Morgunblaðið - 08.03.2014, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 08.03.2014, Qupperneq 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014 ✝ IngiríðurDaníelsdóttir fæddist á Kollsá í Hrútafirði 13. ágúst 1922. Hún lést á Vífilsstöðum 25. febrúar 2014. Foreldrar henn- ar voru Herdís Einarsdóttir, f. 11. mars 1897 á Hróð- nýjarstöðum, Dalasýslu, og Daníel Tómasson, f. 7. mars 1888 á Kollsá. Systkini Ingiríð- ar: Þorvaldur, f. 8. júní 1920, d. 7. nóvember 1973, Valdís Sigurlaug, f. 8. ágúst 1924, Ester, f. 19. febrúar 1926, d. 28. febrúar 1926, Einar Tóm- as, f. 29. maí 1932, d. 25. apríl 1937, Áshildur Esther, f. 3. ágúst 1940. Hinn 10. september 1939 giftist Ingiríður Kristjáni Karli Hannessyni, f. 6. júní 1912, d. 21. nóvember 1997, frá Þurra- nesi, Saurbæ, Dalasýslu. For- maki Herdís Einarsdóttir, bú- sett í Grafarkoti, V-Hún. 7) Sveinn, f. 21. nóvember 1957, maki Guðný Sigríður Þor- steinsdóttir, búsett á Borðeyri. 8) Sigurhans, f. 20. maí 1960, maki Þórey Jónsdóttir, búsett í Reykjavík. 9) Karl Ingi, f. 26. október 1968, maki Steinunn Matthíasdóttir, búsett í Búð- ardal. Afkomendur Ingiríðar og Kristjáns Karls eru í dag um áttatíu talsins. Ingiríður ólst upp á Kollsá og tók þar við búskap af for- eldrum sínum ásamt Kristjáni Karli árið 1941. Þau bjuggu þar fram til ársins 1979 er þau brugðu búi og fluttu inn að Borðeyri með yngsta son sinn. Eldri börnin höfðu þá þegar flutt að heiman. Eftir andlát Kristjáns Karls 1997 bjó Ingi- ríður á Borðeyri fram til árs- ins 2003 þegar hún flutti til Reykjavíkur í Bólstaðarhlíð 41. Þar undi hún sér vel við hannyrðir og aðra listsköpun nánast fram að andláti og skil- ur hún eftir sig fjöldann allan af hannyrðum og listmunum á heimilum afkomenda sinna. Ingiríður verður jarðsungin frá Prestbakkakirkju í dag, 8. mars 2014, kl. 11. eldrar hans voru Margrét Kristjáns- dóttir, f. 18. ágúst 1876 á Saurhóli, Saurbæ, d. 23. febrúar 1955, og Hannes Guðnason, f. 13. mars 1868 í Máskeldu, Saurbæ, d. 21. febrúar 1924. Börn Ingi- ríðar og Kristjáns Karls eru: 1) Erla, f. 24. júní 1939, maki Sigurður Þórólfsson, búsett í Innri- Fagradal, Saurbæ. 2) Ásdís Jóna, f. 11. júní 1944, maki Ei- ríkur Bjarnason, búsett í Kópavogi. 3) Steinar Tómas, f. 24. apríl 1948, maki Björk Magnúsdóttir, búsett í Reykja- vík. 4) Margrét Hanna, f. 9. nóvember 1949, maki Sigurður Þórðarson, búsett í Reykjavík. 5) Einar Daníel, f. 20. maí 1954, maki Helga Hreiðars- dóttir, búsett á Hvammstanga. 6) Indriði, f. 9. janúar 1956, Mínar fyrstu minningar um mömmu eru frá þeim tíma er ég var drengur að alast upp á Kollsá. Margt getur hent við fyrstu spor lífsins, sem ást og umhyggja lagar. Hún kunni á því tökin. Ég man að mamma hafði oftast eitthvað fyrir stafni. Hún var vakandi þegar við krakkarnir fórum í bólið á kvöld- in og hún var löngu vöknuð þeg- ar við fórum á fætur. Allt var svo stórt á Kollsá, slátrið var soðið í stórum þvottapotti og sviðnir voru margir tugir hausa á haust- in, eins voru sérstakir þvotta- og bakstursdagar. Þrátt fyrir allt þetta puð þá skeikaði sjaldnast að matur og kaffi beið tilbúið. Auk hefðbundinna inniverka var mamma mikið með pabba, við bústörfin. Hjá mömmu lærði ég að prjóna með prjónum. Einnig fékk ég oft að prjóna á prjónavélina. Mamma hafði ein- stakt jafnaðargeð, skammaðist aldrei eða tók í mann eins og sagt er. Hún kom okkur strák- unum oft fram úr á morgnana með því að kalla upp stigann og í stað þess að segja að klukkan væri rúmlega hálftíu þá kallaði hún að klukkan færi bráðum að ganga ellefu. Hún lét flest eftir okkur. Oft fékk ég að taka í jeppann, þegar hún skutlaði mér að sækja kýrnar. En ef henni fannst við ganga of langt með suðið, þá sagði hún: „Spurðu pabba þinn.“ Það má með sanni segja að uppeldisárin hafi verið tóm sæla. Árið 1979 fluttu mamma og pabbi til Borðeyrar. Það var gott að fá þau sem ná- granna og börnin okkar Guðnýj- ar nutu þeirrar gæfu að hafa þau í nálægð. Mamma vann við mötuneyti barnaskólans og slát- urhússins á Borðeyri. Einnig vann hún til margra ára í Veit- ingaskálanum í Brú. Pabbi og mamma nutu ferðalaga innan lands sem utan. Mamma fór í margar utan- landsferðir. Þá voru oftast keyptar jólagjafir, þrátt fyrir að langt væri til jóla. Í búðunum talaði mamma alltaf sitt móður- mál. Ég ætla að kaupa tíu af þessu, fimmtán af þessu o.s.frv. Mamma þurfti að versla fyrir marga, en hún gaf á sjötta tug jólagjafa áður en hún fór að draga saman. Aldrei varð rugl- ingur og hver fékk sína gjöf. Mamma flutti til Reykjavíkur árið 2003 og bjó í Bólstaðarhlíð 41 til dánardags. Þar undi hún sér vel, í nágrenni við svo marga afkomendur sína. Mamma fylgd- ist vel með hvað þeir hefðu fyrir stafni og hvernig gengi. Hún tók sig reglulega til og hringdi í okk- ur systkinin, oft hvert á eftir öðru. Öll hennar símtöl til mín byrjuðu á orðunum „Sveinn minn,“ en ef ég hringdi í hana þá kom oftast: „Sveinn, sæll, ég þekkti þig.“ Í byrjun febrúar sl. fór heilsan alvarlega að gefa sig og var hún nokkrar vikur á Landspítalan- um. Þar leiddist henni og vildi komast heim. Um tveimur vikum fyrir andlátið komum við hjónin í heimsókn til hennar á spítalann. Þá sat hún á rúmstokknum sín- um fullklædd með pokann sinn og veski og bað okkur að fara með sig heim. Nú var komið að mér að taka utan um hana og hugga, skila til baka örlitlu af þeirri ást og umhyggju sem ég hafði notið, þegar á þurfti að halda. Ég er afar þakklátur móð- ur minni fyrir svo margt. Hún var gæfusöm kona sem lifði við góða heilsu til hárrar elli, í sátt við allt og alla. Sveinn Karlsson. Elsku besta systir mín. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og mína fjölskyldu. Minningarn- ar lifa með mér til hinsta dags. Hvar á ég að byrja? Þú tókst börnin mín yfir sumarið og alltaf var það jafn velkomið. Allar fínu fermingarveislurnar og góði maturinn. Eitt sinn kom ég með vini mína með mér á leið norður á Strandir og þar sem var rigning úti ætluðum við að fá að borða nestið okkar hjá þér og Kalla manni þínum. Þú heimtaðir að fá að gefa okkur kaffi og með því. Þetta var um verslunarmanna- helgi og þú langt gengin með ní- unda barnið þitt. Það var allt svo hreint og flott hjá þér að ég get ekki lýst því með orðum hversu stolt ég var af þér, elsku systir mín. Já, þér var ekki fisjað sam- an og alltaf var góða skapið með. Þú varst líka lánsöm, áttir góðan mann og 9 yndisleg börn sem eru vel af Guði gerð og hafa verið þér til blessunar í lífinu. Eins varst þú heppin með tengdabörnin og ég tala nú ekki um barnabörnin og langömmu- börnin, allt er þetta frábært fólk. Við Ása systir komum að Kollsá á 90 ára afmælinu þínu, það var svo gott veður að Hrúta- fjörðurinn var spegilsléttur og borðuðum við stórkostlegan grillaðan mat úti. Þar voru á annað hundrað manns, það var ógleymanlegt. Svo var spilað og sungið á eftir og þú entist allan tímann. Ég var svo hissa hvað þú stóðst þig vel. Ég var svo hreyk- in af af þér, elsku systir mín. Það væri hægt að segja ótelj- andi sögur af okkar bernsku og fullorðinsárum því við höfðum alltaf svo gott samband systurn- ar þrjár og fjölskyldurnar okkar. Þegar ég lít til baka og rifja upp þessar minningar mínar, minnist ég þess helst í samveru okkar að þú varst alltaf til taks og tilbúin að gera lífið skemmti- legra. Það er ómetanlegt að hafa fengið að njóta þín allan þennan tíma, elsku systir. Ég votta fjölskyldunni inni- lega samúð, Guð blessi þau öll, Guð blessi þig. Valdís Daníelsdóttir (Dæja systir). Eftir að við Erla giftum okkur í stofunni á Kollsá kynntist ég fljótt þeim eiginleika tengda- mömmu að bera umhyggju fyrir velferð annarra og gera öðrum gott, eiginleika sem fylgdi henni til hinstu stundar. Ég sagði eitt sinn fyrir löngu að ekki væri hægt að eignast betri tengda- móður og sú skoðun styrktist eftir því sem ég kynntist henni betur. Ég minnist þess ekki að hún hafi hallmælt nokkrum manni. Það mesta sem hún sagði ef talað var um galla eða miður góða eiginleika einhverra: Æ, þeir eru svona sitt með hverju móti. Og var þá nóg sagt! Jólaboðin hennar Ingu, þegar hún safnaði sem flestum afkom- endum saman heima á Borðeyri, eru meðal eftirminnilegustu minninga um hana, þar sem hún sveif um og sá til þess að engan skorti neitt. Þá var hún í essinu sínu. Inga hafði mjög gaman af að ferðast, en eðli málsins sam- kvæmt gafst ekki mikill tími til ferðalaga frá búskap og barna- uppeldi. Það tekur sinn tíma að ala upp níu börn og koma þeim til þroska, sem þeim tókst svo sannarlega hjónunum á Kollsá. Eftir að þau hættu búskap og voru flutt inn á Borðeyri tókst Erlu með nokkrum fortölum að fá þau með í bændaferð til Kan- ada sem ég held eftir á að hyggja að hafi orðið þeim mikil upplyft- ing og mjög eftirminnileg. Eftir þetta átti Inga eftir að fara oftsinnis til útlanda bæði með okkur hjónum eða dætrum sínum og miðað við frásagnir af þeim ferðum hafa það verið sannkallaðar „skemmtiferðir“ því það var sama hvar Inga fór, hún vakti alls staðar gleði með sinni ljúfu lund og hlýja viðmóti. Hún var söngelsk og hafði gaman af söng. Hún spilaði jafn- vel á litla orgelið sitt, en vildi þó helst gera það fyrir sjálfa sig án áheyrenda. Á mannamótum var hún jafnan hrókur alls fagnaðar í söng og dansi og sérstakt yndi hafði hún af að taka þátt í brekkusöng. Í mörg ár eftir að hún var komin til Reykjavíkur kom hún til okkar á vorin í sauðburðinn og þar sýndi hún alveg ótrúleg- an dugnað og natni, passaði upp á lömbin sem þurftu á aðhlynn- ingu að halda og fylgdist með öllu. Hún hafði nú reyndar sínar skoðanir á búskapnum, en fór fínt í að koma þeim á framfæri, eins og þegar henni fannst bónd- inn gera fullvel við hrútana með því að ala þá of lengi inni, þá sagði hún einfaldlega: Þeir eru nú búnir að setja hrútana út fyr- ir norðan! og það fór ekki fram hjá neinum hvað hún meinti. Inga var mjög listræn og eftir að hún flutti suður og komst í góða aðstöðu í Bólstaðarhlíðinni náði hún ótrúlegri leikni við að mála, bæði á postulín og myndir. Þá voru ófá listaverkin sem hún saumaði og prjónaði og gaf af- komendum sínum. Nú fer Inga aftur heim í fjörðinn sinn sem hún unni og leyfði engum að hallmæla. Ef einhverjum varð á að tala um að fjörðurinn væri kuldalegur og úfinn þá sagði hún gjarnan: Ja, þú hefðir átt að vera hér í gær! „Nú blika við sólarlag“ ótal minningar um góða konu, sem hefur kvatt eftir langa lífsgöngu og skilur eftir söknuð hjá ætt- ingjum og vinum. Ég vona að „fjörðurinn í gær“ taki vel á móti barninu sínu. Inga mín. Þakka þér fyrir samfylgdina og allt sem þú gafst okkur. Sigurður Þórólfsson. Meira: mbl.is/minningar Þegar ég minnist ömmu Ingu koma margar minningar upp í hugann: Amma að steikja lambalærissneiðar í eldhúsinu á Borðeyri; amma syngjandi með bros á vör á ættarmóti; amma að gefa okkur bland í poka í Brú þar sem hún starfaði þegar ég var yngri. Eftir að hafa gefið okkur nammi spurði hún sömu spurningarinnar: „Hvað voru margir bílar við Staðarskála?“ Amma Inga var keppnis- manneskja, það var kraftur í henni á sama tíma og hún var alltaf ljúf og góð við okkur barnabörnin. Hún var líka ákveðin og lét ekki segja sér fyr- ir verkum. Hún var ein af þess- um konum sem heilla fólk í kringum sig og geislaði af lífs- gleði og krafti. Ömmu fannst fátt skemmtilegra en að vera í veislum. Þar sem fólk kom sam- an við gítarspil og söng, þar blómstraði amma og hún var konan sem dró unga fólkið út á dansgólfið. Hún er orðin fræg sagan af ömmu þegar hún mætti í barnabarnapartí fyrir nokkrum árum. Amma átti stóran hóp af barnabörnum sem komu stund- um saman á Kollsá, bænum þar sem amma var fædd og uppalin og þar sem þau afi ólu upp börn- in sín. Þessar barnabarnasam- komur voru bara ætlaðar unga fólkinu í fjölskyldunni en amma fékk undanþágu frá reglunni og mætti eitt sinn í partíið á laug- ardagskvöldi undir því yfirskini að hún ætlaði að „gefa okkur kleinur“. Hún endaði á því að dansa með okkur fram á nótt við taktfasta tónlist unga fólksins en sjálf var hún þá komin á níræð- isaldur. Þetta var lýsandi fyrir ömmu, hún lifði lífinu til fulls þrátt fyrir háan aldur. Ömmu var líka margt til lista lagt. Hún var ótrúlega fær handavinnu- kona og vílaði t.d. ekki fyrir sér að sauma milliverk í sængurver fyrir öll börnin sín og tengda- börn fyrir þremur árum – sam- tals átján stykki. Þess á milli framleiddi hún ullarsokka og vettlinga, málaði á postulín og dúka og saumaði. Henni þótti líka afskaplega gaman að spila og hún var ótrúlega lunkin í spil- um. Í mínum augum var amma Inga algjör snillingur, ég kveð hana með söknuð í hjarta á með- an ég gleðst yfir góðu stundun- um sem við áttum saman. Gunnhildur Sigurhansdóttir. Elsku amma, þá er að ferða- lokum komið. Við vissum að þessi kveðjustund væri óumflýj- anleg en samt var svo sárt þegar að henni kom. Fyrir okkur systkinin voru það mikil forréttindi að fá að alast upp með ykkur afa í næsta húsi. Það að hafa möguleika á að geta kíkt í heimsókn á hverjum degi til að spila, leika, borða, spjalla eða bara til að segja hæ er nokkuð sem við vildum óska hverju barnabarni. Gaman fannst okkur að fylgj- ast mér þér í leik og starfi því að þig einkenndi svo mikil gleði og jákvæðni sem smitaði alla sem voru í kringum þig. Þú varst alltaf dugleg að sinna þínum áhugamálum og fengum við að taka virkan þátt með þér í þeim. Veiðin var þér ofarlega í huga og var það ósjaldan sem þú stóðst með kíkinn við eldhús- gluggann til að fylgjast með hvort það væri kominn fiskur í netið. Einnig voru þær ófáar sögurnar sem við fengum að heyra um afla dagsins. Handlagni þín var einstök en það var sama hvað þú tókst þér fyrir hendur, allt lék í höndum þínum og eigum við ófá verkin til minningar. Það er frábært hvað þú hafðir lengi góða heilsu til að sinna þessu áhugamáli þínu í góðum félagsskap í Bólstaðar- hlíðinni. Á mannamótum varstu alltaf manna hressust og var mikið sungið og sprellað. Okkur er mjög minnisstætt eitt af seinustu þorrablótunum á Borðeyri sem þú varst á. Þú, þá komin hátt á níræðisaldurinn, varðst sam- ferða okkur heim þegar komið var undir morgun og þá meðal síðustu gestanna til að fara. Finnst okkur það vera mjög lýs- andi um hve gaman þú hafðir af góðum samverustundum. Hin síðari ár sem þú bjóst á Borðeyri eru sérstaklega eftir- minnilegir morgunkaffitímarnir sem þú bauðst okkur í. Ekki slæmt að fá nýbakaðar vöfflur og pönnukökur ásamt heimagerðu bakkelsi á hverjum degi. Og ekki skemmdi félagsskapurinn fyrir. Elsku amma, takk fyrir allar samverustundirnar og takk fyrir allt sem þú kenndir okkur. Þú varst einstök kona sem áttir eng- an þinn líka. Þín er sárt saknað en þú munt ávallt lifa í minn- ingum okkar og okkar ættingja. Takk fyrir okkur. Systkinin frá Lyngbrekku, Borðeyri og fjölskyldur, Birkir Þór Kristmundsson, Linda Björk Sveinsdóttir, Þorsteinn Ingi Sveinsson. Þá er hún elsku Inga amma farin. Það er skrítið til þess að hugsa að amma sé ekki lengur í Bólstaðarhlíðinni til að taka á móti okkur með bros á vör. Alltaf ánægð að sjá okkur og þá helst litlu stelpurnar okkar sem yfir- leitt voru einum vettlingum eða sokkum ríkari þegar heim kom. Minningarnar eru ótalmargar sem komið hafa upp í hugann undanfarna daga. Þegar amma var annars vegar mátti stóla á að jákvæðni, glettni, hlátur, hrein- skilni og kátína var í loftinu. Allt- af til í að grínast og hafa gaman. Á ættarmótum eða öðrum fjöl- skyldumótum undi hún sér vel og var fyrst manna farin að biðja gítarleikara fjölskyldunnar um að fara að spila og syngja. Mátti þá oft heyra ömmu syngja jib- bajeijei jibbajibbajei með öllum tilheyrandi hreyfingum. Það kom fáum á óvart að þeg- ar hún varð áttræð vildi hún frekar fá stórfjölskylduna í ferðalag en að halda veislu. Í Kerlingarfjöll var haldið með af- komendurna og slegið upp veislu í skálanum þar og sungið fram á nótt. Aðrir gestir á staðnum höfðu á orði að svona áttræð- isafmæli sæist ekki á hverjum degi. En þetta var Inga amma í hnotskurn. Níræðisafmæli henn- ar var svo haldið með svipuðum hætti á Kollsá. Allt saman ógleymanlegt. Þessar og miklu fleiri minn- ingar munu ylja manni þegar fram líða stundir. Minningar um eina af mínum helstu fyrirmynd- um, Ingu ömmu. Hvíl í friði. Inga Rut. „Góðan daginn, Ingiríður Daníelsdóttir heiti ég, er hún Kolbrún nokkuð stödd þarna?“ Svona hóf amma símtal þegar hún hringdi í mig þar sem ég bjó í Bandaríkjunum og enskumæl- andi kona hafði svarað. Ömmu fannst ekkert sjálfsagðara en að konan skildi íslenskuna sína al- veg eins og hún ætti að skilja enskuna hennar. Þetta er lýsandi dæmi um hvernig amma var. Hún var ávallt hrein og bein og hikaði ekki við að segja sína skoðun á hlutunum. Hún var jafnframt mikill húmoristi og hló hlátri sem fékk mig alltaf til að hlæja með henni. Það vantaði ekki stuðið í ömmu þegar ættin hittist og var hún ávallt hrókur alls fagnaðar. Það var hún líka þegar barna- börnin skemmtu sér yfir helgi á Kollsá. Hún mætti á svæðið með kleinur handa öllum og fyrr en varði var hún byrjuð að syngja og dansa með okkur. Minnisstæð eru mér árin sem amma og afi bjuggu á Borðeyri. Það var alltaf svo hlýlegt og notalegt að heimsækja þau í sveitina og ég gleymi aldrei myndinni af þeim tveimur úti á tröppum að kveðja okkur þegar við fórum aftur heim. Það er skrítið að amma sé far- in. Mér fannst hún eitthvað svo eilíf, eins og hún myndi lifa allt og alla. Ég kveð hana með sökn- uði en þó fyrst og fremst með þakklæti. Kolbrún Edda Sigurhansdóttir. Í Prestbakkakirkju í Hrúta- firði verður í dag til moldar borin gæfumanneskja, sem fæddist fyrir 92 árum á næsta bæ við grafreitinn, þar sem „Kalli minn“ eins og hún kallaði eig- inmann sinn bíður hennar. Sam- an ræktuðu þau landið, hirtu skepnurnar, reru fram fjörðinn eftir fiski í hádeginu ef vel gaf og síðast en ekki síst áttu þau níu alheilbrigð börn sem öll hlutu gott uppeldi. Ingiríður elskaði lífið og lífið elskaði hana. Hún elskaði fjörðinn sinn og sveitina þangað sem hún fer nú í hinsta sinn. Mest þótti henni þó vænt um afkomendur sína sem nú eru hátt á áttunda tug, öll heilbrigð, „það er mitt mesta lán“ sagði hún. Ljóst var að hverju stefndi, daginn áður en hún yfirgaf þessa jarðvist heimsóttum við hana á Vífilsstaði. Það var fallegt en ljúfsárt að sjá hana taka við hálfs árs gömlum sonarsyni mínum, langömmubarni hennar, og þau brostu svo fallega hvort til ann- ars. Svo kyssti hún barnið svo fallega á ennið, gæfukoss. Ingi- ríður átti svo stórt hjarta og var svo gjafmild og á henni sannast hið fornkveðna „að sælla er að gefa en þiggja“ því hún var alltaf hamingjusöm. Það var mann- bætandi að vera tengdasonur svo góðrar konu og fyrir það er ég þakklátur. En mest er ég þakk- látur fyir alla þá góðu eiginleika sem afkomendur mínir munu erfa frá henni. Sigurður Þórðarson. Við bræðurnir eigum bara góðar minningar um Ingu ömmu. Hún var einstök gæðakona, vildi allt fyrir alla gera og fengum við barnabörnin að njóta þess í rík- um mæli og aldrei mátti gera upp á milli. Heimsóknirnar til þeirra ömmu og afa á Kollsá og síðar á Borðeyri eru einstaklega ánægjulegar í minningunni. Hlýjan og velvildin var eiginlega áþreifanleg fyrir utan allt góð- Ingiríður Daníelsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.