Morgunblaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 12
Verkefnið með lirfur svörtu hermannaflug-
unnar lítur mjög vel út að sögn Jóns, lirfurnar
nýti ætið mjög vel og alveg ljóst að eitthvað
verði úr því verkefni. „Lirfurnar minnka um-
fang úrgangsins um 40% til 90%, háð því
hvaða æti þeim er boðið. Það sem eftir verð-
ur er kjörinn áburður og svo verða lífverurnar
sjálfar fóður,“ segir Jón.
„Annað stórt svið sem menn eru áhuga-
samir um er að nota smáþörunga sem upp-
sprettu að nær-
ingarefnum í
fóður fyrir
fiska. En það er
ekki komið eins
langt á veg og
annað sem við
höfum verið að skoða. Það er mikið verið að
vinna með þessa þörunga en það er allt á
frumtilraunastigi ennþá.“
Smáþörungar í skoðun
ÝMIS VERKEFNI Í GANGI
Svarta hermannaflugan.
Medical doctors
Work available for 1-2 full time GPs in community health
care centre, Vanylven, Norway.
For more information please meet us at European job days
at Harpa, Saturday 10.05.14 or at Hotel Arnarhvoll Thursday
08.05.14, 19.00 o’clock. Ask for Arnhild Nordaune.
You can also get in touch with us through the following links:
Arnhild.nordaune@vanylven.kommune.no
www.vanylven.kommune.no.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2014
rænum og ólífrænum úrgangi sem er illa
nýttur. „Mengun er í mörgum tilfellum gott
efni sem er statt á röngum stað. Það þarf að
taka þetta efni og umbreyta því í einhvern
massa sem við getum notað til góðs eins og í
fiskifóður,“ segir Jón.
Fóðurkostnaður í fiskeldi í dag er um
helmingurinn af framleiðslukostnaði á eld-
isfiski og því leita menn allra leiða til að búa
til fóður á sem hagkvæmastan hátt. „Takist
að gera fóðrið ódýrara hefur það mest og
beinust áhrif á framleiðslukostnaðinn í eld-
inu því prótein er dýrasta næringarefnið í
fóðrinu,“ segir Jón. Ákveðinn hluti dýrapró-
teins verður að vera í fiskifóðri og eru t.d
hermannaflugu lirfur og sveppamassinn úr
timbrinu með nánast sömu amínósýrusam-
setningu og dýraprótein og því hægt að
skipta út fiskimjölinu fyrir þessa prótein-
gjafa. Um 15% af fiskifóðri í dag er fiski-
mjöl, 10% lýsi og restin kemur úr jurtarík-
inu eins og sojamjöl, hveitiglúten,
sólblómamjöl og repjuolía. Jón segir að til
mikils sé að vinna að geta skipt út fiskimjöl-
inu fyrir aðra próteingjafa en verð á pró-
teini mun hækka í framtíðinni og því þurfi
að finna allar mögulegar leiðir til að finna
hagkvæma próteingjafa í fóðrið.
Nýta vannýtt hráefni í fiskafóður
Matís finnur leiðir til að nýta margvíslegan úrgang í fóður fyrir eldisfiska Próteinmassi búinn til úr
timburafgöngum og örverur ræktaðar í brennisteinsvetni frá Hellisheiðarvirkjun Tilraunir ganga vel
Morgunblaðið/Eggert
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Úrgangur frá timburverksmiðjum í Svíþjóð
og öruverumassi sem er ræktaður í jarð-
hitagasi frá Hellisheiðavirkjun gæti orðið
úrvalsfóður fyrir eldisfiska í framtíðinni ef
tilraunir Matís ganga vel.
Hjá Matís eru í gangi ýmiskonar verkefni
sem snúa að því að finna leiðir til að nýta
vannýtt hráefni og búa til fóður fyrir bæði
menn og dýr. Sagt var frá því í Morg-
unblaðinu nýverið að brátt hæfist rekstur
fóðurskordýrabús á Vestfjörðum þar sem
lirfa svörtu hermannaflugunnar yrði látin
éta lífrænan úrgang og enda síðan sjálf
þurrkuð í fóður fyrir eldisfiska en lirfan er
mjög próteinrík. Matís stendur á bak við
það verkefni en fleira slíkt er í gangi eins og
blaðamaður komst að þegar hann heimsótti
Jón Árnason, sérfræðing í fóðurfræði fiska,
og Ragnar Jóhannsson, fagstjóra við-
skiptaþróunarsviðs, í höfuðstöðvum Matís í
Grafarholti í gær.
Bakteríur sem lifa á gasi
„Við höfum verið að vinna með sænsku
fyrirtæki að því að nýta afganga frá timb-
urvinnslu til að búa til próteinmassa. Í
timbri eru skrítnar sykrur, við látum tvær
gerðir af myglusveppum í timburúrganginn
og þeir nota sykurinn sem sína orkuupp-
sprettu og búa til lífmassa sem er prótein.
Massinn er þurrkaður og blandað saman við
annað hráefni í fiskifóðri í staðinn fyrir
fiskimjöl. Þetta var fyrst prófað á tilapíu og
það kom vel út, þetta er mjög góður prótein-
gjafi og núna erum við að útbúa fóður fyrir
bleikju úr þessum massa,“ segir Ragnar en
fjöldi timburverksmiðja er í Svíþjóð og kjör-
ið tækifæri að búa til verðmæti úr úrgangi
frá þeim.
Hitt verkefnið snýr að nýtingu brenni-
steinsvetnis frá Hellisheiðavirkjun. Þá var
ræktaður örverumassi úr hveragufunum en
gasið getur virkað sem orkugjafi fyrir sér-
hæfðar bakteríur. „Bakteríurnar lifa á gas-
inu, þær vaxa og eru síðan uppskornar og
þurrkaðar og notaðar í fiskifóður,“ segir
Ragnar. Því verkefni lauk nýverið eftir
tveggja ára tilraun og kom það ágætlega út,
um framtíðar fiskifóður gæti verið að ræða.
„Drifkrafturinn á bak við þessi verkefni
er að nýta eitthvað sem er vannýtt í dag og
fá gott hráefni, umbreyta því í eitthvað nýti-
legt t.d. fóður fyrir fiska eða mannamat.
Matur er ekki sjálfsagður hlutur í heiminum
í dag og það þarf að hugsa um þetta,“ segir
Jón.
Mikill vöxtur er í fiskeldi á Íslandi og víð-
ar í heiminum og til þess þarf fóður, þá er
um að gera að nýta það mikla magn af líf-
Tilraunir Ragnar Jóhannsson, fagstjóri
viðskiptaþróunarsviðs, og Jón Árna-
son, sérfræðingur í fóðurfræði fiska, í
höfuðstöðvum Matís í Grafarholti. Þeir
koma að ýmiskonar tilraunum með
fóðrun fiska sem Matís vinnur að.
Kaupum alla bíla
Hærra uppítökuverð
Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með
fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum.
Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is
og við sendum þér staðgreiðslutilboð
þér að kostnaðarlausu.