Morgunblaðið - 08.03.2014, Page 60

Morgunblaðið - 08.03.2014, Page 60
LAUGARDAGUR 8. MARS 67. DAGUR ÁRSINS 2014 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Pistorius hélt framhjá 2. Kærunni vegna Anítu hafnað 3. „Aníta er mjög svekkt út í sjálfa sig“ 4. Aníta dæmd úr leik  Tvær íslenskar skáldsögur eru á langa listanum yfir þær bækur sem tilnefndar eru til verðlauna breska dagblaðsins Independent fyrir er- lendar skáldsögur. Alls eru 15 bækur á listanum. Íslensku bækurnar eru annars vegar Rigning í nóvember eft- ir Auði Övu Ólafsdóttur, Butterflies in November í enskri þýðingu, og Harm- ur englanna eftir Jón Kalman Stef- ánsson, The Sorrow of Angels á ensku. Í frétt Independent um til- nefningarnar er vakin athygli á því að á sama tíma og viðamikil sýning standi yfir á menningu norrænna manna á sk. víkingatíma í British Mu- seum í Lundúnum séu tveir höfundar tilnefndir frá hinu eina sanna landi víkinganna. Jón Kalman og Auður Ava meðal tilnefndra  „Nú fer hver að verða síðastur að upplifa Pallaball í Sjallanum í allri sinni dýrð,“ segir söngvarinn Páll Óskar Hjálmtýsson á Facebook-síðu sinni. Páll Óskar mun skemmta gest- um Sjallans á Akureyri í kvöld kl. 23 ásamt dönsurum og verður „húsið, skreytingarnar, tónlistin, ljósin og dansararnir gordjöss“, eins og hann lýsir því. Páll Óskar hefur haldið fjölda balla í Sjallanum frá árinu 1993 en þar sem ákveðið hefur verið að rífa Sjallann í sumar og reisa á reitnum hótel verður Palla- ballið í kvöld það síðasta, að því er fram kemur á vef vikublaðsins Vikudags. Pallaball í Sjallanum í síðasta sinn FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í norðaustan 15-25 m/s, fyrst syðst. Hvassast sunnan- og suðaustantil. Snjókoma eða slydda en mikil rigning suðaustanlands. Dregur úr vindi sunnan- og austanlands í kvöld. Hiti kringum frostmark, en vægt frost til landsins. Á sunnudag Norðvestan og vestan 13-20 m/s, en lægir um kvöldið. Snjókoma nyrðra en él með suðurströndinni. Frost 0-5 stig. Á mánudag Vaxandi suðlæg átt, 15-23 m/s sunn- an- og vestantil um kvöldið með snjókomu og síðar slyddu eða rigningu. Hlýnandi. „Við verðum bara að halda í það að önnur markmið sem við settum okkur þarna náðust. Hún er orðin jafn sterk og ég vildi sjá. En hún er auðvitað mjög svekkt, og getur ekki verið annað en bara svekkt út í sjálfa sig,“ sagði Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari Anítu Hinriksdóttur, eftir að hún var dæmd úr leik í riðlakeppni 800 metra hlaups kvenna á HM í Póllandi. »1 Getur ekki verið annað en svekkt út í sjálfa sig Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann sætan sigur á Noregi, 2:1, í 100. landsleik Þóru B. Helgadóttur og gæti spilað um bronsverðlaunin í Algarve-bikarnum í Portúgal. „Ég er ótrúlega stolt af því að hafa náð þessum áfanga og það var sérstaklega sætt að ná honum í sigurleik gegn Noregi. Það er fátt skemmti- legra en að vinna þær,“ segir Þóra. » 4 Sætur sigur í 100. landsleik Þóru Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Leiklistarnámskeið sem við stóð- um fyrir hér í Borgarhólsskóla skilaði okkur mörgum efnilegum krökkum sem nú eru að þreyta frumraun sína á leiksviðinu. Þau skila sínu með miklum sóma,“ segir Margrét Sverrisdóttir á Húsavík. Þau Oddur Bjarni Þor- kelsson leikstýra uppfærslu Leik- félags Húsavíkur á Sitji guðs englar sem frumsýnt verður nyrðra í kvöld, laugardag. Sex sýningar eru áformaðar en verða fleiri ef viðtökur gefa tilefni til. Tíðarandi stríðsáranna Leikgerðin, sem er eftir Illuga Jökulsson, byggist á þremur bók- um Guðrúnar Helgadóttur, Sitji guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni. Sögusviðið er íslenskt sjávarþorp í síðari heims- styrjöldinni og miðpunkturinn er barnmörg stórfjölskylda. Líf hennar er litríkt og með því að segja sögu fjölskyldunnar kynnast áhorfendur tíðaranda stríðs- áranna, átökum, atburðum og skrautlegum uppákomum. Leikrit þetta var fært upp í Þjóðleikhús- inu fyrir um áratug og fékk þá góðar viðtökur. „Þessi saga er mannlífið í hnotskurn, sorg og sigrar sitt á hvað,“ segir Margrét sem margir þekkja ef til vill sem Skottu í Stundinni okkar síðast- liðna tvo vetur. Margrét telur að mörgum, til dæmis af yngri kynslóðinni, þyki sennilega áhugavert að kynnast tíðaranda stríðsáranna á Íslandi, enda séu þau flestum nú orðin í framandi fortíð. Alls taka 33 leik- arar þátt í sýningunni, þar af eru tólf á grunnskólaaldri, flestir 12 og 13 ára. Eitt veigamesta hlut- verkið í sýningunni er í höndum Kristnýjar Óskar Geirsdóttur sem leikur Ragnheiði, elsta barnið í þeim stóra systkinahópi og fjöl- skyldu sem verkið og sagan hverf- ist um. Krossa sig fyrir frumsýningu Titillinn Sitji guðs englar er lína sem margir þekkja úr góðum barnasálmi. „Leikararnir eru svo sem ekkert að fara með faðirvorið eða aðrar bænir í sýningunni. En sjálfsagt krossa einhverjir sig fyrir frumsýningu. Þar hefur hver sinn háttinn á,“ segir Oddur Bjarni Þor- kelsson. Hann hefur á undan- förnum árum stýrt uppfærslu leik- verka skóla og áhugafélaga víða um land. Hefur hins vegar síðustu árin einbeitt sér að guðfræðinámi, lauk nýlega embættisprófi frá Há- skóla Íslands og stefnir á prest- skap í náinni framtíð ef eitthvert brauðið losnar. Ætlar sér út á ak- urinn og segir að þar komi sér væntanlega vel að hafa í tvígang leikið prest í sjónvarpsverkum. „Vissulega er ákveðinn trúar- legur undirtónn í þessu leikriti. Afinn blótar hressilega svo krakk- arnir heyra en svo sest karl á rúm- stokkinn og kennir þeim bænirnar. Svo hlustar amma gamla á allt, hin góða og grandvara kona sem má ekki vamm sitt vita. Ætli þetta sé ekki dæmigerður íslensku veru- leiki, skarpar andstæður sem margir þekkja.“ Englar guðs sitja á Húsavík  33 í stórri leik- sýningu  Afrakst- ur af námskeiði Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Hlutverk Svanhildur Auður Diego og Kristný Ósk Geirsdóttir fara með hlutverk í uppfærslunni fyrir norðan. Leikstjórarnir Oddur Bjarni Þor- kelsson og Margrét Sverrisdóttir. Adam Haukur Baumruk úr Haukum er leikmaður 16. umferðarinnar í handboltanum hjá Morgunblaðinu. Hann er sonur Petrs Baumruks, sem gerði garðinn frægan með Hafn- arfjarðarliðinu á árum áður, og segir að hann fái nytsamlegar leiðbeiningar frá pabba sín- um. „Þetta er eins og að hafa annan þjálfara heima,“ segir Adam Haukur. »2-3 Eins og að hafa annan þjálfara heima

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.