Morgunblaðið - 03.05.2014, Page 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2014
Caput | Þóra Einarsdóttir | Geoffrey Douglas Madge
Pringipessa Orchestra | Örn Árnason kynnir
Þér er boðið á
tónleika!
Evrópusambandið fjármagnar
starfsemi Evrópustofu.
Í tilefni af Evrópudeginum 2014 stendur Evrópustofa fyrir
GRÍSKRI TÓNAGLEÐI
í Eldborgarsal Hörpu, föstudaginn 9. maí kl. 20:00
Caput flytur verk eftir Nikos
Skalkottas og grísk þjóðlög í
útsetningu Maurice Ravel. Hinn
heimsþekkti ástralski píanóleikari,
Geoffrey Douglas Madge kemur
fram með Caput ásamt hinni
ástsælu sópransöngkonu
Þóru Einarsdóttur.
Eftir hlé stígur gríska hljómsveitin
Pringipessa Orchestra á svið og
leikur lög eftir þjóðlagaskáldið
Vasílis Tsitsánis sem almennt er
talinn eiga mestan þátt í þróun
grískrar tónlistarhefðar sem
kallast rebétiko.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis
og hægt er að tryggja sér miða hjá miðasölu Hörpu.
Rebétiko í Reykjavík
Skalkottas & Ravel
Nánari upplýsingar á evropustofa.is
SENDINEFND
ESB Á ÍSLANDI
Á morgun, sunnudaginn 4. maí
klukkan 15, verður opið hús hjá
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur að
Hátúni 12b í austurenda hússins.
Sett verður upp sögusýning um
stofnun Mæðrastyrksnefndar í kjöl-
far strands Jóns forseta undan
Stafnesi 28. febrúar 1928 og fleiri
sjóslysa sem urðu um svipað leyti.
Með Jóni forseta fórust 15 sjómenn
af 25 og með öðrum skipum fóru
heilu áhafnirnar í sjóinn. Mæður
urðu ekkjur, börn misstu feður sína
og aldraðir foreldrar fyrirvinnur.
Til að mæta sárri neyð á fjölda
heimila stóðu kvenfélög í Reykjavík
að stofnun Mæðrastyrksnefndar.
Hún hefur starfað óslitið síðan. „Og
þörfin er alltaf brýn þrátt fyrir fé-
lagslegar umbætur í áranna rás. Nú
fyrir páska þáðu til dæmis rúmlega
900 heimili mataraðstoð,“ segir í
tilkynningu.
Togarinn Jón forseti RE 108.
Mæðrastyrksnefnd
verður með opið hús
Handverkshóp-
urinn Vina-
bandið heldur
sýningu á búta-
saumsteppum í
félagsmiðstöð-
inni Afla-
granda 40 í
Reykjavík dag-
ana 3.-11. maí. Um er að ræða svo-
kölluð sýnishornateppi, saumuð eft-
ir bók hönnuðarins Lynne
Edwards, „New Sampler Quilt“.
Hvert teppi er 20 blokkir og hver
blokk er unnin með sérstakri
saumaaðferð.
Í Vinabandinu eru um 20 konur
sem hafa komið saman vikulega í
nokkur ár og saumað.
Sýningin á Aflagranda er opin
virka daga kl. 9-16 og kl. 13-17 um
helgar. Kaffistofan verður opin á
sama tíma.
Vinabandið sýnir
bútasaumsteppi
Í dag, laugardaginn 3. maí, verður
haldinn flóamarkaður á Eiðistorgi
á Seltjarnarnesi milli kl. 11 og 17.
Markaðurinn hefur verið haldinn
fyrsta laugardag í hverjum mánuði
í nokkurn tíma og nýtur aukinna
vinsælda. Markaðurinn er að
danskri fyrirmynd þar sem fólk
kemur með kompudót, handverk,
listmuni, föt, skartgripi, búsáhöld,
borðbúnað, lampa, myndaramma,
leikföng, bækur húsgögn og fleiri
hluti. Stefnt er að því að gera þenn-
an markað að föstum viðburði á
Eiðistorgi.
Flóamarkaður að
danskri fyrirmynd
Meirihlutinn í borgarstjórn virðir
ekki samkomulagið sem gert var um
sáttaferli Reykjavíkurflugvallar í
október í fyrra. Þetta segja samtökin
Hjartað í Vatnsmýri.
„Fyrst og fremst leggjum við
áherslu á það að borgarbúar átti sig á
því að þessar kosningar núna snúast
um Reykjavíkurflugvöll öðru frem-
ur,“ segir Friðrik Pálsson, annar for-
manna Hjartans í Vatnsmýri, á blaða-
mannafundi í gær.
Á fundinum sögðu forsvarsmenn
samtakanna að borgin réðist á flug-
völlinn á þrennum vígstöðvum sam-
tímis. Í fyrsta lagi með skipulagningu
byggðar á Hlíðarenda, sem samtökin
segja að muni eyðileggja neyðarbraut
flugvallarins. Í öðru lagi standi til að
rífa flugskýli og -skóla í Fluggörðum
árið 2015 og í þriðja lagi sé gerð árás á
flugvöllinn Skerjafjarðarmegin, þar
sem samþykkt hafi verið skipulag og
tilkynnt um byggð sem eigi að rísa á
neyðarbraut vallarins við Skerjafjörð.
Reykjavíkurborg sendi í gær frá
sér tilkynningu þar sem fullyrt er að
borgin hafi virt samkomulag við inn-
anríkisráðuneytið og Icelandair um
innanlandsflug í einu og öllu. Segir
borgin að nýtt deiliskipulag fyrir
Reykjavíkurflugvöll sé í fullu sam-
ræmi við samkomulagið og það séu
uppbyggingaráform Valsmanna á
Hlíðarenda einnig. Borgarráð hafi
gert sérstaka bókun um að við mótun
skipulags í Skerjafirði verði horft til
niðurstöðu nefndar sem nú er að
störfum undir forystu Rögnu Árna-
dóttur.
Friðrik sagðist í gær telja unnt að
ná millilendingu í flugvallarmálinu.
„En þá verða menn að tala um sama
hlutinn. Það er dálítið merkilegt með
þetta mál að borgaryfirvöld tala um
þetta sem skipulagsmál, og bygginga-
mál í Reykjavíkurborg. En allir aðrir
en þeir sem hafa þrengstu hagsmuni
um að koma þessum velli í burtu líta á
þetta sem stærsta samgöngumál og
öryggismál þjóðarinnar.“
Segja kosið um flugvöllinn
Morgunblaðið/Þórður
Á flugvellinum Friðrik Pálsson og Njáll Trausti Friðbertsson, forsvars-
menn Hjartans í Vatnsmýri, á blaðamannafundi í gær.