Morgunblaðið - 03.05.2014, Page 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2014
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Laugardagstilboð
– á völdum glösum
Komdu í verslun RVog sjáðu glæsilegtúrval af glösum fyriröll tækifæri
Cancun
Sevillia
Barista
Gem
Marguerita
Quartz
Opið laugardaga kl. 10-16
Konur til áhrifa
Vöxtur í ferðaþjónustu – tækifæri kvenna
Þriðjudaginn 6. maí kl. 12:00–13:15
Fundarstjóri er Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, varaformaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna
Framsögur halda:
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF – Samtaka ferðaþjónustunnar
Eva María Þórarinsdóttir Lange, eigandi og framkvæmdastýra Pink Iceland
Áslaug María Friðriksdóttir, borgarfulltrúi og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Konur í rekstri: framtíðin bankar upp á
Þriðjudaginn 20. maí kl. 12:00–13:15
Fundarstjóri er Þórey Vilhjálmsdóttir, formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna
Framsögur halda:
Margrét Pála Ólafsdóttir, stofnandi Hjallastefnunnar
Hanna Katrín Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Icepharma
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi og oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði
Fésbókarsíða Landssambands sjálfstæðiskvenna er:
www.facebook.com/landssambandsjalfstaediskvenna
Verð á hádegisverði er 1.900 kr
Allir hjartanlega velkomnir!
Hádegisverðarfundir Landssambands
sjálfstæðiskvenna á Nauthóli
Nansý Davíðsdóttir vann gull-
verðlaun í yngsta aldursflokki á
Norðurlandamóti stúlkna á Bifröst
um síðustu helgi. Nansý hlaut 4 ½
vinning af fimm mögulegum en hún
vann helsta keppinaut sinn í c-flokki
mótsins með svörtu í næstsíðustu
umferð. Íslendingar voru nálægt því
að hreppa einnig gullið í b-flokki og
segja má að einungis tæknileg atriði
við jafntefliskröfu hafi komið í veg
fyrir að Sóley Lind Pálsdóttir myndi
sigra þar en í úrslitaskák hennar í
fjórðu umferð kom sama staðan upp
þrisvar, en Sóley ógilti kröfuna með
því að leika fyrst og krefjast síðan
jafnteflis en reglur FIDE gera ráð
fyrir að fyrst sé leikur skráður,
klukkan stöðvuð og síðan kallað á
dómara. En Sóley Lind tefldi skák
mótsins í 2. umferð en meðal áhorf-
enda að þeirri viðureign var Illugi
Gunnarsson menntamálráðherra
sem kom á laugardagsmorguninn til
að heilsa upp á keppendur:
Sóley Lind Pálsdótir – Brandy
Paltzer (Svíþjóð)
Sikleyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 Rc6 7.
Rb3 g6 8. Be2 Bg7 9. Dd2 Be6 10. f3
O-O 11. O-O-O Re5 12. Bh6 Bxh6?!
Það er alltaf varasamt að taka
strax á h6. Þar er drottningin stór-
hættuleg en hvítur hefur sparað sér
tíma miðað við þekkt afbrigði með
því að staðsetja biskupinn á e2 en
ekki b3.
13. Dxh6 Hc8 14. h4 Dc7?
Annar slakur leikur. Fórnin á c3,
14. … Hxc3! 15. bxc3 Dc7 er eina
leiðin til að skapa mótspil.
15. h5 Rxh5 16. g4 Rf6 17. Hh2!
Útsmoginn leikur sem villir sýn á
aðalhluverki hróksins sem er að
valda c2-peðið!
17. … Hfd8 18. g5 Rh5 19. f4 Rg4
20. Bxg4 Bxg4 21. Rd5 Dd7
Meira viðnám, veitti 21. … Dc4 en
eftir 22. Rxe7+ Kh8 23. He1! stend-
ur hvítur til vinnings. En nú kemur
glæsileg leikflétta.
22. Hxh5! Bxh5 23. Rf6+! exf6 24.
gxf6 Hxc2+ 25. Kb1! Hc1+ 26. Hxc1
De8 27. Dg7 mát.
Hjörvar efstur á
Wow air-mótinu
Hjörvar Steinn Grétarsson hefur
unnið allar skákir sínar á Wow air-
móti Taflfélags Reykjavíkur. Hann
vann Hannes Hlífar Stefánsson í 4.
umferð og hefur vinningsforskot á
næsta mann sem er Dagur Arn-
grímsson. Þeir tefla saman í fimmtu
umferð. Allar líkur benda til þess að
Hjörvar komist upp fyrir Hannes
Hlífar og Héðin Steingrímsson á
næsta stigalista FIDE. Skák Hjörv-
ars og Hannesar lauk eftir aðeins 25
leiki en baneitraður 20. leikur
Hjörvars gerði í raun út um taflið:
Hjörvar Steinn Grétarsson –
Hannes Hlífar Stefánsson
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4 4.
Bd2 Bxd2 5. Rbxd2 d5 6. g3 O-O 7.
Bg2 c6 8. O-O Rbd7 9. Dc2 b6 10. e4
Rxe4 11. Rxe4 dxe4 12. Dxe4 Bb7
13. Hfd1 Dc7 14. Re5 Rxe5 15. Dxe5
Hac8 16. c5 Hfd8 17. b4 Ba6 18.
Hac1 Bb5 19. De3 a5 20. d5
20. … bxc5 21. dxe6 cxb4 22. Bh3
Hb8 23. e7 Hxd1 24. Hxd1 c5 25.
Df4!
- og Hannes gafst upp.
Enn sigrar Magnús Carlsen
Skákheimurinn rak upp stór augu
þegar Magnús Carlsen tapaði tveim
skákum í röð í fyrri helmingi minn-
ingarmótsins um Vugar Gashimov í
Aserbaídsjan. En í seinni hlutanum
vann hann strax tvær skákir með
svörtu og knésetti helsta keppinaut
sinn, Ítalann Caruana, í lokaumferð-
inni:
Lokaniðurstaðan: 1. Magnús Carl-
sen 6 ½ v. (af 10) 2. Caruana 5 ½ v.
3.-5. Karjakin, Nakamura og Radja-
bov 5 v. 6. Mamedyarov 3 v.
Nansý Davíðsdóttir
Norðurlanda-
meistari stúlkna
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
– með morgunkaffinu
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.