Morgunblaðið - 08.03.2014, Page 56

Morgunblaðið - 08.03.2014, Page 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar Aðeins 2.150 kr. á mann Næg bílastæði ERFIDRYKKJUR Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is Pantanir í síma 562 0200 þetta íslenska að sjálfsögðu). Á sama stað spilaði hin norska Tremoro Tarantura og fór hún sömuleiðis á kostum. Mikið og stuð- vænt keyrslurokk (minnti smá á Kvelertak, viðhorfið þ.e.) en myrk- ur yfir um leið. Tilvísanir í Ministry og vélarokk tíunda áratugarins voru auðheyranlegar en fyrst og síðast: skemmtilegt. Ég endaði þetta fyrsta kvöld með Hjaltalín í WIMP-tjaldinu og jú, vissulega er maður hlutdrægur, en þau rústuðu þessu. Þvílíkt band! Hnökralaust samspil og flæði, dá- leiðandi eiginlega, og mikil innlifun og einlægni. Högni gaf sig 110% og það mynduðust einhverjir töfrar. Þorvaldur Þór frábær á tromm- unum og bara allir læstir inn í stemninguna. Áhersla var á efni af Enter 4 og djöfull er það magnað stöff. Hvernig gat sama hljóm- sveitin gert jafn „úthverfa“ plötu og Terminal og svo jafn „inn- hverfa“ plötu og Enter 4 og svo gætt þær báðar sömu snilldaráferð- inni? Stórkostlegt. Finnarnir eru með þetta Á föstudeginum sat ég tvær „Spurt og svarað“ samkomur með mönnum sem muna tímana tvenna og gott betur en það. John gamli Cale, Velvet Underground-limur, var stærsta nafnið hvað þessa dag- skrá varðaði og var það gamla rokkpennabrýnið Barney Hoskyns sem spjallaði við hann. Cale var hinn ljúfasti, svaraði eins ærlega og hann gat og áhrifaríkast var að sjá að hann var ekki í stakk búinn til að tjá sig um vin sinn Lou Reed. Hann varð ekki hvumpinn þegar það kom upp, blakaði því eins kurteislega frá sér og hann gat, greinilega syrgjandi enn. Strax á eftir var svipaður fund- ur með Irmin Schmidt, hljómborðs- leikara Can, en Rob Young (Elect- ric Eden, Wire) tók hann tali en Young, sem er búsettur í Noregi og vinnur m.a. fyrir by:Larm, vinnur nú að fyrstu bókinni um Can og það í fullu samstarfi við eftirlifandi meðlimi. Það segir ýmislegt um Yo- ung sem höfund að Can hafi treyst honum til verka en sveitin er ein- staklega passasöm upp á eigin arf- leifð. Schmidt kom vel fyrir líkt og Cale; rólegur, vís og gefandi og sal- urinn stappaður enda dýpkar á goðsögninni um Can með hverju ári. Hvað tónleika áhrærir sá ég hina dönsku Baby in Vain, þrjár kornungar stúlkur sem spýttu út hráu blúsrokki eins og enginn væri morgundagurinn. Ég hefði ekki verið hissa þó að Jack White og Captain Beefheart hefðu komið í enda settsins og borið fyrir þá magnarana. Ég var heillaður. Lo- wer koma sömuleiðis frá Dan- mörku og tilheyra sömu ný- síðpönkssenununni og Ice Age. Flott en ekki frábært. Hin finnska Death Hawks leikur blúsað eyði- merkurrokk með dassi af Earth og Ennio Morricone og gera slíkt vel. Finnarnir eru ósnertanlegir þegar sá gállinn er á þeim. Laugardagskvöldið fór mikið til í stúss vegna verðlaunanna og því miður þurfti ég að þola First Aid Kit í nokkur lög enda erfitt að komast út úr salnum. Sá svo hina sænsku Zöhlu sem heillaði mig ekki en kvöldið endaði ég með því að fara aftur á Jaakko Eino Kalevi ásamt nokkrum finnskum koll- eggum. Var það góður endir á þess- um yndislegu Óslónóttum. Þar til næst... Óslónætur Death Hawks Sandblásið rokk frá Finnlandi. Jaakko Eino Kalevi Kalt tölvupopp tekið upp á næstu hæð. » Tímaáætlanir voruskýrar og skorin- orðar, hálftími á kjaft en eins og segir er hátíðin að miklum hluta kynn- ingarhátíð eða svofelld „showcase“-hátíð.  Tónlistarhátíðin by:Larm fór fram í Ósló um síðustu helgi  Norrænu tónlistarverðlaunin afhent á hátíðinni Baby in Vain Ungæðislegt, hrátt og ofursvalt blúsrokk. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Hátíðin sem um ræðir er orð-in giska mikilvægur fasti ítónlistarlífi Skandinavíu, hún er hvort tveggja tónlistar- og „bransa“-hátíð þar sem aðilar frá útgáfufyrirtækjum, fjölmiðlum, tónlistarhátíðum o.s.frv. hittast, koma á samböndum, hreyfa við hlutum, fræðast um innviði iðn- aðarins og miðla þekkingu þar um. Norrænu tónlistarverðlaun (Nordic Music Prize) eru afhent á sama tíma og í þetta skiptið var hin sænska The Knife verðlaunuð fyrir plötu sína Shaking The Habitual. Hjaltalín rústaði Það fyrsta sem ég barði augum í ár var sænska stúlknasveitin Ti- ger Bell. Hún lék í WIMP-tjaldinu (sem heitir eftir norsku útgáfunni af tonlist.is) sem staðsett er á „Yo- ungs“-torginu en það var um leið nokkurs konar miðstöð hátíð- arinnar. Hátíðin er svona eins og dönnuð Airwaves og kosturinn í ár var að það var afar stutt á milli helstu tónleikastaða og lítið mál að nema það sem mann lysti. Tíma- áætlanir voru skýrar og skor- inorðar, hálftími á kjaft en eins og segir er hátíðin að miklum hluta kynningarhátíð eða svofelld „show- case“-hátíð, m.a. ætluð þeim sem hafa atvinnu af því að snuðra uppi hæfileikafólk. Því miður var hæfileikum Ti- ger Bell verulega ábótavant, snaut- legt innihald í ríkulegum umbúð- um, tónlistin slæleg endurvinnsla á Blink 182 popppönki. Hin alíslenska Sísý Ey hélt hins vegar uppi stuðinu hæst uppi, þ.e. á háhýsisstaðnum Stratos sem er á tólftu hæð í bygg- ingu við sama torg. Aðrir Íslend- ingar sem heiðruðu frændur sína með nærveru sinni voru Hjaltalín, Dísa og Hjálmar, sem spiluðu ásamt heimamanni, sjálfum Erlend Øye (Kings Of Convenience, The Whi- test Boy Alive m.a.). Næst var stikað á Revolver, dásamlega svitaholu þar sem Finni nokkur, Jaakko Eino Kalevi, fór mikinn. Þessi drengur er mikill meistari og ég er ekki hissa á því að hið virta útgáfufélag Domino er bú- ið að tryggja sér samning við hann og ku hann fyrsti Skandinavinn sem Domino leitar til. Já, það er vel. Tónlistin stórkostleg uppfærsla á köldu en melódísku tölvupoppi Associates og Human League borin uppi af einstakri, kaldhamraðri kímnigáfu þeirra Finna. Það besta sem ég sá á hátíðinni (fyrir utan allt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.