Nicolas Sarkozy, fyrr- verandi forseti Frakklands, er grun- aður um að hafa reynt að hafa áhrif á dómara sem fjölluðu um spillingar- mál gegn honum. Grunurinn byggist á símtölum sem hann átti við lög- mann sinn, Thierry Herzog, en dóm- arar höfðu heimilað að símar Sarko- zys væru hleraðir, vegna rannsóknar á tengslum hans við Moammar Gaddafi, fyrrverandi ein- ræðisherra Líbíu. Forsetinn fyrrverandi á við ramman reip að draga en hann virð- ist flæktur í vef spillingarmála sem gætu kostað hann möguleikann á pólitískri endurkomu. Auk þess að hafa sætt rannsókn vegna gruns um að hann hafi tekið við kosninga- framlögum frá einræðisherranum líbíska árið 2007, hefur Sarkozy ver- ið sakaður um að hafa staðið fyrir því að viðskiptajöfurinn Bernard Tapie fékk 400 milljónir evra af op- inberu fé í þakklætisskyni fyrir stuðning í sömu kosningum. Lögmaður Sarkozy sagði í gær að símar forsetans fyrrverandi væru líklega enn hleraðir en um væri að ræða pólitískt samsæri gegn skjól- stæðingi sínum. „Það var engin til- raun gerð til að spilla gangi réttlæt- isins og með tímanum verður leitt í ljós að þessi umfangsmikla valdbeit- ing var af pólitískum toga,“ sagði Herzog. Úrskurða um dagbækurnar Dómstólar munu í næstu viku skera úr um hvort yfirvöld fóru rétt að þegar hald var lagt á dagbækur Sarkozy. Það mál varðar fjárframlög Lilliane Bettencourt, ríkustu konu Frakklands, til flokks forsetans fyrrverandi, sem er sagður hafa not- fært sér L’Oreal-erfingjann, þegar hún var of veikburða til að átta sig á því hvað hún var að gera. Betten- court er 91 árs gömul. Ákærur gegn Sarkozy hafa reynd- ar verið látnar niður falla í því máli en tíu aðrir einstaklingar verða sótt- ir til saka, þeirra á meðal fjármála- stjóri kosningabaráttu Sarkozy, Er- ic Woerth. Forsetinn fyrrverandi á þó ekki síður mikið undir hvað varðar dag- bækurnar, þar sem málið er varðar viðskiptajöfurinn Tapie byggist að miklu leyti á upplýsingum úr þeim. Sarkozy í vef spillingarmála  Segja pólitískt samsæri í gangi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.