Morgunblaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2014
Fararstjóri: Pavel Manásek
Sumar 17 17. - 24. ágúst
Ljósadýrð í Búdapest
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Ljósadýrð á Dóná í Búdapest, einni fallegustu borg Evrópu er
stórkostleg upplifun. Hápunktur ferðarinnar er krýningarhátíð
heilags Stefáns, dýrðin endar í Passau, sem talin er standa á
einu hinna sjö fegurstu borgarstæða í heimi.
Verð: 186.200 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
eh
f.
Bergljót Friðriksdóttir
beggof@gmail.com
É
g hef alltaf verið mikið
náttúrubarn og gerðist
snemma umhverfis-
verndarsinni,“ segir
Viktoría Gilsdóttir,
jarðfræðingur og raunvísindakenn-
ari við Tjarnarskóla, en hún hefur
aldrei átt bíl og fer allra sinna ferða á
hjóli. „Þegar ég var níu ára fékk ég
bókina Dalur dýranna í jólagjöf frá
systur minni og hún átti eftir að hafa
mikil áhrif á mig. Bókin er bæði fög-
ur og fróðleg en hún fjallar um út-
dauðar dýrategundir og dýr í útrým-
ingarhættu. Þarna kviknaði strax
áhugi minn á dýravernd og ég drakk
bókstaflega allt í mig sem tengdist
efninu. Með tímanum bættist svo hitt
við og ég var orðin mjög meðvituð
um umhverfisvernd á mennta-
skólaárunum.“
Viktoría er fædd á Neskaupstað
og ólst þar upp í stórum syst-
kinahópi. Hún segir uppeldið hafa
mótað sig en foreldrar hennar hafi
alltaf lagt á það ríka áherslu að um-
gangast náttúruna af virðingu. „Mér
var kennt að bera ábyrgð á sjálfri
mér og hlúa að umhverfi mínu. Móð-
ir mín tíndi villigrös, jurtir og þara
og bjó til krem, sápu, hárnæringu og
fleira. Ég hef því alltaf valið að nota
náttúrulegar afurðir og bý jafnvel til
mínar eigin snyrtivörur frá grunni.
Faðir minn var mikill útivistarmaður
og tók okkur systkinin með í berja-
mó, fjallgöngur og á skíði. Ég hef
alltaf notið þess að vera úti í nátt-
úrunni og stunda sjósund og fjall-
göngur, auk þess að hjóla daglega út
um alla borg.“
Pælingar pennavina
Viktoría kveðst hafa skorið sig
nokkuð úr vinahópnum á Neskaup-
stað sökum áhuga síns á náttúru-
vernd, en aftur á móti hafi hún eign-
ast vini erlendis sem voru á sömu
línu. „Ég átti nokkra pennavini á
unglingsárunum, meðal annars í
Noregi, Frakklandi og Bandaríkj-
unum, og foreldrar þeirra voru virkir
í Greenpeace og fleiri umhverfis-
verndarsamtökum. Í bréfunum
sögðu þau mér frá áhuga sínum á
verndun náttúrunnar, það var gam-
an og fræðandi að skrifast á við
krakka sem áttu svipuð áhugamál og
ég.“ Spurð út í hjólreiðarnar segist
Viktoría aldrei hafa átt bíl, hjólið hafi
alltaf verið hennar fararskjóti og það
hafi vakið furðu sumra. „Þegar ég
flutti suður til Reykjavíkur og hóf
nám í jarðfræði við Háskóla Íslands
kynntist ég til dæmis erlendum há-
skólanemum, sem komu hingað í
sumarvinnu í gegnum alþjóðleg há-
skólasamtök. Þeir voru undrandi á
mér og sögðu að ég væri ekki dæmi-
gerður Íslendingur þar sem ég væri
alltaf á hjóli og með vatnsflösku í far-
teskinu. Ég hjóla allan ársins hring
og get ekki hugsað mér lífið án þess.
Þar með takmarka ég notkun mína á
eldsneyti eins og kostur er og fæ að
auki mjög mikla og góða hreyfingu,
en ég bý í Sundahverfi og vinn í mið-
bænum.“
Rekjanleg framleiðsla
Aðspurð segist hún samvisku-
samlega flokka allan úrgang og skila
í endurvinnslustöðvar, eins og kostur
er. „Ég vil leggja mitt af mörkum til
Kettir á kóngafæði
og klósettþjálfaðir
Viktoría Gilsdóttir fékk brennandi áhuga á náttúruvernd strax á unglingsárun-
um. Hún fer allra sinna ferða á hjóli, flokkar rusl, neytir lífrænnar fæðu, útbýr
hráfóður ofan í kisurnar og hefur kennt þeim að nota salernið.
Morgunblaðið/Eggert
Klósettköttur Kettirnir hennar Viktoríu eru flinkir að nota salernið.
Árið 2014 skipar sérstakan sess í
hugum og hjörtum þeirra sem eru
með Mustang-bakteríuna. Í ár eru
nefnilega fimmtíu ár síðan Ford
Mustang var fyrst framleiddur. Með-
limir Íslenska Mustang-klúbbsins
fagna þessum tímamótum í sam-
starfi við Brimborg með veglegri
Mustang-sýningu. Undanfarin ár hef-
ur slík sýning verið haldin á þessum
árstíma og hver sýning hefur ákveðið
þema. Í ár er sýningin vissulega til-
einkuð afmælisárinu og af því tilefni
verða 50 bílar á sýningunni. Sýningin
verður á tveimur hæðum, í Ford-sal
Brimborgar og í kjallaranum. Hún
hefst í dag klukkan 11 og stendur í
tvo daga. Báða dagana verður opið
frá kl. 11-16 og er ókeypis inn.
Hér er einstakt tækifæri til að
skoða fegurstu eintök þessa merka
bíls og sömuleiðis til að kynna sér
starfsemi Mustang-klúbbsins.
Vefsíðan www.mustang.is
Morgunblaðið/Ómar
Stórsýning Áhugafólk um fagra bíla ætti að leggja leið sína í Brimborg um
helgina því þar verða 50 Ford Mustang til sýnis í tilefni 50 ára afmælis bílsins.
Hátíð allra unnenda Mustang
Í dag á milli klukkan 14 og 16 verður
nokkuð um að vera í listsmiðju
Gerðubergs. Í tilefni af frímerkjasýn-
ingunni Merkileg merki er börnum og
foreldrum boðið að koma og útbúa
eigið sendibréf, setja á það merkilegt
frímerki og setja í póstkassa sem
komið hefur verið fyrir í Gerðubergi.
Pósturinn kemur sendibréfunum til
skila. Listasmiðjan er á dagskrá
Barnamenningarhátíðar í Reykjavík.
Á staðnum gefst ungum sem öldnum
tækifæri til að læra sitt lítið af hverju
um frímerki, sögu þeirra og hönnun
og hvernig best er að standa að frí-
merkjasöfnun.
Endilega ...
... njótið list-
smiðjunnar
Ljósmynd/Kristín Þóra Guðbjartsdóttir
Listsmiðja Allir fá að útbúa sendi-
bréf í listsmiðjunni í Gerðubergi í dag.
spilsins að liðin leysi eina þraut í öll-
um fimm flokkum og komist svo inn
í miðjuna þar sem lokaþrautin er
leyst.
Þrautirnar eru sem fyrr segir með
ýmsu móti en um hverja þeirra gildir
það sama: Að liðin leysi þrautina á
30 sekúndum í mesta lagi. Hér reyn-
ir á liðsheildina og hversu snöggir
leikmenn eru að átta sig. Eðli máls-
ins samkvæmt getur mönnum hitn-
að í hamsi og töluvert líf færst í
leikinn þegar liðin keppa um að ráða
þrautirnar á svo knöppum tíma!
Aldur: 14 +
Verð: Frá 5.995 kr.
Sölustaðir: Hagkaup, Elko, Spila-
vinir og helstu bókaverslanir.
Fyrir tuttugu árum síðan kom fyrsta
Party & Co spilið út hjá Jumbo. Síð-
an þá hefur það komið í ýmsum út-
gáfum og fyrir ýmsa aldurshópa. Í
tilefni tuttugu ára afmælisins kom
spilið nýverið út í sérstakri viðhafn-
arútgáfu og því ekki úr vegi að taka
það til nánari skoðunar og rifja upp
út á hvað það gengur. Leikmenn
geta verið frá fjórum til tuttugu en
leikmönnum er skipt í lið og geta
tveir til fimm verið í hverju liði.
Party & Co er teningaspil og geta
liðin lent á reitum merktum einum
af fimm flokkum spilsins: Vöru-
merki, Látbragð og hljóð, spurning,
teikna og bannorð. Þar rata liðin í
ýmiss konar þrautir og er markmið
Spil vikunnar: Party & Co
Rífandi stemning og kátína
Endurútgáfa Spilið Party & Co er tuttugu ára á þessu ári.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Á morgun, sunnudaginn 4. maí, er al-
þjóðlega hláturdeginum fagnað í
meira en 70 löndum og þar er Ísland
ekki undanskilið. Hláturganga verður
farin í Laugardalnum og verður geng-
ið frá gömlu þvottalaugunum klukk-
an 13. Hláturjógakennarinn Ásta
Valdimarsdóttir og fleiri hlátur-
jógaleiðbeinendur leiða hópinn og
kenna hláturæfingar. Markmið hlát-
urjóga, sem gjarnan er kennt við dr.
Madan Kataria, er að efla frið í heim-
inum með því að senda jákvæða og
glaðlega strauma út í samfélagið.
Hláturdagurinn er á morgun
Ljósmynd/Laughter Yoga International
Gleði Kátur hópur í hláturjógatíma.
Hláturganga