Morgunblaðið - 03.05.2014, Page 25
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2014
SPARNEYTINN OG SPORTLEGUR.
Enginn annar bílaframleiðandi hefur jafn staðfastlega og jafn lengi leitað nýrra leiða til að draga úr eldsneytiseyðslu og
BMW. Það er komið að þér að upplifa BMW gæði, sparneytni og afl. BMW 116d með 116 hestafla dísilvél er skemmtilegur
millistærðarbíll sem sameinar alla helstu kosti BMW. Við bjóðum þig velkominn að reynsluaka og upplifa BMW.
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
2
18
8
*Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.
Less emissions. More driving pleasure.
BMW 116d – 4,1 l/100 km*
Verð frá 4.490.000 kr.
OPIÐ Í DAG FRÁ 12-16
Hrein
akstursgleði
BMW 1
www.bmw.is
STUTTAR FRÉTTIR
● Stjórn breska lyfjafyrirtækisins
AstraZeneca hefur hafnað yfirtöku-
tilboði bandaríska lyfjarisans Pfizer.
Hljóðaði tilboðið upp á 50 pund á hlut
en miðað við það er AstraZeneca met-
ið á um 106 milljarða Bandaríkjadala,
jafnvirði ríflega 12.000 milljarða króna.
Tilboð Pfizer var sett fram í gær-
morgun en það er um 6 milljörðum
dala hærra en fyrra tilboð félagsins.
Fram kemur í tilkynningu frá Astra-
Zeneca að tilboðsfjárhæðin og önnur
skilyrði sem eru í yfirtökutilboðinu séu
ófullnægjandi en að mati stjórnar fé-
lagsins er verðmatið allt of lágt. Yfir 50
þúsund manns starfa hjá AstraZeneca
og um 70 þúsund hjá Pfizer, sem er
stærsta lyfjafyritæki Bandaríkjanna
mælt í tekjum.
Hafna 106 milljarða
dala tilboði Pfizer
Mat stjórnenda Arion banka er að
ekki sé tímabært fyrir bankann að
sækja lánsfé á alþjóðlega skulda-
bréfamarkaði. Þótt eftirspurn sé eft-
ir bréfum eru kjörin sem bjóðast enn
sem komið er ekki ásættanleg. Því sé
skynsamlegra að doka við og bíða
betra markaðstækifæris.
Nýlega undirritaði Arion banki
rammasamning fyrir skuldabréf á
alþjóðlegum markaði, svokölluð
„Euro-medium term notes“
(EMTN), við hóp alþjóðlegra banka.
Í framhaldi af því var hafinn undir-
búningur að því að gefa út fyrstu
skuldabréfin undir rammasamn-
ingnum og var þremur bönkum falin
umsjón útgáfunnar. Stefnan var sett
á útgáfu skuldabréfa til þriggja ára
að fjárhæð allt að 300 milljónir evra,
eða um 47 milljarða króna.
Stefnt undir 300 punkta
Við undirbúning skuldabréfa-
útgáfunnar voru haldnir fundir með
fjárfestum í London, Kaupmanna-
höfn, Stokkhómi og Helsinki. Þrátt
fyrir að Arion banki stefndi að út-
gáfu lá ljóst fyrir að það væri háð því
að kjör og markaðsaðstæður væru
viðunandi. Þau kjör sem bankinn
hafði upphaflega í huga voru innan
við 300 punkta álag á Euribor-milli-
bankavexti. Nú liggur fyrir að þau
kjör bjóðast ekki við núverandi
markaðsaðstæður.
Að sögn Eiríks Magnúsar Jens-
sonar, forstöðumanns fjármögnunar
hjá Arion banka, hefur verið stefnt
að skuldabréfaútgáfu um nokkurt
skeið sem hluta af áætlun til lengri
tíma. „Það hefur verið töluvert um
útgáfur að undanförnu frá bönkum
frá Írlandi, Portúgal og nú síðast
Grikklandi. Vaxtaálag þessara
skuldabréfa hefur smám saman ver-
ið að færast neðar, en í sömu viku og
við áttum okkar fundi kom grískur
banki á markaðinn þar sem ávöxt-
unarkrafan hækkaði verulega eftir
útgáfu. Jafnframt hefur óróleikinn í
Úkraínu haft neikvæð áhrif á mark-
aðinn.“
Kennitölur bankans sterkar
Að sögn Eiríks kom í ljós þegar
umsjónarbankar útgáfunnar könn-
uðu þau kjör sem myndu bjóðast við
núverandi markaðaðstæður að þau
voru ekki í samræmi við það sem lagt
hafði verið upp með. Bankinn sé
samt ekki hættur við útgáfu heldur
ætlar hann að bíða að minnsta kosti
fram eftir ári, enda ekki brýn þörf á
endurfjármögnun.
Í því sambandi má geta þess að í
tengslum við rammasamkomulag
um stofnfjármögnun Arion banka
frá árinu 2009 veitti ríkið bankanum
víkjandi lán í evrum að fjárhæð tæp-
lega 30 milljarðar króna til 10 ára.
Víkjandi lánið ber 400 punkta álag á
Euribor-vexti fyrstu fimm árin og
500 punkta álag eftir það.
„Fjárfestum líst almennt vel á
bankann. Íslensku bankarnir eru um
þessar mundir á meðal fjárhagslega
sterkustu banka þegar litið er til
helstu kennitalna. Helstu áhyggjur
snúa hins vegar að smæðinni og svo
að sjálfsögðu gjaldeyrishöftunum,“
segir Eiríkur.
Arion fékk ekki viðunandi
kjör á 47 milljarða útgáfu
Hækkun ávöxtunarkröfu og órói í Úkraínu á meðal ástæðna þess að Arion banki
sló skuldabréfaútgáfu á frest Hugsanlega ráðist í útgáfuna síðar á þessu ári
Alþjóðleg skuldabréf Arion banki taldi ekki grundvöll til þess að gefa út
300 milljóna evra skuldabréf til þriggja ára við núverandi markaðskjör.
!"#
!#
$
"#
$
! #
##
%%%"
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
$"
!#
!
%
"#
$
!"
"
%#$
"
!!#
!
"
#
! %
"$
%%
!%#%
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á