Morgunblaðið - 03.05.2014, Síða 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2014
Í byrjun maí 2004
rann Ávaxtabíllinn af
stað í sínar fyrstu ferðir
til fyrirtækja með sinn
ferska kost í pokahorn-
inu. Í kjölfarið átti sér
stað bylting á vinnu-
stöðum, þar sem hvert
fyrirtækið á fætur öðru
tók upp þann sið að
bjóða starfsmönnum
upp á þennan holla bita
svo þeir héldu óskertri
starfsgetu út vinnudaginn.
Árið 2008 hreppti svo Ávaxtabíllinn
Fjöreggið, en það gefur Matvæla- og
næringarfélag Íslands til þess fyr-
irtækis eða einstaklings, sem hefur
skarað fram úr á árinu á sviði mat-
væla og næringar.
Í fyrstu bauð Ávaxtabíllinn aðeins
upp á heila ávexti. Hugmyndin
byggðist á því að gera fyrirtækjum
auðvelt að panta gott úrval ávaxta
reglulega án fyrirhafnar. Ávextir í
áskrift voru útgangspunkturinn –
ákveðinn skammtur af ávöxtum, sem
kæmi reglulega í fyrirtækin á
ákveðnum dögum og viðskiptavin-
urinn gæti hæglega breytt pöntun
sinni sjálfur inni á heimasíðu Ávaxta-
bílsins.
Í framhaldi af þessu fórum við svo
að bjóða fyrirtækjum upp á niður-
skorna ávexti og grænmeti, fyrst sem
veislubakka fyrir fundi og aðrar
uppákomur, en í framhaldi fóru svo
að fást margvíslegir ávaxta- og græn-
metisbakkar í verslunum, sem höfðu
aldrei fengist þar áður.
Fyrst við vorum komin í verslanir
vaknaði sú hugmynd að bjóða líka
upp á alls kyns hollan skyndibita, en
lítið sem ekkert úrval var á boð-
stólum í verslunum af þess kyns
vörum. Þarna urðu til salatbakkar,
pastabakkar, samlokur og langlokur í
grófu brauði með hollu meðlæti, skyr-
búst og ýmislegt fleira. Þessar vörur
fóru í flestar matvöruverslanir og á
bensínstöðvar, en árið var 2006 og
þessi hugmyndafræði því líklega eitt-
hvað á undan tíðarandanum.
Þetta sama ár byrjuðum við svo að
gera út Heimilisbílinn. Þar var á ferð-
inni möguleiki fyrir heimili að panta
ávexti og grænmeti, alla
skyndiréttina okkar
auk ýmiss annars góð-
gætis og fá þetta sent
heim einu sinni í viku. Á
sama tíma fór Brauð-
bíllinn af stað, en hann
bauð fyrirtækjum upp á
hollt og gott brauð og
bakkelsi á föstudags-
morgnum til að fresta
eilítið þeim slaka sem
fólk tekur gjarnan á
mataræðið um helgar
og jafnvel í aðdraganda
helganna.
Í hartnær tvö ár sá svo Ávaxtabíll-
inn um allan matarkost í vélum Ice-
land Express. Þar varð þessi holla
hugmyndafræði að sjálfsögðu ofan á
og sætti það nokkrum tíðindum á
þessum vettvangi. Svo miklum
reyndar að vakti athygli erlendra
flugfélaga.
Ávaxtabíllinn hefur alltaf þótt au-
fúsugestur þegar börn og unglingar
eru annars vegar. Foreldrar hafa trú-
að því að hugmyndafræðin sé hnökra-
laus og börnum þeirra sé því óhætt að
fá sér þann kost sem boðið er upp á.
Við vorum því á tímabili með Holl-
ustusjoppur okkar í mörgum íþrótta-
húsum, sáum um veislukost á
uppskeruhátíðum yngri flokka og
ýmsum öðrum íþróttatengdum uppá-
komum.
Fyrir nokkrum árum fórum við svo
að bjóða fyrirtækjum og öðrum upp á
hádegismat, bæði kaldan og heitan.
Lykillinn sem fyrr, að kosturinn væri
léttur, hollur og góður. Við gerðum
líka hollar súpur, sem boðnar voru
frosnar í birgðaverslunum og einnig
nokkra frosna rétti sem hentuðu
einnig stórum hópum.
Árið 2011 stofnuðum við svo tvö ný
fyrirtæki sem við rákum með Ávaxta-
bílnum. Annað hét Barnavagninn og
framleiddi ferskan íslenskan barna-
mat úr ávöxtum og grænmeti. Fyr-
irtækið var staðsett suður í Garði og
var þessari nýjung ætlað að keppa við
þann innflutta niðursoðna barnamat
sem var og er það eina sem fæst í
matvöruverslunum. Hitt fyrirtækið
heitir Svarti Haukur og hefur fram-
leitt lúpínuseyðið hans Ævars í þrjú
ár. Nýlega setti það fyrirtæki á mark-
að nýja íslenska jurtavörulínu með
hvannardrykkjum, sem nú fást, auk
endurbætts lúpínuseyðis, í ýmsum
góðum verslunum.
Í dag býður Ávaxtabíllinn aðeins
upp á heila ávexti líkt og í byrjun, auk
þess sem við framleiðum veislubakka
úr ávöxtum og grænmeti. Við rekum
auk þess Svarta Hauk og þá drykki
sem fyrr er minnst á.
Einhver kann að spyrja hvað hafi
orðið um allt hitt. Því er svo sem ekki
auðsvarað. Nærtækt er að grípa til
skýringa, um að þetta frumkvöðla-
starf hafi verið unnið í einhverri
mestu niðursveiflu íslensks efnahags-
lífs fyrr og síðar. Önnur skýring gæti
verið, að margar af þessum hug-
myndum hafi verið á undan tíðarand-
anum. Líklega hefðu þessar nýjungar
svo einfaldlega þurft miklu meira
eldsneyti en tiltækt var og hefðu því
betur átt heima í rótgrónu fyrirtæki,
þar sem hægt hefði verið að fylla á
tankana þegar á móti blés. Ein-
hverjar hugmyndir kunna svo að hafa
verið fulldjarfar og aðrar hreinlega
ekki góðar.
Í sjálfu sér skiptir þetta ekki öllu
máli og við ætlum ekki að staldra við
fortíðina heldur læra af henni og
halda áfram. Í rauninni er þetta ná-
kvæmlega sama nálgun og á við um
flest annað í okkar samfélagi – það er
ekkert annað í boði en að halda áfram
og líta framtíðina björtum augum.
Með hollustu- og baráttukveðju frá
Ávaxtabílnum.
Ávaxtabíllinn 10 ára
– litrík ferðasaga
Eftir Hauk
Magnússon
»Hugmyndin byggðist
á því að gera fyr-
irtækjum auðvelt að
panta gott úrval ávaxta
reglulega án fyrirhafn-
ar.
Haukur
Magnússon
Höfundur er framkvæmdastjóri
Ávaxtabílsins.
Á undanförnum vik-
um hefur íþróttastarfið
verið meira í sviðsljósi
fjölmiðlanna en oft áð-
ur vegna þess að
kvennalið Aftureld-
ingar í blaki varð Ís-
landsmeistari í annað
sinn á þremur árum og
karlalið Aftureldingar í
handknattleik vann 1.
deildina og leikur því
að nýju í úrvalsdeild
næsta vetur. Þessi árangur íþrótta-
fólksins okkar er öllum öðrum iðk-
endum félagsins mikil hvatning til
frekari afreka og virkilega ástæða til
þess að óska þeim til hamingju með
árangurinn. Ekki er síður ástæða til
þess að víkja orðum að þeim sem
leggja á sig ómælda vinnu til þess að
þessi árangur náist. Þar á ég við alla
þá sem standa að þessum liðum, þ.e.
þjálfarateymin, stjórnirnar og alla
aðra sjálfboðaliða sem halda utan um
starf deildanna. Án þeirra næst ekki
árangur. Þeir leggja sig alla í verk-
efnin ekki síður en íþróttafólkið.
Mosfellsbær er ríkur af fólki sem
er reiðubúið til þess að leggjast á ár-
arnar til þess að starfsemi íþrótta- og
tómstundafélaganna í bænum megi
blómstra. Hvar væru Ungmenna-
félagið Afturelding, Skátafélagið
Mosverjar, Golfklúbbarnir Kjölur og
Bakkakot, Hesta-
mannafélagið Hörður
og Björgunarsveitin
Kyndill án þessa fólks
sem er reiðubúið til að
starfa þar sem ánægjan
ein er að launum? Já,
ánægjan ein yfir því að
sjá starfið halda áfram
að blómstra. Íþrótta- og
tómstundafélögin í
Mosfellsbæ vinna metn-
aðarfullt og árangurs-
ríkt starf sem borið hef-
ur hróður
bæjarfélagsins víða enda eru Mos-
fellingar stoltir af félögunum sínum
og því frábæra starfi sem þar er unn-
ið.
Þetta gildir þó ekki aðeins um
ofangreind félög. Fjöldi annarra fé-
laga blómstrar vegna óeigingjarns
starfs fólks sem leggur sín lóð á vog-
Félagsstarf í Mosfellsbæ
– innan félaga sem utan
Eftir Hafstein
Pálsson
» Félagsstarf í Mos-
fellsbæ auðgar
mannlífið í bænum og er
snar þáttur í menning-
arlífi bæjarins. Bæj-
arfélagið styður mörg
félaganna enda mikil og
góð þátttaka í starfi
þeirra.
Hafsteinn
Pálsson
HLAÐBORÐ
FYRIR FUNDinn
EÐA AFMÆLIð.
565 6000 / somi.is
Við bjóðum upp á ferska og ljúffenga
veislubakka og bjóðum ókeypis heim-
sending á höfuðborgarsvæðinu ef
pantaðir eru fjórir bakkar eða fleiri.
Pantaðu í síma 565 6000 eða á somi.is.