Morgunblaðið - 08.03.2014, Side 48
48 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014
Eins og náttúran hafði í hyggju
• Magnesíumsprey sem virkar strax!
• Slakandi, bætir svefn og slær á
fótaóeirð og sinadrátt
• Frábær upptaka
Sefurðu illa?
MagnesiumOil
Spray
Fæst í flestum apótekum, Lifandi Markaði, Heilsuhúsinu,
Fjarðarkaup og Systrasamlaginu
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
og á Facebook síðunni Better You Ísland
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Goodnight
Erla Tryggvadóttir, viðskiptastjóri hjá auglýsingastofunniBrandenburg og fyrrverandi fjölmiðlakona, fagnar í dag 35ára afmæli sínu. Hún mun verja deginum umvafin íslenskri
náttúru með sambýlismanni sínum.
„Við ætlum að fara á Hótel Skóga, gista þar yfir nótt og borða
góðan kvöldmat. Markmiðið er að eiga saman rómantíska stund í til-
efni dagsins. Ég er gengin sex mánuði með lítinn strák þannig að
það er alveg fullkomið að njóta dagsins í huggulegheitum úti á
landi,“ segir Erla sem er mikið afmælisbarn.
„Þótt ég haldi ekki alltaf upp á afmælið þá þykir mér afar vænt
um það þegar fólk óskar mér til hamingju með afmælið og veitir
mér smáathygli á þessum degi. Ég á tvo eftirminnilega afmæl-
isdaga. Annar þeirra var þegar ég bjó úti í Strassborg og vinkona
mín Birna Þórarinsdóttir skipulagði óvænta afmælisveislu mér til
heiðurs. Hinn var þegar ég bjó úti í New York og Guðlaug vinkona
mín gerði slíkt hið sama. Ég hef því tvisvar fengið svona óvæntar af-
mælisveislur og þær standa tvímælalaust upp úr.“
Afmælisdag Erlu ber upp á alþjóðlegan baráttudag kvenna. „Ég
er mikill jafnréttissinni og það að eiga afmæli á þessum degi hefur
án nokkurs vafa mótað mig mjög. Þá er það skemmtileg tilviljun að
ég er sett á kvenréttindadeginum 19. júní,“ segir Erla.
mariamargret@mbl.is
Erla Tryggvadóttir er 35 ára
Málstaður Erla starfar á auglýsingastofunni Brandenburg og er nú
að vinna að Mottumars og koma málstaðnum á framfæri.
Á afmæli á bar-
áttudegi kvenna
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Dagur fæddist 21. júní kl.
11.54. Hann vó 3.515 g og var 49 cm
langur. Foreldrar hans eru Guðrún
Breiðfjörð Pétursdóttir og Magnús
Dige Baldursson.
Nýir borgarar
Kópavogur Emilía Íris fæddist 12. júní
kl. 18.50. Hún vó 2.932 g og var 49 cm
löng. Foreldrar hennar eru Karen Ósk
Sampsted og Ívar Hauksson.
S
igríður Elísabeth fæddist í
Elizabethon í Tennesee í
Bandaríkjunum 9.3. 1964
og bjó þar til fjögurra ára
aldurs. Þá flutti fjöl-
skyldan til Ísland, á Baldursgötuna í
Reykjavík, til ömmu og afa Lísu:
„Árið áður höfðu afi og amma farið í
sína einu utanlandsferð til að heim-
sækja okkur og ég man að við systk-
inin hlökkuðum mikið til að hitta þau
aftur.
Fjölskyldan bjó síðan með gömlu
hjónunum á Baldursgötunni, í Rétt-
arholti við Sogaveg og loks í Bjarna-
borg við Hverfisgötu.
Afi og amma höfðu alltaf nægan
tíma og nóg pláss fyrir ungar sálir,
áhyggjur þeirra og hugðarefni.
Sambýlið við þau var okkur systk-
inunum því ómetanlegt.
Árið 1977 flutti fjölskyldan síðan í
nýja verkamannabústaði í Selja-
hverfinu en gömlu hjónin urðu eftir
við Hverfisgötuna.
Ég fór sex ára í sveit norður í
Eyjafjörð þar sem ég átti að gæta
barna sem voru litlu yngri en ég
sjálf. Ekki hefur mér líkað vistin þar
því eftir helgarfrí með foreldrum
mínum á Akureyri neitaði ég að fara
þangað aftur.
Seinna vann ég svo nokkur góð
sumur á Hjalla í Kjós hjá heið-
urshjónunum þar, Unni og Hans,
Sigríður E. Sigmundsdóttir garðyrkjufræðingur – 50 ára
Hressir og samhentir krakkar Börnin hennar Lísu, talið frá vinstri: Geir, Gígja, Erlingur Bjarni og Diljá Ösp.
Lífsgleði, grænir fingur
og styrkir fætur
Hlaupaparið Lísa og Pétur eftir nýafstaðið Brúarhlaupið á Selfossi í fyrra.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is