Morgunblaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2014
Fréttastofa Ríkisútvarpsinsheldur sínu striki þó að fréttir
hafi verið sagðar af því að skipt
hafi verið um yfirmenn stofnunar-
innar.
Í gær mátti í há-degisfréttum
heyra langa þulu
upp úr grein í lítt
lesnu vefriti þar
sem fyrrverandi aðstoðarmaður
Steingríms J. Sigfússonar fjár-
málaráðherra mun hafa fjallað um
veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórn-
arinnar.
Eftir þulunni að dæma var þessifyrrverandi aðstoðarmaður
býsna orðljótur í grein sinni og
þótti ekki ástæða til að hlífa skyld-
ugreiðendum til Ríkisútvarpsins
við því.
Umræddur aðstoðarmaður satþétt við hlið Steingríms alla
hans ráðherratíð og vann ötullega
að öllum skattahækkunum vinstri-
stjórnarinnar, sem voru ófáar, og
þótti aldrei nóg að gert í þeim efn-
um.
Og hvernig skyldi nú Rík-isútvarpið, sem ber lögum
samkvæmt að „[s]tunda vandaða og
gagnrýna fréttamennsku“, „[v]era
til fyrirmyndar um gæði og fagleg
vinnubrögð“ og „[v]era óháð stjórn-
málalegum, hugmyndafræðilegum
og efnahagslegum hagsmunum í
efnismeðferð og ritstjórnarákvörð-
unum“ hafa kynnt þennan aðstoð-
armann vinstristjórnarinnar til
sögunnar í frétt sinni?
Jú, hann var ítrekað og eingöngukynntur sem Indriði H. Þor-
láksson, „fyrrverandi ríkisskatt-
stjóri“. Ekki orð um að þarna færi
annar af helstu skattheimtumönn-
um vinstristjórnarinnar. Ekki eitt
orð.
„Fagleg vinnu-
brögð“ fréttastofu
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 2.5., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 9 léttskýjað
Akureyri 9 skýjað
Nuuk 5 léttskýjað
Þórshöfn 7 léttskýjað
Ósló 10 heiðskírt
Kaupmannahöfn 10 léttskýjað
Stokkhólmur 10 heiðskírt
Helsinki 3 léttskýjað
Lúxemborg 12 skýjað
Brussel 11 skýjað
Dublin 11 skýjað
Glasgow 12 skýjað
London 10 skýjað
París 13 skýjað
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 10 skýjað
Berlín 7 skýjað
Vín 21 skýjað
Moskva 11 léttskýjað
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 22 heiðskírt
Barcelona 18 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 13 skýjað
Aþena 20 léttskýjað
Winnipeg 6 skýjað
Montreal 11 skýjað
New York 18 skýjað
Chicago 10 alskýjað
Orlando 22 skúrir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:53 21:58
ÍSAFJÖRÐUR 4:41 22:20
SIGLUFJÖRÐUR 4:23 22:03
DJÚPIVOGUR 4:18 21:31
Forsvarsmenn samtakanna Já Ísland
afhentu í gær forseta Alþingis og for-
mönnum þingflokka á Alþingi undir-
skriftalista með 53.555 undirritunum
þar sem skorað var á þingheim að
draga ekki umsókn landsins að ESB
til baka. Jón Steindór Valdimarsson,
ábyrgðarmaður söfnunarinnar, sagð-
ist vera mjög ánægður með árang-
urinn. „Við erum með rúmlega 22% af
kosningabæru fólki á Íslandi, þannig
að þetta hefur gengið ótrúlega vel.“
Sagði Jón Steindór að erfitt yrði fyrir
þingið og ríkisstjórnina að sniðganga
þann sterka vilja sem birtist í listan-
um. Jón Steindór sagði að reynt hefði
verið að tryggja áreiðanleika söfn-
unarinnar eins og kostur væri, en ein-
ungis hafi um fimmtíu kennitölur
dottið út. Fólk gat einnig beðist nafn-
leyndar. Voru nöfn þeirra og kenni-
tölur þá strikuð úr listanum sem af-
hentur var til að ekki bærust kennsl á
viðkomandi. Jón Steindór sagði að
fjöldi þeirra hefði ekki verið tekinn
saman, en áætlaði að um 10-20%
þeirra sem skrifuðu undir hefðu haft
þann hátt á. sgs@mbl.is
Listinn afhentur
Morgunblaðið/Eggert
Afhendingin Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokks, tekur við undirskriftum frá Benedikt Jóhannessyni ritstjóra.
Aukablað
alla þriðjudaga