Morgunblaðið - 08.03.2014, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 08.03.2014, Qupperneq 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014 gaman að koma í skúrinn þinn og sjá djásnin þín, gömlu Toyotuna hans langafa og trabbana ykkar Gulla, sem þú varst svo hreykinn af. Við sendum guð og góðar vætt- ir til ömmu, mömmu, Gulla og Bárðar til að veita þeim styrk og þrótt til að halda ótrauð áfram. Kveðja, Ester Elín og Orri. Elsku frændi minn, hvernig má það vera að aðeins fjórum vikum eftir að þú komst í heimsókn til mín var komið að kveðjustund er ég hélt í hönd þína þegar þú kvaddir þennan heim. Ótal margar tilfinningar og minningar helltust yfir mig á þeirri stundu en þú hef- ur verið stór partur af mínu lífi og ég mun sakna þín mikið. Þú varst svo einstakur karakter og náðir að kalla fram bros á andlit mitt í hvert sinn er við hittumst enda af- skaplega orðheppinn maður. Þeg- ar ég hugsa til baka er svo margt sem ég er þér þakklát fyrir en hjálpsemi og gjafmildi einkenndi þig. Mikið þótti mér alltaf vænt um það að í hvert skipti þegar ég lagði af stað heim fylgdir þú mér út, kvaddir mig með bros á vör og veifaðir síðan bless. Með þessum orðum langar mig að þakka þér fyrir allar samverustundir og fyrir að vera frændi minn sem var alltaf til staðar. Missirinn er mikill fyrir elsku ömmu mína, pabba minn og yndislegu föðursystkini mín Guggu og Bárð. Ég bið góðan Guð að styrkja þau í gegnum sorgina. Guð geymi þig, elsku frændi minn. Þín frænka, Ester Guðlaugsdóttir. Í æsku áttum við Óskar bróðir okkar annað heimili á Víkurbraut 11 í skjóli Esterar móðursystur okkar, Guðmundar mannsins hennar, barna þeirra og Guðlaugs afa þar sem við vorum oft í jóla-, páska- og sumarfríum til að vera og njóta. Við Sigfús höfum ýmislegt brallað saman í leik og starfi í gegnum tíðina frá því við vorum smápollar en þrjú ár eru á milli okkar í aldri. Ég minnti Fúsa stundum á atvik þegar við vorum pollar, eitthvað innan við 10 ára, þegar hann rak mig í burtu af heimili sínu þar sem ég hafði gert eitthvað af mér sem honum mislík- aði. Ég sagði honum að það væri ekkert mál, ég ætti fullt af frænd- fólki í Víkinni og ég færi bara til þeirra, en það sætti Fúsi sig ekki við; úr Víkinni skyldi ég fara strax og ekki orð um það meir. Í framhaldi af þessu fór ég í hjólreiðatúr til að hugsa hvað ég ætti að gera í stöðunni, en varð fyrir því óláni að detta og viðbeins- brjóta mig og farið var með mig til Vigfúsar læknis, sem setti mig í fatla. Þegar á Víkurbrautina var komið tók Fúsi á móti mér opnum örmum og sagði að ég mætti vera heima hjá honum eins lengi og ég vildi. Þessi saga kemur mér í hug nú þegar ég hugsa til baka því alla tíð hafa samskipti okkar félaga verið á svipuðum nótum; hann lesið mér pistilinn þegar honum finnst ég fara yfir strikið eða gera ekki hlut- ina rétt, en alltaf boðinn og búinn að aðstoða mig beðinn og óbeðinn. Sem dæmi má nefna þegar ég var í hestaferð fyrir tveimur árum aust- ur í Skaftártungu og féll af hest- baki, varð óreiðfær og þurfti því að komast heim sem fyrst. Þá var gott að eiga Fúsa frænda að og svarið var eins og svo oft „ég kem“ og hefði sjúkrabíllinn líklega ekki orðið svona fljótur í ferðum. Í byrjun desember sl. hringdi ég í Fúsa og bað hann að setja ljós á leiði móður okkar. Þá var svarið: „Ég er búinn að því, frændi.“ Já, svona var Fúsi frændi. Annað sem einkenndi frænda minn og ég verð að nefna hér er að aldrei nokkurn tíma heyrði ég hann tala neikvætt um nokkra manneskju. Fúsi var mikill áhugamaður um gamla bíla, til dæmis gerði hann upp Toyota Landcruiser sem var eins og nýr eftir uppgerð og einnig aðstoðaði hann Gulla bróður sinn við að gera upp Trabant sem kos- inn var áhugaverðasti bíllinn á fornbílasýningu sl. ár. Við fráfall Fúsa, frænda míns og vinar, er mér er ofarlega í huga vísa sem afi okkar fór oft með og finnst eiga ágætlega við frænda minn: Ég forðast allan fáráðshátt ég forðast allar glímur. En ef ég bendi í eina átt þá eru það hreinar línur. (Höf. ók.) Síðastliðin 27 ár hefur Fúsi far- ið með mér í ferðir tengdar vinnu minni í desember ár hvert og hef ég notið dyggrar aðstoðar hans í ýmsum ævintýrum því tengdum. Ferðir okkar saman verða víst ekki fleiri í bili og þakka ég frænda mínum kærlega fyrir sam- ferðina. Við Elsa sendum Ester og allri fjölskyldunni samúðarkveðju. G. Gunnar Björnsson. Með fáeinum orðum langar mig að minnast Sigfúsar Guðmunds- sonar frá Vík í Mýrdal. Hann lést snögglega 24. febrúar langt um aldur fram, aðeins 55 ára. Hann bjó með móður sinni og bróður í Vík. Hann hugsaði vel um þau bæði, hann var handlaginn og hélt öllu vel við utan húss sem innan og var nærgætinn í allri umgengni. Hann þurfti ýmislegt að ganga í gegnum á lífsleiðinni og eiginlega má segja að hann hafi verið mikil hetja. Þá kom sér vel að sjá spaugilegu hlið- arnar á lífinu. Hann hafði skemmtilegan húmor og kom manni oft til að hlæja. Hann kom til okkar að Skaftafelli með móður sinni nokkrum sinnum og var þá eins og svo oft með spaugsyrði á vörum. Ég vil fyrir mína hönd og barna minna þakka Sigfúsi fyrir öll hin góðu kynni. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Hvíl í friði kæri Sigfús, þín verður sárt saknað. Hafðu þökk fyrir allt. Guðveig Bjarnadóttir og fjölskylda. Í dag fylgjum við þér Sigfús síð- asta rúntinn. Verðum við ekki að fara einn njósnarúnt? Oft var nú skroppið í rúnt en rúnturinn gekk undir ýmsum nöfnum. Nauðsyn- legt að fylgjast með eigninni og at- huga hvort einhver væri búinn að skilja eftir hjólhýsi eða fellihýsi fyrir utan hjá okkur. Það var með ólíkindum hvað driftin gat verið mikil hjá Sigfúsi og átti hann auð- velt með að fá fólk með sér í fram- kvæmdir. „Ég er góður að rífa“ var alltaf viðkvæðið ef einhverjar framkvæmdir voru framundan hjá þér og þínum. Nauðsynlegt að rífa og taka til áður en uppbygg- ing getur hafist á ný. Asinn var oft mikill þegar lagt var af stað í verkefnin og eftir- fylgnin og löngunin til að sjá verk- in klárast var alltaf til staðar. Eftir að við eignuðumst gamla SS-húsið í Vík var þér það mjög hugleikið að laga það og taka í gegn. Heimsóknirnar á Austurveginn urðu margar, margir bollar drukknir og margar spengjur sprengdar og kvöldið svo kórónað með rúnti, njósna-, iðnaðar- eða menningarrúnti, allt eftir því hvað átti við í hvert skipti. Það er með ólíkindum hvað þér tókst að gera og koma í verk. Láta laga cruiser- inn, taka Víkurbrautina ykkar í gegn, laga bílskúrinn og þvotta- húsið. Allt gert með góðum vinum og með þinni þrautseigju og á þinn hátt. Á þig var hægt að treysta í því sem þú sagðir að væri „þín deild“. Stundum var minnst á fortíðina en flestir vonuðu að Katla myndi ekki láta á sér kræla því fyrir henni varstu ákveðinn að skála í viskíi, Katla situr enn á sér sem betur fer. Þinn tími var allt of stuttur. Eftir stutt veikindi kvaddir þú og við stöndum hér og reynum að átta okkur á hvernig lífið verður án þín. Elsku Ester, Gugga, Gulli, Bárður og fjölskyldur. Skarðið er stórt og verður ekki fyllt. Við vott- um ykkur okkar dýpstu samúð um leið og við óskum ykkur alls hins besta á komandi tímum. Bárður, Hulda, Einar, Sandra, Finnur, Ásta og Oddný. ✝ Kristinn AlbertMagnússon fæddist í Hring- verskoti í Ólafsfirði 21.10. 1923. Hann lést á dvalarheim- ilinu Hornbrekku í Ólafsfirði 1. mars 2014. Albert var sonur hjónanna Magn- úsar Sigurðar Sig- urðssonar frá Bakka í Ólafsfirði, f. 25.8. 1891, d. 26.8. 1974, og Ásu Ingibjarg- ar Sæmundsdóttur frá Hring- verskoti í Ólafsfirði, f. 7.11. 1894, d. 4.12. 1984. Albert var sjöunda barn þeirra hjóna en alls átti hann tólf systkini. Þau eru í aldursröð: Guðrún, Guð- mundur, Særún Árný, Jón, Sig- mar, Hallfríður Margrét, Sig- ursveinn Stefán, Friðbjörg, Marínó, Margrét Guðný, Unnur og Anna Jóna. Eft- irlifandi systkin Al- berts eru: Sigmar, Unnur og Anna Jóna. Níu þeirra eru látin. Eiginkona Al- berts var Lilja Ólöf Sigurðardóttir frá Sauðárkróki, f. 27.6. 1926, d. 3.3. 1982. Þau gengu í hjónaband 1.1. 1975. Þeim varð ekki barna auð- ið. Fyrri eiginmaður Lilju var Randver Sæmundsson, f. 2.11. 1910, d. 1.7. 1970. Lilja og Rand- ver eignuðust synina Sigurð Pálma, f. 5.8. 1953, og Gunnar Egvaníus. Uppeldisdóttir Lilju og Randvers er Rannveig Lilja Ólafsdóttir, f. 7.7. 1943. Útför Alberts fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju í dag, 8. mars 2014, kl. 14. Albert Magnússon eða Abbi eins og við krakkarnir kölluðum hann var bróðir móður minnar. Ætli ég hafi ekki verið eitthvað um ársgamall þegar ég hitti hann fyrst því þá var ég sendur í sveit á Þverá í Ólafsfirði til afa og ömmu ásamt frænku minni Steinunni. Í þá daga tíðkaðist það að senda börn snemma í sveit til að kynnast sveitamenningunni. Einnig bjuggu þá þeir bræður Abbi og Jónsi á Þverá og sáu um búskap- inn ásamt afa. Það fyrsta sem ég man eftir úr sveitinni var að við Steinunn skiptum þeim bræðrum á milli okkar. Hún átti Jónsa og ég átti Abba og þannig var það og því var aldrei breytt. Eitt af aðals- merkjum Abba í gegnum lífið fyrir utan gleði og jákvæðni var mikil stríðni. Stríðnari mann hef ég ekki þekkt á mínum lífsferli. En allt var þetta stríðni á jákvæðum nótum. Ég held að það hafi enginn maður sem þekkti Albert komist hjá stríðni hans. Á ættarmótum, af- mælum eða öðrum mannamótum var hann miðdepilinn. Þá var endalaus stríðni og hlátur í kring- um Abba og oftast var það sá sem var strítt sem hló manna hæst. Aldrei neikvæð stríðni. Abbi hefur alltaf verið eins og heimsfrægur poppari hjá öllum börnum í ætt- inni í gegnum árin sökum þess að hann var alltaf til í að slást og ólm- ast við þau. Abbi gat verið mjög lyginn og sannfærandi í stríðninni. Á öðru eða þriðja árinu sem ég var í sveit á Þverá var mér gefin koll- ótt mórauð kind sem var nefnd Kolla. Abbi lét mig senda sér súkkulaði á hverjum vetri í mörg ár til að gefa Kollu að éta svo hún héldi litnum. Ef hún fengi ekki súkkulaði yrði hún hvít. Sam- viskulega gerði ég það. Á fjórða eða fimmta ári sá ég Kollu í fyrsta sinn í réttum og var hún þá með eitt hvítt og eitt brúnt lamb. Þegar ég spurði Abba af hverju það væri var svarið að ég hefði ekki sent nóg súkkulaði síðasta vetur. Eftir þetta var séð um að senda nóg af súkkulaði. Einhverjum árum seinna var Kolla allt í einu orðin dökkbrún og var með tvö svört lömb. Aftur spurði ég Abba og það stóð ekki á svarinu: Þú sendir mér síðast suðusúkkulaði! Svona var stríðnin hjá Abba. Hann hefur bara bent á næstu kollóttu rollu í réttunum og sagt mér að þetta væri Kolla. Ég gæti sagt margar sögur af Alberti og einnig þeir sem til hans þekktu. Frá því að ég kynntist konunni minni fyrir um 25 árum höfum við lagt það í vana okkar að fara í heimsókn til Ólafs- fjarðar á nánast hverju sumri til þeirra Fríðu systur hans og Ragn- ars og Alberts. Að hlusta á þá tvo, Ragnar og Albert, segja sögur úr sveitinni í essinu sínu var óborg- anlegt. Nú eru þau öll farin yfir móðuna miklu og verður frekar tómlegt að koma til Ólafsfjarðar án þeirra. Albert var níræður þeg- ar hann lést og ennþá með húm- orinn í gangi þó að hann hafi verið orðinn ansi heilsulítill. Nú verður ekki hlaupið meira upp og suðrá eftir rollum eins og honum var títt að segja. Lilja mín, ég veit að það hefur legið mest á þér að hugsa um Abba síðustu árin. Guð veri með þér og vottum við þér, Sigga Pálma, Gunna og öllum aðstand- endum samúð okkar. Kristinn T. Haraldsson (Kiddi rót) og Jónína. Kristinn Albert Magnússon ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta Sími: 551 7080 & 691 0919 ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is Inger Steinsson IngerRósÓlafsdóttir ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru LILJU HALLGRÍMSDÓTTUR húsfreyju, Klaufabrekknakoti. Sérstakar þakkir sendum við öllu því góða fólki sem annaðist hana í veikindum hennar. Halla Soffía Karlsdóttir, Atli Friðbjörnsson, Jónasína Dómhildur Karlsdóttir, Gunnlaugur Þorsteinsson, barnabörn og langömmubörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS GUNNARS HERMANNÍUSSONAR, Mörkinni, Suðurlandsbraut 66. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Markar fyrir einstaka umönnun og hjálpsemi. Jónína Sigurbjörg Eiríksdóttir, Eiríkur Jónsson, Sigríður Einarsdóttir, Ásta Jónsdóttir, Hafsteinn Gunnarsson, Þorbjörg Jónsdóttir, Sigurður Geir Jónsson, Ragnhildur Hjartardóttir, Gunnar Þór Jónsson, Margrét Hallgrímsdóttir, Guðrún Ólöf Jónsdóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Hjartans þakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og fósturafa, MÁS RÖGNVALDSSONAR, Háteigsvegi 23. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar Landspítalans í Kópavogi, starfsfólki heimahlynningar LSH og heimahjúkrunar Heima- þjónustu Reykjavíkur. Gíslína Gunnarsdóttir, Steinunn I. Másdóttir, Bergur Steingrímsson, Gunnar Már Másson, Ellen Elísabet, Bjarki Már, Jóhanna Þórný og Brynjar Þór. ✝ Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar, SIGURÐAR BRIEM JÓNSSONAR, dvalarheimilinu Hvammi, Húsavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilis- ins Hvamms og Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga á Húsavík. Guðrún Jónsdóttir, Halla Jónsdóttir, Sólrún Jónsdóttir. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, VALDIMARS SÆVARS HALLDÓRSSONAR skipstjóra, Eyjaholti 3, Garði. Ingibjörg Bragadóttir, Halldór Kristinn Valdimarsson, Jocelyn Doroon, Helga Birna Valdimarsdóttir, Unnur Katrín Valdimarsdóttir, Ingunn Rós Valdimarsdóttir, Arnmundur Sigurðsson og barnabörn. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Rvík. • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hinrik Valsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.