Morgunblaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2014
Óháð ráðgjöf
til fyrirtækja
Firma Consulting gerir fyrirtækjum
tilboð í eftirfarandi þjónustu:
• Kaup, sala og sameining.
• Verðmat fyrirtækja.
• Samningaviðræður, samningagerð
• Áætlanagerð.
• Fjárhagsleg endurskipulagning.
• Samningar við banka.
• Rekstrarráðgjöf.
Firma Consulting, Þingasel 10, 109 Reykjavík.
Símar: 820-8800 og 896-6665. Fax 557-7766
info@firmaconsulting.is, www.firmaconsulting.is
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Lögreglan á Blönduósi hafði mesta
yfirferð lögregluembætta landsins
árið 2012 vegna hraðaeftirlits og ók
20.246 km. Lögreglan á Selfossi
varði hins vegar lengstum tíma lög-
regluembætta til hraðaeftirlits eða
659 vinnustundum. Þetta kemur
fram í skýrslu innanríkisráðherra
um framkvæmd samgönguáætlunar
2012 og viðaukum hennar.
Þrettán lögregluembætti tóku
þátt í sérstöku hraðaeftirliti sumarið
2012. Unnar voru 3.972 klukku-
stundir vegna eftirlitsins og eknir
alls 115.116 km. Upp komst um
2.323 umferðarlagabrot, þar af voru
hraðakstursbrot 1.831 talsins eða
tæp 79% allra brota. Meðalhraði
ökumanna sem voru stoppaðir í
hraðaeftirlitinu 2012 var allt frá
109,3 km/klst hjá lögreglunni á
Eskifirði og upp í 124,4 km/klst hjá
lögreglunni á Suðurnesjum. Með-
alhraðinn var reiknaður út miðað við
niðurstöður hraðamælinga þá mán-
uði sem viðkomandi embætti sinnti
eftirliti á vegum þar sem hámarks-
hraði var 90 km/klst.
Önnur brot sem ökumenn voru
stöðvaðir fyrir voru þau að viðkom-
andi ökumaður var ekki með öku-
skírteini meðferðis, viðkomandi
hafði ekki ökuréttindi, ljósanotkun
var ábótavant, bílbelti ekki notað,
ökumaður ölvaður undir stýri eða
vítaverður akstur og réttindaleysi.
Á árinu 2011 ók lögreglan 120.095
km vegna hraðaeftirlits og dróst því
aksturinn 2012 saman um 4,2% milli
ára. Heildarfjöldi vinnustunda lög-
reglunnar vegna hraðaeftirlits
minnkaði um 7,2% frá árinu 2011 til
2012. Hlutfallslega flest hraðakst-
ursbrot voru skráð hjá lögreglunni á
Hvolsvelli, 17,4%, og næstflest hjá
lögreglunni á Blönduósi eða 16,3%.
Fimmtán stafrænar hraðamynda-
vélar voru í notkun á árinu 2012.
Þær skráðu 18.887 brot á því ári.
Það voru mun fleiri brot en árið á
undan en þá voru þau 13.238 og
fjölgaði því um 42,7% á milli ára. Að
meðaltali voru hraðakstursbrotin 52
á dag allt árið. Flest brot á árinu
2012 voru skráð í júlí og ágúst eða
fjórðungur allra brota. Fæst voru
skráð í desember.
Hraðakstur í jarðgöngum
Af þeim 18.887 hraðakst-
ursbrotum sem hraðamyndavélar
skráðu 2012 höfðu 13.672 ökumenn
greitt sektir sínar eða tæp 74%. Þau
tilvik þar sem rannsókn var hætt
mátti flest rekja til aksturs erlendra
ferðamanna á bílaleigubílum. Rann-
sókn er alla jafna hætt búi ökumað-
ur erlendis, þótt bílaleigur hafi upp-
lýst lögregluna um nafn og
heimilisfang ökumanns. Bílaleigur
innheimta ekki sektir sem leigjandi
hefur stofnað til.
Hraðamyndavélarnar eru stað-
settar víða um land, en flestar eru á
suðvesturhorninu. Af 15 hraða-
myndavélum eru níu í jarðgöngum,
þ.e. í Hvalfjarðargöngum, Fáskrúðs-
fjarðargöngum, Héðinsfjarð-
argöngum og í Bolungarvík-
urgöngum. Alls voru 3.993
hraðakstursbrot skráð í Hvalfjarð-
argöngum 2012 og voru þau 19%
færri en árið 2011 þegar brotin þar
voru tæplega 5.000. Sá sem mældist
á mestum hraða í Hvalfjarð-
argöngum 2012 ók á 153 km/klst.
Sama ár voru alls 1.488 hraðakst-
ursbrot skráð í Fáskrúðsfjarð-
argöngum og var það 36% fjölgun
frá 2011. Hraðametið í Fáskrúðs-
fjarðargöngum var 202 km/klst.
Einnig kemur m.a. fram að eftirlit
lögreglu og vinnsla úr löggæslu-
myndavélum kostaði 46,9 milljónir.
1.831 hraðaksturs-
brot árið 2012
Lögreglan á Hvolsvelli gómaði flesta við hraðakstur
Meðalhraði hraðökumanna sem voru stöðvaðir 2012
125
120
115
110
105
100
km/klst
Ak
ra
ne
s
Es
kif
jör
ðu
r
Sa
uð
ár
kr
ók
ur
Bl
ön
du
ós
Hv
ols
vö
llu
r
Se
yð
isf
jör
ðu
r
Ak
ur
ey
ri
Hú
sa
vík
Se
lfo
ss
Bo
rg
ar
ne
s
Hö
fu
ðb
.sv
æ
ðið
Sn
æf
ell
sn
es
Su
ðu
rn
es
116,1
km/klst
115,6
km/klst 114,3
km/klst
115,1
km/klst
109,3
km/klst
113,2
km/klst
116,2
km/klst 113,9
km/klst
115,2
km/klst
115,7
km/klst
113,0
km/klst
113,1
km/klst
124,4
km/klst
Heimild: Framkvæmd Umferðaröryggisáætlunar 2012
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Fyrstu fjórir mánuðir ársins hafa
verið óvenjuhlýir og hafa aðeins
þrisvar sinnum verið hlýrri í
Reykjavík frá því að samfelldar
mælingar hófust árið 1871. Þetta
voru árin 1964, 1929 og 2003. Á Ak-
ureyri eru mánuðirnir fjórir þeir 9.
hlýjustu frá upphafi samfelldra
mælinga árið 1881.
Í yfirliti Trausta Jónssonar veð-
urfræðings kemur fram að sérlega
þurrt var í Reykjavík í janúar og
febrúar og úrkoma var nærri með-
allagi í apríl. Aftur á móti togaði
úrkoman í mars summu fyrstu fjög-
urra mánaðana nokkuð upp þannig
að hún endaði í 86% af meðallagi
mánaðanna fjögurra. Er það í
minna lagi en langt frá metum.
Á Akureyri var úrkoman hins
vegar með mesta móti, þrátt fyrir
frekar þurran apríl, samtals um
70% umfram meðaltal. Úrkoman á
Akureyri hefur aðeins þrisvar orðið
meiri fyrstu fjóra mánuði ársins frá
upphafi samfelldra mælinga 1928.
Það var 1989, 1953 og 1990.
Nýliðinn aprílmánuður var hlýr
og telst hagstæður víðast hvar, seg-
ir Trausti. Lengst af var þurrt í
veðri norðaustanlands og á Aust-
fjörðum var úrkoma nokkuð yfir
meðallagi. Í öðrum landshlutum
var úrkoma í kringum meðallag
eða lítillega undir því.
Hitinn yfir meðallagi
Meðalhiti í Reykjavík var 4,9 stig
og er það 2 stigum yfir meðallagi
áranna 1961 til 1990 en 1 stigi yfir
meðallagi síðustu tíu ára. Á Ak-
ureyri var meðalhitinn 3,6 stig, 2
stigum ofan meðallagsins 1961 til
1990, en 0,8 yfir meðallagi síðustu
tíu ára. Hæsti hiti mánaðarins
mældist 18,1 stig, í Skaftafelli þann
22. apríl. Á mannaðri stöð mældist
hann hæstur 16,0 stig á Berg-
stöðum í Skagafirði þann 24.
Fyrstu mánuðirn-
ir óvenjuhlýir
Aðeins þrisvar sinnum verið hlýrri
Í Nauthólsvík Sprellað í sjónum.
Lyfjaráð ÍSÍ hef-
ur ákært knapa
sem keppti í
Meistaradeild í
hestaíþróttum í
vetur á grund-
velli lyfjaprófs.
Alls gengust fjór-
ir knapar undir
lyfjapróf á tveim-
ur mótum en engin efni á bannlista
fundust í sýnum þriggja. Knapinn
tók til varna. Í tilkynningu frá
Landssambandi hestamannafélaga
kemur fram að málið sé komið til
meðferðar hjá dómstóli ÍSÍ og ekk-
ert frekar um það að segja fyrr en
niðurstaða hans liggur fyrir.
Lyfjaráð ÍSÍ ákærir
einn knapa úr
Meistaradeildinni
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Forsvarsmenn Icelandair og Félags
íslenskra atvinnuflugmanna hittust á
kjarafundi í gær. Að sögn Hafsteins
Pálssonar, framkvæmdastjóra FÍA,
voru formenn samninganefnda ekki
á fundinum en farið var yfir málin
heildstætt og boðað til nýs fundar á
mánudag. Að sögn Hafsteins hafa
samningsaðilar hist níu sinnum og
þar af sex sinnum hjá ríkissáttasemj-
ara. „Við höfum hafnað þessum
samningi sem SA og ASÍ gerðu enda
erum við ekki aðilar að þeim samn-
ingi. Icelandair hefur viljað hengja
sig í það samkomulag. Lengra eru
málin ekki komin,“ segir Hafsteinn.
Flugmenn Icelandair hafa boðað
til verkfallsaðgerða 9., 16., 20., 23. og
30. maí.
Aðgerðirnar munu standa frá sex
að morgni til 18 að kvöldi fyrstu þrjá
boðuðu verkfallsdagana en í sólar-
hring 23. og 30. maí.
Þá hefst yfirvinnubann næstkom-
andi föstudag, 9. maí, náist ekki
samningar fyrir þann tíma.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, segir að yfir-
vinnubann geti leitt til þess að flug-
ferðir falli niður. „Ef upp koma
forföll er leitað til flugmanna sem
eru á frívakt og þeir beðnir að taka
yfirvinnu. Ef slík atvik koma upp á
meðan yfirvinnubann varir gæti
þurft að fella niður ferðir,“ segir
Guðjón. Hann segir að yfirvinnu-
bannið skapi fyrst og fremst óvissu
og að fella gæti þurft niður ferðir
með stuttum fyrirvara.
Stutt í verkfallsaðgerðir
Yfirvinnubann gæti leitt til niðurfellingar ferða hjá Icelandair Fundað í gær
og boðað til nýs fundar á mánudag Verkfallsaðgerðir flugmanna hefjast 9. maí
Kjaradeila
» Forsvarsmenn FÍA og Ice-
landair funduðu í gær.
» Boðaðar verkfallsaðgerðir
hefjast 5. maí og ná til fimm
dagsetninga til 30. maí.
» Boðað yfirvinnubann hefst
9. maí ef samningar nást ekki
á milli deiluaðila.
Það sem af er þessu ári er lög-
reglan á Hvolsvelli búin að góma
hlutfallslega flesta ökumenn fyrir
hraðakstur af lögregluembættum
landsins. Í gær var búið að kæra
479 ökumenn vegna umferðar-
lagabrota á Hvolsvelli á þessu ári.
Sveinn Kr. Rúnarsson yfirlög-
regluþjónn áætlaði að um 450 af
þeim væru hraðakstursbrot. Það
er mikil aukning frá sama tíma í
fyrra þegar málin voru um 170. En
hvað veldur þessum dugnaði?
„Öflugt lögreglulið og svo er
mikil umferð og mörg hraðakst-
urssvæði í umdæminu,“ sagði
Sveinn. Hann
sagði mikinn
hraðakstur vera
austan við
Hvolsvöll, á
Mýrdalssandi
og þar fyrir
austan.
„Erlendir
ferðamenn eru
60% þeirra
sem eru teknir fyrir hraðakstur,“
sagði Sveinn. Einn var tekinn í
fyrradag á 165 km hraða. Sá borg-
aði yfir 100 þúsund kr. sekt og var
sviptur ökuréttindum á staðnum.
Flestir eru erlendir ferðamenn
LÖGREGLAN Á HVOLSVELLI STÖÐVAR MARGA SEM AKA HRATT
Sveinn Kr.
Rúnarsson