Morgunblaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2014
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér
nánari upplýsingar um prófið og dæmi um
prófspurningar sem finna má á heimasíðu
Læknadeildar, www.laeknadeild.hi.is
HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ
Inntökupróf í Læknadeild HÍ
Læknisfræði og sjúkraþjálfun
Inntökupróf í Læknadeild Háskóla Íslands fyrir nám í læknisfræði og sjúkraþjálfun
verður haldið í Reykjavík miðvikudaginn 11. og fimmtudaginn 12. júní 2014.
Nánari upplýsingar verða sendar próftakendum eftir að skráningu er lokið.
Þátttakendur þurfa að skrá sig sérstaklega í inntökuprófið og er skráning opin
til og með 20. maí 2014. Skráning fer fram á netinu, www.laeknadeild.hi.is
Próftökugjald er 20.000 kr.
Þegar inntökuprófið er þreytt skal nemandinn hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sam-
bærilegu prófi og skilað inn staðfestingu því til sönnunar. Umsóknin telst því ekki gild
fyrr en staðfest afrit af stúdentsprófsskírteini eða rafrænt stúdentsprófsskírteini úr Innu
hefur borist skrifstofu Nemendaskrár Háskóla Íslands, Háskólatorgi, Sæmundargötu 4,
101 Reykjavík.
Skráning í inntökuprófið getur farið fram þótt nemandi hafi ekki lokið stúdentsprófi en
þá skal skila staðfestingu til Nemendaskrár Háskóla Íslands um að stúdentsprófi verði
lokið áður en inntökupróf hefst. Staðfesting þarf að berast eigi síðar en 20. maí 2014.
Inntökuprófið er eitt próf sem tekur tvo
daga, með þremur tveggja tíma próflotum
hvorn daginn, eða 12 klst. alls. Niðurstaða
prófsins birtist í einni einkunn sem verður
reiknuð með tveimur aukastöfum. Reiknað
er með að niðurstaða liggi fyrir ekki síðar
en um miðjan júlí.
Árið 2014 fá 48 nemendur í læknisfræði og
35 í sjúkraþjálfun rétt til náms í Læknadeild
Háskóla Íslands og skulu þeir hafa skráð sig
hjá Nemendaskrá fyrir 1. ágúst. Þeir sem ekki
öðlast rétt til náms í Læknadeild, eiga þess
kost að skrá sig, innan sömu tímamarka, í
aðrar deildir gegn greiðslu skrásetningar-
gjalds skv. reglum Háskóla Íslands.
Birkir Fanndal
Mývatnssveit
Aðalfundur Sparisjóðs Suður-
Þingeyinga var haldinn í Skjól-
brekku. Fram kom í skýrslu Ara
Teitssonar stjórnarformanns að
rekstur hefði verið vel viðunandi
2013. Hagnaður eftir skatta var 35
milljónir króna sem er 9% af eigin fé.
„Það hlýtur að vera okkur hvatn-
ing að geta sýnt fram á sama hagnað
hlutfallslega og stóru bankarnir í
Reykjavík,“ sagði Ari. Nýr spari-
sjóðsstjóri hóf störf um sl. áramót,
Anna Karen Arnarsdóttir, og bauð
Ari hana velkomna.
Ari sagði ennfremur að vilji stæði
til aukins samstarfs við nágranna-
sparisjóði og sagðist binda vonir við
að slíkt samstarf gæti styrkt spari-
sjóðinn í útlánagetu og dregið úr
áhættu í rekstri.
Standi áfram uppréttir
Varðandi sameiningar sagði Ari
fjórar leiðir í stöðunni án þess að
stjórnin legði fram tillögu fyrir fund-
inn. Indriði Ketilsson á Ytra-Fjalli
lýsti eflaust skoðun margra fund-
armanna er hann sagði að „best færi
á að við reyndum að standa áfram
uppréttir og sjálfstæðir – þó vil ég
engan veginn mæla á móti ef góðir
kostir bjóðast til samstarfs“.
Í lok ræðu sinnar sagði Ari rekstr-
arhorfur síst lakari en undanfarin ár.
Hann þakkaði starfsfólki vel unnin
störf og þá sérstaklega Önnu Dóru
Snæbjörnsdóttur sem gekk í starf
sparisjóðsstjóra, jafnframt sínu eig-
in, um tveggja ára skeið.
Anna Karen Arnarsdóttir spari-
sjóðsstjóri skýrði því næst reikninga
sjóðsins: Eignir eru samtals 6.588
milljónir króna, skuldir 6.159 mkr og
eigið fé 428,7 mkr.
Farið var vel yfir starfsmanna-
stefnu sjóðsins og kom þar fram
meðal annars að engar árangurs-
tengdar greiðslur skulu greiddar
einstökum starfsmönnum spari-
sjóðsins og þeir skulu ekki njóta sér-
kjara við kaup eða sölu stofnfjár-
bréfa sjóðsins.
Sú hefð hefur skapast að sjóðurinn
styrki einn aðila í héraði á hverjum
aðalfundi. Ari Teitsson tilkynnti þá
ákvörðun sparisjóðsstjórnar að Hér-
aðssamband Þingeyinga fengi nú
eina milljón króna í styrk fyrir mik-
ilvægt starf við „ræktun lýðs og
lands“. Formaður HSÞ, Jóhanna
Kristjánsdóttir, tók við viðurkenn-
ingunni.
Við stjórnarkjör voru allir sem
gáfu kost á sér endurkjörnir en áður
hafði funarstjóri, Margrét Hólm
Valsdóttir, beðist undan endurkjöri í
stjórn. Í stjórn Sparisjóðs SÞ eru nú:
Ari Teitsson, Dagbjört Jónsdóttir,
Reinhard Reynisson, Baldur Daní-
elsson og Þórhallur Hermannsson.
Fundurinn var vel sóttur úr nær-
sveitum og mikill einhugur var á
fundinum.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Í Skjólbrekku Anna Karen Arnarsdóttir sparisjóðsstjóri, Margrét Hólm
Valsdóttir fundarstjóri og Ari Teitsson stjórnarformaður á aðalfundinum.
Sama hlutfall og
hjá þeim stóru
Hagnaður Sparisjóðs SÞ var 9% af
eigin fé Engir bónusar greiddir
Kristinn Ingi Jónsson
Stefán Gunnar Sveinsson
Kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um
að blaðamanni, sem var vitni í hinu svokallaða
lekamáli, yrði gert að svara spurningum um tilurð
fréttar var hafnað af Hæstarétti í gær og staðfesti
rétturinn þar með úrskurð Héraðsdóms Reykja-
víkur í sama máli.
Í frétt blaðamannsins, sem birtist á mbl.is hinn
20. nóvember síðastliðinn, var vísað til trúnaðar-
gagna sem bárust fjölmiðlum um málefni tveggja
hælisleitenda. Jafnframt var fjallað um málið í
Fréttablaðinu og á fréttasíðunni Vísi.is.
Lögreglustjórinn óskaði eftir því við héraðsdóm
að vitnið yrði látið svara því hver hefði skrifað
frétt vefsins, mbl.is, um mál tveggja hælisleitenda.
Héraðsdómur hafnaði kröfu hans. Kærði lögreglu-
stjóri úrskurðinn til Hæstaréttar 10. apríl sl.
Leitaði ekki allra leiða til að upplýsa málið
Í hinum kærða úrskurði héraðsdóms var talið
að lögreglustjórinn hefði ekki leitað allra leiða sem
færar væru til að upplýsa málið en farið var fram á
að vitnið svaraði spurningum lögreglu. Af þeim
sökum hefði lögreglustjórinn ekki fært fyrir því
viðhlítandi rök að nauðsyn bæri til þess að grípa til
úrræðis 3. mgr. 119. gr laga nr. 88/2008 um með-
ferð sakamála, en samkvæmt þeirri grein getur
dómari ákveðið, ef hann telur að vitnisburður geti
ráðið úrslitum um niðurstöðu máls, að vitni skuli
svara spurningum um tiltekin atriði, þó að trún-
aður ætti annars að ríkja.
Hefði átt að leggja fram beiðni öðru sinni
Eftir að héraðsdómur kvað upp úrskurð sinn
aflaði lögreglan frekari gagna í tengslum við rann-
sókn málsins og fékk fleiri aðila í skýrslutökur.
Taldi lögreglustjórinn að við svo búið væru úr vegi
þær hindranir sem héraðsdómur taldi vera við því
að lagt yrði mat á hvort skilyrði 3. mgr., sbr. a. lið
2.mgr. 119. gr. laga nr. 88/2008.
Hæstiréttur taldi á hinn bóginn að eftir öflun
fyrrgreindra gagna hefði lögreglustjórinn átt að
leggja beiðni sína um skýrslutöku vitnisins fyrir
dómi öðru sinni fyrir héraðsdóm, en ekki að kæra
úrskurð héraðsdóms til að fá leyst úr kröfunni.
Það væri hlutverk Hæstaréttar að endurskoða úr-
lausn héraðsdóms, en ekki að leysa úr máli á
fyrsta dómstigi.
Staðfesti Hæstiréttur því hinn kærða úrskurð
og dæmdi varnaraðila málskostnað sem greiðast
skuli úr ríkissjóði.
Blaðamanni ekki gert að
svara spurningum lögreglu
Hæstiréttur staðfestir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í svonefndu lekamáli
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hæstiréttur Blaðamanni mbl.is verður ekki gert
að svara spurningum lögreglu um lekamálið.
Erlend gönguskíðakona datt og
slasaðist á Seljalandsdal eftir há-
degið í gær. Björgunarfélag Ísa-
fjarðar var kallað til aðstoðar og
fór á staðinn með vélsleða og sleða-
vagn. Þegar sveitin kom á slysstað
voru þar sjúkraflutningamenn er
höfðu verið fluttir upp á snjótroð-
ara skíðasvæðisins. Björg-
unarmenn fluttu konuna niður að
sjúkrabíl sem beið við skíðaskál-
ann, um 2,5 km frá slysstað. Ekki er
vitað nánar um ástand konunnar en
hún var ekki talin í lífshættu, að því
er fram kemur á vef Landsbjargar.
Datt og slasaðist á
Seljalandsdal
Brot 18 ökumanna voru mynduð á
Austurbrún í Reykjavík í gær.
Fylgst var með ökutækjum sem var
ekið Austurbrún í suðurátt, á milli
Dragavegar og Hólsvegar. Á einni
klukkustund, eftir hádegi, fóru 58
ökutæki þessa akstursleið og því ók
næstum þriðjungur ökumanna, eða
31%, of hratt. Meðalhraði hinna
brotlegu var 48 km/klst en þarna
er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á
50 km hraða eða meira en sá sem
hraðast ók mældist á 64.
Þriðjungur öku-
manna ók of hratt