Morgunblaðið - 03.05.2014, Side 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2014
✝ Hrefna Ólafs-dóttir fæddist á
Syðra-Fjalli í Að-
aldal í Suður-
Þingeyarsýslu 15.
október 1933.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Þingeyinga 20. apr-
íl 2014.
Hún var dóttir
hjónanna Ólafs Sig-
urgeirssonar, f. 1.6.
1902, d. 24.9. 1982, og Sólveigar
Kristínar Bergsdóttur, f. 20.12.
1906, d. 15.10 1996.
Systkini Hrefnu: Óskírð, f.
Anna Kristín Ólafsdóttir, f. 7.4.
1957. Þau eiga tvö börn og tvö
barnabörn. 2) Ólafur Geir, f.
22.5. 1958, eiginkona hans er
Júlíana Káradóttir, f. 10.10.
1961, þau eiga fjóra syni og eitt
barnabarn. 3) Haukur Arnar, f.
14.2. 1966.
Hrefna ólst upp á Syðra-Fjalli
í Aðaldal, Suður-Þingeyjarsýslu.
Hún fór í Húsmæðraskólann á
Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu
veturinn 1952-1953. Hrefna
fluttist til Húsavíkur og bjó þar
til dánardags. Hún vann ýmis
störf en lengst af starfaði hún
við Heilbrigðisstofnun Þing-
eyinga við umönnunarstörf.
Útför Hrefnu fer fram frá
Húsavíkurkirkju í dag, 3. maí
2014, og hefst athöfnin kl. 11.
24.3 1937, d. 17.6.
1937. Sigurgeir, f.
15.5. 1938. Berg-
þóra Ósk, f. 16.10.
1941, d. 20.3. 1942.
Rögnvaldur, f.
25.11. 1944. Sigrún
Ósk, f. 4.5.1952, d.
29.8. 1972.
Hrefna giftist
hinn 28.10. 1955
eftirlifandi eigin-
manni sínum, Emil
Guðmundssyni, f. 3.10. 1933.
Börn þeirra eru: 1) Gunnar
Helgi, f. 6.8. 1955, d. 31.10. 2013.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Elsku duglega og góða amma
mín er búin að fá hvíld. Það var
alltaf svo gott að koma til
ömmu og afa á Húsavík. Enda-
laust margar minningar
streyma um hugann. Hjá ömmu
og afa byrjaði dagurinn oftast á
því að borða hafragrautinn
góða en þó ekki fyrr en ég var
búin að leita lengi og vel að föt-
unum mínum sem var undan-
tekningarlaust búið að þvo og
hengja útá snúru. Ef maður
vildi vera í sömu fötunum í tvo
daga í röð, faldi maður bara
fötin undir koddanum. Fór oft
með ömmu í Búrfell, kaupfélag-
ið að kaupa garn og í fiskbúð-
ina. Amma Hrefna bakaði bestu
kleinurnar og var víða þekkt
fyrir prjónaskap. Þrátt fyrir
mikla þolinmæði gat hún ekki
kennt mér að prjóna. Oft
reyndum við frændsystkinin á
þolinmæði ömmu þegar við
komum heim á Garðarsbrautina
eftir eina af mörgum ferðum
okkar með afa í fjöruna. Við
fylltum þvottahúsgólfið af alls-
kyns skeljum og steinum með
tilheyrandi sandi. Við spiluðum
oft saman og fórum í bíltúra um
sveitirnar.
Amma var alltaf svo góð að
hlusta og við töluðum um allt
og ekkert. Við gátum hlegið
mikið og lengi. Amma var mjög
hreinskilin og gaf góð ráð. Hef
saknað hennar lengi og mun
alltaf sakna hennar.
Elna Ósk.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Það er margs að minnast nú
þegar ég skrifa minningarorð
um elskulega mágkonu mína
sem við kveðjum í dag. Hrefna
var ein sú fyrsta er ég kynntist
þegar ég flutti til Húsavíkur
með drengina mína tvo og
tengdist henni fjölskyldubönd-
um.
Hún bauð okkur velkomin í
fjölskylduna og drengirnir köll-
uðu hana Hrefnu frænku. Við
urðum góðar vinkonur og deild-
um saman gleði- og sorgar-
stundum. Á Húsavík eignaðist
ég þriðja drenginn minn og í
hans huga var hún frænka með
stórum staf.
Það var vinsælt hjá þeim
bræðrum að skrappa „suðreftir
til Hrefnu“, stelast í herbergið
hans Hauks til að skoða dótið
hans og láta Emma smíða ým-
islegt fyrir sig og fá síðan mjólk
og kleinur við eldhúsborðið.
Mestalla starfsævi sína vann
Hrefna á sjúkrahúsinu á Húsa-
vík, samviskusöm og natin við
störf sín. Ég naut þess að eiga
hana að þegar ég lenti í veik-
indum og þurfti á sjúkrahús.
Hún var boðin og búin til hjálp-
ar.
Við fluttum síðan suður en
það var ljúf skylda að fara til
Húsavíkur á hverju ári í heim-
sókn til Hrefnu og Emma. Þau
komu líka suður til okkar og í
eitt af síðustu skiptunum var
það til að vera við brúðkaup
Einars Þórs og Kristjönu. Var
það afar ánægjulegt að þau
skyldu koma þá, því veikindi
Hrefnu voru þá farin að herja á
hana.
Síðustu árin voru henni erfið,
minnisglöp gerðu vart við sig
og ágerðust er á leið. Að lokum
fór hún á öldrunardeild sjúkra-
húss Húsavíkur, þar sem
starfsfólkið annaðist hana af al-
úð og væntumþykju. Fyrir það
skal þakkað.
Hrefna og Emmi voru alltaf
nefnd saman og eftir að hún fór
á sjúkrahúsið mátti stilla klukk-
una eftir heimsóknum hans til
hennar. Hann annaðist hana af
einstakri umhyggju í veikindum
hennar. Hans missir er mikill.
Við Geiri, synir okkar og fjöl-
skylda erum þakklát fyrir að
hafa átt Hrefnu að og við minn-
umst hennar með ást, virðingu
og þökk.
Blessuð sé minning hennar.
Þóra Ingibjörg
Guðnadóttir.
Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta
sinni hér
og hlýhug allra vannstu er fengu að
kynnast þér.
Þín blessuð minning vakir og býr í
vinahjörtum
á brautir okkar stráðir þú, yl og
geislum björtum.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Ég skrifa þessi orð til að
minnast Hrefnu Ólafsdóttur,
guðmóður minnar og föðursyst-
ur, sem lést á páskadag. Þegar
ég var lítill drengur að alast
upp á Húsavík var ekkert betra
en að fara í til Hrefnu og
Emma á Garðarsbrautinni og fá
þar kleinur og ískalda mjólk.
Hrefna gerði bestu kleinur í
heimi og þegar búið var að raða
í sig var farið í geymsluna hans
Emma undir stiganum. Þar
inni var maður á leiðinni út í
geim eða sigla skipum og stýr-
ið var þvingan á vinnuborðinu
hans Emma.
Svo fluttum við suður og
þegar ég kom sem unglingur í
heimsókn til Húsavíkur jafn-
aðist ekkert á við kleinuilminn
á Garðarsbrautinni.
Þótt ég væri kominn suður í
Kópavog þá var eitt sem klikk-
aði aldrei. Hrefna hringdi þeg-
ar ég átti afmæli og mér
fannst jólin koma þegar ég
fékk pakkann frá henni, sem
innihélt kleinur og annað dót.
Ég hringdi líka í hana þegar
hún átti afmæli og það var
gaman að rífast í henni um
veðrið. Það var alltaf gott veð-
ur á Húsavík, bara misgott.
Þegar Hrefna og Emmi
komu í heimsókn til pabba og
mömmu fékk ég símtal og fór
með öll börnin mín í heimsókn
og alltaf var hún jafnglöð að
hitta okkur. Við fjölskyldan
heimsóttum Hrefnu og Emma
eitt sumarið þegar við fórum
hringinn og hún bauð okkur í
hádegismat.
Við héldum að það væri eitt-
hvað létt að borða en nei það
var lambalæri, brúnaðar kart-
öflur og sósa. Við heimsóttum
hana aftur nokkrum árum síð-
ar og þá var hún komin á öldr-
unardeildina. Hún vildi endi-
lega fylgja okkur út og sjá
bílinn og tjaldvagninn, sem við
vorum með. Þegar hún var bú-
in að kveðja áttaði ég mig á því
að hún vissi ekkert hvar hún
var og hvert hún var að fara.
Ég fylgdi henni aftur inn og
var það fyndið hvað hún hafði
á þeim tíma húmor, því Hrefna
hafði lúmskan en skemmtilega
húmor fyrir lífinu og sjálfri
sér.
Hrefna og Emmi komu í
brúðkaup okkar 2010 og ég
veit að þeim fannst það rosa-
lega gaman og okkur þótti líka
vænt um að hafa þau hjá okkur
á þeim stóra degi.
Það var alltaf gott að koma
á Garðarsbrautina og ég er
mjög þakklátur að hafa hitt
Hrefnu fyrir einu og hálfu ári
og áttum við gott spjall saman
og var hún mjög brött. Sú
minning mun lifa lengi með
mér þar sem hún var orðin
mjög veik á þeim tíma.
Ég sendi Emma og fjöl-
skyldu samúðarkveðjur og ég
veit að Guð og allir hinir þarna
uppi verða sáttir við að fá
kleinurnar hennar.
Einar Þór Sigurgeirsson
og fjölskylda.
Hrefna Ólafsdóttir
✝ Sigurður Stef-án Friðriksson
fæddist 29. mars
1932 á Siglufirði.
Hann lést á sjúkra-
húsi Seyðisfjarðar
21. apríl 2014.
Hann var sonur
hjónanna Unnar
Jónsdóttur, f. 12.8.
1905, d. 4.8. 1996,
og Friðriks B.
Jónssonar, f. 28.3.
1896, d. 30.7. 1960. Sigurður
var elstur fjögurra systkina.
Elst var Jónhildur, f. 1936,
maki: Guðmundur Gíslason, f.
1926, d. 2008, Óskar f. 1938,
maki: Hugrún Ólafsdóttir, f.
1941, Ólafur, f. 1949, maki: Sig-
rún Þorbjörnsdóttir, f. 1948.
Hinn 19.10. 1957 kvæntist
Sigurður eftirlifandi eiginkonu
maki: Adela Sigurðsson. f.
1982, þau eiga þrjú börn. 4)
Ingibjörg, f. 1962, maki:
Trausti Marteinsson, f. 1956,
þau eiga þrjú börn og sex
barnabörn. 5) Björg, f. 1965, d.
2013. Hún á tvær stelpur og
fjögur barnabörn, eftirlifandi
maki er Þorsteinn Guðmunds-
son, f. 1959.
Sigurður flutti frá Siglufirði
12 ára gamall á Seyðisfjörð.
Hann fór á sjó með föður sínum
og einnig móðurbróður sínum,
Þorgeiri Jónssyni. Síðar fór
hann á togara í eigu Jóns Páls-
sonar og Ólafs M. Ólafssonar
og var þar í mörg ár. Ætlaði í
árs leyfi frá sjómennsku og fór
í vélsmiðju hjá Stefáni Jóhanns-
syni og var þar í mörg ár. Fór
svo aftur á sjóinn og var þar til
hann hætti vegna heilsubrests
árið 1997. Sigurður hafði eig-
inkonu, börn og fjölskyldur
þeirra í fyrirrúmi.
Sigurður verður jarðsunginn
frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 3.
maí 2014, og hefst athöfnin kl.
14.
sinni, Önnu Maríu
Haraldsdóttur, f.
18.9. 1933. For-
eldrar hennar voru
Salín María Þórð-
ardóttir, f. 1891, d.
1975 og Haraldur
Guðmundsson, f.
1876, d. 1958.
Anna María átti
þrjú systkini sam-
feðra sem öll eru
látin. Sigurður og
Anna María eignuðust fimm
börn. 1) María S., f. 1958, maki:
Þráinn E. Gíslason, f. 1956. Þau
eiga fjögur börn og fjögur
barnabörn. 2) Haraldur, f.
1959, maki: María Cecelía Sig-
urðsson, f. 1973. Þau eiga tvo
drengi, Haraldur á þrjá drengi
úr fyrri samböndum og tvö
barnabörn. 3) Unnar, f. 1960,
Kallið er komið. Elsku pabbi
minn sem hefur verið mín stoð og
stytta í gegnum árin er fallinn
frá. Hann var mér bæði faðir og
vinur.
Pabbi var rólyndismaður, vann
mikið og kvartaði aldrei. Ég lof-
aði honum að skrifa enga hól-
ræðu, en hann á skilið að fá hrós
fyrir það sem hann átti.
Ég vil þakka honum fyrir allt
sem hann gerði fyrir mig, barna-
börnin og tala nú ekki um lang-
afabörnin öll. Það síðasta sem
hann sagði við mig, þegar ég
kvaddi hann er ég fór norður við
fermingu langafastelpunnar
hans, var að biðja mig að fara vel
með stelpuna – og glotti. Ég veit
ég að pabbi er á góðum stað, um-
vafinn ástvinum okkar.
Blessuð sé minning góðs
manns.
Ingibjörg (Inga).
Afi minn. Ég sakna ykkar
mömmu svo sárt og allt er svo
tómt. En hjarta mitt er ennþá í
þúsund molum, sem ég verð alla
ævi að púsla saman. En ég vona
svo innilega að þér og mömmu
líði vel núna og þið eruð hvort hjá
öðru, ég veit þið fylgjist vel með
okkur.
Nú sefur þú í kyrrð og værð
hjá englunum þú nú ert.
Umönnun og hlýju þú færð
og veit ég að ánægður þú sért.
Ég kvaddi þig í hinsta sinn.
Ég kveð þig nú í hinsta sinn.
Blessun drottins munt þú fá
og fá að standa honum nær.
Annan stað þú ferð nú á
sem ávallt verður þér kær.
Ég kvaddi þig í hinsta sinn
Ég kveð þig nú í hinsta sinn.
Við munum hitta þig á ný
áður en langt um líður.
Sú stund verður ánægjuleg og hlý
og eftir henni sérhvert bíður.
Við kveðjum þig í hinsta sinn.
Þín
Aðalbjörg Þóra.
Sigurður Stefán
Friðriksson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
✝
Okkar ástkæra systir,
INGA VALGERÐUR JÖRGENSEN,
lést miðvikudaginn 5. mars í heimabæ sínum,
Frederiksværk í Danmörku.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Bent Bjarni Jörgensen,
Per Sören Jörgensen
og fjölskyldur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RANNVEIG ELÍN
SIGURTRYGGVADÓTTIR
frá Kornsá,
lést mánudaginn 28. apríl að Heilbrigðis-
stofnuninni á Blönduósi.
Útför hennar fer fram frá Blönduóskirkju föstudaginn
9. maí kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Heilbrigðisstofnun Blönduóss.
Jón Tryggvi, Guðmundur Karl, Sigurður Ingi,
Kristján og Ingibjörg,
tengdabörn og ömmubörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
DAGRÚN ERLA JÚLÍUSDÓTTIR,
Skipalóni 16,
Hafnarfirði,
lést á Landspítala, Fossvogi, þriðjudaginn
25. apríl.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 8. maí kl. 13.00.
Harry Jóhannes Harrysson,
Valdís Erla Harrysdóttir, Sigurður Pálmason,
Geir Júlíus Harrysson,
Harry Erik Jóhannesson
og barnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓHANNES JÓHANNESSON,
Sandholti 19,
Ólafsvík,
andaðist á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Jaðri, Ólafsvík, miðvikudaginn 30. apríl.
Hann verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn
10. maí kl. 14.00.
Þuríður Kristjánsdóttir,
Inga Jóhannesdóttir, Ágúst Sigurðsson,
Bergsveinn Jóhannesson, Ragnheiður Gunnarsdóttir,
Kristmann Jóhannesson, Svanborg Tryggvadóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Ástkær faðir okkar,
MAGNÚS GUÐMUNDSSON,
Kvisthaga 3,
Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
laugardaginn 19. apríl.
Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn
8. maí kl. 13.00.
Guðrún, Gylfi og Gauti Magnúsarbörn.