Morgunblaðið - 08.03.2014, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014
Við bjóðum öll afmælisbörn
velkomin og gefum þeim fría
n
eftirrétt í tilefni dagsins.
afmaeli?
Attu´
Til hamingju!!!
H
ug
sa
sé
r!
Walter Shawn Browne semer 65 ára gamall er sáeini meðal 155 erlendra
þátttakenda á 50 ára afmæli
Reykjavíkurskákmótanna sem
sigrað hefur á þessu móti. Það
gerðist á Hótel Loftleiðum á hinu
geysisterka 8. Reykjavíkurmóti
árið 1978 og keppinautar hans,
sem tefldu allir við alla, voru ekki
af verri endanum: Bent Larsen,
Tony Miles, Lev Polugajevskí,
Vlastimil Hort auk íslensku meist-
aranna með Friðrik Ólafsson
fremstan í flokki. Bægslagang-
urinn í tímahraki í skák við Polu-
gajevskí og almenn baráttugleði
hans eru mönnum enn í fersku
minni. Walter Browne vann
bandaríska meistaratitilinn sex
sinnum og fyllti að sumu leyti það
pláss í bandarísku skáklífi sem
Bobby Fischer skildi eftir. Eld-
móðurinn er þarna ennþá og hann
hefur unnið þrjár fyrstu skákir
sínar á sannfærandi hátt.
Faðir hins nýbakaða heims-
meistara, Henrik Carlsen, er hing-
að kominn til að slaka aðeins á
eftir fjölmiðlafárið í kringum ein-
vígi sonarins á dögunum. Hann á
góðar minningar frá því á Reykja-
víkurmótinu 2004; samsetning
keppenda þá með Magnús Carl-
sen, Lev Aronjan og Hikaru Na-
kamura á keppendalistanum sann-
ar að framkvæmdaraðilar þessara
móta hafi verið lagnir að fá til
keppni menn framtíðarinnar. Hinn
10 ára gamli Awonder Liang er
heimsmeistari barna í sínum ald-
ursflokki en Hjörvar Steinn Grét-
arsson vann piltinn þó örugglega í
2. umferð.
Reykjavíkurmótin eru nú öllum
opin með skemmtilegum hliðar-
viðburðum á borð við barna-blitz
og pub quiz. En fyrst og síðast er
mótið frábær vettvangur fyrir ís-
lenska skákmenn, ekki síst þá
yngstu. Keppendur eru alls 254 en
erlendu gestirnir eru 155. Mótið er
vel skipulagt og salurinn í Hörpu
er stórglæsilegur. Hlutur kvenna
er alltaf að aukast og margar öfl-
ugar skákkonur mæta til leiks,
áhorfendur sópuðust að skjánum
þegar indverska skákprinsessan
Tania Sachdev sá um skákskýr-
ingar á heimasíðu heimsmeist-
araeinvígis Anands og Magnúsar
Carlsens í Indlandi. Af mörgum
óvæntum úrslitum er að taka en
hér birtist sigur Tinnu Kristínar
Finnbogadóttur í 1. umferð en
stigamunur var upp á næstum 500
elo-stig. Góð taflmennska Tinnu í
endataflinu réð svo úrslitum:
Mate Bagi (Ungverjaland) –
Tinna Kristín Finnbogadóttir
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 g6 3. Bc4 Rc6 4.
c3 Bg7 5. d4 d6 6. O-O e6 7. Bf4
cxd4 8. cxd4 Rge7 9. Rc3 d5 10.
Bb3 dxe4 11. Rxe4 O-O 12. Bg5
Da5
Eftir byrjun þar sem hvítur
missti af ýmsum vænlegum leið-
um, t.d. 7. d5, hefur svartur náð
prýðilegri stöðu með þrýsting á
staka peðið á d4.
13. Dc1 Rf5 14. Hd1 Rfxd4 15.
Rxd4 Rxd4 16. De3 e5 17. Bf6
Db6 18. Bxg7 Kxg7 19. Hac1
Rxb3 20. Dxb3 Dxb3 21. axb3
Be6 22. Rc5 Hfe8!
23. Rxe6+ Hxe6 24. Hc7 Hc6
25. Hxb7 Hd8!
Notfærir sér valdleysið í borð-
inu, 26. Hxd8 strandar auðvitað á
26. … Hc1+ og mátar.
26. Hf1 Hd2 27. Hxa7 Hxb2 28.
Ha5 e4 29. Hb5 Hcc2
Hótar 29. … e3. Lakara var 29.
… e3 vegna 30. fxe3 Hcc2 31.
Hg5! og hvítur nær jafntefli.
30. He5 He2 31. h4 f6 32.
He7+ Kh6 33. g3 Hxb3
Hvítur gat ekki varið b-peðið
og átt við hótun svarts að leika
e4-e3.
34. Kg2 Hbb2 35. Kg1 Ha2 36.
He6 f5 37. He7 Hab2 38. He6
Hvítur er í leikþröng og nú
brýst svarti kóngurinn fram.
38. … Kh5! 39. He7 h6 40. He5
Kg4 41. He6 e3 42. Hxg6+ Kh3
- og hvítur gafst upp.
Funheitur Walter Browne mæt-
ir aftur á Reykjavíkurskákmót
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Walter Browne Tania Sachdev
Það er mikill tví-
skinnungur fólginn í
þeirri kröfu Íslands
og annarra NATO-
þjóða að Rússar virði
landamæri Úkraínu
og skipti sér ekki af
innanríkismálum
úkraínsku þjóð-
arinnar. Ég er í
sjálfu sér sammála
því að virða beri
landamæri annarra þjóða og er-
lendar þjóðir eigi ekki að blanda
sér í innanríkismál einstakra
þjóða. En fjölmörg dæmi eru um
afskipti NATO og „staðfastra
þjóða“ af innanríkismálum og inn-
rásir og stuðning við uppreisnaröfl
einstakra landa. Listinn er langur
þar sem lygum og blekkingum
hefur verið beitt til að réttlæta af-
skipti og beinar innrásir í einstök
lönd, má þar nefna Írak þar sem
því var haldið fram að sannanir
væru fyrir hendi um gereyðingar-
og/eða efnavopn í landinu, þær
sannanir voru falsaðar og engin
slík vopn fundust í landinu. „Æ,
æ, smá mistök en það þurfti að
losna við Saddam,“ svo blóðs-
úthellingar árum saman voru rétt-
lætanlegar eða hvað? Í Líbíu sök-
uðu sömu þjóðir Gaddafí um að
ráðast á saklausa mótmælendur
sem þó á myndum reyndust vopn-
aðir þungavopnum og jafnvel með
skriðdrekabyssur á pallbílum sín-
um. Ég hef aldrei séð saklausa
mótmælendur jafn vel vopnaða
enda kom á daginn að uppreisn-
armenn þessir nutu
frá byrjun stuðnings
vestrænna þjóða.
Þetta var samt notað
til beinnar þátttöku
NATO í hernaði gegn
Gaddafí og ríkisstjórn
hans. Afleiðingarnar
eru þær að nú vaða
uppi vopnaðar sveitir
vígamanna í Líbíu og
leppstjórnin virðist
ekki ráða neitt við
neitt, réttindi kvenna
hafa verið skert veru-
lega og útflutningstekjur minnkað
stórlega. „Æ, æ, það var verra, en
það þurfti að losna við Gaddafí og
smá aukaverkanir í nokkra ára-
tugi, það verður bara að hafa
það.“ Sömu góðu þjóðir hafa til
skamms tíma stutt þekkt hryðju-
verkasamtök til uppreisnar gegn
sýrlenskum stjórnvöldum með
skelfilegum afleiðingum fyrir sýr-
lensku þjóðina. „Æ, æ, það fylgja
stundum aukaverkanir góðverk-
unum en það væri gott að losna
við Assad.“ Mér finnst sjálfsagt að
virða landamæri Úkraínu en mér
finnst NATO og hinar staðföstu
þjóðir ekki trúverðugar í því að
krefjast þess að fullveldi og landa-
mæri einstakra ríkja séu virt!
Tvöfeldni
NATO-þjóðanna
Eftir Heiðar
Ragnarsson
Heiðar Ragnarsson
»Eru landamæri
Úkraínu heilagari
en landamæri Líbíu?
Höfundur er matreiðslumaður
og heilsuráðgjafi.