Morgunblaðið - 08.03.2014, Qupperneq 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014
Á fallegum og notalegum stað
á 5. hæð Perlunnar
Aðeins 2.150 kr. á mann
Næg bílastæði
ERFIDRYKKJUR
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200
þetta íslenska að sjálfsögðu).
Á sama stað spilaði hin norska
Tremoro Tarantura og fór hún
sömuleiðis á kostum. Mikið og stuð-
vænt keyrslurokk (minnti smá á
Kvelertak, viðhorfið þ.e.) en myrk-
ur yfir um leið. Tilvísanir í Ministry
og vélarokk tíunda áratugarins
voru auðheyranlegar en fyrst og
síðast: skemmtilegt.
Ég endaði þetta fyrsta kvöld
með Hjaltalín í WIMP-tjaldinu og
jú, vissulega er maður hlutdrægur,
en þau rústuðu þessu. Þvílíkt band!
Hnökralaust samspil og flæði, dá-
leiðandi eiginlega, og mikil innlifun
og einlægni. Högni gaf sig 110% og
það mynduðust einhverjir töfrar.
Þorvaldur Þór frábær á tromm-
unum og bara allir læstir inn í
stemninguna. Áhersla var á efni af
Enter 4 og djöfull er það magnað
stöff. Hvernig gat sama hljóm-
sveitin gert jafn „úthverfa“ plötu
og Terminal og svo jafn „inn-
hverfa“ plötu og Enter 4 og svo
gætt þær báðar sömu snilldaráferð-
inni? Stórkostlegt.
Finnarnir eru með þetta
Á föstudeginum sat ég tvær
„Spurt og svarað“ samkomur með
mönnum sem muna tímana tvenna
og gott betur en það. John gamli
Cale, Velvet Underground-limur,
var stærsta nafnið hvað þessa dag-
skrá varðaði og var það gamla
rokkpennabrýnið Barney Hoskyns
sem spjallaði við hann. Cale var
hinn ljúfasti, svaraði eins ærlega og
hann gat og áhrifaríkast var að sjá
að hann var ekki í stakk búinn til að
tjá sig um vin sinn Lou Reed. Hann
varð ekki hvumpinn þegar það kom
upp, blakaði því eins kurteislega
frá sér og hann gat, greinilega
syrgjandi enn.
Strax á eftir var svipaður fund-
ur með Irmin Schmidt, hljómborðs-
leikara Can, en Rob Young (Elect-
ric Eden, Wire) tók hann tali en
Young, sem er búsettur í Noregi og
vinnur m.a. fyrir by:Larm, vinnur
nú að fyrstu bókinni um Can og það
í fullu samstarfi við eftirlifandi
meðlimi. Það segir ýmislegt um Yo-
ung sem höfund að Can hafi treyst
honum til verka en sveitin er ein-
staklega passasöm upp á eigin arf-
leifð. Schmidt kom vel fyrir líkt og
Cale; rólegur, vís og gefandi og sal-
urinn stappaður enda dýpkar á
goðsögninni um Can með hverju
ári.
Hvað tónleika áhrærir sá ég
hina dönsku Baby in Vain, þrjár
kornungar stúlkur sem spýttu út
hráu blúsrokki eins og enginn væri
morgundagurinn. Ég hefði ekki
verið hissa þó að Jack White og
Captain Beefheart hefðu komið í
enda settsins og borið fyrir þá
magnarana. Ég var heillaður. Lo-
wer koma sömuleiðis frá Dan-
mörku og tilheyra sömu ný-
síðpönkssenununni og Ice Age.
Flott en ekki frábært. Hin finnska
Death Hawks leikur blúsað eyði-
merkurrokk með dassi af Earth og
Ennio Morricone og gera slíkt vel.
Finnarnir eru ósnertanlegir þegar
sá gállinn er á þeim.
Laugardagskvöldið fór mikið
til í stúss vegna verðlaunanna og
því miður þurfti ég að þola First
Aid Kit í nokkur lög enda erfitt að
komast út úr salnum. Sá svo hina
sænsku Zöhlu sem heillaði mig ekki
en kvöldið endaði ég með því að
fara aftur á Jaakko Eino Kalevi
ásamt nokkrum finnskum koll-
eggum. Var það góður endir á þess-
um yndislegu Óslónóttum. Þar til
næst...
Óslónætur
Death Hawks Sandblásið rokk frá Finnlandi.
Jaakko Eino Kalevi Kalt tölvupopp tekið upp á næstu hæð.
» Tímaáætlanir voruskýrar og skorin-
orðar, hálftími á kjaft en
eins og segir er hátíðin
að miklum hluta kynn-
ingarhátíð eða svofelld
„showcase“-hátíð.
Tónlistarhátíðin by:Larm fór fram
í Ósló um síðustu helgi Norrænu
tónlistarverðlaunin afhent á hátíðinni
Baby in Vain Ungæðislegt, hrátt og ofursvalt blúsrokk.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Hátíðin sem um ræðir er orð-in giska mikilvægur fasti ítónlistarlífi Skandinavíu,
hún er hvort tveggja tónlistar- og
„bransa“-hátíð þar sem aðilar frá
útgáfufyrirtækjum, fjölmiðlum,
tónlistarhátíðum o.s.frv. hittast,
koma á samböndum, hreyfa við
hlutum, fræðast um innviði iðn-
aðarins og miðla þekkingu þar um.
Norrænu tónlistarverðlaun (Nordic
Music Prize) eru afhent á sama tíma
og í þetta skiptið var hin sænska
The Knife verðlaunuð fyrir plötu
sína Shaking The Habitual.
Hjaltalín rústaði
Það fyrsta sem ég barði augum
í ár var sænska stúlknasveitin Ti-
ger Bell. Hún lék í WIMP-tjaldinu
(sem heitir eftir norsku útgáfunni
af tonlist.is) sem staðsett er á „Yo-
ungs“-torginu en það var um leið
nokkurs konar miðstöð hátíð-
arinnar. Hátíðin er svona eins og
dönnuð Airwaves og kosturinn í ár
var að það var afar stutt á milli
helstu tónleikastaða og lítið mál að
nema það sem mann lysti. Tíma-
áætlanir voru skýrar og skor-
inorðar, hálftími á kjaft en eins og
segir er hátíðin að miklum hluta
kynningarhátíð eða svofelld „show-
case“-hátíð, m.a. ætluð þeim sem
hafa atvinnu af því að snuðra uppi
hæfileikafólk.
Því miður var hæfileikum Ti-
ger Bell verulega ábótavant, snaut-
legt innihald í ríkulegum umbúð-
um, tónlistin slæleg endurvinnsla á
Blink 182 popppönki. Hin alíslenska
Sísý Ey hélt hins vegar uppi stuðinu
hæst uppi, þ.e. á háhýsisstaðnum
Stratos sem er á tólftu hæð í bygg-
ingu við sama torg. Aðrir Íslend-
ingar sem heiðruðu frændur sína
með nærveru sinni voru Hjaltalín,
Dísa og Hjálmar, sem spiluðu ásamt
heimamanni, sjálfum Erlend Øye
(Kings Of Convenience, The Whi-
test Boy Alive m.a.).
Næst var stikað á Revolver,
dásamlega svitaholu þar sem Finni
nokkur, Jaakko Eino Kalevi, fór
mikinn. Þessi drengur er mikill
meistari og ég er ekki hissa á því að
hið virta útgáfufélag Domino er bú-
ið að tryggja sér samning við hann
og ku hann fyrsti Skandinavinn sem
Domino leitar til. Já, það er vel.
Tónlistin stórkostleg uppfærsla á
köldu en melódísku tölvupoppi
Associates og Human League borin
uppi af einstakri, kaldhamraðri
kímnigáfu þeirra Finna. Það besta
sem ég sá á hátíðinni (fyrir utan allt