Morgunblaðið - 08.03.2014, Qupperneq 55
MENNING 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014
Sumar Vetrar-
brautir nefnist
sýning sem Óm-
ar Stefánsson
opnar í Galleríi
Anarkíu í dag
kl. 15. Þar gefur
að líta nýja
skúlptúra og
málverk lista-
mannsins.
„Ómar vinnur
aðallega sem listmálari en hefur
fengist við gerð og útgáfu á
myndasögu og fréttablaðinu Band-
ormur, ásamt útgáfu á eigin tón-
list og bókagerð. Ómar hefur
haldið um þrjátíu einkasýningar
auk fjölda samsýninga, gerninga
og tónleika,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu.
Þar kemur einnig fram að Ómar
á að baki fjörutíu ára feril í mynd-
list og hefur unnið með listamönn-
um á borð við Hermann Nitch,
Dieter Roth, Robert Filliou og
Magnúsi Pálssyni.
Sýningin stendur til 23. mars.
Sumar
Vetrarbrautir
Ómar
Stefánsson
Hlynur Hallsson
opnar sýninguna
Alþýðusýning í
Alþýðuhúsinu í
Kompunni í Al-
þýðuhúsinu á
Siglufirði í dag
milli kl. 14-17.
„Hlynur sýnir
nokkur alþýðleg
spreyverk sér-
staklega gerð
fyrir Alþýðuhúsið og alþjóðlegan
baráttudag kvenna sem er einmitt
þann 8. mars,“ segir í tilkynningu,
en þar kemur fram að einnig sýni
hann bókverk sem sýningargestir
geti tekið þátt í að skapa.
Hlynur stundaði myndlistarnám
á Akureyri, í Reykjavík, Hannover,
Hamborg og í Düsseldorf. Hann
hefur á umliðnum árum verið iðinn
við sýningarhald og vinnur m.a.
með aðstæður, texta, innsetningar,
ljósmyndir og gjörninga svo fátt
eitt sé nefnt. Sýningin stendur til 6.
apríl nk. og er opin daglega milli kl.
14 og17, sem og eftir samkomulagi.
Alþýðusýning
á Siglufirði
Hlynur
Hallsson
Tilkynnt hefur verið um fleiri til-
nefningar til Íslensku tónlistarverð-
launanna (Ístón) fyrir árið 2013 en
verðlaunin verða afhent 14. mars
nk. í Eldborg-
arsal Hörpu.
Nýjum verð-
launaflokki hefur
verið bætt við,
Coca Cola-plötu
ársins sem kem-
ur til vegna
þriggja ára sam-
starfssamnings
Ístón við Vífilfell sem framleiðir
gosdrykkinn. Tilnefningarnar sem
kynntar voru í gær eiga við flokk-
ana bjartasta vonin, plötuumslag
ársins og tónlistarmyndband ársins
auk fyrrnefndrar Coca Cola-plötu
ársins. Til Coca Cola-platna teljast
fyrstu breið- eða stuttskífur ungra
flytjenda og er miðað við að meiri-
hluti hljómsveitarmeðlima sé undir
25 ára aldri. Tilnefndar í þeim
flokki eru plöturnar Ali með Grísa-
lappalísu, Tension með Vök og Beg-
inning með Steinari. Sérstök dóm-
nefnd var skipuð til að tilnefna
plötur í þessum flokki, skipuð Katr-
ínu Mogensen, söngkonu Mammúts,
Steinþóri Helga Arnsteinssyni, um-
boðsmanni og tónleikahaldara, og
Styrmi Haukssyni, upptökustjóra.
Tilnefningar til björtustu von-
arinnar eru í höndum starfsfólks út-
varpsstöðvanna Rásar 2 og Rásar 1.
Endanlegt val er í höndum almenn-
ings og fer kosning fram á vef RÚV
(www.ruv.is//bjartastavonin) og lýk-
ur 14. mars. Tilnefnd sem bjartasta
vonin, í flokki popp-, rokk- og blús-
tónlistar, eru Vök, Kaleo, Kött Grá
Pjé, Grísalappalísa og Highlands en
í flokki djasstónlistar og sígildrar
samtímatónlistar Baldvin Oddsson
trompetleikari, Fjölnir Ólafsson
barítónsöngvari, Ingi Bjarni Skúla-
son píanóleikari og Rósa Guðrún
Sveinsdóttir söngkona.
Fyrir plötuumslag ársins eru til-
nefningar eftirfarandi: Mammút -
Komdu til mín svarta systir, hönn-
un: Frosti Gnarr og Alexandra
Baldursdóttir; Ojba Rasta - Friður,
hönnun: Ragnar Fjalar Lárusson;
Emiliana Torrini - Tookah, hönnun:
Ali Taylor Mapleloft; Hjaltalín -
Enter 4, hönnun: Sigurður Odds-
son; Emilía Rós Sigfúsdóttir & Ást-
ríður Alda Sigurðardóttir - Portrait,
hönnun: Helga Gerður Magn-
úsdóttir.
Tilnefningar til tónlistar-
myndbands ársins eru svo eftirfar-
andi: Baarregaard & Briem - „Love
with you“, leikstjóri Haraldur Har-
aldsson; Grísalappalísa - „Hver er
ég?“, leikstjóri Sigurður Möller Sí-
vertsen; Ólafur Arnalds - „Only the
winds“, leikstjóri Haraldur Har-
aldsson; dj. flugvél og geimskip -
„Glamúr í geimnum“, leikstjóri
Steinunn Harðardóttir og Úlfur -
„Heaven in a wildflower“, leikstjóri
Máni M. Sigfússon. Meðal þeirra
sem koma fram á verðlaunahátíð-
inni í Eldborg 14. mars eru Emil-
íana Torrini, Hjaltalín, Skálmöld,
Mezzoforte, Valdimar Guðmunds-
son, Egill Ólafsson, Páll Óskar
Hjálmtýsson og Rósa Birgitta Ís-
feld en kynnir verður Vilhelm Ant-
on Jónsson, jafnan nefndur Villi
Naglbítur. Tilnefningar í heild sinni
má finna á vefnum iston.is.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kraftmiklir Grísalappalísa á fljúgandi ferð á Iceland Airwaves í fyrra.
Verðlaun fyrir Coca Cola-plötu
Platan Friður
með Ojba rasta.
Nýr verðlauna-
flokkur á Ístón
WWW.OPERA.IS
ÓPERUKYNNING FYRIR SÝNINGU: Höfundar óperunnar kynna verkið fyrir
sýningu í boði Vinafélags Íslensku óperunnar kl. 19:15 hvert sýningarkvöld.
2. SÝNING 8. MARS - UPPSELT
3. SÝNING 15. MARS - UPPSELT
AUKASÝNING 16. MARS KL. 20
4. SÝNING 22. MARS - UPPSELT
5. SÝNING 29. MARS - UPPSELT
MIÐASALA Í HÖRPU OG Á HARPA.IS
MIÐASÖLUSÍMI 528 5050
Ragnheiður – ópera eftir
Gunnar Þórðarson
og Friðrik Erlingsson
AUKASÝNING SUNNUDAGINN 16. MARS KL. 20
ÞÓRA EINARSDÓTTIR
VIÐAR GUNNARSSON
ELMAR GILBERTSSON
JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
ELSA WAAGE
GUÐRÚN JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR
BERGÞÓR PÁLSSON
ÁGÚST ÓLAFSSON
BJÖRN INGIBERG JÓNSSON
KÓR OG HLJÓMSVEIT
ÍSLENSKU ÓPERUNNAR
Úr ummælum gagnrýnenda:
Framúrskarandi sviðsetning stórfenglegrar óperu
… Gæsahúð hvað eftir annað … Bravissimo
– Jónas Sen, Fréttablaðið
Stórkostlegt
– Dagný Kristjánsdóttir, Djöflaeyjan
Tær snilld
– Hugrún Halldórsdóttir, Stöð 2
Söguleg stund
– Silja Aðalsteinsdóttir, TMM
Ótrúleg upplifun...frábær sýning... stórkostleg tónlist
– Lísa Pálsdóttir, RÚV
Glæsileg frumraun … fagmennska, fágun og öryggi
– Hlín Agnarsdóttir, DV
Ummæli óperugesta á netmiðlum:
Stórkostlegt kvöld...fallegasta og stílhreinasta
óperusýning sem ég hef séð á Íslandi í langan tíma
– Kristinn Sigmundsson, óperusöngvari
Sannkallaður stórviðburður í íslenskri menningarsögu
– Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður
Magnað meistaraverk –tónlistarsögulegur viðburður
– Eiður S. Guðnason, sendiherra
6 stjörnu sýning, sem enginn má missa af
… STÓRKOSTLEGT!!!
–Gerrit Schuil, píanóleikari