Morgunblaðið - 08.03.2014, Síða 41

Morgunblaðið - 08.03.2014, Síða 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014 Ótal minningar hafa komið upp í hugann síðustu daga. Minningar um sterka konu sem mótaði okkur systkinin svo mikið. Mamma lifði tímana tvenna. Eftir að foreldrar hennar skildu fluttist hún til ömmu sinnar vest- ur á Hellissand og bjó hjá henni fram á unglingsár. Hún naut góðs atlætis hjá ömmu sinni og stórfjölskyldunni á Sandi en það hlýtur að hafa haft áhrif á barns- sálina að vera kippt frá foreldr- um sínum og bróður í einu vet- fangi. Hún og pabbi kynntust á Sigríður Oliversdóttir ✝ Sigríður Oli-versdóttir fæddist í Reykjavík 18. júní 1935. Hún lést á Sólvangi í Hafnarfirði 26. febrúar 2014. Útför Sigríðar var gerð frá Hafnarfjarð- arkirkju 7. mars 2014. Akranesi þegar mamma bjó hjá mömmu sinni og eiginmanni hennar Guðmundi Finn- bogasyni. Pabbi sagði að þetta hefði verið ást við fyrstu sýn af hans hálfu en jafnframt að það hefði ekki verið auð- velt þar sem hún hefði verið falleg- asta stúlkan á Skaganum og von- biðlarnir margir. Hún flissaði alltaf að þessari frásögn hans. Þau komu sér fyrir í Hafn- arfirði áður en við fæddumst. Pabbi vann úti en mamma sá um allt annað. Hún stjórnaði heim- ilinu og reglunum sem þar giltu. Pabbi skipti sér lítið af uppeldis- reglum, vissi sem var að mömmu var treystandi fyrir þeim. Hún vildi allt fyrir okkur gera og að okkur skorti ekkert. Hún hafði mikinn metnað fyrir hönd okkar og lagði áherslu á að við mynd- um mennta okkur því það var eitthvað sem hún hafði ekki átt kost á. Hún vildi að við lærðum tungumál og fengjum að ferðast og tók alltaf vel á móti vinum okkar sem dáðu hana og dýrk- uðu. Henni fannst vinir okkar skemmtilegir, hafði áhuga á að kynnast þeim og bauð þá vel- komna á okkar heimili. Vinir okkar urðu líka vinir mömmu. Oft voru mörkin fyrir þá rýmri en fyrir okkur. Það sem þeir gerðu var sniðugt en ekki eins sniðugt þegar við gengum hratt um gleðinnar dyr. Hún lifði í skugga Alzheimer- sjúkdómsins seinni hlutann. Hlutverkin snérust við. Pabbi gaf allt frá sér til að hugsa um hana. Hann sýndi ótrúlegt æðru- leysi og ást sem kemur fram í þessu fallega ljóði eftir hann: Alzheimer Hún er þarna, samt er hún horfin, horfin sjálfri sér, horfin ástvinum sínum, Hún situr þarna, hjartað slær, fegurðin geislar frá henni sem forðum, fegurð augnanna, fegurð ástúðar og mildi. Ég tala við hana eins og ekkert hafi breyst, tala um börnin okkar, barnabörnin, blómin í garðinum okkar, sem hún gróðursetti og unni og gæddi nýju lífi á hverju vori eins og allt annað í kringum okkur. Ég tala um vini okkar, reyni að varpa ljósi gleðinnar inn í vitund hennar. Hún brosir. Ég finn, að hún skynjar návist mína svo heitt og unaðslega. Aftur og aftur spyr ég sjálfan mig: Af hverju hún, en ekki ég? Síðustu átta árin dvaldi hún á Sólvangi. Orð fá því ekki lýst hversu starfsfólkið þar hugsaði vel um hana og okkur öll. Hjart- ans þakkir. Þau pabbi áttu gott líf saman og voru samheldin og báru virð- ingu hvort fyrir öðru. Þau létu okkur finna það að við værum sólargeislarnir þeirra. Við verð- um þeim eilíflega þakklát fyrir það. Góða vinkonu þeirra dreymdi þau nóttina eftir að mamma kvaddi. Þau voru glöð og pabbi sagði þau á leið í ferða- lag. Þannig sjáum við þau fyrir okkur. Lovísa, Finnur og Ingibjörg. „Þegar þú ert sorg- mæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú græt- ur vegna þess, sem var gleði þín.“ Þessi orð Spámannsins eiga vel við þegar ég kveð hana ömmu mína. Síðan ég fæddist hefur amma verið mikilvægur hluti af mínu lífi. Mamma var ung þegar hún átti mig og fyrstu ár ævi minnar bjuggum við hjá ömmu og afa í sveitinni. Þegar ég var 3ja mán- aða þurfti mamma að fara að vinna aftur og þá hugsaði amma um mig. Og alla tíð síðan hefur amma hugsað vel um mig og mína. Eftir að við fluttum voru þær ófáar heimsóknirnar í sveit- inna. Alltaf var jafn spennandi að koma yfir hæðina og sjá húsið hjá ömmu og afa. Ég á margar góðar minningar úr sveitinni hjá ömmu og afa og finnst ég mjög lánsöm að hafa fengið að alast þar upp að miklum hluta. Eftir að ég eltist og fór að búa og eignast börn hélt amma áfram að vera mín stoð og stytta og aðstoða mig á hvern þann hátt sem hún gæti. Hún sá til þess að Eva kæmist í Ölver, hún mætti fyrir kl. 8 alla virka morgna eitt sumarið þegar Eydís var eins árs til að passa – og var alltaf tilbúin til þess að passa börnin mín þegar þurfti. Hún kenndi Evu að lesa og báðum dætrum mínum að fara með bæn- irnar sínar og að signa sig. Hún lauk við hálfkláraðar prjónaflíkur sem ég hafði gefist upp á, bætti föt, prjónaði sokka og vettlinga, sá til þess að börnin mín fengju og klæddust ullanærbol, kom færandi hendi með heimsins bestu kjötbollur og skonsur, Sigríður Jensdóttir ✝ Sigríður Jens-dóttir fæddist 8. nóvember 1922. Hún lést 23. febr- úar 2014. Útförin fór fram í kyrr- þey 28. febrúar 2014. ömmukökur og ábrystir, veitti húsa- skjól þegar við vor- um á milli húsnæða, aðstoðaði fjárhags- lega þegar ég var peningalítil, fór með mér í sumarbústaða- ferð á Laugarvatn og svo mætti lengi telja. „Sælla er að gefa en þyggja“ átti svo sannarlega við hana ömmu mína. Þeir eru marg- ir hlutirnir hér á heimilinu sem amma kom með úr utanlands- ferðum sem þau afi fóru í eða voru pantaðir úr Quelle og komið með til að gleðja mig eða börnin mín. Þau eru líka ófá skiptin sem mamma kom færandi hendi með eitthvað frá ömmu – eitthvað sem ömmu fannst fallegt og hugsaði til mín. „Fía keypti svo fallegan dúk og amma þín vildi endilega gefa þér svoleiðis.“ Dæmigert fyrir hana ömmu mína. Hún hugsaði alltaf fyrst um aðra. Engin furða að mér finndist ég eiga bestu ömmu í heiminum. Í mínum huga var hún það svo sannarlega. Ég vild ég væri skáld þá myndi ég semja þér mesta ljóð allra tíma þar sem fyrir kæmust allar þær minningar sem ég ætti um þig og öll þau fögru orð sem ég á yfir þig og ljóðið yrði svo fallegt að það yrði ljóðið sem allir myndu nota í minningagreinar um sínar ömmur því að akkúrat þannig ljóð myndi hæfa þér – fallegasta ljóð allra tíma. En líklega yrði það of mikið því þú varst svo hógvær og hefðir bara farið hjá þér og ekki kunnað við að öll þessi athygli beindist að þér. Og ég er ekki skáld svo þessi ósk mín fellur um sjálfa sig og ég kveð þig með fátæklegum orðum og fallegum hugsunum um bestu ömmu í heimi og minningarnar um þig geymi ég svo á besta stað - í hjartanu mínu. (SBK) Elsku amma. Ég veit að þú ert hvíldinni fegin og afi hefur tekið vel á móti þér. Takk fyrir allt. Sigríður Björk Kristinsdóttir. Elsku amma Sigga. Takk fyrir að hafa leyft mér að kalla þig ömmu, þegar báðar mínar ömm- ur voru búnar að kveðja þennan heim. Takk fyrir að fá að kynnast þér og takk fyrir að hafa kennt mér að trúa á kærleik framar öllu öðru. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar Rakelar. Þei, þei og ró. Þögn breiðist yfir allt. Hnigin er sól í sjó. Sof þú í blíðri ró. Við höfum vakað nóg. Værðar þú njóta skalt. Þei, þei og ró. Þögn breiðist yfir allt. (Jóhann Jónsson) Hanna Sif. Elskulega amma mín var fal- leg og góð kona. Mér þótti óend- anlega vænt um hana og á marg- ar góðar minningar um okkur saman. Hún var æðrulaus, sér- staklega geðgóð og talaði aldrei ílla um nokkurn mann. Þegar við kvöddumst endaði hún alltaf kveðju sína á orðunum „passið börnin“. Hér að hinstu leiðarlokum ljúf og fögur minning skín. Elskulega amma góða um hin mörgu gæði þín. Allt frá fyrstu æskudögum áttum skjól í faðmi þér. Hjörtun ungu ástúð vafðir okkur gjöf sú dýrmæt er. Hvar sem okkar leiðir liggja lýsa göfug áhrif þín. Eins og geisli á okkar brautum amma góð, þótt hverfir sýn. Athvarf hlýtt við áttum hjá þér ástrík skildir bros og tár. Í samleik björt, sem sólskinsdagur samfylgd þín um horfin ár. Fyrir allt sem okkur varstu ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Minning þín lifir í hjörtum okkar um ókomna tíð. Kristín Ósk Karlsdóttir. ÞAR SEM FAGMENNSKAN RÆÐUR Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030 ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, EDDA S. ERLENDSDÓTTIR, Hátúni 12, Reykjavík, lést sunnudaginn 2. mars að heimili sínu. Hún verður jarðsungin frá Neskirkju miðvikudaginn 12. mars kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að MS-félag Íslands njóti þess. Erlendur Jón Einarsson, Anna Kristín Scheving, Steingrímur Óli Einarsson, Birna Dís Björnsdóttir, Ólína Erlendsdóttir, Guðmundur Örn Ragnarsson og barnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, HRAFNHILDUR G. NORÐDAHL, Hædý, Stigahlíð 48, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 5. mars. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni miðvikudaginn 12. mars kl. 15.00. Kjartan Norðdahl, Hrafnhildur Karó Norðdahl, Anna Metta Norðdahl, Kjartan K. Norðdahl, Ríta Kristín Ásmundsdóttir, Davíð Rafn, Elísabet Nótt, Karen Ösp, Tinna Marín, Kristel Lind og Jökull Logi. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MATTHÍAS BJARNASON, fyrrv. alþingismaður og ráðherra, Lómasölum 16, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 28. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 11. mars kl. 15.00. Auður Matthíasdóttir, Kristinn Vilhelmsson, Hinrik Matthíasson, Steinunn Ósk Óskarsdóttir, Matthías Kristinsson, Liv Anna Gunnell, Matthías Hinriksson, Kristín Dögg Guðmundsdóttir, Sigrún Hanna Hinriksdóttir, Kenneth Kure Hansen, Kristín Petrína Hinriksdóttir og barnabarnabörn. ✝ Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRDÍSAR ÞORLÁKSDÓTTUR frá Veiðileysu, síðast til heimilis að Skipalóni 24, Hafnarfirði, verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 10. mars kl. 13.00. Þakkir sendum við starfsfólki á 2. hæð Sólvangs fyrir góða og alúðlega umönnun. Þóra Steindórsdóttir, Ari Steindórsson, Lára Huld Grétarsdóttir, Guðlaug Steindórsdóttir, Sævar Örn Guðmundsson, Alda Áskelsdóttir, Sigurður Óli Gestsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU S. GUÐJÓNSDÓTTUR, Njarðvíkurbraut 24, Reykjanesbæ. Sigríður Sigurðardóttir, Guðjón L. Sigurðsson, Louisa Aradóttir, Hólmfríður Sigurðardóttir, Eggert Ólafsson, Kolbrún A. Sigurðardóttir, Gunnar Sigurðsson, Halldóra M. Svavarsdóttir, Kristín S. Sigurðardóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Vegna andláts og útfarar okkar hjartkæra, METÚSALEMS ÓLASONAR, Miðvangi 6, Egilsstöðum, þökkum við af heilum hug öllum þeim fjölmörgu, sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug og vottað honum virðingu. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar H.S.A., Egilsstöðum, fyrir einstaka umhyggju. Rósa Bergsteinsdóttir, Guttormur Metúsalemsson, N. Snædís Jóhannsdóttir, Óli Grétar Metúsalemsson, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Bergsteinn H. Metúsalemsson, Rannveig Sigurjónsdóttir, afabörn og langafabörn. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.